Morgunblaðið - 23.02.1958, Page 23
Sunnudagur 23. febrðar 1958
MORGUNRLAÐIÐ
23
Flugmaður lýkur 7 daga
99tilrauuaför44 til tunglsins
PAN ANTONIO, Texas. — Bandarískur flugmaður að nafni Donald
G. Ferrell, hefur lokið vikuferð til tunglsins. Hann hefur verið
lokaður inni í stálhylki í 7 langa daga. Að vísu var hylkið fast við
jörðu og aldrei skotið upp með eldflaug, en Donald varð að lifa
og hrærast í því með líkum hætti og fyrstu geimfararnir munu
verða að búa við.
Myndin er frá Kaíró og sýnir flugæfingu egypzka flughers-
ins. Það er auðvitaff rússneskar sprengjuflugvélar sem hér
eru aff hefja sig tii flugs. '
Hitíun hítur ekki á
drottninffaranó&urina
Þurfti ekkert aff óttast
1 þessari vísindalegu tilraun,
*em er undirbúningur undir
tunglferðir, losnaði „tilraunadýr-
ið“ að vísu við þrjár örðugustu
þrautirnar, sem sé flugtaks-rykk-
inn, þyngdarleysið, þegar komið
er út fyrir aðdráttarafl jarðar og
geimgeislana. En það sem vísinda
mennirnir vildu fá upplýsingar
um var hvernig menn tækju þvi
að vera innilokaðir í litlum klefa
í vikutíma. Þó er það að sjálf-
sögðu vitað, að flugmaðurinn
þurfti ekki að óttast neitt um líf
sitt í mjúku sæti sínu og auk þess
gat hann hvenær sem var, ef
honum leiddist, stutt á hnapp,
sem sendi út beiðni um að sleppa
honum út.
Reglusamlr lifnaffarhættir
Strax og stálhurð hylkisins
hafði verið skrúfuð á eftir Donaid
var loftið þynnt, þar til innan i
hylkinu var aðeins helmings-
þrýstingúr venjulegs andrúms-
lofts. En samtímis því var súr-
efnismagnið tvöfaldað, svo jafn-
mikið súrefni kæmi sem fyrr í
lungu hans.
Farrell átti að lifa mjög reglu-
sömu lífi. A hverjum 14 klst. átti
hann að sofa I 4% klst., vinna r
8 klst. og til máltíða og hrein-
lætisverka skyldi fara 1% klst
Farrell hafði gnægtir niður-
soðinna matvæla í kiefa sínum.
Hann hafði vatn og mjólk í flösk-
um og þótti honum maturirin svo
góður, að hann borðaði helmingi
fléiri hitaeinmgar en hann var
vanur ella. A hverjum degi burst
aði hann í sér tennurnar og rak-
aði sig. Hann kastaði af sér vatni
1 flösku og hægði sér í plastpoka.
KAIHO, 22. febrúar. — Kairo-
útvarpið skýrði svo frá í kvöld,
að úrslit þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar í Egyptalandi og Sýrlandi
hefðu orðið sem hér segir:
í Egyptalandi kusu liðlega sex
milljónir — og voru þar 247 and-
vígir stofnun ríkjasambands Sýr-
lands og Egyptalands. í Sýrlandi
greiddi 1,3 millj. atkvæði — og
þar voru 139 andvígir ríkjasam-
bandinu.
Jafnframt var kosinn forseti
ríkjasambandsins — og í Egypta-
landi hlaut Nasser öll atkv. að
Ekki hrif inu
af Kennan
NEW YORK, 18. febr. — Willy
Brandt, borgarstjóri V-Berlínar,
lét svo um mælt á blaðamanna-
fundi í New York í dag, að allar
samningaviðræður um Þýzka-
landsmálin yrðu að byggjast á ná
inni samvinnu Bandaríkjanna og
annarra vestrænna ríkja. Var
hann inntur eftir áliti á ummæi-
um Kennans á dögunum — og
dró Brandt enga dul á það, að
hann var mjög óánægður með
þau. Um meðallangdrægar eld-
flaugar og stöðvar fyrir þær í
Þýzkalandi, sagði hann, að sem
borgarstjóri væri honum mjög
umhugað um að treysta varnir
borgarinnar eins og kostur væri.
Athuga bæri vel tilboð Banda-
ríkjamanna.
Borgarstj órinn heldur nú heim
leiðis. Hann hefur verið á hálfs
mánaða ferðalagi um Bandarík-
in og hitt m.a. Eisenhower og
Nixon að máli.
Fylgdist meff klukkunni
Alla þessa sjö daga gætti
hvorki dags né nætur í tungl-
klefanum. Geimfarinn hafði arm-
bandsúr og dagatal og strikaði
yfir hvern dag, þegar klukkan
var 12 á miðnætti.
Farrell fékk skilaboð um
hvernig hann ætti að stjórna
tækjum gegnum ritunartæki. —
Annað samband fékk hann ekki
að hafa við aðra menn. Hann gat
leikið á hljómplötur með því að
styðja á hnappa. Fylgdust vís-
indamenn með ýmsum mælitækj-
um er sýndu, hvort hann þreytt-
ist eða hvort honum leiddist. Það
var ekki að sjá, að tilraunin hefði
neiri slæm áhrif á flugmanninn
Þegar hann kom út úr hylkinu
voru margir háttsettir menn í
bandaríska flughernum og kunn-
ir stjórnmálamenn viðstaddir.
svo sem Lyndon Johnson, for-
ingi demókrata í öldungadeild
Bandaríkjaþings. Stálhurðin var
skrúfuð frá og út kom fyrsti
„geimfarinn". Hann var aðeins
dálítið stífur eftir kyrrseturnar,
en að öðru leyti hinn hressastL
Samfylkingroíin
LONDON, 22. febr. — Forsætis-
ráðherra Súdans hefur dregið
flokk sinn út úr samfylkingunni
gegn Nasser, sem allir flokkarn-
ir mynduðp, er egypzki herinn
réðist inn í landamærahéruð
Súdan. Síðar í dag rufu allir
flokkarnir samfylkinguna vegna
þess að Nasser féllst á að hefja
viðræður um landamæraþrætur,
er Öryggisráðið tók málið til með
ferðar í gær.
265 undaskildum — og einnig öll
í Sýrlandi að 187 undanskildum.
Mikill mannfjöldi safnaðist
saman í kvöld í Kario til þess að
fagna Nasser. Þá var tilkyrmt í
Kario, að sýrlenzka þingið yrði
leyst upp samkv. úrslitum þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar. Nasser
hefur skipað Amas yfirmann
sameiginlegs hers ríkjanna.
Samkomur
Hjálpræðislierinn
Kl. 11: Helgunarsamkoma. Kl.
14: Sunnudagaskóli. Heimilasam-
bandið stendur fyrir samkomunni.
Kl. 20,30: Major Svava stjórnar.
Allir velkomnir.
Fíludelfía
Sunnudagaskóli kl. 10,30. — Á
sama tíma í Eskihlíðarskóla. Árs
samkoma safnaðarins kl. 2. Alm.
samkoma kl. 8,30. Ræðumenn: Ás
mundur Eiríksson og Tryggvi Ei-
ríksson. — Allir velkomnir.
Almennar samkoniur
Iloffun fagnaffurcrindisins,
Hörgshlíð 12, Reykjavík kl. 2
í dag. — Auslurgötu 6, Halnar-
firffi kl. 8 í kvöld.
BræSraborgarstíg 34
Sunnudagaskóli kl. 1. — Alm.
samkoma kl. 8,30. Allir velkomnir.
Kristilcg samkoma
í dag í Betaníu kl. 5. — Bjarni
Og Þórffar Jóliun.,cssynir.
Z I O N
Sunnudagaskóli kl. 2 e.h. Alm.
samkoma kl. 8,30 e.h. Hafnarfjörð
ur: Sunnudagaskóli kl. 10 f.h. Al-
menn samkoma kl. 4 e.h. Allir vel-
| komnir.
Heimatrúkoff lcikmuuna.
SIDNEY, 22. febr. — Ekki gefur
þeim vel, Ástralíumönnum, að
fagna móður Elísabetar Enlands-
drottningar, sem nú er á ferð þar
syðra. Hitabylgja mikil gengur
nú yfir héraðið umhverfis Sidn-
ey — og er hitinn óbærilegur.
í dag kannaði drottningarmóðir-
in kvennaherflokk — og féllu 28
þeirra í ómegin meðan á athöfn-
inni stóð. Er drottningarmóðirin
★ NEW YORK, 20. febrúar. —
Túnis-stjórn hefur sent Hammar
skjöld framkvæmdastjóra S.Þ.
fjögur bréf með ákærum á hend-
ur Frökkum. í fyrsta bréfinu er
fjallað um framkomu Frakka í
bænum Remada í Suður-Túnis. í
öðru bréfinu er kvartað um sam-
drátt mikils herafla á landamær-
um Túnis og Alsír. í hinu þriðja
er rætt um flotastöð Frakká í
Bizerta og loks segir í fjórða bréf
inu frá vopnum og skotfærum
sem fundizt hafi í húsum franskra
borgara, er vísað hefur verið úr
landi í Túnis.
I. O. G. T.
Barnustúkun Svava nr. 23
Fundur kl. 2. Inntaka og Ymis
skemmtiatriði.
Barnastúkan Æskan nr. 1
Fundur í dag kl. 2. Framhalds
sagan o. fl. til skemmtunar. —
St. Frón nr. 227
Félagar, munið heimsókn til St.
Morgunstjörnunnar nr. 11 á
morgun. — Æ.t.
Burnastúkan Æskan nr. .
Fundur í dag kl. 2. Framhalds
sagan, söngur við guitarspil. —
Gæzlumaður.
Víkingur
Fundur annað kvöld, mánudag,
í G.T.-húsinu kl. 8,30.
Skýrsla Sjúkrasjóðsstjómar.
Frásögupáltur: Villijálmur S.
Vilhjálnisson rithöfundur. — önn
ur mál. — Fjölsækið stundvíslega.
Hafnarf jörður.
St. Morgimstjarnan no. 11.
Fundur annað kvöld. St. Frón
no. 227, heimsækir. Systurnar
annast fundinn.
Leikþáttur.
Bögglauppboð o. fl.
Templarar fjölmennið.
ók um götur borgarinnar féllu á-
horfendur umvörpum á götuna,
hitinn hafði gersamlega lamað
þá. Litlu munaði að þrjár stúlk-
ur féllu undir bíl hins konung-
lega gests — og tókst lögreglu að
forða slysi. Drottningarmóðirin
fékkst ekki einu sinni til þess að
hafa sólskýli — og talið er, að
hún hafi verið sú eina í allri
Sidney, sem ekki lét bilbug á
sér finna.
Fá aðeins
hálfkommar lán ?
LAGOS, Nigeriu, 22. febrúar —
Stjórn Nigeriu hefur kvartað
undan því að Bandaríkjastjórn
virtist örari á lánsfé og styrki
til þeirra ríkja, er ættu í leyni-
makki við kommúnista en ríkja,
sem væru heilsteypt og trú lýð-
ræðishugsjón Vesturlanda. Fjár-
málaráðherrann sagði í ræðu 1
þinginu, að svo virtist, sem Banda
ríkjastjórn daufheyrðist við öll-
um umleitunum um lán þar til
kommúnistar væru farnir að
grafa um sig í viðkomandi lönd-
um. Sagði hann það mun skyn-
samlegra af Bandarikjunum að
reyna að styrkja einlæga banda-
menn en að ausa stórfé í alla
þá, er léku tveim skjöldum —
og gætu allt eins vel ofurselt
kommúnismanum alla fjárfest-
ingu svo og land sitt áður en
dagur risi.
„Mikið
sólin falleg“
NISSA, 22. febr. — Walter
Brookwell er Englendingur og
kominn af léttasta skeiði. Fyrir
nokkrum dögum var hans getið
í forsíðufréttum ensku blaðanna
vegna þess, að hann hafði unnið
206,000 sterlingspund í knatt-
spyrnugetraun. Fjölskylda Brook
wells er stór — og frekar fátæk.
Hann hefur aldrei veitt sér þann
munað að ferðast — og þess vegna
ákvað hann að fara í 10 daga
ferð til Frakklands, þegar hon-
um höfðu hlotnazt auðæfin í get-
rauninni. I dag kom hann flug-
leiðis til Nissa ásamt 8 fjölskyldu
meðlima sinna. Þetta var í fyrsta
skipti sem hann fór í flugvél —
og einnig er þetta fyrsta ferð
hans úr Englandi. „Mikið er sól-
in falleg", sagði hann, þegar hann.
steig út úr flugvélinni, slík var
gleði gamla mannsins.
Maðurinn minn
ÖLAFUR A. BJÖRNSSON fltr.
Andaðist aðfaranótt laugardags 22. þ. m.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir.
Bróðir okkar
JÓN SIGBJÖRNSSON
frá Vík í Fáskrúðsfirði, andaðist 1 Boston 19. þ. m.
Systkinin.
Eiginmaður minn og faðir okkar
OLGEIR SIGURÐSSON
húsasmíðameistari, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 24. þ. m. kl. 1,30.
Afþökkum vinsamlegast blóm.
Athöfninni verður útvarpað.
Hólmfríður Sigurðardóttir,
og synir.
Jarðarför eiginmanns míns
ÞORKELS JÓNSSONAR,
bifvélavirkja,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 24. febrúar
klukkan 3 e. h.
María Vilhjálmsdóttir.
Hugheilar þakkir til allra, er auðsýndu samúð við frá-
faU föður okkar
EINARS ÞORKELSSONAR
Hróðnýjarstöðum, Dölum.
Börn og tengdabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát
og jarðarför
HANNIBALS HÁLFDÁNARSONAR
Aðstandendur.
tfrslit þjóðoratkvæðagreiðslunnar
Nasser nœr einróma kjorinn forseti