Morgunblaðið - 23.02.1958, Síða 17
Sunnudagur 23. febrúar 1958
Moncrwnr aðið
17
Samhugur og góhur félagsandi
tryggbi V.R. samninga sl. vor
Félagsmenn fengu oð mehaltali 5 prs. grunnkaupshsekkun
-- Beina samningsaðild v/ð V.S.Í. — V.R. hafði for-
göngu um stofnun Landssamband ísl. verzlunarmanna
Á AÐALFUNDI Verzlunarmanna
íélags Reykjavíkur sl. miðviku-
dag voru afgreidd fjöldi mála
ög tillagna, samþykktar laga-
breytingar m. a. heimild til að
láta fara fram allsherjaratkvæða
greiðslu um stjórnarkjör o. fl.
Fundurinn samþykkti sam-
hljóða eftirfarandi tillögu í sam-
bandi við kjarasamninga þá, sem
félagið náði sl. vor:
„ASalfundur V.R. haldinn
19. febrúar 1958 lýsir ánaegju
sinni yfir árangri, sem náðist
í launa- og kjarabaráttu fé-
lagsins sl. vor. Lýsir hann yf-
ir þakklæti sínu við stjórn,
trúnaffarmannaráð og samn-
inganefnd félagsins fyrir for-
ustu í því máli og hversu giftu
samlega tókst um samninga.
Fundurinn hvetur stjórn og
trúnaffarmannaráff til að vera
aetíff vel á verffi um aff vernda
kjör félagsmanna og stefna
markvist að því aff bæta þau
og hindra aðgerðir, sem kunna
aff geta rýrt kjör verzlunar-
fólks“.
Formaður félagsins Guðm. H.
Garðarsson flutti skýrslu fé-
lagsstjórnar, sem var mjög ýtar-
leg og gaf til kynna, að starfsemi
V.R. á síðastliðnu starfsári hefur
verið mjög umfangsmikil. Félag-
ið vann að og náði samningum
um hærri laun og bætt kjör fé-
lagsmanna, Landssamband ís-
lenzkra verzlunarmanna var
stofnað fyrir forgöngu V.R.,
skipaðir hafa verið trúnaðar-
menn á 50 stærstu vinnustöðum,
þar sem skrifstofu- og verzlun-
arfóllc starfar, haldnir voru marg
ir félags- og trúnaðarmannafund-
ir, unnið að aukinni menntun
verzlunarfólks í samstarfi við
félagið Sölutækni og fleiri að-
ila, haldið áfram útgáfu Félags-
blaðs V.R. og látin fara fram
gagngerð viðgerð á Félagsheimili
V.R. við Vonarstræti.
Fundurinn hófst með því, að
formaður minntist látins heið
ursfélaga og velunnara V.R.,
Árna Einarssonar fyrrverandi
kaupmanns, og risu fundarmenn
úr sætum hinum látna til virð
ingar.
Fundarstjóri var kosinn Guð
jón Einarsson, fulltrúi, og fund-
arritarar þeir Gunnlaugur J.
Briem, og Hannes Þ. Sigurðsson.
Formaður flutti síðan skýrslu
félagsstjórnar, framkvæmdastjóri
félagsins, Sverrir Hermannsson
gerði grein fyrir reikningum fé-
lagsins og Gunnlaugur J. Briem
gaf skýrslu um Lífeyrissjóð verzl
unarmanna.
Hér fara á eftir kaflar úr ræðu
þeirri um starfsemi félagsins, sem
formaður flutti:
Erfiff kjarabarátta —
5% grunnkaupshækkun
Þaff mál, sem að sjálfsögðu bar
einna hæst á því starfsári, sem
fráfarandi stjórn skilar af sér,
voru launa- og kjarasamningar
þeir, sem gerðir voru sl. vor.
Stjórnin hafði rétt setið mán-
uð frá því að hún var kjörin á
aðalfundi, að farið var að ræða
innan hennar um að athuga mögu
leika á að ná betri samningum
við fyrri viðsemjendur félagsins,
þ. e. Verzlunarráð íslands, Sam-
band smásöluverzlana og Kaup-
félag Reykjavíkur og jiágrennis
og fá viðurkenningu annarra
vinnuveitendasamtaka, sem höfðu
skrifstofu- og verzlunarfólk í
þjónustu sinni, en þau samtök
voru: Vinnuveitendasamband ís-
lands og Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga.
Tók stjórnin og trúnaffarmanna
ráff félagsins þegar í upphafi þá
stefnu aff leggja bæri fram sann-
gjarnar kröfur, þar sem litlar
líkur væri til vegna verzlunar-
ástandsins í landinu (verðlags-
ákvæðanna), að mjög róttækar
kauphækkanarkröfur næðu fram
að ganga og óvíst var í upphafi
apríl-mánaðar, hvort stærri fé-
lög innan A.S.Í. myndu segja
upp samningum, en slíkt hefði að
sjálfsögðu styrkt V.R. mikið í
kjarabaráttunni. Reyndist þetta
nétt athugað, því Efnahagsnefnd
A.S.f. lagðist gegn því í lok apríl-
mánaðar, að félög innan samtak-
anna segðu upp samningum. Var
því fyrirsjáanlegt, að um engan
stuðning gat verið að ræða frá
þessum heildarsamtökum, ef í
harðbakka slæi.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
til að ná samningum án uppsagn-
ar tókst það ekki. Samþykkti því
almennur félagsfundur í V.R.
þann 29. apríl sl. að segja upp
samningum við vinnuveitendur
frá 1. maí. Var það gert að til-
lögu stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs.
Um miðjan maí mánuð var
fyrirsjáanlegt, að samningar ætl-
uðu ekki að ganga saman, og
ákvað því trúnaðarmannaráð fé-
lagsins að samþykkja verkfalls-
heimild til handa stjórn félags-
ins og' skyldi vinnustöðvun hefj-
ast frá og með 3. júni, ef samn-
ingar tækjust ekki íyrir þann
tíma.
Samningar náðust þann 2. júní
við Verzlunarráð íslands, Sam-
band smásöluverzlana, KRON og
Félag íslenzkra stórkaupmanna,
sem óskuðu eftir að undirrita
samninga sjálfir, en áður hafði
Verzlunarráðið gert það fyrir
þeirra hönd, Vinnuveitendasam-
band íslands og Félag íslenzkra
iðnrekenda.
Eitt og óstutt náffi V.R. fram
aff meffaltali 5% grunnkaups-
hækkun en þaff mátti teljast góff
ur árangur með tilliti til verð-
lags- og kaupgjaldsmála á þeim
tíma, því það ber að hafa hug-
fast, að hin þröngu verðlags-
ákvæði hafa neikvæð áhrif á af-
komu þeirra fyrirtækja, sem meg
inn þorri allra félagsmanna V.R.
vinnur hjá. Meðan núverandi
verðlagsákvæði eru í gildi, get-
ur kjarabarátta félagsins verið
mjög tvíeggjuð, því hún gæti leitt
af sér aukið atvinnuleysi þeirra,
sem við verzlun og vörudreifingu
fást.
Ótvíræffur samningsréttur V.R.
viffurkenndur
Glæsilegasti sigurinn í kjara-
baráttunni var án efa undirskrift
þýffingarmikilla vinnuveitenda-
samtaka eins og Vinnuveitenda-
sambands íslands, sem nú und-
irrituðu samninga við félagiff í
fyrsta skipti.
Þess má ennfremur geta, aff
Félag ísl. iðnrekenda tók nú í
fyrsta skipti beinan þátt í samn-
ingsgerff viff V. R.
í því felst ótvíræff viffurkenn-
ing á félaginu, sem hinu eina
stéttarfélagi verzlunar- og skrif-
stofumanna í Reykjavík. Meff
því er samningsréttur félagsins
viffurkcnndur af öllum vinnu-
veitendasamtökum, sem hafa
verzlunarfólk i þjónustu sinni,
nema S.t.S.
Að vel athuguð máli, var tal-
ið rétt að fara ekki út í verk-
fall, þótt ekki væri búið að ná
samningum við S.f.S. Var það
gert á grundvelli þess, að ekki
væri rétt að hætta hinum mikil-
með samningi við þau vinnuveit-
endasamtök, sem meginn þorri
félagsmanna V.R. vinnur hjá.
Samþykkt var að S.f.S. skyldi
skrifað og athygli vakin á því, að
verkfallsyfirlýsing V.R. héldi
fullu gildi sínu gagnvart því fyr-
irtæki, þar til samningar næðust.
Sáttanefnd vinnur aff lausn
S.t.S.-málsins
Það hefur óneitanlega mikla
þýðingu fyrir V.R., vegna fram-
tíðarsamninga, að jafnstór fyrir-
tæki og Samband ísl. samvinnu-
félaga undirriti samninga við fé-
lagið sem fyrst. Stjórn og trún-
aðarmannaráð hefur gert sér
þetta ljóst og hefir verið reynt
að ná samningum við SÍS. Til
þessa hefur það ekki tekizt. í
upphafi framhaldsviðræðna varð
að samkomulagi að skipa sátta-
nefnd í málinu. í henni eru Guð-
mundur Ásmundsson, annar lög-
fræðingur SÍS, Sverrir Hermanns
son framkvæmdastj. V.R. og
Guðmundur H. Garðarsson. Vinn
ur hún að lausn þessa máls.
V.R. mun í engu slaka á kröfu
sinni um aff samningar fáist við
SÍS eins og affra vinnuveitend-
ur á félagssvæffi V.R. Mun fé-
lagið grípa til tiltækilegra ráff-
stafana, ef ekki semst innan
tíffar.
athuga í sambandi við skipun
trúnaðarmanna félagsins.
Stofnun Landssambands
íslenzkra verzlunarmanna
Dagana 1. og 2. júní sl. var
stofnað í Reykjavík Landssam-
band íslenzkra verzlunarmanna
(LÍV) fyrir forgöngu Verzlunar-
mannafélags Reykjavikur. Með
þessari stofnun var stigið stórt
og merkilegt spor í þá átt að sam-
eina alla launþega í verzlunar-
stétt í sér hagsmunasamband. Ber
að fagna þeim áfanga. Auk V.ll.
stóðu sjö félög að stofnun sam-
bandsins. Síðan Landssambandið
var stofnað hafa þrjú ný félög
verzlunarmanna verið stofnuð og
hafa þau öll gengið í sambandið.
Mun nú 3—4000 manns standa að
sambandinu og er V.R. langfjöl-
mennasta félagið með rúmlega
2000 félagsmenn.
Mikinn undirbúning þurfti fyr-
ir stofnun landssambandsins og
unnu þar mikið og gott starf
Guðjón Einarsson, Sverrir Her
mannsson, frkv.stj. V.R., sem
hlaut kosningu sem fyrst formað-
ur LÍV og Gísli Einarsson, lögfr.
V.R. Kann félagið þessum mönn-
um þakkir fyrir störf þeirra, sem
og nefndinni, sem um málið fjall
aði, en hana skipuðu auk Guð-
jóns Einarssonar, þeir Ingvar N.
Pálsson, Böðvar Pétursson, Pét
ur Sæmundsen og Björgúlfur
Sigurðsson.
Verzlunarmenn um land allt
binda miklar vonir við þetta
landssamband og vænta þess að
friður og eining megi ríkja um
það, svo að því megi takast að
efla hin einstöku sambandsfélög
í hagsmunabaráttu þeirra.
verðlagsmál, Lífeyrissjóð verzl-
unarmanna o. fl.
Frídagur verzlunarmanna var
haldinn hátíðlegur með tveim
dansleikum, tvær jólatrésskemmt
unir voru haldnar fyrir börn fé-
lagsmanna og 3 skákkvöld voru
haldin.
Fræffslustarfsemi
Félagið tók þátt í undirbúningi
á kvöldskóla fyrir afgreiðslufólk
í verzlunum, námskeiði fyrir skrif
stofufólk o.-fl.
4 tölublöð voru gefin út af
Félagsblaði V.R.
Skrifstofa félagsins afgreiddi
fjölda mála á árinu og veitti
félagsmönnum fyrirgreiðslu eftir
því, sem þeir þurftu á að halda.
Þakkaffi formaður síðan félags
mönnum, stjórn og framkvæmda-
stjóra fyrir gott samstarf og vel
unnin síörf á árinu og óskaði fé-
laginu heilla í framtíðinni.
Samningar vegna afgreiffslu-
stúlkna í lyfjabúðum
í sambandi við almennu kjara
kröfúrnar var lögð fram sér-
krafa fyrir afgreiðslustúlkur i
lyfjabúðum, þar sem þær
hafa nokkra sérstöðu innan verzl
unarstéttarinnar sérstaklega varð
andi vinnutíma. Samkomulag náð
ist ekki um þessa sérkröfu, en
það varð að samkomulagi milli
V.R. og Verzlunarráðsins, að
samið skyldi um viðbótarákvæði
vegna þessara stúlkna síðar.
Var hér um að ræða samninga
um kaup og kjör afgreiðslu-
kvenna í lyfjabúðum, sem nú
munu vera um 60 að tölu.
Reykjavíkur Apótek samdi
fyrir sitt leyti og voru stúlkur
í því apóteki mjög ánægðar með
samningana.
Er málið í sambandi við samn-
inga við önnur apótek nú á því
stigi, að allar horfur eru á, að
samningar náist á næstunni. Er
stöðugt unnið að lausn málsins.
Sterk samstaffa félagsmanna
tryggffi samninga
Hinn góði árangur, sem náð-
ist í kjaradeilunni í vor er fyrst
og fremst að þakka sjálfum fé-
lagsmönnum V.R. Þeir sýndu sam
hug, samheldni og dug, þegar
mest reiff á. Þeir voru ekki meff
hávaffa effa sýndarmennsku, held
ur unnu félagsmcnn í kyrrþey
jafnt og þétt að settu marki að
bæta sín kjör. í félagi okkar býr
mikill dulinn styrkur, sem kom
áþreifanlega fram á síðastliðnu
vori.
Samninganefndin, en hana
skipuðu: Sverrir Hermannsson,
Gunnlaugur J. Briem, Hannes Þ.
Sigurðsson, Ásgeir Hallsson og
Björgúlfur Sigurðsson, á miklar
þakkir skilið fyrir sitt ágæta
starf í sambandi við samningana
sl. vor.
Trúnaffarmenn á ▼innustöffum
Haldið hefur verið áfram við
uppbyggingu trúnaðarmannakerf
isins og er nú svo komið, að fé-
lagið hefur trúnaðarmenn á 50
stærstu vinnustöðum í Reykja-
vík. Er það mikið verk og sein-
legt að koma trúnaðarmanna-
Kcnnsla
Danskur Húsmæðraskóli
Als Husholdningsskole, Vollerup
St. ved Sþnderborg.
Tekur gjarna á móti ungum
íslenzkum stúlkum, til náms,
gegn hálfu námsgjaldi.
Námst.: 5 mán. námsk. maj—okt.
— 3 — — maj.—ág.
— 5 — — nóv.—apr.
— 3 — — jan.—apr.
Námsskrá sendist gjarna.
J-óhanna Hansen.
væga árangri, sem búið var að ná kerfinu upp, því margt þarf að
Samstarf viff önnur stéttarfélög
Undanfarin ár hefur það ver-
ið venja, að V.R. hefir borizt
boð frá Trúnaðarráði verkalýðs-
félaganna í Reykjavík um að
taka þát í hátíðahöldum 1. maí.
Á síðastliðnu ári tók stjórnin þá
ákvörðun að taka þessu boði og
skipaði hún fulltrúa í undirbún-
ingsnefnd fyrir 1. maí hátíða-
höldin.
Það er augljóst mál, að V.R.
eins og önnur stéttarfélög, sem
hafa verkfallsrétt, verður aff eiga
sinn kjarabaráttudag. Félagið
verður að geta myndað samstöðu
með öðrum sterkum stéttarfélög-
um, ef það á að vera nokkurs
megnugt í launa- og kjarabaráttu
sinni fyrir félagsmenn. En það er
einnig æskilegt, að félagið eigi
sameiginlegan dag með vinnu-
veitendum sinum, þar sem þessir
aðilar bera klæði á vopnin og
vinni saman að sameiginlegum
hagsmunamálum launþega og
vinnuveitenda í verzlunarstétt,
því er ekki að leyna, að oft hefur
verið vegið að verzlunarstéttinni
í heild af utanaðkomandi öflum.
Það er mikilsvægt að launþegar
í verzlunarstétt geri sér grein
fyrir þeirri staðreynd, að afkoma
þeirra er samantvinnuð afkomu
þeirra fyrirtækja, sem þeir vinna
hjá.
Með hliðsjón af framangreindu,
var talið rétt sl. ár að taka upp
samstarf við önnur stéttarfélög í
Reykjavík um 1. maí hátíðahöld-
in og líía aftur á frídag verzlunar
manna, sem sameiginlegan dag
allrar verzlunarstéttarinnar, þar
sem engin pólitík væri rekin,
hvorki gegn vinnuveitendum né
öðrum. Þessa stefnu hélt stjórn
V.R.
Hliðstæða stefnu hafa sjó-
mannafélögin um land allt rek-
ið, en þeirra kjarabaráttudagur
er 1. mai, eins og hjá öðrum stétt
arfélögum, en fyrsti sunnudagur
í júní er sameiginlegur hátíðis-
dagur allra sem við sjávarút-
veg fást, þótt mest beri á þátt
sjómanna í þeim degi.
Erlendis tíðkast það einnig, að
stéttarfélög skrifstofu- og verzl-
unarmanna myndi samstöðu með
öðrum félögum á þessum degi,
enda eru þau í flestum vestræn-
um löndum í heildarsamtökum
launþega.
Félagsfundír og félagsfif
Alls Voru hardftir 6 ffelagsfuncf-
ir. Voru þeir um samningana,
Félagslíf
Kaffikvöld skíðamanna. Mánu.
daginn 24. p.m. ki. 9 í Aðalstræti
12, uppi.
Skíðaráð Reykjavíkur og lands
mótsnefnd, fundur kl. 8 á sama
stað.
Áríðandi að allt skíðafólk mæti.
Skíðadeild Í.K.
— Í.R.
— Ármanns.
— Vals.
— Víkings. ;
Skiðasveit skáta. *
'Skíðafélag Rvk.___
Glímufélagiff Árniann
helciur almennan félagsfund í
Ldduhúsinu við Li-.dargötu,
þriðjudaginn 25. febrúar kl. 9 síð
degis. Dagskrá: Rætt un hús-
byggingar og vallarmál félagsins.
Félagar, fjölmennið. — Stjórnin.
Knattspyrnufélagiff Valur
Aukafundur verður haldinn.
þriðjudaginn 25. febrúar í félags
heimilinu að Hlíðarenda. Fundur-
inn hefst kl. 20,30. Fjölmennið
stundvíslega. — Stjórnin.
Þjóffdansaféla,. Reykjavíkur
Æfingar hjá öllum flokkum I
Skátaheimilinu í kvöld.
Sundmót K.R.
verður haldið í Sundhöll Reykjn
víkur briðjudaginn 18. marz n.
k. kl. 8,30 e.h. Keppt verður i
þessum greinum:
um Sindrabikarinn.
100 m. br:ngusund karla. Keppt
100 m. skriðsundi karla.
100 m. baksundi karla.
100 m. skriðsundi kvenna. —<■
Keppt um Flugfreyjubikarinn.
100 m. bringusundi kvenna.
50 m. bringusundi telpna.
100 m. skriðsundi drengja.
50 m. bak’undi drengja.
50 m. bringusundi drengja, 14
—16 ára. —
50 m. bringusundi drengja —
yngri en 14 ára.
4x50 m. skriðsundi karla. —
Tilkynningar um þátttöku skul»
sendar til Jóns Otta Jónssonar,
Vesturgötu 36A, Reykjavík, sími
14061, í síðasta lagi 11. marz næst
komandi. —
VID f/tKJAVIÍMNUSTOf A
OC VIOf<íKJASAtA
Lauíáaveg 41 — Sími 13678