Morgunblaðið - 25.02.1958, Qupperneq 18
18
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 25. febr. 1958
Nýlega hermdu fréttir að bandarískur flugmaður liefði lokið vikuferð til tunglsins. Að vísu sat
hann allan tímann í sama sæti inni í málmkúlu er fest var tryggilega við jörðina. En aðbúð flug-
mannsins inni í kúlunni var látin vera lík þeirri aðbúð, sem fyrstu geimfararnir verða að þola. A
meðan voru vísindamenn að rannsaka viðbrögð þessa fyrsta jarðbundna geimfara. Hér sést flug-
maðurinn í sæti sínu „á leið til tunglsins“.
Enska knattspyrnan
1. deild
Arsenal — Tottenham 4:4
Aston Villa — Chelsea 1:3
Blackpool — Sheff. Wed. 2:2
Bolton — WBA 2:2
Everton — Newcastle 1:2
Leeds — Portsmouth 2:0
Leicester — Manc. Cily 8:4
Luton — Preston 1:3
Manc. Utd. — Nottingham 1:1
Sunderland — Burnley 2:3
Wolves — Birmingham 5:1
II. deild
Barnsley — Stoke City 1:3
Blackburn — Liverpool 3:3
Bristol — Doncaster 2:1
Derby — Rotherham 3:4
Fulham — Grimsby 6:0
Ipswich — Middlesbrough 1:1
Lincoln — Charlton 2:3
Notts — Leyton 0:1
Sheffield Utd. — Cardiff 3:0
Swansea — Hudderfield 1:1
West. Ham. — Bristol 3:2
Úlfarnir halda áfram sigur-
göngu sinni í fyrstu deild. Á laug
ardaginn sigruðu þeir 5:1 heima
gegn Birmingham City. Miðherj-
inn Myrray skoraði þrjú mark-
anna. Síðastliðinn miðvikudag
léku þeir gegn Leeds og sigruðu
3:2. Þessi leikur var einnig á
heimavelli, en Leeds er eina liðið
utan Sheffield Wednesday, sem
hefur skorað fleiri en eiu mark
gegn Úlfunum á Molineux, heima
leikvangi -liðsins.
Hið endurskipað lið Manchester
United náði jafntefli gegn Nott-
ingham Forest. Hægri útherjinn
Imiach skoraði fyrir Forest í
fyrrihálfleik en miðherji United
Dawson, sem er aðeins átján ára,
jafnaði í þeim síðari. Ernie Tayl-
or var, eins og í leiknum gegn
Sheffield Wednesday, stoð og
stytta liðsins. Áhorfendur voru
66 þúsund og er það metaðsókn
á Old Traffold, heimaleikvangi
United, eftir stríð.
Lundúnaliðin Arsenal og Tott-
enliam skildu jöfn í skemmtileg-
um leik, en markatalan var 4:4.
Tottenham keypti í vikunni út-
herjann Cliff Jones frá Swansea
Town fyrir 35 þúsund pund, eða
um eina milljón og sjö hundruð
þúsund krónur! Hann lék með
liðinu á laugardaginn, en átti
fremur rólegan dag. Áhorfendur
voru 59 þúsund.
Leikmenn Leicester City
gengu berserksgang gegn Manc-
hester City og skoruðu átta mörk.
Ekki var leikurinn samt algjör
„einstefnuakstur“, því Manchest-
er City skoraði fjögur mörk.
Newcastle tókst að sigra Ever-
ton úti með tveim mörkum gegn
einu. Mörk Newcastle skoraði
miðherjinn Bottom, nýkeyptur
frá York City.
Lundúnaliðin West Ham United
og Chariton eru efst og jöfn í
annarri deild. Þau unnu andstæð
inga sína með þrem mörkum
gegn engu. Miðframvörður West
Ham, Brown, meiddist í fyrri
hálfleik og haltraði á vinstri
kanti það sem eftir var leiksins.
Sigux-mark Charlton gegn
Lincoln kom, þegar þrjár mínút-
ur voru eftir af leik. Framvörð-
urinn Hewie skoraði markið úr
hornsparki.
Fulham (Lundúnalið) sigraði
Grimsby með sex mörk-
SKÍÐAMÓTI Reykjavíkur var, 3.
haldið áfram í gær, og var þá
keppt í svigi karla, kvenna og
drengja við Kolviðarhól.
Veður var hið ákjósanlegasta
og færi til keppni gott.
Leikar fóru þannig, að Reykja-
víkurmeistari í svigi kvenna varð
Karólína Guðmundsdóttir, K.R.,
en tiltilinn í svigi karla hlaut
Svanberg Þórðarson I.R.
Úrslit í einstökum flokkum
urðu sem hér segir:
A-flokkur karla
1. Svanberg Þórðarson, Í.R., 45,0
— 45,1 = 90,1 sek.
2. Stefán Kristjánsson, Á., 46,1
— 47,3 = 93,4 sek.
3. Guðni Sigfússon, Í.R., 47,9 —
47,5 = 95,4 sek.
B-flokkur karla
1. Þorbergur Eysteinsson, Í.R.,
47.1 — 47,2 = 94,3 sek.
2. Leifur Gíslason, K.R., 48,4 —
46.2 = 94,6 sek.
um gegn engu. Í hálfleik stóðu
leikar 5:0 — höfðu framherjarnir
skorað eitt mark hver.
Skozki landsliðsmaðurinn Lidd
el skoraði öll mörk Liverpool-
liðsins gegn Blackburn, en leik-
urinn varð jafntefli 3:3.
Liddel lék einnig í bikarúrslita
leiknum gegn Arsenal árið 1950,
sem Arsenal vann 2:0. Liddel
hefur leikið 28 sinnum í skozka'
landsliðinu, síðast gegn Írlandi
árið 1956. Liddel hefur verið mjög
vinsæll meðal áhorfenda og ætl-
aði fagnaðarlátum aldrei að linna
eftir leikinn, þótt leikið væri á
heimaleikvelli Blackburn. Liver-
pool féll niður í aðra deild árið
1954.
Sheffield United sigraði Car-
diff örugglega. Miðherjinn Pace
lék að venju mjög vel og skoraði
tvö mörk.
Nokkrir leikir fóru fram fyrr
í vikunni.
Úrslit í þessum leikum urðu:
Bristol Rovers — Lincoln 3:0
Doncaster — Liverpool 1:1
Huddersfield — Bristol C. 0:0
Leuton — West Ham. 1:4
Ásgeir Úlfarsson, K.R., 53,7 —
51.5 = 105,2 sek.
C-flokkur karla
1. Björn Steffensen, K.R., 49,6
— 54,6 = 104,2 sek.
2. Þórður Jónsson, Á., 52,3 —
52,0 = 104,3 sek.
3. Úifar Andrésson, Í.R., 53,1 —
57,0 = 110,1 sek.
Drengjaflokkur
1. Troels Bentsen, K.R., 40,4 —
40.9 = 81,3 sek.
2. Hinrik Hermannsson, K.R.,
42.9 — 38,6 = 81,5 sek.
3. Andrés Sigurðsson, Í.R., 47,0
— 57,3 = 104,3 sek.
A-flokkur kvenna
1. Karólína Guðmundsd. K.R.,
36,0 — 36,9 = 72,9 sek.
2. Arnheiður Árnadóttir, Á.,
41.5 — 39,1 = 80,6 sek.
3. Ingibjörg Árnadóttir, Á., 53,1
— 47,1 = 100,2 sek.
Svanberg Rvíkurmeisfari í
svioi karla - Karolina í kv.f
np • • ' ~WT r • í» í»
lvo ar sioan Krusjeii
fordæmdi Stalín í ræðu
Ný úfgáfa rússnesku alfrœ&sorðakékar-
innar viðurkennir mistök og sk&pbresti
gamla einreeðisherrans
Í DAG, þann 25. febrúar, eru tvö ár liðin síðan Krúsjeff hélt hina
frægu fordæmingarræðu sína yfir Jósef Stalin. Sá atburður er
einhver hinn örlagaríkasti í sögu síðustu ára. Með þeirri ræðu
var steypt af stalli hinu mesta átrúnaðargoði kommúnismans, sem
hafði verið dýrkað sem hinn óskeikuli meistari og dýrlegi foringi.
Ræða Krúsjeffs hefur opnað augu þeirra sem áður voru blindir
og höfðu trúað á kommúnismann sem eins konar helgidóm.
Úr 87 bls. í 5 bls.
Fyrir nokkrum dögum kom
loks út í Rússlandi ný útgáta
af fertugasía bindi hinnar
stóru rússnesku alfræðiorða-
bókar, en það er éinmitt bind-
ið sem inniheldur uppsláttar-
orðið Stalin. Og sjá, nú hafa
orðið rnikil umskipti. í síðustu
útgáfu alfræðiorðabókarinnar
fjölluðu 87 bls. með miklum
myndskreytingum um Stalin
En í nýju útgáfunni er búið
að stytta þetta niður í 5 bls
ásamt einni heilsíðumynd af
Stalin.
Sumt gerði Stalin vel
Það kemur og í ljós, að nokkuð
hefur verið dregið úr fordæm-
ingunni á Stalin síðan Krúsjeff
flutti hina sögulegu ræðu. Í al-
fræðiorðabókinni er viðurkennt.
að Stalin hafi gert marga hluti
vel, svd sem að koma Trotzky
fyrir kattarnef. — Þá hafi
hann einnig unnið þarft
verk er hann sameinaði rúss-
nesku þjóðina í baráttunni gegu
Þjóðverjum.
Akærður um mikil mistök
En í orðabókinni er einnig lögð
áherzla á það, að margt hafi mið-
ur farið í stjórn hans. Virðast
helztu ákæi-uatriðin vera hin
sömu og í ræðu Krúsjeffs fyrir
tveimur árum. Hér skal skýri
frá nokkrum þeim helztu:
— Það voru mikil mistök hjá
Stalin, að hann vanmat styrk-
leika Þjóðverja og vildi ekki
trúa því að þeir myndu ráðast á
Rússland. Hann vanrækti alger-
lega varnir vesturlandamæranna.
— Sú kenning Stalins var röng
að styrjöld milli sósíalísku og
kapítalísku ríkja«na væri óhjá-
kvæmileg.
— Önnur kenning Stalins var
einnig röng, sú að stéttabaráttan
harðnaði eftir því sem sósíalism-
inn ynni á í þjóðfélaginu.
Stalin er þakkað, að Rússland
er orðið land stóriðnaðar og fyrir
það að samyi-kjubúskap var kom-
ið á í landinu.
Þóttist vera óskeikull
Hins vegar hófust mestu
mistök hans þegar hann fór
sjálfur að halda að hann væri
óskeikull og tók ákvarðanir
án þess að leita álits mið-
stjórnarinnar. Illmenni eins og
Lavrenti Beria, Henry Jag-
Alfi-æðiorðabókin er nú fáorð
um hann.
oda og Nikolai Jeshov áunnu
sér traust Stalins og notuðu
sér það til þess að koma
mörgum heiðarlegum og trygg
um flokksmönnum fyrir
kattarnef.
Þess er getið í alfræðiorða-
bókinni, að snemma hafi far-
ið að bera á skapgerðarveilum
Stalins og hafi Lenin m. a.
veitt þeim athygli, sem kemur
fram i bréfi sem Lenin skrif-
aði til flokksstjórnar Bolsé-
vika 1922.
Einar B|arnason
heiðraður
HANS hátign Danakonungur, hef
ur sæmt Einar Bjarnason ríkis-
endurskoðandaKommandörkrossi
Dannebrogsorðunnar, en Einar er
formaður Íslandsdeildar hins
Norræna embættismannasam-
bands.
Var Einari afhent orðan í
danska sendiráðinu af sendiherra
Dana, Knuth greifa.
í KVIKMYNDIR *
„Þættir úr
EKKI alls fyrir löngu vakti það
mikla athygli víða um heim, er
kona ein í Bandarikjunum var
talin hafa undir áhrifum dáleiðslu
getað rakið æviferil sinn í fyrra
jarðlífi. Vísindamenn voru kallað
ir til að rannsaka þetta merkilega
fyrirbrigði ,og um konuna, sem
heitir Ruth Simmons, var skrifuð
bók, sem varð metsölubók í
Bandaríkjunum á síðastliðnu ári.
— Ekki man ég hversu rannsókn
um vísindamannanna lyktaðx en
minnir þó að ýmislegt kæmi í ljós
er veikti mjög sanngildi fyrir-
brigðisins. —
Nú hefur verið gerð kvikinynd
í Ameríku um fyrirbrigði þetta,
er nefnist „Þættir úr fyrra lífi“
og er hún nú sýnd hér í Tjarnar-
bíói. — Það má vel vera að erfitt
fyrra lifi"
sé að gera góða kvikmynd um
efni sem þetta, enaa hefur hér
tekizt svo illa, að ég hexd að ég
hafi sjaldan eða aldrei séð ieiðirx
legiá mynd. Er hún bæði frámuna
lega langdregin og fábreyti að
efni, enda enginn söguþráður í
henni, heldur aðeins sífelld dá-
leiðsla og margendurteknar spurrx
ingar dávaldsins. — Það er eins
og þeir, sem gerðu þessa mynd,
hafi réttilega skilið að hér var um
lélegt verk að ræða. Því að mynd
in endar á þeim orðum, að „fyrir
brigið“ sanni í rauninni ekki
annað en að dáleiðsla sé mikill
og dularfullur kraftur. — En
áður en svo langt var komið
myndinni voru margir áhorfend-
ur gengnir út úr Tjarnarbíói og
lái ég þeim það ekki.
Ego,