Morgunblaðið - 23.02.1958, Side 22

Morgunblaðið - 23.02.1958, Side 22
22 MOKCT’ynr 4rtiÐ Sunnudagur 23. febrúar 1958 Finnar hér á ferðinni FRETTAMENN drukku í gær kaffi með Sigurði Magnússyni, blaðafulltrúa Loftleiða, og nokkr um Finnum, sem dvalizt hafa hér á landi í boði félagsins síðan á fimmtudag. Ferðalangarnir eru 11 saman, og fararstjóri er Lars Colliander, aðalumboðsmaður Loftleiða í Helsinki. Félagar hans starfa flestir við finriskar ferða- skrifstofur. Colliander er ungur og rösk- legur maður. Hann er forstjóri ferðaskrifstofu, sem nefnist Ilmailukeskus Oy, er útleggst Loftferðamiðstöðin h.f., og hefur verið umboðsmaður Loftleiða í rúmt ár. Finnar skipta mikið við hið íslenzka félag, enda flýgur hvorugt finnska flugfélagið lagið" nokkuð dýrt. Tvígengis- miði milli höfuðborganna kostar 4.436,00 kr. — Verðlag hér á landi töldu gestirnir um helmingi hærra en í Finnlandi, yfirleitt, en þó er hótelkostnaður ekki miklu meiri hér. Colliander lét vel af íslands- vistinni. Finnarnir hafa farið víða um í Reykjavík og ná- grenni og notið gestrisni ýmissa aðila. Fararstjóranum varð m. a. tíðrætt um, að hér norður í hin- um yztu höfum hefði hann séð bananatré í fyrsta sinn á ævinni. Er blaðamenn kvöddu hina finnsku gesti vantaði einn í hóy þeirra, sem inn höfðu gengið. Var það Karl ísfeld, en ljóshærð og glæsileg blaðakona frá Ilta Sano- (Finnair eða Kar-Air Oy) til Ameríku. A síðasta ári fóru um 200 manns með vélum þessara félaga til Kaupmannahafnar til að stíga þar um borð í farkosti Loftleiða og ferðast með þeim vestur yfir hafið. Blaðamenn spurðu ýmissa spurn inga um ferðamál. Finnarnir sögðu, að ferðamenn gerðu ekki sérlega tíðreist til þúsund vatna landsins enn sem_ komið væri. Ferðalög milli íslands og Finn- lands eru ekki heldur algeng, enda vík milli vina, — og ferða- mat (Kvöldblaðinu) hafði ‘dregið hann út í horn til að ræða um Kalevalaþýðingar. — Heim fara Finnarnir árdegis í dag. SALONICI, 22. febr. — Júgó- slavneskur flugforingi lenti hér eins manns herflugvél og baðst hælis sem pólitískur flóttamað- ur 1 Grikklandi. Hefur honum verið veitt hæli — og flugvélin send aftur til Júgóslaviu. Úfvarpshljómsveitin HLJÓMSVEIT Ríkisútvarpsins heldur næstu opinbera tónleika sína í hátíðasal Háskólans sunnu- daginn 23. febrúar, í kvöld kl. 20.15; undir stjórn hins vinsæla hljómsveitarstjóra síns, Hans- Joachim Wunderlich. Senn eru fjórir mánuðir liðnir frá þvi er Wunderlich tók við stjórn Hljóm- sveitar Ríkisútvarpsins, og hafa Waverly, lowo, U.S.A. BOBGARTCNI 7 — RL*iv<i/n . 0 BANTAM er eina vélskóflan af þessari heppilegu stærð, sem fæst á beltum, sjálfknúnum vagni eða sem bílkrani. 0 BANTAM kraninn er að öllu leyti byggður af SCHIELD BANTAM verksmiðjunum, sem tryggir beztu gæði og hámarks afköst. 41 0 BANTAM kranar vinna hundruð mismunandi verka á hag- kvæmasta hátt með 9 mismunandi vinnutækjum, sem öll eru smíðuð af SCHIELD BANTAM verksmiðjunum. 0 BANTAM er stærsti vélskóflu framleiðandinn í heimi. 0 BANTAM eru ódýrari, vegna hins mikla fjölda, sem framleiddur er .... og viðhalds og rekstrarkostnaður er ávallt i lágmarki, jafnvel eftir margra ara erfiða notkun. 0 BANTAM lyftir 6 og 7 smálestum og mokar 3/8 cubic yard skóflu. 0 Sérstök áherzla er lögð á fullkomnar varahlutabirgðir umboðs- manns vors. Einkaumboðsm. sem er hægt að setja á þrjár gerðir undirvagna TRUCK CRANE BANTAM T-3S CRAWtER BANTAM C-35 SEIF- PROPELLED BANTAM CR-35 / vinsældir hennar ekki minnkað við það. Hljómsveitin hefur á þessum tíma leikið bæði mjög létt verk og jafnhliða vandaðar tónsmíðar hinna mestu snillinga. Á tónleikunum í kvöld verða flutt þrjú verk eftir Ludwig van Beethoven: Fyrst „Coriolan“- forleikur op. 62, einn af stór- fenglegustu forleikjum Beethov- ens. — Þá leikur hinn vinsæli píanóleikari okkar, Rögnvaldur Sigurjónsson, með hljómsveitinni píanókonsert nr. 1 í C-dúr op. 15. — Konsertinn er að vísu ekki eitt af mestu snilldarverkum meistarans, en þrungið æskufjöri og gleði. — Síðasta verkið á efnis skránni er Sinfónía í 'C-dúr, hin svonefnda „Jena“-sinfónía. Tón- listarfræðingar hafa deilt um hvort þessi sinfónía væri raun- verulega eftir Beethoven, en nú er almennt viðurkennt að svo sé. — Prófessor Fritz Stein fann handrit að þessu verki í nótna- safni tónleikafélagsins „Aca- demic Concerts" í Jena í Þýzka- landi árið 1909. Sinfónían ber þess glögg merki, að hún er æsku verk höfundar, sennilega samin meðan Beethoven var enn innan við tvítugsaldur. — Öll þessi verk hafa það sameiginlegt að vera mjög áheyrileg og auðskil- in, jafnvel fyrir þá, sem kunna lítt að meta hin þyngri og veiga- meiri verk þessa mikla snillings. Tónleikarnir í hátíðasal Há- skólans í kvöld hefjast kl. 20.15 og er öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Hlátursefni fyrir 2000 kr. SIGURÐUR Benediktsson upp- boðshaldari seldi bækur í Sjálf- stæðishúsinu síðdegis í gær. Spegillinn frá upphafi var sleg inn á 2.000,00 kr. Þetta er í fyrsta sinn, sem Sigurður selur Speg- ilinn. Eintakið var gott og 23 fyrstu árgangarnir í fallegu skinn bandi. Konuagsskuggsjá („Kongs- Skugg-Sio“, útg. í Sórey 1768, fal- legt eintak) 1.400 kr. Almanak Þjóðvinafélagsins frá upphafi til 1920, ýmist óbundið eða í lélegu bandi, 1.100 kr. Bréf til Láru, 1. útg., 650 kr. Nokkrar sögur Kiljans (Rvík 1923), frekar slæmt eintak, 620 krónur. Alþýðubókin (Rvík 1929) 400 krónur. Kvæði Bjarna Thorarensens (1. útg., Höfn 1847) 400 kr. Kvæði Jóns Thoroddsens (1. útg., Höfn 1871) 500 kr. Matthías Jochumsson: On the Tercentenary Commemoration of Shakespeare. (London 1916, sér- prentun) 750 kr. Sigríður Eyjafjarðarsól, leikrit eftir Ara Jónsson. (Akureyri 1879) 350 kr. Sigurður heldur enn tvö bóka- uppboð á þessum veir: K

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.