Morgunblaðið - 20.04.1958, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.04.1958, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 20. apríl 1958 Nor&urveggur vatnsjöfnunarþróarinnar, ásamt jarðgöngunum, sem styrkt hafa verið með öflugum steinsteyptum boga. — Ofan við munnann er strengt net á þróarvegginn til að koma ÞEGAR við höfðum klöngrazt á bílnum yfir illfæran Sogsveg og vorum komnir á móts við Drátt- arhlíð við Úlfljótsvatn, var svo að sjá sem einhverjar nátt- úruhamfarir hefðu bylt þar öllu við á stóru svæði. Er við svo komum á „Stríðsbrúna" við Efra Sog, þar sem hin mikla orrusta var háð eina síðsumarsnótt í fyrra, sást að þar var ekki um skipulagslaust umrót að ræða, heldur sprengingar fyr- ir hinum miklu mannvirkjum Efra-Sogs virkjunarinnar, sem rísa eiga þarna i hlíðinni. Að eyr- um okkar barst alls konar véla- skrölt frá bílum, vélum, krönum o. fl. Alllangt fyrir neðan okkur var fjöldi manna að störfum. Þar niðri eru undirstöður fyrir stöðv arhús orkuversins og verður botn þess um 12 metrum fyrir neðan vatnsborð Úlfljótsvatns. Til þess að sprengja þennan djúpa grunn inn í bergið og síðan fyrir frárennslisskurði stöðvar- innar, þurfti fyrst að gera öfl- ugan varnargarð út í Úlfljóts- vatn, til að bægja vatninu frá. Garður þessi er gerður úr grjót- fyllingu með járnþili til þétting- ar. Hann er um 120 m langur og nær hann alllangt út í vatnð. Nú er lokið við að sprengja og grafa fyrir stöðvarhúsinu. Menn irnir voru að steypa botnplötu hússins. Til þess að koma stöðv- arhúsinu fyrir og aðrennslispíp- v.'>V v ^^ . xM^-v >' Séð yfir í Dráttarhlíð frá Sogaveginum, þorpið sem risið er uppi i hliöinni og neðan við það vatnsjöfnunarþróin með jarðgöng- unum. — Til vinstri við þau sést steypustöðin. (Myndirnar tók ljósm. Mbl. Ól. K. M.). unum, þurfti að sprengja úr Drátt arhlíð um 16000 teningsmetca. Hærra í hlíðinni og „bak við“ stöðvarhúsið verður geysileg vatnsjöfnunarþró. Er hún sömu- íeiðis sprengd inn í hlíðina og mun rúmtak klappa sem sprengja þurfti þar, vera þó nokkru meira en í grunni stöðvarhússins, eða kringum 21,000 teningsmetrar. XÍr botni þessarar vatnsjöfnunarþró- ar eiga svo jarðgöng að liggja þvert í gegnum Dráttarhlíðina og út í Þingvallavatn. Um þau renn- ur vatnið til orkuversins. Er vinn an við jarðgöngin nú hafin. Þeg- ar okkur bar að garði voru göng- in orðin um 30 m á lengd, en þau verða alls tæpl. 400 m. Þar inni er all-vítt til ’veggja' eða 8 metrar. Bergið í Dráttarhlíð *r móbergs myndun. Er það mjög laust fyrir og gljúpt. Ber þegar á töluverð- um „leka“ í göngunum og eins í grunni stöðvarhússins. Virðist þetta vatns seytla í gegnum hlíð- ina frá Þingvallavatni. Vestan við hina miklu vatns- Framh. á bis. 22 Þessi mynd er tekin ofan af steypustöðinni. Útsýni er fallegt í Dráttarhlíð. Það sér yfir grunn stöðvarhússins og utar varnar- garðinn og járnþilið. — Úifijótsvatn er í fjarska og Búrfeli i Séð út ur jarögöngu..- í veg fyrir grjóthrun. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.