Morgunblaðið - 20.04.1958, Blaðsíða 10
10
MORCVISBL AÐ1Ð
Gullhátíð kvik
myndaborgarinnar
Sunnudagur 20. apríl 1958
mmmrnmmmmismmmmMmimmtm! * * *
Joanne Woodward í kvikmyndinni Three Faces of Eve, þar sem hún leikur nnga sálsjúka konu
með þríklofinn persónuleika. Fyrir leik sinn í myndinni fékk hún Oscar-verðlaunin.
Frá fréttaritara Morgunbl.,
Reyni H. Oddssyni.
Hollywood, 27. marz 1958.
Bandaríska kvikmynda-aka-
demian afhenti í gærkvöldi Osear
verðlaunin fyrir beztu kvik-
myndir ársins 1957. Aldrei fyrr
hefur verið eins mikill viðbún-
aður og hátíðahöld í sambandi
við verðlaunaafhendinguna og
nú, og geysilegum fjárfúlgum
var varið í þessu skyni. Það má
líka segja, að allt hafi þetta borið
mikinn og glæsilegan árangur.
Afhending verðlaunanna fór
fram í Pantages-leikhúsinu, sem
er eitt hið stærsta hér í borg og
rúrttar á þriðja þúsund manns í
sæti. Meðal viðstaddra voru
margar frægustu filmstjörnur
heims, leikstjórar og kvikmynda
framleiðendur hvaðanæva að, svo
og aðrir gestir. Hafa sennilega
aldrei verið saman komnir á ein-
um stað jafnmargir frægir menn
í heimi kvikmyndanna. Kvik-
myndaleikkonurnar voru í hinum
skrautlegustu búningum, sumar
voru í kjólum með slóða,
gyllta setta margvíslegum gló-
andi steinum. Er áætlað að
sumir kjólarnir hafi kostað allt
að 50 þúsundum dala fyrir utan
gull og annað glingur, sem kven-
fólkið bar um háls sér og herð-
ar.
Þessari miklu gullhátíð var
bæði sjón- og útvarpað um öll
Bandaríkin og Kanada. Áætlað
er að um 90 milljónir manna hafi
fylgzt með því, sem fram fór, eða
mestur hluti fótatærra manna í
Vesturheimi. Enda er það svo,
að fátt er það, sem dregur hér
að sér athyglí alþýðu manna á
þessu slóðum eins og einmitt hin-
ar frægu kvikmyndastjörnur.
í upphafi hátíðahaldanna lék
Akademíuhljómsveitin undir
stjórn Alfreds Newmanns forleik,
sem sérstaklega hafði verið sam-
inn í þessu tilefni. Síðan kom
fram leikstjórinn George Seaton,
forseti Akademíunnar, og setti
hátíðina með stuttri ræðu. Því
næst tók leikarinn James Stew-
art við og tilkynnti, að byrjað
yrði á því að afhenda verðlaun
fyrir, beztan leik í aukahlutverK-
um. Þar komu til greina ítalski
leikarinn Vittorio DeSica, sem
vakti sérstaka athygli fyrir leik
sinn í kvikmyndinni Vopnin
kvödd eftir sögu Hemingways,
japanski leikarinn Sessue Haya-
kawa, sem þótti leika afbragðs
vel í myndinni Brúin yfir Kwai-
ána og bandaríski leikarinn Red
Buttons, sem var einnig sagður
koma til greina fyrir leik sinn í
myndinni Sayonara, svo og
nokkrir aðrir leikarar. Áður en
langur tími leið, birtist leikkon-
an Lana Turner á sviðinu og til-
ky'nnfí,' áð ' sigurvegarinn væri
Red Buttons. Hann geystist siðan
upp á sviðið og tók á móti gull-
styttunni, við- mikið lófaklapp
viðstaddra.
Þegar hér var komið sögu, hóf-
ust ýmis skemmtiatriði, sem
Jimmy Stewart kynnti. Margir
frægir leikarar sungu gömul
Oscarverðlaunalög, því að verð-
laun voru einnig veitt fyrir bezta
frumsamda lagið, sem sungið var
í kvikmynd, á árinu. Dean Martin
söng lagið „All away“, býsna
þokkalegan lagstúf og hlaut hann
verðlaun að þessu sinni. Kirk
Douglas og Burt Lancaster sungu
gamanvísur í sameiningu. Text-
inn var eitthvað á þá leið,
hversu gott það væri að vera
ekki tilgreindur sem möguiegur
verðlaunahafi, þá væri hjartað
a. m. k. á réttum stað, áður en
vitað væri ufn sigurvegarana. Að
söng þeirra félaga loknum var
afhentur fjöldi verðlauna fyrir
tæknilegar framfarir og uppfinn-
ingar ýnuslegar, svo sem ný og
stærri breiðtjöld fyrir bílabíó,
nýjar linsur í kvikmyndatöku-
vélar, alls kyns kapla, kaðla o. m.
fl. Tók það býsna langan tíma,
að afhenda öll þessi verðlaun og
virtust mér margir gestana orðn-
ir frekar órólegir í bekkjum sín-
um, enda fjallaði þessi þáttur að-
allega um tækni og það mjög
flókna tækni á köflum. En um
síðir rættist úr þessu, því að við
kynningu tók hinn góðkunni gam
i anleikari Bob Hope, nýkominn úr
Rússlandsför, og hafði marga
smellna brandara á takteinum.
Einnig gat hann þess utan dag-
skrár, að sér hefði ekki tekizt að
vinna Oscar-verðlaunin ennþá,
og vildi hann helzt kenna fyrr-
verandi leikstjórum og öðrum er
hiut eiga að máli um það. Fþilu
brandarar hans í góðan jarðveg
sem enara nær ug vöktu mikia
kátínu.
Ernest Borgnine, sá er hlaut
Oscar-verðlaunin fyrir leik sinn
í myndinni Marty fyrir tveimur
áruni, afhenti nú'verðiauimn fyr
ir bezt gerðu aukamynd ársir.s,
(Documentary film). Jeorme
Hill hlaut verðlaunin í þetta
skipti fyrir mynd sína um mann-
vininn mikla Albert Schweitzer
Anthony Quinn, sem hafði verið
tilnefndur sem mögulegur sigur-
vegari fyrir beztan leik ársins í
myndinni Wild is the wind, til-
kynnti nú að verðlaun fyrir bezt
an leik ársins í aukahlutverki
hefðu fallið í hlut japönsku leik-
konunnar Niyoshi Uneki, en hún
lék á móti Red Button í Sayonara.
Þegar Uneki tók við verðlaunun-
um, vann hún hjörtu allra þeirra
milljóna, er á horfðu, með yfir
sem svo mjög einkennir margar
japanskar konur. Hún er lágvax-
in, en sómdi sér þó vel í þjóð-
búningi lands síns. Hún sagði:
„Ég ekki vita, hvað ég skal segja,
ekki hafa neina ræðu, ég aldrei
láta mér detta í hug, ég svo ákaf
lega glöð og þakklát amerísku
þjóðinni“, og um leið hneigði hún
sig að japönskum sið. Við gífur-
leg fagnaðarlæti gestanna yfirgaf
hún svo sviðið. Rock Hudson og
Jennifer Jones afhentu verðlaun-
in fyrir beztu teiknimynd áisins
og stutta efnismynd (Short Suo-
jects). Þau hlutu Walt Disney
fyrir The Wetback
Hound og Warner Bros fyrir
Birds Anonymous. Síðan tóku við
ýmis skemmtiatriði um stundar-
sakir en á milli þeirra voru af-
hent nokkur smærri verðlaun svo
sem til bezta klæðskerans. Sá,
sem sá um búningana í músík-
myndinni „Les girls“, bar sigur
úr býtum. Þetta mun vera sama
myndin og fegurðardrottningu ís
lands 1957 var boðið hlutverk í,
þegar hún tók þátt í alheims-
keppni þokkadísa hér á Löngu-
fjöru síðastliðið sumar. Mörg
önnur verðlaun voru veitt.
Verðlaunaafhending féll niður
á meðan sýndar voru smáglefsur
úr sögu kvikmyndanna síðastliðin
50 ár í tilefni þess, að hálf öld
er liðin frá því, að fyrsta myndin
var gerð hér í bæ. Að því loknu
tók Kim Novak við verðlaunum
franska rithöfundarins Pierre
Boulle, í fjarveru hans, en verð-
laun þessi hlaut hann fyrir bezta
kvikmyndahandrit, sem byggt
var á hans eigin skáldsögu: Brúin
yfir Kwaiána. Verðlaun fyrir
bezta hljómlist í kvikmynd hlaut
Marcon Arnold, en hann samdi
hljómlistina í sömu mynd. Daína
Wynter og Fred Astaire afhentu
verðlaunin fyrir beztu erlendu
mynd ársins. Þau hlaut ítalska
myndin, Nights of Cabiria,, gerð
af Dino DeLaurentiis.
Enski leikarinn David Lean
hlaut Oscarverðlaunin fyrir
beztu leikstjórn á árinu. Stjórn-
aði hann töku myndarinnar Brú-
in yfir Kwaiána og þykir hann
hafa innt það verk af hendi með
undraverðum árangri. „Bráin“
hlaut einnig verðlaun sem bezta
bandaríska mynd ársins.
Þegar hér var komið sögu, voru
taugar margra gestanna areiðan-
lega orðnar allspenntar, því að
nú var aðeins eftir að veita tvenn
verðlaun, en það voru líka þau
verðlaun, sem merkust þykja og
mesta athygli vekja. Verðlaunin,
sem hér um ræðir, eru bezta
leikarans og beztu leikkonu árs-
ins. Þær leikkonur, sem menn
álitu að til greina kæmu, voru
Deborah Kerr fyrit Heaven
knows, Mr. Allyson,-. Anna Magn
ani fyrir Wild is tiie Wind og
Joanne Woodward fyrir Three
Faces of Eve. John Wayne gekk
nú fram á sviðið með hið gullna
leyndarmál umslagsins góða. Þar
var fyrir Bob Hope og tók hann
nú á móti honum með gaman-
máli. Umslagið var opnað, og í
Ijós kom, að sigurvegarinn var
bin unga leikkona Joanne Wood
ward. Við fagnaðarlæti og mikið
lófatak tók hún við hinni fögiu
gullstyttu, hágrátandi af gleði
yfir hinum mikla sigri. „Ég hef
óskað þessa síðan eg var 9 ára
gömul“, sagði leikkonan, um leið
og hún þerraði tárin úr augun-
um. Hún var áreiðanlega vel að
sigrinum komin fyrir frábæra
túlkun sína á hinum þríklofna
persónuleika sálsjúku konunnar
ungu í myndinni Three Faces of
Eve.
Að síðustu bar Cary Grant
fram Oscar-styttuna, sem innan
litillar stundar átti að falla í
hendur einhvers þeirra Marlon
Brandos, fyrir Sayonara, Anthony
Franciosas fyrir A Hatfuli of
Rain, Charles Laughtons fyrir
Witnes for The Prosecution. og
eins og fyrr er sagt Anthony
Quinns fyrir Wild is the Wind.
Alec Guinnes hafði einnig venð
nefndur fyrir leik sinn í Brúin
yfir Kwaiána og höfðu margir
spáð honum sigri, enda fór svo,
að áður en langt um leið var
tilkynnt, að hann hefði borið
sigur úr býtum. Því miður gat
hann ekki verið viðstaddur vegna
anna við töku nýrrar kvikmynd-
ar í Englandi, en landi hans,
enska leikkonan Jean Simmons,
tók við styttunni fyrir hans hönd.
Hún minntist á, að fyrir um 13
árum hefði hún unnið með hon-
um að kvikmynd heima í Eng-
landi, sem einnig var stjórnað
af David Lean. Hún sagði Guinn-
es vera að sínu áliti mestan leik-
ara, sem nú væri uppi, og frarn-
úrskarandi listamann. Ég býst
við að flestir hafi tekið undir orð
Alec Guinnes í Oliver Twisi,
sem sýnd var i Tjarnarbiól fyr-
ir nokkrum árum.
hennar og með sjálfum sér ósk-
að hinum mikla snillingi inmlega
til hamingju.
Afli Akranesbáta
AKRANESI, 18. apríl — Heildar-
afli 16 báta hér í gær var alls
137 lestir, Aflahæstir voru Sig-
urvon (23,7 lestir) og Höfrungur
(19 lestir). — Hingað kom togar-
inn Bjarni Ólafsson í dag með
um 170 lestir. Meginið er þorsk-
ur. Togarinn var 15 daga að veið-
um. — Þyrill losaði í gær olíu á
geymi sementsverksmiðjunnar.
■■■ '■ "■■■■■■■ ' -
Frá afhendingu verðlaunanna. Frá vinstri til hægri: Red Butt-
ons, Joanne Woodward, Sam Spiegel framleiðandi, Miyoshi
Umeki, David Lean og Jean Simmons, sem tók við verðlaun-
unum fyrir hönd Alec Guinness.
lætislausri framkomu og innileik,
Alec Guinnes sem Colonel Nicholson í Brúnni yfir Kwai-ána.