Morgunblaðið - 23.02.1958, Page 24
VEÐRIÐ
Austan kaldi, léttskýjaff, frost
3—5 stig'.
(WgtUtMlt&Ífr
46. tbl. — Sunnudagur 23. febrúar 1958.
Reykjavíkurbréf
er á bls. 13.
Utanríkisráðuneytið staðfestir frá-
sögn Mbl. um vörubrask Regins
Ekki fleiri skip teldn i
landhelgi um 30 ára skeið
Jáfar að leyfishafinn hafi
misnotað aðstöðu sína
Eftirfarandi fréttatilkynning frá
Utanrikisráðuneytinu barst blaðinu
i gær
VEGNA skrifa Morgunblaðsins í
gær vill utanríkisráðuneytið taka
fram eftirfarandi:
í marzmánuði 1957 var samið
um, að íslenzkir aðalverktakar sf.
tækju að fullu við framkvæmd-
um fyrir varnarliðið í stað banda
rískra verktaka. Jafnhliða var
samið um, að íslenzkir aðalverk-
takar sf. annaðhvort keyptu af
verkfræðingadeild varnarliðsins
eða fengju til afnota ýmsar bygg-
ingar á Keflavíkurflugvelli, verk-
stæði, efni, tæki, varahluti og
önnur áhöld, sem þar voru til
staðar og þyrfti að nota við fram-
kvæmdir.
íslenzkir aðalverktakar sf
fóru þess nýlega á leit við ráðu-
neytið, að það heimilaði þeim, að
nokkrar birgðir af byggingarefni
o. fl., sem safnazt hefur saman
og félagið hefði ekki not fyrir,
fengust tollafgreiddar samkvæmt
mati og ráðstafað á innlendum
markaði.
Ráðuneytið heimilaði íslenzk-
um aðalverktökum sf. þetta, varð
andi vöruafganga.
Jafnframt ritaði róðuneytið lög
reglustjóranum á Keflavíkurflug-
velli og fól honum að dómkveðja
tvo matsmenn til þess að meta
umrædda vöruafganga til tolls.
Eftir að íslenzkir aðalverktak-
ar sf. höfðu haíið flutninga á um-
ræddum vörum út af Keflavíkur-
flugvelli, taldi Sölunefnd varnar-
liðseigna, að farið væri inn á
verksvið nefndarinnar, þar sem
um fleiri vörur væri að ræða en
þær sem talizt gætu vöruafgang-
ar.
Ráðuneytið gerði þegar hinn
19. þ. m. ráðstafanir til þess að
stöðva flutningana og er málið í
athugun.
Þess er rétt að geta, að Sam-
einaðir verktakar fengu á síðast-
liðnu hausti heimild ráðuneytis-
ins til að flytja út af Keflavíkur-
flugvelli vöruafganga með svip-
uðum hætti.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 22. febrúar 1958.
Þessi fréttatilkynning ráffu-
neytisins hrekur í engu þaff sem
skýrt var frá í Morgunblaffinu í
gær um braskiff meff varnarliffs-
vörurnar, heldur stafffestir í
meginatriffum þaff, sem blaðiff
skýrffi frá.
Það er athyglisvert í fréttatil-
kynningunni að hið útgefna leyfi
á fyrst og fremst að hafa verið
fyrir afgöngum af byggingarefni
og er ekki um aff villast aff ráffu-
neytiff telur aff Reginn hf. hafi
misnotaff þaff leyfi ráffuneytisins,
enda voru vörur þær sem félagiff
flutti út af vellinum og keypti,
alls konar varningur, sem ekkert
á skylt viff byggingarefni, er með
venjulegum hætti gæti talizt til
vöruafganga, s. s. fatnaður, teppi
og rúmföt og margvísleg önnur
vefnaffarvara, kæliskápar, eldhús
áhöld og skrifstofuvélar, svo
dæmi séu nefnd, en vörutegund-
irnar skiptu alls hundruffum.
Fréttatilkynning róðuneytisins
staðfestir því að hér er um stór-
fellt misferli að ræða, þótt ráðu-
neytið reyni svo sem unnt er að
breiða yfir hneykslið.
Þess er rétt að geta að það mun
algerlega rangt, sem segir í frétta
tilkynningunni að Sameinaðir
verktakar hafi fengið leyfi til að
flytja út af Keflavíkurflugvelli
vöruafganga „með svipuðum
hætti“ eins og leyfi ráðuneytis-
ins til Regins hf. á að hafa hljóð-
að um.
Þaff leyfi sem S. V. fengu og
var í mjög smáum stíl miðað við
þau ósköp, sem hér er um að
ræða, náffi affeins til afganga, sem
S. V. höfffu sjálfir flutt inn og
notaff viff framkvæmdir á Kefla-
víkurflugvelli. Þessu er hins veg-
ar ekki til að dreifa í sambandi
Guðriin Á. Símonar
í „3. dagskrá64 BBC
Það er næsta fátítt að ísl. lista-
mönnum sé boðið að koma fram
í brezka útvarpinu. Út af þessu
brá þó á föstudagskvöldið, því að
þá söng þar hin víðfræga lista-
kona, Guðrún Á. Símonar. Kom
hún fram í „3. dagskrá".
í Bretlandi er dagskrá þessi
einnig nefnd, menningardagskrá
in eða „háskóli loftsins“. Svo sem
þessi nöfn gefa til kynna, er ein-
göngu flutt 1 dagskrá þessari
margskonar klassísk efni og eru
flytjendur jafna valdir úr hópi
beztu listamanna eða annarra af-
burðamanna. Má þess t.d. geta
að m.a. úrvalsefnis er einvörð-
ungu flutt þar sígild tónlist, dag
skráin er einkum ætluð hinum
vandlátari hlustendum, enda þyk
ir það mikill frami að koma fram
í „3. dagskránni". — Á föstu-
dagskvöldið söng Guðrún Á. Sím
onar eingöngu íslenzk lög, níu
talsins, og voru þau þessi: Fugl-
inn í fjörunni og ísl. vöggulög á
hörpu eftir Jón Þórarinsson,
Kossavísur og Sáuð þið hana
systur mína, eftir Pál ísólfsson,
Hættu að gráta hringaná og
Sofðu rniga ástin mín, eftir Svein
björn Sveinbjörnsson, Vögguljóð
og Kom eg upp í Kvíslarskarð,
eftir Sigurð Þórðarson, Sortnar
þú ský eftir Emil Thoroddsen. —
Undirleik annaðist einn af aðal-
undirleikurum BBC, Clifton Helli
well.
Lög þessi söng Guðrún inn á
segulband er hún var í Lundún-
um á sl. hausti.
við Reginn hf. Er þar um allt
annað að ræða og hafa slík við-
skipti aldrei áður verið heimiluð
neinum nema Sölunefnd varnar-
liðseigna, sem er opinber aðiii.
Hins vegar er rétt að vekja at-
hygli á því, að matsmennirnir,
sem kvaddir voru til að meta vör-
urnar til tollskráningar, voru
ekki tilnefndir af varnarmála-
deild, eins og Mbl. sagði í gær,
heldur dómkvaddir af lögreglu-
stjóranum á Keflavíkurflugvelii.
Aðol-
íundur
Heim-
dullor
HEIMDALLUR, F.U.S., heldur
aðalfund í dag kl. 2 síðd. í Sjálf-
stæðishúsinu.
Á fundinum fara fram venju-
leg aðalfundarstörf.
Varðoríundur
ó þriðjudag
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ
Vörffur mun halda fund í
Sjálfstæffishúsinu n.k. þriffju-
dag kl. 8.30 og verffur Bjarni
Benediktsson, ritstjóri, frum-
mælandi.
Nánar verffur skýrt frá
fundi þessum í þa-iffjudags-
blaðinu.
Frá Alþingi
Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelais-
gœzlunnar mjög ánœgður með varð’-
gœzlu flugbátsins Rán
í GÆRKVÖLDI skýrði Pétur Sig
urðsson forstjóri Landhelgis-
gæzlunnar frá því útvarpinu, að
á árinu 1957 hefðu 33 skip verið
staðin að ólöglegum veiðum, en
þar af voru erlendir togarar 14,
en hin skipin voru innlendir
dragnótabátar. Kvað Pétur Sig-
urðsson þetta vera mesta fjölda
skipa, sem staðin hafi verið að
broti gegn landhelgisveiði hér
við land sl. 30 ár. p
Forstjórinn gerði síðan grein
fyrir landhelgisgæzlu skipanna
almennt, en varðskipin hafa alls
siglt 193.000 sjómílur á árinu, og
varðflugbáturinn Rán sem tók 4
togara að veiðum, flaug 53.000
mílur, en flugvélin flaug nú
meira en nokkru sinni fyrr, en
Rán naut að sjálfsögðu aðstoðar
varðskipanna og var það Þór í
3 skipti en Albert í eitt. Gat Pét-
ur þess að á árinu hafi verið
byrjað á gæzluflugi að nætur-
lagi, en Rán hefur verið búinn
ljóskastara radartækjum og
fleira og kvað forstjórinn þetta
hafa gefið mjög góða raun.
Hér gat forstjórinn þess enn-
fremur að varðskipln hefffu v*ltt
innlendum og erlendum skipum
aðstoð í rúmlega 120 skipti, þá
sagði hann frá fiski- og hafrann-
sóknarstarfi, en Landhelgisgæzl-
an lagði til í þessu skyni Maríu
Júlíu og svo Ægi. Taldi Pétur
ástæðu til þess að athuga hvort
ekki sé rétt að hafa eitt skip ein-
göngu í þessum rannsóknum áriS
um kring.
Á árinu voru 10 tundurdufl gerff
óvirk, þar af höfðu togarar feng-
ið sex dufl í vörpur sínar, en hin
rak á land á Norðurlandi.
Nokkrum orðum vék Pétur
Sigurðsson að eflingu gæzlunnar
og komst hann m.a. svo að orði:
Efling gæzlunnar þarf okki
beinlínis að þýða fleiri varðskip,
heldur hæfari skip, — þ.a.a.i.
gangmeiri og þar af leiðandi yf-
irleitt stærri, — eða þá ef betur
þætti henta, fleiri flugvélar, hrað
báta eða jafnvel .kafbáta. Hins-
vegar eru minni og þar af leið-
andi ódýrari skip ágæt til báta-
aðstoðar. Hvert einstakt þessara
tækja getur ekki leyst allan
vanda, — hvert þeirra hefir sína
kosti og galla. Fjárráðum okkar
ebu takmörk sett, og því er verið
að reyna að ná sem beztum áiv
angri á sem ódýrastan hátt, sagði
forstjórinn.
— Sikpulagning og viðbragð*-
flýtir er kjörorð nútímans, — og
það gildir ekki síður á þessu
sviði sem öðru.
Af eðlilegum ástæðum hafa
landhelgismálin ætíð átt óskiptri
athygli alþingis og ríkisstjórna
að fagna, — enda veit ég að þeim
er vel ijóst að stækkuð fiskveiði
landhelgi krefst eðlilega aukinn-
ar gæzlu, — og ég býst við að all-
ir séu sammála um að leysa það
vandamál á sem hagkvæmastan
hátt, fyrir okkur alla, sagði Pétur
Sigurðsson að lokum.
Veðrasamui vetur ó Hólsfjöllum
Þangað hafa bílar ekki komið síðan um
miðjan desember
DEILDARFUNDIR verða á Al-
þingi á morgun. í efri deild verð
ur 3. umr. um frumv. um kostnað
við rekstur ríkisins; 2. umr. um
réttindi verkafólks. í neðri deild
verður 1. umr. um frumv. um
breytingar á hegningarlögunum
og 18 önnur frumv. sem standa í
sambandi við hegningarlagabreyt
inguna. Einnig verður 2. umr.
um frumv. til umferðarlaga.
GRUNDARHÓLI, á þorraþræl —
Fjárgeymsla hefur verið bænd-
um nokkuð erfiðari hér í vetur
en undanfarna vetur. Er það
einkum vegna þess, hve veðra-
samt hefur verið. Jörð hefur
alltaf verið nokkur, en þó mis-
jöfn og voru storkur á tímabili,
upp úr áramótum og fram til
þorrakomu. Þá hlánaði og gerði
góða jörð.
Misjafn afli hjó Horna-
fjarðorbótum
Villandi veðurspá orsakaði landlegu
í ágætu veðri
HÖFN, Hornafirði, 28 febrúar. —
Hornafjarðarbátarnir hafa róið
alla þessa viku. Afli hefur verið
misjafn, frá 3 lestum upp í 11
lestir. Mb. Akurey veiddi nokk-
uð af loðnu í háf um daginn, en
illa fiskaðist á loðnuna.
Mb. Fanney kom hingað inn í
gærkveldi, en báturinn er á
loðnuveiðum fyrir Vestmannaeyj
ar. — Hafði Fanney fengið 15
tunnur af loðnu.
Góff handfæraveiffi
Mb. Hafbjörg frá Neskaupstað
hefur komið hér inn tvo daga í
röð með ágætisafla á handfæri,
sem hún hefur veitt hér rétt utan
við ósinn. Var Hafbjörg með 7
lestir annan daginn og 8 lestir
hinn. Aflinn var stór þorskur.
Villandi veffurspá
Tveir Hafnarfjarðarbótar hafa
verið hér með net og lítið fengið.
Þó mun afli eitthvað vera að
glæðast hjá þeim. Bátarnir reru
ekki í gærkveldi vegna ótryggr-
ar veðurspár. Þeir hefðu þó ekki
getað fengið betra sjóveður en i
dag. Þegar spáð er fyrir suð-
austurmið, er það svo mikið
svæði, að alveg ólíkt veður get-
ur verið vestur undir Portlandi
og hér áustur við Stokksnes, eða
ef til vill austar. Það þyrftu að
vera nákvæmari skil á milli svæð
anna en nú eru. — Gunnar.
Hroea ganga úti
Þorrinn hefur verið nokkuð
snjóasamur en þó er ekki kom-
inn mjög mikil fönn. Er dálítil
jörð enn ef vel viðrar. Milli
50—60 hross eru enn á útigangi
og hafast vel við en þó hafa
stormarnir átt illa við þau og
eru þau lakari af þeim sökum
en búast hefði mótt við.
Nokkur vanhöld urðu á fé,
fyrrihluta vetrar vegna veðra en
þó ekki tilfinnanleg.
Gangandi í póstferffum
Samgöngur hafa engar verið
með bílum síðan um miðjan
desember og hefur pósturinn far-
ið ýmist ríðandi eða gangandi í
póstferðirnar. Fóður og matvæli
eru nægileg til í hreppnum til
vors. —Víkingur.