Morgunblaðið - 25.02.1958, Side 9
Þriðjudagur 25. febr. 1958
MORCUNBLAÐIÐ
9
Hreiraar límar
NORSKUR menntamaður, sem
hér var á ferð nýlega, lét hafa
það eftir sér að sá væri munur á
íslendingum og Norðmönnum að
þeir hefðu lífsskoðun, en íslend-
ingar enga.
Þetta eru nú bara mannleg orð.
F.n oft er þó glöggt gestsaugað.
Og tel ég raunar ekkert undra-
vert þótt gestinum fyndist land-
ann vanta hrunar línur, þar sem
tekur til æðstu menningarmála,
sem verka í nútimanum.
í Noregi hafa orðið mikil átök
með mönnurn kirkjunnar út af
tjáningu Schjelderup biskups í
Hamarsstifti, þar sem hann neit-
ar að trúa kenningunni um for-
dæmingu. Þeir, sem halda fast
við játningar kirkjunnar þar í
landi, eru fjölmennir. Mætti ætla
að mál þetta yrði ekki útkljáð
fyrri en biskup þessi sæi sitt ó-
vænna og segði af sér. Trúmála-
rrtin hér heima hafa getið um
þetta mál og þá helzt Kristilegt
vikublað. Jólahefti Kirkjuritsins
nú í vetur, getur almenns kirkju
fundar í Noregi undir forustu
Smemo biskups í Osló. Þann
fund sækja fulltrúar úr öllum
biskupsciæmum landsins. Á þess-
um fundi ríkti móthald gegn
Schjelderup biskupi vegna hans
neikvæðis. Kirkjurjtið lýsti sig
f.vlgjandi Sciijelderup og segir;
l'óa íslandmga hygg ég þeirrar
trúar sem meirihluli norska
kirkjufundarins lýsti sig fylgj-
andi. í sama mund lýsti séra
Sveinn Víkingur því yfir í Rik-
isútvarpinu að hann teldi for-
dæmingarkenninguna fjarstæðu
eina. Vissulega er þetta ekki til
þess að halda hieinum línum.
Kirkjan hér í landi, sem kirkja
Krists, verður auðvitað að halda
sig við kenninguna eins og Krist-
ur setti hana fram. Hann segir:
„Ekki mun einn stafkrókur lög-
málsins líða undir lok“.
Ég efa ekki að allir prestlærð-
ir menn í landinu vilji vel. Hitt
er svo annað mál hvað þeir eru
skarpslcyggnir á trúmálin eða
sjá langt. — En mér er spurn:
Hver er me.iningin með þessum
tjáningum? Sýnilega leiða þær
aðeins til glundroða og til þess að
það síast inn í þjóðarsálina að
syndin geti verið meinlaus. —
Kristur segir: „Tj'úðu aðeins".
„Haltu boðoi'ðin og þá munt þú
lifa“. Þetta er einfalt mál, þótt
vantrúin geti gert það marg-
brotið. Leiðin liggur opin og hægt
að sigla fram hjá öllum skei-jum.
Mennii-nir eru ekki bundnir við
neina fordæming. En þeir eru
bundnir við það að trúa aðcins.
Það er eitt af boðorðununi. Að
bi'jóta boðorðin er synd. Að vera
trúlaus eða vantrúaður er synd
af því við höfum Ki'ist og játum
tj'úna á hann. En svo segir Krist:
ur: „Sá sem trúir og verður skírð
ur mun hólpinn verða, en sá sem
ekki trúir mun fyrirdæmdur
verða“. (Mark. 16.16).
Þannig er það sýnt að við get-
um lifað okkur undir dóm og
þannig er það sýnt að við erum
ábyrg gerða okkar. Annars væri
maðurinn eins og skynlaus
skepnan. Kirkjan hér í landi þarf
áreiðanlega að athuga sinn gang.
Hún má ekki verá nein hálf-
kirkja. hiun fyllist ekki af fólki
við hálf-prédikanir, heldur að-
eins við heilai'. Hún má ekki vera
stór í forminu, heldur kjax-nan-
um. Hún má ekki pi'édika fólk-
inu ábyrgðarleysi í trúarlegum
efnum. Hún má ekki vera lin í
sókninni fyrir málefni Drottins
hér á jörð. En hún er það. Þegar
kemur að meginatriðum -trúar-
innar virðast miklu færri prestar
hennar, geta fyllilega staðið með
Guðspjöllunum. Eins og þá er
ræðir um meyjarfæðinguna, þýð
ingu krossdauða Krists, upprisu
hans, kraftaverk hans, niður-
stigningu og himnaför.
Óvinurinn er nú helzt ekki
nefndur á nafn í kirkjunni hér,
eins og hann sé ekki framar til.
En hvað segir Kristur um hann?
Það er þó vandalaust að sjá að-
gerðir hans, til dæmis í hinum
róttæka kommúnisma, sem vill
afnema trúna á almáttugan Guð
og þá náttúrlega um leið þetta
háleita boðorð Krists: „Elskið
hver annan, eins og ég hefi elsk-
að yður“ Þarna er fjandinn að
verki. En fólkið þarf að trúa á
Drottin, til að sjá þetta og skilja.
Kirkjan getur ekki verið hlut-
laus. Hún hefir sitt ákveðna á-
form að halda uppi rétttrúnaði.
Hún er ekki bara prestarnir,
heldur við öll. Á henni veltur
hvorki meira né minna en öll
heimsmenningin, og við, minnsta
þjóðin, viljum vera þar með og
erum þar með Og þá er að trúa
aðeins, trúa skilyrðislaust. Við
getum heldur engin skilyrði sett.
Drottinn hefir gefið okkur hvort-
tveggja, lífið og trúna og sett
okkur boðorðin svo að við upp-
fylltum lífið að okkar hluta. —
Sannleikurinn felst allur, eins
og hann leggur sig, í orði Drott-
ins. Þess vegna er allt ófram-
kvæmanlegt, til viðhalds og efl-
ingar menningunni, nema að hafa
það í stofni.
— 000 —
Nýlega er bæjarstjórnarkosn-
ingum lokið. í höfuðstað landsins
stilltu fimm stjórnmálaflokkar
upp kosningalistum. Nú eru i
raun og veru aðeins tveir stjórn-
málaflokkar til í landinu, svo að
eitthvað vantar nú á að til séu
hreinar línur á stjórnmálasvið-
inu. Það er ofvaxið dómgreind
alls þorra fólks að átta sig á því
óþarfa tali og óþarfa ritmáli, sem
borið er á það, þegar fimm flokk
ar þrengja sér inn á svið þar sem
eru aðeins tveir, ef fólkið áttaði
sig á því hver er hinn rétti grunn-
ur stjórnmálanna. Ég fer ekki út
í skýringar á þeirri skiptingu hér,
að þessu sinni, en segi aðeins það
að væri þjóðin sannkristin væri
hér aðeins einn stjórnmálaflokk
ur, þar sem boðoi'ðið „Berið hver
annars byrðar" væri látið gilda
i gegnum þykkt og þunnt. Allt
ber að sama brunni. Stjórnmálin
komast ekki í viðunandi horf
nema takist að kristna allt fólkið
í landinu. Morgbl. flytur stund-
um ritningargreinar, sem það hef
ur undir fyrirsögninni „Orð lífs-
ins“. En blaðið ætti að birta
þetta sér, efst á blaði á fyrstu
síðu. Þetta ættu öll blöð að gera
og minnast þess rækilega, um leið
að bannað er að leggja nafn Guðs
við hégóma. Því gæti fylgt bless-
un.
Þá er á einu leitinu hið mikla
prentmál, sem borið er á fólkið
og sem ekki á lítinn þátt í því að
rugla það í allri lífsskoðun, eink
um æskuna. Þar úir og grúir af
„atom“ rugli, óþarfa prentmáli
og siðspillandi þvættingi. At-
vinnu-útgefendur, í svo stórum
stíl, sem hér, eru landplága.
Smekkvísinni hjá fólkinu er
hætta búin í prentflóðinu. Svo
langt er nú komið, að endemum,
bókmenntaþjóðinni íslendingum,
að á síðasta hausti, voru uppi
raddir um það að birta bæri í ís-
lenzkiú þýðingu, Mykle-klámið,
sem upptækt var gert í föður-
landi höfundar, Noregi.
Þjóðin þarf að eignast menn,
sem eru skarpsýnir og sterkir rit
dómarar, sem hugsa um menn-
ingu þjóðarinnar af velvilja. Þeg-
ar ég var ungur maður, las ég
bókmenntaritdóma þeirra séra
Jónasar Jónassonar á Hrafnagili
og Þorsteins Gíslasonar, ritstj.,
og þeir spöruðu mér oft það að
lesa heilar bækur.
Samkvæmt framansögðu er
ekki að undra það þótt lífsskoðun
íslendinga fari víða á tæpu vaði.
Lífsskoðunin, eins og hún leggur
sig, felst öll í orði Drottins. En að
lifa án lífsskoðunnar, getur ekki
orðið nema aumt líf.
30. jan. 1958.
Jón H. Þorbergsson.
WerzSunarhúsMBÖi
Til sölu er verzlunarhúsnæði ca. 200 fermetrar í
fokheldu ástandi við aðalgötu skammt frá miðbæn-
um. Húsnæðið mætti einnig nota til veitingasölu
o. fl.
Málflutningsskrifstofa Áka Jakobssonar
og Kristjáns Kiríkssonar,
Laugaveg 27, sími 11453.
(Bjarni Pálsson sími 12059).
BARNAVAGN
Pedigree barnavagn til sölu.
Sími 34864. —
PELS
Til sölu fallegur Bisam-pels,
til sýnis í Hattabúð Soffiu
Pálma, Laugavegi 12.
Kaupum
EIU og KOPAR
Sími 24406.
Nýr jeppi
Rússneskur jeppi til sölu,
ekið um 5 þús. km.
Aðal BÍLASALAN
Aðalstr. 16. Sími 3-24-54.
Zodiac '55
til sýnis og sölu í dag. —
Möguleiki að taka nýjan
Moskiviteh upp í.
ASal BÍLASALAN
Aðalstr. 16. Sími 3-24-54.
PSymoutli árg. 1940
með nýlegri vél, útvarp og
miðstöð, selst ódýrt ef sam-
ið er strax. Til sýnis á
staðnum. —
Bifreiðasalan
Ingólfsstr. 11, sími 18085.
Ríkisstarfsmaður óskar að
taka á leigu
ÍBÚÐ
3—5 herbergi í seinasta lagi
1. maí n.k. — Fyrirfram-
greiðsla kemur til greina.
Sími 10710. —
KEFLAVIK
3ja herbergja íbúð lil leigu.
Uppl. á Brekkubraut 13.
ÚTSALA
Storesefni
Voal
Sforesblúndur
Eldbúsalugga-
tjamu'íieini
Gardínubúðin
Luuba,cSl Z8*
Vanur bilstjóri óskar
eftir
VINNU
sem fyrst. Margt kemur til
greina. Tilboð merkt: „Bíl-
stjóri — 8562“, sendist af-
greiðslu Mbl.
TIL SÖLU
tveir bókaskápar og einn
ottomann. — Upplýsingar í
síma 10169. —
Unglingspiltur
óskast í sveit nú þegar. —
Uppl. í síma 12946.
Blússupoplin
í rauðu, drapp og grænum
lit. Khaki, rautt og blátt,
kr. 17,60 og rósótt kjóia-
poplin „ kr. 24,30 m.
Verzlunin BANGSI
Reynimel 22.
Ódýrar
drengjaskyrfur
og skyrtubolir og galiabux-
ur á smábörn.
Verzlunin BANGSI
Reynimel 22.
Stúlkur athugib
Ungur maður sem er við
sveitabúskap, óskar eftir
ráðskonu, á aldrinum 25—
40 ára, með nánari kynni
fyrir augum, til að annast
ráðskonustörf. Má hafa 1—
2 börn. Þagmælsku heitið.
Vinsamlegast leggið nafn
og heimilisfang inn á afgr.
blaðsins fyrir 1. marz, —
merkt: „Suð V. Land —
7945“. —
Frá Bifrciðasölunni
Ingólfsstræti 11.
Dodge sendibíll If 47
í skínandi standi. Hagstæð-
ir greiðsluskilmálar, ef
samið er strax.
BifreiSasalan
Ingólfsstræti 11, sími 18085.
Maður, vanur búðarútstill-
ingum og með verzlunar-
menntun, óskar eftir
atvinnu
frá 1. júlí. Margt kemur til
greina. Tilb. með uppi. um
laun, sendist til Erik IWein-
eke, Revvej 16C, Korsór,
Danmark. —
lukið viSskiptin. —
Augiýsið í Morgunblaðinu
JHdrgunbla&id
Sími 2-24-80