Morgunblaðið - 23.02.1958, Síða 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 23. febrúar 1958
65 ára
Reykjavlkurbréf
Flugmaður I millilandaflugi
óskar eftir íbúð, 3—5 herbergi og eldhús,
1. apríl eða 1. maí.
Tilboð sendist Morgbl. merkt: 8707.
íbúð óskast
Góð 3ja—4ra herbergja íbúð á góðum stað í bænum
óskast sem fyrst eða 14. maí.
Uppl. í síma 16690.
Kvenskór
margar gerðir
nýkomnar
S51
lArus g. löðvígsson
Steypusfyrktarjárn
10 mm járn komið til landsins.
Þeir, sem eiga pantanir, vinsamlega staðfesti
þær sem fyrst.
J. Þorláksson & Norðman hf.
BANKASTRÆTI 11
SKÚLAGÖTU 30
SÍMI 11280.
V eitingasfaður
í miðbænum í Reykjavík
í fullum gangi — matsala og veitingar — er til sölu
nú þegar.
Tilboð er greini útborgunarmöguleika, sendist Morg-
unblaðinu fyi ir 26. þ. m. merkt: Veitingastaöur 8717
WOC#
©ngitoí)
Rakkrem
Shampoo
Ilmsteinn
Talkum
Rakvatn
og flestar aðrar hreinlætisvörur fyrir konur og karla
Einkaumboðsmenn:
Agnor Norðijyrð & Co hf.
Frú Björg Andrésdöftir Þúinm
HINN 13. febrúar sl. átti frú
Björg Andrésdóttir Þúfum við
ísafjarðardjúp 65 ára afmæli. —
Langar mig til þess að minnast
þessarar mætu konu með nokkr-
um orðum eftir dúk og disk.
Þoreldrar hennar voru þau
Þorbjörg Ólafsdóttir og Andrés
Jóhannesson bóndi, er bjuggu á
Blámýrum í Ögurhreppi. Ólst
Björg þar upp og átti þar heima
þar til hún giftist manni sínum,
Páli Pálssyni í Vatnsfirði, síðar
bónda og hreppstjóra í Þúfum.
Giftust þau 24. apríl árið 1919
og hófu búskap sinn í Vatnsfirði
árið 1924. Stóð bú þeirra þar í
5 ár. Fluttu þau þaðan er nýr
prestur tók við Vatnsfjarðarstað
og hafa síðan átt heimili í Þúf-
um í Vatnsfjarðarsveit.
Frú Björg í Þúfum er hin
mesta mannkostakona, dugmikil
og hagsýn húsmóðir, hjálpsöm
og greiðvikin. Ber heimili henn-
ar svip snyrtimennsku hennar og
myndarskap í hvívetna. 1 allri
framkomu er hún háttprúð og
virðuleg. Þessi hlédræga kona
mætir hverjum sem er af yfir-
lætislausri alúð, sem vekur traust
og býður af sér góðan þokka.
^Hún nýtur þess vegna vinsælda
meðal allra er henni kynnast.
Frú Björg og Páll hreppstjóri
og oddviti í Þúfum eiga tvö upp-
komin og mannvænleg börn. Pal
hreppstjóra á Borg í Miklaholts-
hreppi, sem kvæntur er Ingu As-
grímsdóttur og Astu, sem gift
er Ásgeiri Svanbergssyni stúdent.
er nú býr með tengdaföður sín-
um í Þúfum.
Þá hafa þau Björg og Páll alið
upp 5 fósturbörn, sem þau haía
reynzt góð og trygg sem sínum
eigin börnum.
Það var ekki ætlan mín að
skrifa langa grein og tína bar
til allt, sem segja mætti vel um
frú Björgu í Þúfum. Mundi það
henni og lítt að skapi. En fyrir
hönd hinna mörgu vina hennar i
og kunningja vildi eg senda henni;
hugheilar hamingjuóskir með'
afmælisdaginn og mikið og gott
starf við hlið manns síns fynr
sveit sína og hérað. Þessi mæta
kona er merkur fulltrúi þess
hluta íslenzkrar kvenþjóðar, sem
vinnur mikið starf og berzt hljóð-
látri baráttu út um allar sveitir
okkar strjálbýla lands. Vinnudag
ur íslenzku sveitakonunnar er
e. t. v. lengri en flestra annarra
í þéssu landi. Hún rís árla og
gengur seint til náða. En hún
finnur til einlægrar gleði við
gróðurilm í lofti og jarm lítils
lambs á vordegi. S. Bj.
22997 | Grettisgötu 62 öT
Gætið yðar í tíma!
BINACA
verdenskendte medicinal
^INACA
TANDPASTA MEO ISOTROL
verndar tennur yöar i 8 klst. — Þetta heimsþekkta
svissneska tannkrem er nú komið á íslenzka markað-
inn. BINACA, sem ryður sér æ meira til rúms í Ev-
rópu og víðar, er fyrsta tannkremið með varanleg-
um áhrifum, sem hreinsar tennurnar með 100% árangri
og heldur hinum bakteríueyðandi áhrifum sínum í 8
klst. eftir burstun tannanna. Efnaformúlan fyrir
BINACA tannkrem, er frá hinni heimsfrægu lyfja-
rannsóknarstofu CIBA S.A. í Sviss. — Reynið
BINACA strax í dag og sannfærist.
Einkaumboð:
FOSSAR HF.
762 — Sími 16105.
i
I
I
Framh. af bls. 13
kosnir eru með atkvæðum ann-
ars flokks, og boluðu þannig
burtu af þingi mönnum, sem
Alþýðuflokksfólkið sjálft vildi
velja.
•Það eru starfshættir þessarai
tegundar, sem gera það að verk-
um að nú er í alvöru talað um
það, jafnt af Alþýðuflokksmönn-
um sem öðrum, að Alþýðulfokk-
urinn sé feigur, það sé einungis
tímaspurning hversu lengi hann
geti haldið líftórunni.
Sjálfstæðismenn eru á öndverð
um meið við Alþýðuflokkinn 1
íslenzkum stjórnmálum. En Sjálf
stæðismenn mundu ekki telja það
farsæla þróun, ef Alþýðuflokk-
urinn legðist niður. Um þetta fá
Sjálfstæðismenn þó engu ráðið.
Það eru Alþýðuflokksmenn einir,
sem geta haldið í sér lífinu. Ef
þeir taka það ráð að gerast mála-
liðsmenn hjá Framsókn eða öðr-
um flokkum er þeim dauðinn vís.
Þúsundir kjósenda hafa nú þeg-
ar yfirgefið þá af þeim sökum
og ef svó verður framhaldið er
ekki um að villast, að flokkur-
inn liðast skjótlega í sundur.
Lýoræois-
fjandskapur
Framsóknar
Framsóknarfl. fagnar þessari
þróun. Það er ekki nóg með, að
Dagur lýsi því opinberlega, að
Alþýðuflokkurinn sé á „hröðu
undanhaldi og niðurleið“, en Al-
þýðubandalagið í þann veginn að
verða „vaxandi og ábyrgur
verkalýðsflokkur.“ Tíminn og
raunar Alþýðublaðið sjálft hafa
ekkert við þessa yfirlýsingu Dags
að athuga. Niðurlæging Alþýðu-
blaðsins er svo mikil að það
minnist ekki einu orði á þessa
hátíðakveðju „samstarfsblaðs-
ins“ fyrir norðan. Tíminn hefur
og berum orðum sagt, að Fram-
sóknarmenn séu reiðubúnir að
ganga í einn flokk með og sam-
fylkja við „frjálshuga umbóta-
menn“ á borð við Guðmund Vig-
fússon, Guðmund J. Guðmunds-
son, Björn Jónsson og aðra erind-
reka Einars Olgeirssonar, manns-
ins, sem sat í þriðja sæti frá
sjálfum Krúsjeff á fagnaðarhátíð
kommúnista í Kreml nú fyrir
skemmstu.
Miðað við allt lýðræðisskvald-
ur Tímans fyrr og síðar kynnu
sumum að koma þessi afstaða
hans nú á óvart. Þeim, sem
kynnst hafa starfsháttum þess
flokks, fer ekki svo, því að eng-
inn íslenzkur flokkur, að komm-
únistum einum undanteknum, hef
ur verið lýðræðinu óhollari en
Framsóknarmenn.
Hverjir halda uppi haturs-
fyllstum rógi um andstæðinga
sína? Undir hverra áhrifum er
skikkanlegaheita maður, eins og
Helgi Sæmundsson, þegar hann
spyr, hvorn eigi að skjóta fyrst?
Hverjir hagnast mest á ranglátri
kjördæmaskipun? Hverjir voru
upphafsmenn Hræðslubandalags-
ins?
Aflafréttir af
Akranesi
í GÆR komu 11 bátar að með
samtals 96 lestir. Aflahæstir
voru: Keilir með 13 lestir og
Reynir með 10,7 lestir. Lægsti
báturinn hafði 5 lestir. Afli bát-
anna er mjög blandaður. Aðeins
einn daginn var þorskur með
meira móti, en síðan hefur hann
minnkað aftur. Sumir bátanna
hafa sótt 90 sjómílur á miðin,
og í einum róðrinum fór Böðvar
94 sjómílur héðan á haf út. Tog-
arinn Akurey landaði í gær og
í dag 227 lestum af þorski og
karfa. —Oddur.