Morgunblaðið - 20.04.1958, Qupperneq 21
Sunnudagur 20. apríl 1958
MORCUISBLAÐIÐ
-1
21
Bragi Egilsson stud. med.
M inningarord
„Sáum við svanina fljúga
til sóllanda fegri“.
FJÓRIR ungir menn lögðu upp
í flugferð hinn 29. marz sl. Þeir
hafa ákveðna ferðaáætlun í huga,
en þeir vita ekki að ferðinni er
heitir til „sóllanda fegri“, að ferð
þeirra endar, þar sem mannlegu
lífi lýkur, og eilífðin tekur við.
Þeir vita ekki, að örlögin hafa
þegar samið aðra áætlun sem
öllum var hulin, en sem nú er
öllum kunn og að ferðalokin hafa
valdið vinum og vandamönnum
og öllum íslendingum hinum sár-
asta trega. Hin síðustu spor fjór-
menninganna ungu á þessari jörð,
er þeir gengu að flugvélinni,
hafa eflaust verið létt og hug-
ur þeirra fullur eftirvæntingar
og gleði.
Það er háttur æskunnar að
trúa þvj að allir vegir séu færir.
Þeir finna æskuþróttinn og lífs-
gleðina streyma um hverja taug
og bölsýni er flestum ungum
mönnum fjarri skapi. En það er
einkenni heilbrigðs sálarlífs, að
trúa á lífið og vera vonglaður um
framtíðina. Æskumaður í blóma
lífsins minnir okkur á ungt tré
á fögrum vormorgni. Sumarið og
þroskinn er framundan. Æsku-
mannsins bíður lífið með sínum
mörgu og margvíslegu möguleik-
um. Þessir ungu menn höfðu náð
áfanga á námsbrautinni og höfðu
valið sér það námsefni við Há-
skóla íslands, sem hugur þeirra
stóð til. Þeir voru allir að dómi
kunnugra góðir námsmenn og
„drengir góðir“. Foreldrar þeirra
og aðrir aðstandendur höfðu gert
sér glæstar vonir um framtíð
þeirra, þeir höfðu kostað þá til
náms svo að hæfileikar þeirra
mættu njóta sín á þeim vettvangi
lífsins, sem þeir höfðu valið sér.
Nú eru framtíðardraumarnir að
engu orðnir og eftir er aðeins
söknuðurinn og sorgin að sjá á
bak sonunum góðu.
Við segjum „að mennirnir
ákvarði en guð ráði“, og vissu-
lega verðum við að trúa því, að
þessir ungu menn hafi verið kall-
aðir til starfa á öðru lífssviði,
þó okkur í okkar mannlegu fávísi
sé um megn að skilja og sætta
okkur við að þeir séu horfnir
okkur.
Til er gamalt spakmæli, sem
segir: „þeir sem guðirnir elska,
deyja ungir“. Ég hefi hugsað að í
gömlu spakmælunum fælist
summan af reynslu horfinna
kynslóða sem lærðu af lífinu og
drógu sínar ályktanir af því sem
lífið kenndi þeim. Eftir þessu að
dæma ætti alvitund tilverunn-
ar að líta svo á, að þeim sem
miklum hæfileikum og mann-
kostum eru búnir, sé ekki langra
lífdaga fyrirhugað í okkar jarð-
vistartilveru. Vísindamenn, sem
kanna fyrirbæri okkar jarðneska
lífs segja, að ekkert verði til af
engu, og ekkert verði að engu í
okkar veröid. Er þá ekki rök-
rétt að álykta að sálarlífið, sem
blundar með hverju ungbarni og
þroskast með þroskun likamans
lifi, þó líkaminn sé horfinn sjón-
um okkar. Við vonum, að sál
þessara ungu manna, sem kvöddu
lífið í blóma þess, verði auðið
að halda áfram á sinni þroska-
braut og við megum trúa því að
„mennirnir lifa þótt þeir deyi“.
Einn þessara ungu manna, sem
fórust með flugvélinni þann 29.
marz, Bragi Egilsson, var sonur
hjónanna Sigurbjargar Guð-
mundsdóttur frá Lómatjörn og
Egils Áskelssonar bónda að Hlé-
skógum í Höfðahverfi. Hann var
fæddur 19. júní 1937 að Borg í
Gunnar Jónsson
Lögmuður
við undirrétti o- hæstarétt.
Þingholtsstræti 8. — Sími 18259
Þórarinn Jónsson
löggiltur skjalaþýðandi
og dómtúlkur i ensku.
Kirkjulivoii. — Sii'ii 18655.
Grenivík í sömu sveit. Snemma
komu í ljós miklir námshæfileik-
ar hjá Braga, svo foreldrar hans
höfðu snemma tekið þá ákvörðun
að kosta hann til náms. Var
námi hans þar komið, að hann
innritaðist í læknadeild Háskóla
íslands s. 1. haust.
Við vinir þeirra hjóna, glödd-
umst með þeim yfir velgengni
Braga á námsbrautinni, eins og
við nú hryggjumst og höfum
samúð með þeim í þeirra þungu
sorg. Vinir og vandamenn fjöl-
skyldunnar í Hléskógum sakna
þessa unga glæsilega manns.
Hinn 9. marz s. 1. var Bragi
staddur í vina og skyldmenna-
hópi hér í Reykjavík. Engum
viðstöddum hefir víst til hugar
komið, að þessi ungi efnilegi
maður ætti eftir aðeins 20
daga ólifaða. Mér sem þessar lín-
ur rita, var það ánægjuefni að
veita því athygli hve prúðmann-
leg framkoma þessa unga frænda
míns var. Framganga hans var
með mjúklátum og hógværum
blæ, laus við mikillæti eða þótta
sem stundum gætir hjá ungum
mönnum, og sem ef til vill er
að einhverju leyti sprottið af
feimni. Ég veit með vissu að
Bragi var mjög vinsæll meðal
skólafélaga sinna og hvers manns
hugljúfi.
Þess vegna beygjum við nú
höfuð okkar í sorg, og biðjum
guð að styrkja þá sem um sárast
eiga að binda.
L. G.
fbúð til sölu
Til sölu er lítil 5 herbergja íbúð á 1. hæð í húsi
á góðum stað við Langholtsveg. Verð aðeins kr.
280 þúsund. Útborgun æskileg um kr. 180 þúsund.
Eftirstöðvar kaupverðsins eru hagstæð lán. Sér
kynding. Ibúðin er í góðu standi. Rúmgóð girt lóð.
Upplýsingar gefnar í síma 34231.
Það er aðeins eitt,
sem gefur hressandi
vellíðan eftir rakst-
urinn ...... það er
Blátt Gillette
Látið nýtt blátt
Gillette blað
í viðeigandi
Gillette rakvél
og ánægjan er yðar
10 blöð kr.: 17.00.
Sendisveinn
óskast á ritstjórnarskrifstofur vorar.
JPftotgtttdHb&Sft
Sími 22480.
HEF OPNAÐ
T AIMIVLÆKIMIIMG AST ÖFU
í Aðalstræti 6 (Morgunbiaðshúsinu)
Viðtalstími kl. 1.30—6. — Sími 24828.
ÖRN BJARTMARS PÉTURSSON taunlæknir.,
Simi 15300
Ægisgötu 4
Nýkomið
höldur og tappar
á húsgagnaskápa.
Útsögunarsagir, rafknúnar
Gluggatjaldabrautir með
hjólum og kappastöng
Svefnherbeigishúsgögnin
matrgeftirspurðu, eru komin aftur.
Trésmiðian Víðir hf.
Laugaveg 166.
Linoleum gólfdúkur
B og C þykktir