Morgunblaðið - 25.02.1958, Qupperneq 17
Þriðjudagur 25. fpb'r. 1958
MORGUNBLAÐIÐ
17
íslenzku kristniboðu num
fagnað hér heima
EINS og skýrt var frá hér í blað-
inu fyrir nokkrum dögum, eru
þau hjónin Kristín Guðleifsdóttir
og Felix Ólafsson nýkomin heim
frá Eþíópíu í Afríku, eftir að hafa
starfað þar að trúboði meðal
Konsóþjóðflokksins hátt áfimmta
ár. Hafa þau dvalizt þarna á veg-
um Sambands íslenzkra kristni-
boðsfélaga, en það eru samtök
innan þjóðkirkjunnar meðal á-
hugafólks, sem vill vinna að fram
gangi kristiaiboðs meðal heiðinna
þjóða.
Fimmtudaginn 20. þ. m. var
haldin samkoma í húsi KFUM til
þess að fagna þeim hjónum. Var
hinn rúmgóði samkomusalur
KFUM þéttskipaður áheyrend-
um, og urðu nokkrir að standa
frammi á gangi. Fánar íslands og
Eþíópíu blöktu sinn livorum
megin við ræðustólinn.
Boðin velkomin
Er Ólafur Ólafsson, kristniboði,
sem heimsótti Konsó fyrr í vetur
sem kunnugt er, hafði flutt bæn,
tók til máls Bjarni Eyjólfsson,
formaður Kristniboðssambands-
ins. Bauð hann ungu hjónin vel-
komin og lýsti gleði kristniboðs-
vina yfir því að hafa þessa full-
trúa sína á meðal sín. Þakkaði
hann þeim fyrir hið mikla starf,
sem þau hafa leyst af hendi í
Konsó við hin erfiðustu slýlyrði.
Erfiðleikarnir
Bæði hjónin tóku til máls. Fel-
ix mælti nokkur orð á amharisku,
hinu opinbera máli Eþíópíu, og
lét það harla ókunnuglega í eyr-
um, enda er það algerlega óskylt
Vesturlandamálunum og erfitt að
læra. Verður að nota mál þetta
við alla opinbera fræðslu, og
þurfa kristniboðarnir því að hafa
túlka, því að Konsómenn skilja
það ekki.
Feiix kvað allmikið hafa unn-
izt á í starfinu, þótt erfiðleikarnir
hafi verið mjög miklir. Gerði
hann samanburð á fyrstu sam-
komunni, sem hann hélt í Konsó
og hinni síðustu, sem hann tók
þátt í, áður en hann hvarf heim.
Fyrsta samkoman var haldin í
amhariskum þorpshluta. Amhar.
arnir í Konsó, eða hinn ráðandi
þjóðflokkur, höfðu lengi horn í
síðu kristniboðanna, enda þótt
starfið væri rekið með fullu sam-
þykki yfirvaldanna í höfuðborg-
inni og eiginlega að ósk þeirra,
því keisarinn sækist eftir erlend-
um kristniboðum, kennurum og
hjúkrunarliði. Samkomusalurinn
var við hliðina á knæpu einni,
þar sem margir sátu við drykkju
og söng, og skildi aðeins þunnt
þil á milli. Varð P'elix að hafa
sig allan við að yfirgnæfa hávað-
ann af gleðskapnum — og han-
ana, sem voru fyrir utan og göl-
uðu hver í kapp við annan. Nokkr
ir menn áræddu að koma inn fyr
ir dyrnar, og sátu þeir á steir.um,
en allmargir kusu heldur að vera
fyrir utan til þess að varðveita
mannorð sitt.
Flúði töframanninn
Síðasta samkoman var haldin
í tveim stofum í skóla þeim, sem
reistur hefur verið á lóð kristni-
boðsins. Nú voru samankomnir
um 200 manns, eða eins margir
og stofurnar rúmuðu. Allt voru
þetta menn, sem gjarna vildu
vera kristnir, eða vildu að
minnsta kosti sýna kristniboðun-
um vinsemd. Og þarna fór fram
sú athöfn, sem ævinlega þykir
marka þáttaskil í kristniboði á
hverjum stað. Fyrsti Konsómað-
urinn var skírður. Þetta er ung-
lingspiltur, 14—15 ára, og heíur
hann dvalizt alllengi á stöðinni
og notið þar fræðslu. Hann flýði
þangað undan töframanninum í
þorpi sínu, en töframaðurinn vill
hann feigan vegna vígs sonar síns,
en bróðir Konsódrengsins er sak-
aður um vígið. — Á sömu sam-
komu var fermdur drengur, sem
hafði verið skírður í koptisku
kirkjunni.
Nú munu vera um 75 piltar í
skóla kristniboðsins. Konsómenn
eru hvorki læsir né skrifandi.
Er því við því að búast, að skiln-
ingurinn á gildi skólamenntunar
sé af skornum skammti. Þó kvað
Felix augu manna vera smám
saman að opnast í þessum efnum.
Komið hefur verið upp heima-
vist fyrir skólapilta, og kvað Fel-
ix það hafa gefið mjög góða raun.
Bæði verða nemendurnir iðnari
við námið, og auðveldara verður
að veita þeim þá kristilegu
fræðslu og mótun, sem þeir þurfa
að njóta. Strangar kröfur eru
gerðar til þeirra, sem vilja láta
skirast.
Starfsmannaskortur hefur háð
mjög starfinu í Konsó. Er mikil
vöntun á traustum innlendum
starfsmönnum, sem bæði geta
kennt og túlkað. Kristniboðarnir
nota jöfnum höndum þrjú mál í
viðskiptum sínum við Konsó-
menn, Konsómál, amharisku og
gallamál eða gallinja, og má því
sjá, að mikil þörf er á góðum
túlkum.
Enn eru í Konsó þrír íslending
ar, ein hjón og hjúkrunarkona
Hjúkrunarkonan á ákaflega ann-
ríkt, og má segja, að hún sé þarna
eins og engill af himni sendur,
því að enginn læknir er til á
meðal þjóðflokksins. Læknar eru
svo fáir á meðal þessarar 15
milljón manna þjóðar, Eþíópíu-
manna, að ekki er nema einn
fyrir hverjar 200 þúsundir manna.
Þingfulltrúar bœnda
Á BÚNAÐARÞINGI því sem nú
situr eiga sæti 25 fulltrúar og eru
það eftirtaldir menn:
Frá Kjalarneskjördæmi
Kristinn Guðmundsson, Mos-
felli, Einar Ólafsson, Lækjar-
hvammi.
Frá Borgfirðinga og Mýrakjör-
dæmi
Ingimundur Ásgeirsson, Hæli,
Sigurður Snorrason, Gilsbakka.
Frá Snæfellingakjördæmi
Gunnar Guðbjartsson, Hjarðar-
felli.
Frá Dalakjördæmi
Ásgeir Bjarnason, Ásgarði.
Fx-á Vestfii-ðingakjördæmi
Jóhannes Davíðsson, Neðri
Hjarðardal, Páll Pálsson.Þúfum.
Frá Strandamannakjördæmi
Benedikt Grímsson, Kirkju-
bóli.
Frá Vestur-Húnvetningakjör-
dæmi
Benedikt H. Líndal, Efra-
Núpi.
Frá Austur-Húnvetningakjör-
dæmi
Hafsteinn Pétursson, Gunn-
steinsstöðum.
Frá Skagafjarðarkjördæmi
Kristján Karlsson, Hólum, Jón
Sigurðsson, Reynistað.
Frá Eyfirðingakjördæmi
Ketill Guðjónsson, Finnastöð-
um, Garðar Halldórsson, Rif-
kelsstöðum.
Frá Suður-Þingeyingakjördæmi
Baldur Baldvinsson, Ófeigs-
stöðum.
Frá Norður-Þingeyingakjördæmi
Þórarinn Kristjánsson, Holti.
Frá Austfirðingakjördæmi
Þorsteinn Sigfússon, Sand-
brekku, Sveinn Jónsson, Egils-
stöðum.
Frá Austur-Skaftfellingakjör-
dæmi
Egill Jónsson, Hoffelli.
Frá Sunnlcndingakjördæmi
Bjarni Bjarnason, Laugar-
vatni, Guðmundur Erlendsson,
Núpi, Sigmundur Sigurðsson,
Syðra-Langholti, Jón Gíslason,
Norðurhjáleigu, Eggert Ólafsson,
Þorvaldseyri.
Þá sitja þingið Búnaðarmála-
stjóri Steingrímur Steinþórsson,
og stjórn Búnaðarfélagsins, en
hana skipa Þorsteinn Sigurðsson,
Pétur Ottesen og Gunnar Þórðar-
son frá Grænumýrartungu.
Afgreiðslustúlka
Rösk og ábyggileg afgreiðslustúlka
óskast nú þegar. —•
Clausensbúð
(KJÖTDEILD)
Verzlunarpláss
Vil kaupa eða leigja hentugt húsnæði á góðum stað
í bænum, fyrir tóbaks- og sælgætissölu. Kaup á
lítilli verzlun koma einnig til greina. — Tilboð ósk-
ast send afgreiðslu blaðsins fyrir 1. marz merkt:
„Marz — 8725“.
Stúlka
Áreiðanleg stúlka 16 ára eða eldri óskast til heim-
ilisstarfa um mánaöatíma. Hátt kaup og sér her-
bergi. — Upplýsingar á skrifstofu
Gísla Jénssonar & €o
Ægisgötu 10 kl. 5—7 í dag
OKKUR VANTAR
Unglings telpu
til snúninga á skrilstofu oklsar.
Sölusamband
íslenzkra fiskframleibenda
Aðalstræti 6, III. hæð
Höfuin fyrirliggjandi:
M I L N E R S
Skfalaskápa
og MÖPFUR
Landstjaman hf.
Hafnarstr. 8, síini 12012
smálafélagið Vörður
neldur fund ■ SJálfsfæðíshúsinu í kvöld kl. 8,30
CH/iHÆSIUIEFfel! s Fr frjálsiyneii í framkvæmd þjóðhætfulegt?
FHUH/IMÆlANPi; iljaraii Benediktsson ritstjóri
Allt Sjáifstæbisfólk er velkomib meban húsrúm leyfir
Stjórn Varðar