Morgunblaðið - 25.02.1958, Blaðsíða 2
<
2
MORCVWBT/4Ð1Ð
Þriðiudagur 25. febr. 1958
Hvert er söluverð og tollverð
á vörunum, sem braska átti með?
Áframhaldandi yfirklór út af vörubraskinu
á ICeflavíkurvelli
EFTIRFARANDI bréf frá stjórn
íslenzkra aðalverktaka (Regins
h.f.) barst Mbl. í gær:
„Vegna skrifa nokkurra blaða
undanfarna daga. um sölu ís-
lenzkra Aðalverktaka s.f. á vöru-
afgöngum frá starfssemi sinni á
Keflavíkurflugvelli óskar stjórn
félagsins að taka fram eftir-
farandi:
1. Upphæðir þær, sem nefndar
hafa verið í þessu sambandi, eru
úr lausu lofti gripnar, svo sem
þegar þess er getið til að gróði
aí þessum viðskiptum geti numið
milljónum eða milljónatugum.
Vörur þær, sem vér höfum flutt
út af flugvallarsvæðinu eru sam
kvæmt mati dómkvaddra manna
207 þúsund króna virði og eftir
er aðeins að flytja þriðjung af
því, sem ætlunin er að flytja
og heimildar hefur verið óskað
fyrir.
2. Það er gefið i skyn, að ís-
lenzkir Aðalverktakar s.f. hafi
misnotað heimildir, sem þeir hafa
til að flytja vörur út af flugvall-
arsvæðinu. Slíkt kemur auðvitað
ekki til greina, þegar af þeirri
ástæðu, að allir slíkir flutningar
fara fram undir nákvæmu eftir-
liti tollgæzlunnar, sem gengur úr
skugga um, að gildandi heimild-
ir séu fyrir hendi.
3. Fullyrt hefur verið að ís-
lenzkir Aðalverktakar s.f. hafi
keypt af varnarliðinu vörur, sem
annar íslenzkur aðili hefði ella
fengið keyptar á lægra verði. —
Það skal því tekið fram hér skýrt
og afdráttarlaust að félagið hef-
ur aldrei keypt af neinum banda
rískum aðila á Keflavíkurflug-
velli neinar vörur, sem nokkur
annar íslenzkur aðili gæti átt
kost á að kaupa.
Sumarið 1957 var flutt út til
Bandaríkjanna mikið af vélum,
tækjum og ýmsum vörum frá
flugvellinum án þess að nokkrum
öðrum en íslenzkum Aðalverk-
tökum væri gefinn kostur á að
kaupa þær og þær vörur, sem fé-
lagið keypti þá, hefðu farið
sömu leið, ef félagið hefði ekki
fest kaup á þeim.
4. í einu dagblaðanna er full-
yrt að Reginn h.f. eigi vörur
þessar og selji þær. Þetta er
rangt. íslenzkir Aðalverktakar
s.f. eiga þessar vörur og annast
sjálfir sölu þeirra, þó hún fari
fram í vöruhúsum Regins h.f.
Að endingu villi félagið láta
í ljós undrun sína á því, að
ábyrg dagblöð skuli hlaupa með
söguburð af þessu tagi, þegar
auðvelt væri að afla upplýsinga
um hið sanna í málinu, og nota
síðan þann söguburð til rætinna
árása á einn af stjórnarmönnum
félagsins og vandamenn hans.
Reykjavík, 24. febr. 1958.
Stjórn íslenzkra Aðalverktaka sf
Helgi Bergs, Tómas Vigfússon,
Ingólfur Finnbogason,
Vilhjálmur Árnason“.
Út af ofanrituðu vill Mbl. taka
fram eftirfarandi:
Cm lið 1. Mbl. hefur aðeins
nefnt áætlunarupphæðir í þessu
sambandi, enda engar nákvæm-
ar upplýsingar verið unnt að fá,
en vitað ér, að hér var um vöru-
tegundir að ræða, sem skiptu
hundruðum og hér var ætlunin
að stofna til miklu stærri við-
skipta við varnarliðið en dæmi
eru til áður.
Það sem sagt er í bréfinu um
matsverð til tolls og hve
mikið hafi verið „ætiunin" að
flytja út af vellinum til Regins P
h.f. í Silfurtúni, þá er hér sýni- WUi ^ul A |l>i u
lega um yfirklór að ræða, enda
hefur nú vörubrask þetta venð
„stöðvað" að tilnlutan yfirvalda.
Um lið 2. í fréttatilkynningu
utannkisráðuneytísins, sem birt
var í Mbl. á sunnudag var bein-
um orðum játað að ráðuneytið
hafi stöðvað vörubraskið með því
að leyfishafinn hafi farið út fyrir
þá heimild, sem honum var veitt
og fyrst og fremst miðaðist við
afganga af byggingarvörum en
náði ekki til vefnaðarvara eða,
kæliskápa auk ótalmargs annars.
Það er svo aftur augljóst ósam
ræmi í því, þegar ráðuneytið
telur, að flutningarnir hafi far-
ið út yfir það, sem heimild var
veitt til og hinu sem segir
í bréfinu hér að ofan, að toll-
gæzlan á Keflavíkurflugvelli hafi
gætt þess að „gildandi heimildir
væru fyrir hendi“, þegar flutn-
ingar fóru fram. Rekst því hér
hvað á annað, eins og oftast er,
þegar óhreint mjel er í pokan-
um. En þess skal getið, að toll-
gæzlan á Keflavíkurflugvelli
heyrir undir varnarmáladeild,
sem veitti h.f. Regin „leyfið".
Loks skal á það bent, að þeir sem
mótu vörurnar til tolls voru skip
aðir af lögreglustjóranum á Kefla
víkurflugvelli, en hann er einmg
skipaður af varnarmáladeild.
Um lið 3. í sambandi við það,
sem stendur í þessum lið, er rétt
að sá, sem bréfið ritar skýri frá
því á hverju hann byggi það, að
engir aðrir en íslenzkir aðalverk-
takar, (Reginn h.f.), hefðu getað
fengið að kaupa þær vörur, sem
hér er um að ræða. Svar við
þessu væri því fróðlegra að fá,
sem öll viðskipti við varnarliðid
hafa hingað til gengið í gegnum
einn opinberan aðila, sem er Sölu
nefnd varnarliðseigna. Ennfrem-
ur er rétt að bréfritarinn upplýsi
afdráttarlaust, hvert er sundur-
liðað verð á vörunum, sem keypt
ar voru af varnarliðinu svo og
matsverð hverrar vöru til tolls
og kemur þá sannleikurinn um
verðið í ljós.
Það hefur ekki verið vitað fyrr
en nú, að íslenzkir aðalverktak-
ar hafi keypt vörur af Varnar-
liðinu 1957 og er rétt að bréfrit-
arinn upplýsi einnig hverjar þær
vörur voru svo og tollverð þeirra
og söluverð.
Um lið 4. Því er algjörlega mót
mælt að Mbl. hafi notað þetta
mál, sem raunar er stórhneyksli
„til rætinna árása“. Mbl. hefur
aðeins kýrt frá staðreyndum um
menn og um málefni í þessu sam-
bandi, en þegar skýrt er frá
hneykslismáli, telja þeir sem
hneykslinu valda, að jafnaði, að
það sé „árás“ að skýra frá því.
Það stendur eftir sem áður
óhaggað að hér er um að ræða
mesta vörubrask, sem stofnað
hefur verið til og að það var
Reginn h.f., sem hafði alla for-
göngu um það mál. Það er enn-
fremur óhaggað, að hér ætlaðí
Reginn h.f. sér að komast fram
hjá Sölunefnd varnarliðseigna
og ná stórkostlegum hagnaði, sem
annars hefði runnið í ríkissjóð,
auk þess sem ekki var horft í þá
gjaldeyriseyðslu, sem af þessu
vörubraski leiddi.
En eftir að utanríkisráðuneyt-
ið hefur stöðvað braskið af því,
að það neyddist til þess, er svo
reynt að klóra yfir hneykslið og
þá gróðafíkn, sem á bak við ligg-
ur- Arturo Frondizi hinn nýkjörni
forseti Argentínu
Peronislar veilfu Frondizi
sigur í forselakosningum
BUENOS AIRES, 24. febr. — 1 forsetakosningunum, sem fram
fóru í Argentínu á sunnudaginn hefur forsetaefni það sem Peron-
istar studdu unnið stórfelldan sigur. Eftir þessi úrslit er talið,
að Peronistum verði veitt stjórnmálafrelsi og jafnvel er taliö
bugsanlegt að Juan Peron fyrrum einræðisherra verði leyft að
snúa heim, en hann dvelst nú í útlegð í Dominikanska lýðveldinu.
Sigurgleði Peronista
Sigurvegarinn í forseta-
kosningunum er Arturo Frond
izi, 49 ára að aldri. Hann
hefur fengið um 3,9 milljón-
ir atkvæða, en andstæð-
ingur hans, Ricardo Balbin,
54 ára, hefur hlotið um 2,5
milljónir atkv.
Voru samherjar
Báðir þessir frambjóðendur,
Frondizi og Balbin, fylgdu áður
sama flokki að málum, hinum
svokallaða róttæka flokki, sem
var í stjórnarandstöðu við Per-
on. En eftir að Peron var steypt
af stóli klofnaði róttæki flokk-
urinn. Eitt aðalágreiningsefnið
var einmitt, hvernig ætti að með-
höndla gamla Peronista. Tók
Frondizi málstað peirra og taldi
óhæft í lýðræðisríki, að Peronist-
arnir væru sviptir rétti til þátt-
töku í stjórnmálum. Var það eitt
helzta kosningaloforð Frondizis
að flokkur Peronista skyldi aftur
leyfður. Fyrir það bauð Peron
öllum fylgismönnum sínum að
styðja hann.
Þegar úrslit voru sýnileg í
kvöld’ flutti Frondizi útvarps-
ávarp og lýsti hann þar yfir, að
hann stæði við öll sín kosninga-
loforð.
Það er talinn lítill vafi á að
stuðningsmenn Perons hafi fært
Frondizi sigurinn, enda voru þeir
mjög sigurglaðir í kvöld og fóxu
í hópgöngur um götur Buenos
Aaires.
Frá Dominikanska lýðveldinu urnar
berast og þær fréttir að Juan
Peron sé hæstánægður með úr-
slitin. Hann tilkynnti blaðamönn-
um, að ný öld væri upp risin
í Argentínu.
Sjómaður missir
allan fatnað sinn
SL. fimmtudagskvöld, um sex-
leytið, var sjómaður að nafni
Jóhann Guðnason, á leið til
Grindavíkur. Ætlaði hann að
fara með bíl frá Bifreiðastöð ís-
lands. Var hann með farangur
sinn með sér, svartan sjópoka og
brúna tösku. í pokanum og tösk-
unni voru öll föt hans, yzt sem
innst, önnur en þau, sem hann
stóð í.
Jóhann skrapp andartak frá
bifreiðastöðinni og skildi farang-
ur sinn, sem yar ómerktur, eftir.
Er hann kom aftur, var hvort
tveggja horfið. Hann hefur nú
snúið sér til Morgunblaðsins í
þeirri von, að það gæti orðið
honum að liði í þessu efni. Eru
það vinsamleg tilmæli hans, að
sá, sem tók farangur hans í mis-
gripum þarna á stöðinni, hringi
sem fljótast í síma 13965.
Varla getur hjá því farið, að
sá sem tók pokann og töskuna
hafi fljótlega orðið var við mis-
tökin. Sem geta má nærri, er
mjög bagalegt fyrir Jóhann, að
tapa öllum fötum sínum, og væri
óskandi að þessi misskilningur
leiðréttist sem fljótast.
r
Isalög og
refíiveiðar
ÍSAFJARÐARDJÚPI 24. febr. —
Undanfarna daga hefur verið
stillt veður og frost allmikið. Hef
ir nú innfirði djúpsins, Mjóafjörð
og ísafjörð lagt ísi, svo nú verður
ebfiðara með ferðir djúpbátsins,
og samgöngur á sjó. Refaskytt-
urnar, sem eru þar frá Reyk-
hólasveit hafa nú skotið 7 refi
í Vatnsfjarðarsveit á stuttum
tíma og lítur vel út með þá veiði.
Veður er gott og beitarfénaður
úti daglega. —P.P.
Frumvarp um breytingar
á skattaiögunum
Tekjuisiiffiftiir féiaga verður
25% fekna
Tíu ára afmæli
valdaránsins
PRAG 24. febr. — Mikil hátíða-
höld eru nú í Tékkóslóvakíu í til-
efni þess að 10 ár eru liðin síðan
kommúnistar tóku völdin þar í
landi. Blakta fánar Tékkósló-
vakíu og Rússlands hvarvetna
við hún. Fulltrúum erlendra
ríkja var boðið að senda fulltrúa
til hátíðahaldanna. Það er nú
vitað að sendiherrar Bandaríkj-
anna og Belgíu höfnuðu því boði.
Brú yfir
HALLDÓR'Sigurðsson hefur lagt
til á Alþingi, að athugun sé gerð
á aðstæðum og kostnaði í sam-
bandi við brú yfir Borgarfjörð
milli Seleyrar og Borgarness.
ínnbrotsþjófar
teknir og innbrot
framið
UM HELGINA voru tveir inn
brotsþjófar teknir höndum.
Annar þessara manna sem oft
hefur komizt undir manna hend-
ur, var tekinn í kjötverzl. í Akur
gerði, en þar var hann búinn að
sprengja upp peningakassa og
taka nokkuð af peningum og
stinga á sig. Það tókst að hand-
sama mann þennan, vegna þess
að fólk varð vart við ferðir hans.
Hinn þjófurinn var tekinn er
hann var að brjótast inn i sölu-
turn í Kirkjustræti.
Á sunnudaginn var framinn
innbrotsþjófnaður í skartgripa-
verzlun Kornelíusar Jónssonar í
Kolasundi og segir lögreglan að
miklum verðmætum hafi þar ver
ið stolið. Innbrotið mun hafa ver
ið framið einhvern tíma á tíma-
bilinu frá kl. 4 síðd. á sunnudag-
inn og fram að miðnætti.
Islendingur sæmdur
ítalskri orSn
ÞANN 2. jan. síðastliðinn sæmdi
forseti Ítalíu, eftir tillögu frá
utanríkisráðherra Ítalíu, Hörð
Þórhallsson, viðskiptafræðing,
heiðursmerkinu „Stella della
Solidarietá Italiann".
í GÆR var útbýtt á Alþingi
stjórnarfrumvarpi um breytingar
á lögunum um tekjuskatt og eign
arskatt.
Helztu atriði frumvarpsins eru
þessi:
1) Sett eru ný ákvæði um skatt
greiðslur félaga. Þau eiga hér eft-
ir að greiða 25% af skattskyldum
tekjum sínum í tekjuskatt, en
ekki verður um stighækkandi
skatta að ræða og stríðsgróða-
skattur verður ekki lagður á. í
greinargerð frumv. segir, að ekki
sé gert ráð fyrir, að um verði að
ræða neina teljandi breytingu á
heildarskatti félaga til ríkisins.
2) Hlutafélögum verður heim-
ilað að draga frá tekjum sínum
arð, sem nemur allt að 8% af
innborguðu hlutafé eða stofnfé
(nú er miðað við 5%).
3) Hinn sérstaki frádráttur,
sem skipverjar á fiskiskipum
njóta, auk frádráttar vegna fæðis
kaupa og hlífðarfatakaupa, hækk
ar úr 500 í 850 kr. á mánuði.
4) Breytt er reglunum um lækk
un tekjuskatts á lágum tekjum.
Getur lækkunin nú numið allt að
511 kr.
5) Sett eru ný ákvæði um eign
arskatt. Um það segir í greuiar-
gerð frumvarpsins: „Breytingar
á skattinum eru miðaðar við það,
að hækkun fasteignamatsins. sem
gekk í gildi á s.l. ári, verði ekki
til að auka eignarskattinn til rik-
isins í heild“.
Ýmis fleiri ákvæði eru í frum-
varpinu, það á ef að lögum verð-
ur að koma til framkvæmda við
álagningu skatts á þessu árx
Skattgjald hjóna
í þessu lagafrumvarpi er ekki
lagt til, að ákvæðunum um skatt
greiðslur hjóna sé breytt. Segir
í greinargerð, að unnið hafi verið
að athugunum varðandi málið,
en þeim sé ekki að fullu lokið
„og það mál er þannig vaxið, að
það þarf að athugast í sambandi
við tekjuöflun til að mæta rýrn-
un á skatttekjum rikisins, sem
verulegar breytingar á lögum um
þetta efni mundu hafa í för með
Mvæðum umvara-
sjóði samvinnuié-
laga breytl!
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt fyrir
Alþingi frumvarp um breytingar
á lögunum um samvinnufélög.
Þar segir fyrst, að niður skuli
falla ákvæði í lögunum þar sem
segir, að eitt af „aðaleinkennun-
um á skipulagi samvinnufélaga“
sé, að ,,í varasjóð greiðist árlega
fjártillag af óskiptum tekjum fé-
lagsins“.
Hér eftir á aðeins að greiða í
varasjóð arð af viðskiptum. við
utanfélagsmenn að frádregnum
opinberum gjöldum, sem á hann
eru lögð.
Skv. núgildandi lögum fær
varasjóður auk arðs af viðskipt-
um við utanfélagsmenn a.m.k. 1%
af sölu aðkeyptra vara og af-
urða, ef það fer ekki í aðra trygg-
ingarsjóði.