Morgunblaðið - 25.02.1958, Qupperneq 6
6
MORCUNBLAÐIh
Þriðjudagur 25. febr. 1958
SKIPAZT í FYLKINGAR
Hussein
ORFÁUM dögum eftir að
Nasser hafði tilkynnt
sameiningu Egyptalands
og Sýrlands í bandalag Araba-
ríkja, tilkynntu þeir konungarmr
í Jórdaníuriki og írak, að þeir
hefðu myndað sambandsríki úr
löndum sínum og kallast það
Arabíska bandalagið. Talið er að
Hussein, konungur í Jórdaníu,
hafi verið mesti hvatamaður
þessa sambands. Svo stendur á,
að Arabar, sem landflótta hafa
orðið úr Palestínu, eru nú % af
þegþum hans, en alls teljast
Jórdaníubúar 1 millj. og 500 þús.
:ggjj manns. Hussein
vissi, að þessir
flóttamenn
mundu vera
mjög næmir
fyrir áhrifum
frá áköllun
Nassers um
arabíska sam-
einingu. Leit-
aði Hussein þá
til Sauds kon-
ungs í Arabíu
og til frænda síns Feisals, kóngs
í írak, til þess að mynda nýtt
ríkjasamband. Saud léði ekki
máls á slíku, en stuttu síðar kom
Feisal konungur til Amman til
viðræðna við Hussein. Það var
einn helzti ásteytingarsteinninn í
samræðum þeirra, að írak er með
iimur í Bagdad-bandalaginu og
af hálfu Jórdaníumanna var því
haldið fram, að Palestínufólkið
mundi fremur gera uppreisn held
ur en verða aðili að bandalagi,
sem Nasser hefði stimplað sem
tákn vestrænnar yfirdrottnunar-
stefnu og að Saud mundi heldur
aldrei ganga til samkomulags,
nema írak gengi úr því banda-
lagi. Lausnin varð sú, að hafa
skyldi sama hátt á og þegar Eg-
yptar og Sýrlendingar sameinuðu
lönd sín, að sá fyrirvari skylcii
gerður að hvort landið um sig
skyldi verða bundið við þá samn-
inga og sáttmála, sem það hefði
gert áður en það gekk til samn-
inganna. Með þessum fyrirvara
gat írak haldið áfram að vera í
Bagdad-bandalaginu, en sam-
kvæmt samningi er það bundið
þátttöku í því þar til í ágúst 1959.
Nú var ekkert annað eftir en
ákveða hvor þeirra, Hussein eða
Feisal, skyldi vera höfðingi hins
lýja bandalags
Hussein þurfti
miklu fremur á
þeim stuðningi
sem slíkt banda
lag veitir að
halda heldur
en Feisal,
frændi hans,
sem býr við
mikið ríki-
dæmi vegna
olíuauðæfanna
í landinu og á ekki við neitt
flóttamannavandamál að ,etja. —
Hussein lét þau boð út ganga að
sá háttur yrði hafður á að Feisal
yrði höfðingi hins nýja sambands
og féll nú allt í Ijúfa löð.
Þetta nýja ríkjasamband er
miklu lausara í sér heldur en
ríki Nassers og Sýrlendinga. —
Feisal
Konungarnir tveir í Jórdaníuríki
og írak eiga að halda hásæturn
sínum og vegtyllum, en innan 90
daga eiga ríkin að hafa komið
sér saman um einn fána, einn
her, sameiginlega stjórn í utan-
ríkismálum og sameiginlega með-
ferð þeirra út í frá. En tvö þing
skulu þjóðirnar þó hafa. Eins
konar sambandsþing verður
samt sett á stofn, þar sem írak
og Jórdaníuríki hafa jafna hlut-
deild. Að hálfu mun það sitja í
Bagdad og að hálfu í Amman. Þó
ákveðið væri, að Feisal skyldi
verða höfðingi bandalagsins var
um leið tekið svo til orða, að
unnt væri að endurskoða ákvörð-
un um það, hver væri höfðingi
bandalagsins, ef ný ríki vildu
gerast þar aðilar og var þetta
gert til þess að opna dyr fyrir
Saud Arabíukonungi. — Síðustu
fréttir frá Amman greina að hir-
ir olíuauðugu höfðingjar við
Persaflóann, sem ráða í Kuwait'
og Bahrein' séu að hugsa um að
ganga í sambandið.
★
Sagt er að ekki hafi verið nein
slik gleði í höfuðborgum land-
anna, þegar skýrt var frá sam-
einingunni, eins og átti sér stað
í Kaíró og Damaskus, þegar til-
kynnt var um sameiningu Sýr-
lands og Egyptalands. En þó
sagði einn af forustumönnum
Iraks að hér væri um miklu eðli-
legra samband að ræða heldur en
hitt. íraksbúar og Jórdaníumenn
ættu sameiginlega sögu og lönd
þeirra lægju saman en auðlegð
íraks og landrými gæti orðið til
þess að leysa hið mikla vanda-
mál Jórdaníuríkis út af flótta-
mönnunum. Að vísu eru íbúar
hins nýja sambandsríkis ekk.i
nema 7 milljónir, en íbúar Egypta
lands og Sýrlands hins vegar 23
milljónir, en þó þetta nýja ríkja-
samband sé fólksfærra er það
miklu auðugra en hitt.
Þegar tilkynnt var um banda-
lag íraks og Jórdaníu kvaddi
Nasser sér'hljóðs og óskaði ríki-
unum til hamingju og sagði að
þetta myndi flýta fyrir hinni
„miklu sameiningu", eins og
hann orðaði það.
Þorrablót
í Báðardal
BÚÐARDAL, 24. febr. —- Sl. laug
ardag héldu Laxdælir þorrablót
að Sólvangi í Búðardal. Formað-
ur ungmennafélagsins Ólafs pás,
Kristjana Ágústsdóttir, setti sam
komuna, en síðan var sezt að
snæðingi. Var á borðum hangi-
kjöt og hákarl og fleira góðgæti.
Meðan á borðhaldinu stóð fóru
fram skemmtiatriði. Bjarni Finn
bogason ráðunautur söng gam-
anvísur og las upp, Friðjón Þórð?
arson, sýslumaður flutti ræðu og
Eyjólfur Jónasson, Sólheimum og
fleiri, kváðu vísur, þar á meðal
gamlar bændavísur úr Laxár-
dal. Hallgrímur Jónsson stjórn-
aði almennum söng. Að lokum
var stiginn dans fram eftir nóttu.
Fór skemmtunin hið bezta fram
og var þeim, er að henni stóðu,
til sóma. —Elís.
Sögulegur bœjarstjórn-
arfundur í Kópavogi
Forseti vítir fulltrúa Sjálfstæðismanna
fyrir að bera fram breytingartillögur
SÍÐASTLIÐINN föstudag var
bæjarstjórnarfundur í Kópavogi.
Mörg mál lágu fyrir fundinum,
meðal annars afgreiðsla fjárhags-
áætlunar. Umræður urðu mjög
miklar, stóð fundurinn í 4 klst.
sem er óvenjulega langur fund-
artími bæjarstjórnar í Kópavogi.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, þeir Sveinn S. Einars-
son og Jón Þórarinsson, gagn-
rýndu mjög hvernig fjárhagsáætl
unin var úr garði gerð. Þar vant-
aði allar áætlanir fyrir bæjar-
stofnanir, sem hafa sérstakt
reikningshald, eins og t.d. vatns-
veitu og strætisvagna o. fl. o. fl.
Gjaldaliðir voru lítið eða ekki
sundurliðaðir. Sem dæmi má
nefna liðinn: Stjórn kaupstaðar-
ins, sem er hálf milljón, en var
ekki sundurliðaðúr nánar og
þrátt fyrir margítrekaðar fyrir-
spurnir um hvaða kostnaðarliðir
væru þarna fyrirhugaðir, er rétt
lættu fyrirgreinda upphæð, hálfa
milijón, þá fékkst ekkert svar
við því.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins fluttu margar tillögur,
sem miðuðu að því að tilgreina
nánar til kvers hinum ýmsu
gjaldaliðum ætti að verja, svo
tryggt væri að nauðsynlegustu
þarfir kaupstaðarbúa sætu í fyr-
irrúmi, en meirihlutinn gæti síð-
ur varið stórum fjárhæðum eftir
eigin geðþótta hverju sinni.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins fluttu og tillögur um
undirbúning og framkvæmdir
nokkra mjög brýnna hagsmuna-
mála kaupstaðarins, svo sem
undirbúning að hitaveitufram-
kvæmdum, en hitaveita er eitt af
mestu hagsmunamálum Kópa-
vogsbúa. Bæjarfulltrúar Sjálf-
sbrifar úr
daglega lífinu
„Heims um ból“
SÉRA Bjarni Jónsson hefur sent
Velvakanda þennan pistil:
„Það eykur fegurð guðsþjón-
ustunnar, þegar góð samvinna
er milli presta og organista. Þeir
störfuðu vel saman, presturinn,
sem orti jólasálminn og organ-
leikarinn, sem bjó til lagið. Prest
urinn, Joseph Mohr í Oberndorf
fór til vinar síns, Franz Gruber
í Arndorf, sýndi honum jólasálm
inn, og tónskáldið bjó til lagið,
sem sungið var í fyrsta sinni í
sveitakirkju suður í Alpafjöllum.
Þetta gerðist á jólunum 1818.
Enn í dag er jólalagið sungið með
miklum fögnuði. Á næstu jólum
á sálmurinn, sem lýsir hinni heil-
ögu nótt, og hið undurfagra lag
140 ára afmæli. Höfum þetta í
huga á næstu jólum.
Ég er búinn að syngja „Heims
um ból“ um 70 ára skeið. Mér
þykir alltaf jafn vænt um sálm-
inn. Þegar ég var barn skildi ég
vel aðalefnið, en einstaka orð
skildi ég ekki. En svo var einnig
um mörg ljóð, sem mér var sagt
að læra. Eitt sinn, er jólasálmur-
inn hafði verið sunginn, spurði
ég móður mína: „ Hvað þýðir
seimur?“ Hún svaraði: „Gull“.
Þá sá ég brunn fullan af tæru
vatni og þar niðri í botninum sá
ég gull og gimsteina. Þetta sé ég
enn, er ég syng: „Lifándi brunnur
hins andlega seims“. Ég horfi nið-
ur í brunninn og fæ hlutdeild í
himneskum fjársjóði, og hugsa
til hinna heilögu orða: „Þér skul-
uð með fögnuði vatn ausa úr
lindum hjálpræðisins“.
fyrir mér. Ég fagnaði jólunum,
er ég söng sálminn. Hátíðin var
komin. Þá sá ég frumglæði ljóss-
ins. Ég sá birtuna frá tendruðu
ljósi, já, ég sá ljósið brjótast
fram og eyða myrkrinu. Mennirn
ir þörfnuðust þessarar birtu, því
að gjörvöll mannkind meinvill
I myrkrunum Iá. Mannkynið var
illa statt í myrkrinu. En þá var
kveikt á jólaljósinu.
Það er að því fundið, að Svein-
björn Egilsson notar orðið mann-
kind. En þá ætti Hallgrímur Pét-
ursson einnig að fá áminningu,
því að í Passíusálmunum notar
hann hið sama orð, og það hlustar
nú öll þjóðin á.
Hvílíkur fögnuður, er sungið
er: „Heimi í hátíð er ný“. Ég
minnist margra stunda, er þessi
orð hljómuðu, og oft hefi ég í
starfi mínu mönnum til hug-
hreystingar í margvíslegri bar-
áttu lífsins notað þessi orð:
Himneskt ljós lýsir ský.
Þegar ég var barn, ályktaði ég
og talaði eins og barn. Það er
mjög líklegt, að ég hafi ekki vitað
hvað lávarður var. En ég fékk að
vita það, og sá þá dýrð heilagra
jóla, sá barnið liggja í jötunni,
en vissi, að þetta barn var lávarð
ur heims, konungur lífs vors og
ljóss. Ég syng sálminn með mik-
illi gleði og veit, að er menn taka
sér bústað hjá honum, sem fædd-
ist á heilagri jólanótt, eiga menn
sælan frið. Þar er friður á jörðu.
Menn vilja halda jólalaginu,
en sumir vilja fá önnur orð við
lagið. Ég skal syngja „Heims um
ból“, meðan ég held röddinni. En
Þannig opnaðist sálmurinnég skal einnig gleðjast, er sungnir
eru aðrir sálmar, og vil nú benda
á íagran sálm.
Árið 1933 var gefinn út Við-
bætir við sálmabókina 220 sálm-
ar. Þessi bók var gerð upptæk,
hana skyldi á bál bera. Þetta er
kirkjusögulegur viðburður. í
þessum viðbæti eru 30 sálmar
eftir Helga Hálfdanarson og 30
sálmar eftir Matthías. Allt var
gert upptækt. En í þessu sálma-
safni er jólasálmur eftir Matthías
Jochumsson undir laginu „Heims
um ból“.
Sálmurinn hljóðar svo:
Blessuð jól, bjartari sól
leiftrar frá ijósanna stól.
Hlusta nú, jörð, á hin himnesku
Ijóð,
heigandi, blessandi synduga þjóð.
Guði sé dásemd og dýrð.
Hægt og hljótt, heilaga nótt,
faðmar þú frelsaða drótt,
plantar Guðs lífstré um hávetrar
hjarn,
himnesku smáljósi gleður hvert
barn.
Friður um frelsaða jörð.
Jesú barn! Betlehems rós
dýrð sé þér þjóðanna Ijós!
Ljúfustum barnsfaðmi lausnari
kær,
lykur þú jörðina fagur og skær.
Guði sé vegsemd og vald.
Þetta eru fögur orð, eins og
vænta má, er þjóðskáldið talar.
Margir sálmar kunna að bætast
við.með auðskildum orðum. En
spá mín er sú, að ávallt verði
haldið áfram að syngja „Heims
um ból“, jólasálminn, sem allir
kunna og allir eiga að skilja".
stæðisflokksins hafa áður flutt til
lögu um að Kópavogur leiti eftir
því að verða aðili að sameigin-
legum framkvæmdum Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar um virkj
un jarðhitans í Krýsuvík. En
þarna fór sem í mörgum málum
öðrum, er meirihlutinn hefur ekki
flutt sjálfur, að hann ljær þeim
ekki lið, og hikar ekki við að
fella þau, hversu mikil nauð-
synjamál sem um er að ræða. En
þessu máli munu Sjálfstæðis-
menn fylgja eftir og fyrr eða
síðar mun meirihlutinn beygja
sig fyrir almenningsálitinu í
þessu máli. Það væri hart fyrir
Kópavogsbúa ef svo færi fyrir
þvermóðsku og afturhaldssemi
núverandi bæjarstjórnarmeiri-
hluta, að hitaveita til Reykja-
víkur frá Krýsuvík lægi í gegn
um Kópavog, án þess að Kópa-
vogsbúar nytu þar neins af.
Fulltrúar Sjálfstæðismanna
lögðu til að fé yrði varið til að
bæta á einhvern hátt úr því
mikla vandræðaástandi, sem
íbúar í Vatnsendahverfi eiga við
að búa í skólamálum. Það var.
fellt.
Þá fluttu Sjálfstæðismenn og
tillögu um að stofnað yrði Æsku-
lýðsráð eftir fyrirmynd Reykja-
víkur, og að nokkru fé yrði varið'
til þeirrar starfsemi. Einnig að
nauðsynlegustu endurbætur yrðu
gerðar við íþróttavöllinn, en eins
og er, er völiurinn mjög ófull-
kominn og varla nothæfur.
Það er mjög brýnt hagsmuna-
mál að efla félagsslíf unga fólks-
ins í Kópavogi, og ríkir mikill
áhugi á því, nema hjá meirihlut-
anum í bæjarstjórninni. Hann
felldi allar tillögur Sjálfstæðis-
manna um þessi mál.
Eins og fyrr segir fluttu full-
trúar Sjálfstæðismanna margar
breytingartiliögur og þó að meiri
hlutinn felldi þær allar virtist
þeim þó eitthvað órótt því Finn-
bogi Rútur missti hvað eftir ann-
að stjórn á skapsmunum sínum
og réðist að fulltrúum Sjálfstæðis
manna með fúkyrðum.
Eyjólfur bæjarstjórnarforseti,
vildi auðsjáanlega koma foringja
sínum til bjálpar og vítti full-
trúa Sjálfstæðisflokksins. Sveinn
S. Einarsson mótmælti gerðum
forseta og benti honum á að sam-
kvæmt fundarsköpun þá bæri
þeim fullur réttur til að semja
breytingartillögur við það mál,
sem til afgreiðslu væri á fundin-
um. Heyktist forseti þá og
sagðist ekki hafa meint víturnar.
Var framkoma forsetans í fund-
inum yfirleitt furðuleg. Annað
dæmi því til sönnunar má nefna
að hann úrskurðaði að tekjuhlið
fjárhagsáætlunarinnar ætti að
afgreiðast áður en breytingartil-
lögur við gjaldahliðina yrðu lagð
ar fram. Hefur hann sennilega
hugsað sem svo að það væri alveg
sama um hvað breytingartillögur
Sjálfstæðismanna fjölluðu, þær
yrðu allar felldar.
Það kom fram á þessum fundi
að Finnbogi R. hefur einn og án
heimildar frá bæjarstjórn, annazt
lóðaúthlutun og uppsögn erfða-
leigusamninga í kaupstaðnum,
síðan bærinn keypti ríkisjarðirn-
ar Digranes og Kópavog. Eru því
allar gerðir hans í því máli laga-
lega séð mjög vafasamar. Þegar
fram kom á fundinum tillaga,
sem fól í sér að gerðir hans í
þessum málum skyldu lagðar fyr
ir bæjarráð þá brást meirihlut-
inn hart við og felldi þá tillögu,
stóð ekki á fulltrúa Framsókn-
ar að fylgja Finnboga þar að
málum. Stóð hann á þessum fundi
sem áður með kommúnistum í
flestum hinum þýðingarmestu
málum.