Morgunblaðið - 20.04.1958, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.04.1958, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐ1Ð Sunnudagur 20. apríl 1958 Fí Da^bók Slysavarðstofa Reykjavíkur f Heilsuverndarstöðinni er >pin afl- an sólarhringinn. Læknavörður L. R (fyrir vitjanir) er á sama stað, frá kl. 18—8. — Sími 15030. Næturvörður er í Reykjavíkur- apóteki. Sími 11760. Holts-apótek og GarSsapótek eru opin á sunnudögum kl. 1—4. Hafnarf jarðar-apótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl. 9—16 og 19—21. Helgidaga kl. 13—16 Næturlæknir er Kristján Jóhann- esSon. Keflavíkur-apótek er opið alla virka daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—16. Helgidaga kL 13—16. Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9 er opið daglega kl. 9—-20, nema laugardaga kl. 9—16 og helgidaga kl. 13—16. — Sími 23100. I.O.O.F. 3 === 1394218 = EESMessur Keflavíkurkirkja: — Ferming- arguðsþjónusta kl. 1,30 síðdegis. Séra Björn Jónsson. IS^Brúökaup 5. þ.m. voru gefin saman f hjónaband af séra Þorsteini Jó- hannessyni, fyrrv. prófast í Vatnsfirði, ungfrú Ölafía Ara- dóttir, skrifstofumær frá ísafirði og Kristinn Jón Jónsson, garð- yrkjumaður frá Vonarlandi við Isafjarðardjúp. — Heimili ungu hjónanna er í Skaftahlíð 26. S.l. laugardag voru gefin sam- an í hjónaband Þorbjörg Bjarna- dóttir, Grettisgötu 57A og Guð- mundur Jónsson, bílaviðgerðar- maður, Nökkvavog 15. — Heimili þeirra verður að Nökkvavogi 15. Nýlega voru gefin saman í hjónaband ungfrú Lotte Basser, Klappacherstr. 7, Darmstadt og Baldvin Gestsson, verkfræðinemi, Ægissíðu 107, Rvík. Heimili þeirra verður fyrst um sinn að Holzhofallu 6, Darmstadt, Þýzka- landi. —• 1 gær voru gefin saman í hjóna band af séra Þorsteini Björnssyni ungfrú Sólveig Halblaub frá Lax árvirkjun, S.-Þing. og Guðm. E. Hannesson, raflínu-verkstjóri frá Arnkötlustöðum, Hoitum, Rang. A F M Æ L I Sjötug verður á morgun, mánu dag, frú Kristín Helgadóttir, Álfatröð í Dalasýslu og n.k. sunnu dag, 27 þ.m. verður maður henn- ar Hjörtur Ögmundsson bóndi, 65 ára. Um þessar mundir eru þau hjónin hér í bænum og dvelja á heimili dóttur sinnar og tengda- sonar, að Laugavegi 28B. ★ ★ ★ Sæunn Sæmundsdóttir, Ból- staðarhlíð 36, er 70 ára í dag. HEIUA |Hjónaefni Nýiega hafa opinberað ti'úlof- un sína ungfrú Harpa B. Hall- dórsdóttir, Rauðalæk 47, Reykja- vík og Halldór Þ. Sigfússon, hár- skeranemi, Eskihlíð 10A, Rvík. Nýlega hafa opinberað trúlof- un sína ungfrú Guðlaug Kristins dóttir, Villingaholti og Ágúst Ei- ríksson, Bólstaðahlíð 12. ^JFlugvélar Flugfélag íslunds h.f.: Hrím- faxi er væntanlegur til Rvíkur kl. 16,50 í dag frá Hamborg, Kaup mannahöfn og Osló. — Innan- landsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar og Vest- mannaeyja. — Á morgun er áætl að að fljúga til Akureyrar, Fag- urhólsmýrar, Hornafjarðar, Isa- fjarðar, Siglufjarðar og Vest- mannaeyja. JFélagsstörf Kvenfélagið Keðjan. Fundur, mánudaginn 21. apríl kl. 8,30 í félagsheimili prentara, Hverfis- götu. — „BræSralag”. — Fundur verður í „Bræðralagi", kristilegu félagi stúdenta, mánudaginn 21. april, á heimili séra Jakobs Jónssonar, Engihlíð 9 og hefst kl. 8,30 e.h. Séra Jakob Kristinsson, fyrrver- andi fræðslumálastjóri og Sigur- páll Óskarsson, stud. theol., flytja framsöguerindi um Allarisgöngur. Ymislegt Háskólatónleikar verða í hátíða salnum í dag kl. 5. Fluttur verð- ur af hljómplötutækjum skólans síðari hlutinn af Sálumessu (Ein deutsches Requiem) eftir Brahms. Róbert A. Ottósson skýrir verkið. Öllum er heimill ókeypis aðgangu MálverkauppboS. — Sigurður um við í hag, sem Benediktsson heldur málverka- uppboð í Sjálfstæðishúsinu n. k. föstudag. Spuming dagsins TeljiS þér, aS of mikils íburðar gæti í fermingarveizlum og ferm- ingargjöfum nú á döguni? Séra Árelíus Níelsson: Ferming- arveizlur hafa meiri menningar- blæ, ég vil segja kristilegri svip, nú en áður var. Víðast ríkir nokkur jöfnuð- ur, öfund og met ingur hafa þok- að í baksýn, sársauki fátæku barnanna yfir því að vera sett hjá er lítið áber- andi, enda bú- þjóðfélagi og við efna- er ólíkur því, sem var fyrir nokkrum áratugum, þegar sum börn fengu hvorki veizlur né gjafir. Áfengisnautn í fermingar- veizlum virðist næstum horfin. — Gjafir eru miklar og margar, en óhófs gætir ekki að ráði þar sem ég þekki til. — En mér finnst ekki nægilega hugsað um að velja gjafir, sem minna á tilefni dags- ins og geta orðið ævilöng eign t. d. listrænir minjagripir og sígild rit. Og veizlurnar ættu að þekkj- ast frá öðrum veizlum, t. d. með sérstakri borðskreytingu, sem gjörð væri með blómum og ljós- um, sérstökum leikum og döns- um. — Margrét Ingimarsdóttir, hús- frú: — Já. Það er ánægjulegt, að vinir og vandamenn komi saman á heimili ferm ingarbarnsins til þess að sam- gleðjast því á fermingardag- inn, sem alltaf er mikill hátíðis dagur í lífi hvers og eins. En þegar sam- komuhús eru lifyndasaga fyrir börn pöntuð með margra mánaða fyr- irvara, tel ég vera komið út í öfgar, enda er kostnaðurinn slík ur, að tvær og fleiri fjölskyldur taka sig stundum saman, þegar um leigu á stórhýsi er að ræða. Og svo eru það fermingargjafim- ar. Flestir gefa allt of dýrar gjaf ir hugsum okkur fólk, sem þarf að gefa 5 eða 6 fermingar- börnum. Það kemur við pyngjuna, ef allar gjafir verða að vera mörg hundruð króna virði, eins og nú virðist tíðkast. Jóhann Ármann Jónasson, úp- smiður: Spurningunni svara ég hiklaust neitandi. Síðan ég fermd- ist, fyrir 64 ár- um, hafa að- standendur og vinir fermingar- barna, sem ég þekki tii, kapp- kostað að gefa bömum hagnýt- ar og hugþekkar gjafir — Fyrr- um langaði flestar stúlkur og drengi til þess að fá reiðtygi í fermingargjöf. En nú eru tímarnir breyttir og hörn um gefnar aðrar gjafir. Sé al- menn kaupgeta borin saman við fjárhagsafkomu almennihgs í gamla daga, þá held ég að nú sé síður en svo hlutfallslega meira borið í fermingargjafir en áður tíðkaðist. Marta Bjarnadóttir, 13 ára: Já, í flestum fermingarveizlum er of mikil viðhöfn, en samt er það mis jafnt. Börnum þykir gaman að fá gjafir og veizl ur. Það fer mik- ið eftir efnahag foreldranna. Mér finnst það vit- leysa að halda stórveizlur og fá að láni skemmti- staði og stórhýsi, þvi að hægt er að heima fyrir minni húsrými er ekki mjög lítið. Um gjafirnar er það að segja, að það er gaman að fá gjafir, þótt þær séu ekki dýrar. hafa veizlu peninga, ef Sigurður H. Dagsson, 13 ára: Ég svara játandi, enda þótt mér finnist full ástæða til þess að haldnar séu ferm ingarveizlur. Ég segi ekki, að all- ir þurfi að gefa gjafir, en þar gefst fólki tæki- færi til að koma saman og rabba um daginn og veginn — og svo auðvitað að éta og drekka. Ég hugsa að flest ferm ingarbörn hlakki mest til gjaf- anna, en hugsi minna um ferm- inguna sjálfa. 145. „Ert þú mikið veik, amma?“ spyr Heiða, er hún sér blindu konuna liggja í rúminu. „Nei, það er bara svo kalt,“ svar ar amma. „En þú getur verið viss um, að nú er ég fegin að eiga hlýja sjalið, sem Klara sendi mér, því að teppið er svo þunnt“. „Bara að ég hefði tekið sængur- fötin mín með mér frá Frankfurt, það voru alls konar koddar og teppi“. Heiða strýk- ur hönd ömmu. „Já, en mér líður vel, ef þú vilt bara lesa ofurlítið fyrir mig“, seg- ir amma. Heiða tekur biblíuna ofan af hillu og fer að lesa upphátt fyrir ömmu. 146. Heiða les fyrir ömmu, þangað til fer að dimma. Þá kveður hún og fer út til Péturs, sem er þegar seztur á sleðann. Heiða sezt fyrir aftan hann, og þau þjóta með ofsahraða niður fjallshlíðina. Heiðu verður hugsað til ömmu, þegar hún er háttuð niður í hlýja rúmið sitt bak við heitan ofninn: — Hver á nú að lesa fyrir ömmu? Ekki get ég farið til hennar á hverjum degi, og Pétur getur ekki lesið. Allt í einu dettur henni gott ráð í hug. Henni finnst hugmyndin svo snjöll, að hún getur varla sofnað þrátt fyrir hlýjuna frá ofninum. 147. „Pétur, nú skal ég segja þér nokk- uð“, segir Heiða við Pétur, er hann kemur næsta dag. „Þú verður að læra að lesa“. „Ég er að reyna það,“ segir Pétur stuttur í spuna. „Já, en þú verður að læra það almennilega, svo að þú getir lesið fyrir ömmu.“ Heiða er mjög áhugasöm: „Ég skal kenna þér. Mamma þín segir, að þú eigir að fara í skóla í Frankfurt, og það verður hlegið að þér, ef þú getur ekki einu sinni stautað þig fram úr lexíunum“. „Við verðum víst að reyna“, muldar Pét- ur. Heiða di-egur Pétur að þorðinu, og þau byrja undir eins. FERBINAIMD Misskilningur Ingunn líagnarsdóltir, 13 ára: Já. Mér finnst ekki hægt að halda dýrar veizlur, en ég veit, að sumum þykir gaman að þeim, en öðrum ekki. Og að koma með stórgjafir finnst mér ekki rétt. Ég mundi ekki vilja hafa veizlu, mér finnst veizlur bara til þess að fá gjafir. Friðrik G. Cunnarsson, 13 arai Já, það finnst mér, þar sem ferm- ingin er aðeins staðfesting a skírninni. Eg tel það einnig of mikið að hjóða svo mörgu fólki, að sumir þekkja ekki ferm ingarbarnið fi'á hinum- gestun- um — og að f ermingarbarn ið þekki ekki nærri alla gestina. Líka það, að sumir leigja stóra sali, Leikhúskjallar- ann eða Borgina, til veizluhalds- ins. Það gæti verið skemmtilegra að hafa veizluna minni, frekar stutta í stað þess að hafa hana langt fram á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.