Morgunblaðið - 20.04.1958, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ
Haegviðri, dálítil rigning.
Hiti 1—3 stig.
90. tbl. — Sunnudagur 20. apríl 1958
Reykjavíkurbréf
er á bls. 13.
15 mán. fangelsi fyrir að verða
manni að bana af gáleysi
Eins og skýrt hefir verið frá í fréttum, verður óperan Carmen
flutt í tónleikaíormi í Austurbæjarbíói í þessari viku. Þrir
listamenn koma frá útlöndum tii að aðstoða við flutning
óperunnar* Stefán íslandí frá Kaupmannahöfn, Gloria Lane
frá New York og Wilhelm Brúckner-Rúggeberg frá Hamborg,
en hann er fyrst hljómsveitarstjóri við Ríkisóperuna þar í borg.
Mjög hefir verið vandað til alls undirbúnings að flutningi
óperunnar, og undanfarið hefir verið æft af kappi, eins og sjá
má af myndinni hér að ofan. Hún sýnir hljómsveitarstjórann
á æfingu með Sinfóníuhljómsveit íslands, en það er Sinfóníu-
hljómsveitin, sem gengst fyrir flutningi óperunnar.
Unnið fyrir rúma I millj.
kr. í Rifshöfn í sumar
í HÆSTARÉTTI er genginn dóm-
ur í máli sem ákæruvaldið höfð-
aði gegn Ragnari Guðjóni Karls-
syni, Höfðaborg 21 hér í bæ. Mál
þetta var höfðað gegn Ragnari
Guðjóni, fyrir það að hann barði
Jón Ingvar Arnason, verkamann,
Njálsgötu 33, með krepptum
hnefa í andlitið, svo hann féll
aftur yfir sig og skall höfuðið í
götuna, Slasaðist hann svo mjög
við þetta, að hann lézt af afleið-
ingum höggsins um tveim sólar-
hringum síðar.
Atburður þessi gerðist niður
við „Varðarhúsið“ um kl. 10 að
morgni 29. júlí 1957. Hinn ákærði
í máli þessu bar þar að sem hinn
látni var ásamt öðrum manni.
Voru þeir báðir undir áhrifum
áfengis, og buðu Ragnari Guðjóni
sopa, en hann hafnaði því boði.
Lítilli stundu síðar tók Jón Ingv-
ar að fálma framaní Ragnar Guð-
jón. Segir hann að Jón Ingvar
hafi löðrungað sig, en vitni er
nærstödd voru bera að það hafi
þau ekki séð. Tóku þeir að kljást.
Þeim viðskiptum þeirra lauk með
því að Ragnar Guðjón sló Jón
Ingvar eitt högg í höfuðið og féll
hann við það aftur á bak, skall
á höfuðið og lá hreyfingarlaus
á eftir. Ragnar Guðjón sinnti
ekki hinum meðvitundarlausa
manni eftir þetta og gaf þá eina
skýringu m.a. að hann væri skel-
þunnur og ómögulegur.
Jón Ingvar var siðan fluttur í
sjúkrahús meðvitundarlaus. —
Hann kom ekki aftur til meðvit-
undar og lézt í sjúkrahúsi 31.
júlí. Hann var aðeins 33 ára
gamall.
Við dómsuppkvaðningu í und-
irrétti var Ragnar Guðjón Karls-
son dæmdur í 15 mán. fangelsis-
vist og sviptur kjörgengi til op-
inberra starfa og almennra kosn-
inga.
Þennan dóm staðfesti Hæsti-
réttur.
í forsendum hins staðfesta
dóms segir m.a. á þessa leið:
„Engin rök liggja að því, að
ákærður hafi viljað dauða Jóns
Ingvars með árás sinni, né heid-
ur verður gerð krafa til hans um
að hann hafi átt að sjá fyrir sem
Fallegt norskt
kanpfar hér
HINGAÐ til Reykjavíkur kom í
fyrradag fallegt norskt skip
Foldenfjord, en það er Ameríku-
línu skip, sem siglir milli Noregs
og New York. Það kom hingað til
þess að taka fisk til Bandaríkj-
anna. Er þetta fallegt skip, með
dálítið farþegaplass. Það er
20 m lengra en Gullfoss. Það lá
við Ægisgarð og var gert ráð fyr
ir að skipið færi héðan í gær-
kvöldi áleiðis til New York.
Eyvind Johnson
með rifhöfundum
RITHÖFUN D AS AMB AND ís-
lands hefur boðið sænska skáld-
inu Eyvind Johnson til kaffi-
drykkju í Tjarnareafé þriðjudag-
inn 22. þ.m. kl. 4 síðdegis. Mun
Eyvind Johnson væntanlega lesa
þar úr verkum sínum. Eru það
vinsamleg tilmæli stjórnar rit-
höfundasambandsins, að allir þeir
rithöfundar, er því fá við komið,
komi í Tjarnarcafé á tilgreind-
um tíma og fagni góðum gesti.
mjög sennilegar afleiðingar
verknaðar sins dauða Jóns Ingv-
ars, og verður þegar af þeirri
ástæðu að sýkna ákæðran af á-
kærunni um brot á 211. gr. hinna
almennu hegningarlaga.
Árás ákærðs á Jón Ingvar í
umrætt sinn verður að telja vís-
vitandi gerða. Hún réttlætist ekki
af ertni þeirri er Jón Ingvar
hafði áður sýnt ákærðum með
fálmi sínu. Afleiðingar hennar
ber að virða ákærðum sem gá-
leysi. Þykir brot ákærðs rétti-
lega heimfært undir ákvæði 218.
gr. og 215. gr. hinna almennu
hegningarlaga 19/1940.
Refsing ákærðs þykir eftir at-
vikum hæfilega ákveðin fang-
elsi í 15 mánuði.“
■■ ■■ -* ■
Sár óánægja á
Akureyri yfir
dagblaðapósiinum
ENN hafa Akureyringar orðið
æfareiðir yfir meðferð dagblað-
póstsins til þeirra. Á föstudags-
kvöldið klukkan að ganga 9
komu Reykjavíkurblöðin loks til
Akureyrar, því þau voru ekki
send með morgunvélinni og
höfðu verið látin bíða allan dag-
inn. Voru blöðin ekki komin til
kaupenda fyrr en seint um kvöld-
ið. Voru það fimmtudags- og
föstudagsblöðin. í dag, sagði
Svanberg Einarsson afgrm. Mbl.
á Akureyri, í símtali við blaðið
í gærdag, hefur þetta endurtekið
sig. Morgunflugvélin var látin
skilja blöðin eftir. Höfum við,
sem önnumst afgreiðslu blaðanna
fengið óspart að heyra í dag hina
miklu og almennu óánægju
yfir þessu og lesendur blaðanna
krefjast þess að hér verði gripið
í taumana, því slíkt muni Akur-
eyringar ekki láta bjóða sér.
Skipting
b j örguna rlarnia
EGGERT G. ÞORSTEINSSON
flutti fyrir nokkru frumvarp um
breytingu á ákvæðum siglinga
laganna um skiptingu björgunar-
launa. Sjávarútvegsnefnd efri
deildar hefur haft frumvarpið tú
athugunar. Varð nefndin sam-
mála um að leggja til, að það
yrði afgreitt með rökstuddri dag-
skrá. Fram kom við athugun, aó
hér var um viðkvæmt mál að
ræða, sem talið var, að þarfnað-
ist frekari undirbúnings. —• Á
fundi efri deildar í fyrradag var
hin rökstudda dagskrá samþykkt.
SANDUR, 19. marz. — Hingað
kom á fimmtudaginn flugleiðis
frá Reykjavík svonefnd Rifs-
hafnarnefnd og var í för með
henni formaður fjárveitingar-
nefndar Alþingis Karl Guðjóns-
son og Jón Gunnarsson verk-
fræðingur frá vitamálskrifstofun
um en hann mun eiga að hafa
yfirumsjón með hafnarfram-
kvæmdunum, einnig voru í þessu
föruneyti fulltrúar í samgöngu-
og fjármálaráðuneytinu.
Hailbjörg skemmlir
í Ausiurbæjarbíói
EINS og skýrt hefur verið frá
er Hallbjörg Bjarnadóttir nj-
komin hingað til Reykjavíkur,
eftir um 3 ára fjarveru. Hefur
hún víða farið og skemmt og
var t. d. í Finnlandi í vetur, þar
sem skemmtanir hennar vöktu
mikla hrifningu, einnig var svo J
í Svíþjóð. Voru ummæli blaða
vinsamleg og var hún t. d. í einu
Stokkhólmsblaðanna kölluð söng
konan með hundrað raddirnar. —
Nú ætlar Hallbjörg að halda mið-
næturskemmtun í Austurbæjar-
bíói á þriðjudaginn og þar mun
hún koma fram í gerfi margra
heimskunnra söngvara og leikara.
— Hún sagði blaðinu í gær að
hún myndi einnig hér koma
fram með skopstælingu á H. K.L.,
Nóbelsverðlaunahöfundi.
Sendinefnd þessi fór þegar út
í Rifshöfn til þess að skoða þar
höfnina og til að glöggva sig bet
ur á þeim framkvæmdum sem
nú á að ráðast þar í. Þegar komið
var til baka var skotið á hrepps-
nefndarfundi Neshrepps. Þar var
hreppsnefndarmönnum skýrt
frá því hvaða verkáætlanir nú
ætti að fara að framkvæma.
Dýpkunarskipið Grettir verður
sendur til að dýpka og breikka
innsiglinguna og einnig verður
öflug sanddæla með dýpkunar-
skipinu. Þá verður bryggjan
endurbyggð og stækkuð og loks
á að gera steinsteyptan garð við
svokallað Melnes, til að hefta
sandrennsli inn í Rifshöfn.
Þessar framkvæmdir sem hér
hafa verið raktar eiga að kosta
um 1,1 milljón króna og eiga
framkvæmdir að hefjast í júní.
— Rögnv.
ÞAÐ er staðreynd, sagði R. J.
Cooling, umuoðsmaður hins
mikla brezka flugfélags BOAC
á Keflavíkurflugvelli, að fram-
tíð Keflavíkurflugvallar, sem
millilendingarstöðvar fyrir far-
þegaflugvélar á leiðinni milli
Evrópu og Ameríku, er í mikilli
óvissu.
Nú er svo komið, sagði Mr.
Cooling, sem hér hefur starfað
í tvö ár, að flugvélar BOAC hafa
hér færri og færri viðkomur. Það,
sem þessu veldur eru hinar nýju
háloftaflugvélar, sem auðveld-
lega geta flogið í einum áfanga
frá London til New York.
Sem dæmi um það, hversu við-
komum BOAC-flugvéla á Kefla-
víkurflugvelli hefur fækkað,
sagði Mr Cooling er það, að árið
1956 komu BOAC flugvélar við
hér 430 sinnum, en 1957 eru lend-
ingarnar á Keflavíkurflugvelli
komnar niður í 178. Hann gat
þess, að aldrei hefði Skymaster-
flugvél af gerðinni Dc7-c, komið
við á Keflavíkurfugvelli, en þær
flugvélar hafa verið í notkun hjá
félaginu frá því á árinu 1956.
Rannsókn
stóð yfir
KLUKKAN 1.30 í gærdag hófst
rannsókn í máli skozka togarans
Star og Lathallan. Þegar þetta
er skrifað stóðu réttarhöldin
sem hæst. Var komið með togar-
ann um klukkan 6 í gærmorgun.
Hinn skozki togari var tekinn
að veiðum um V-i mílu fyrir inn-
an línu, en áður hafði sézt til
hans enn innan og var var hann
þá á útleið. Var togarainn kom-
inn út fyrir línuna er hann var
stöðvaður.
Skipstjórinn neitaði að hafa
verið að veiðum í landhelgi. í
fyrrinótt var hann hafður um
borð í Maríu Júlíu.
Togarinn er að sjá talsvert
hlaðinn. Er hann nýtízkulegur að
sjá, skrokkurinn rauðleitur, ein-
möstrungur ap, er hið nsnotrasta
skip.
Gullfoss í fyrslu
sumarferð
GULLFOSS fór í gærkvöldi héð-
an áleiðis til Leith og Kaup-
mannahafnar með viðkomu í
Hamborg, en þangað verður far-
ið og þar losar skipið frystan
fisk áður en það fer til Kaup-
mannahafnar. Hér var um að
ræða fyrstu ferð skipsins sam-
kvæmt sumaráætluninni. Var
talsvert af vörum í skipinu og
farþegar rúmlega 60 talsins.
Kynttir sér leikhús-
mál í Noregi
FRAMKVÆMDASTJÓRI Banda-
lags ísl. leikfélaga Sveinbjörn
Jónsson, fór í gær flugleiðis til
Noregs í boði norska Riksteatret.
Mun hann dvelja þar í tvær vik-
ur og kynnast starfsemi leikhúss-
ins og norsku leikhúslífi. Norska
Riksteatret heimóstti ísland á s.l.
esumri og sýndi hér Brúðuheim-
ili Ibsens víða um land á vegum
Bandal. ísl. leikfélaga. Þetta boð
er til endurgjalds og í þakklætis-
skyni fyrir góðar viðtökur hér.
Ummæli Coolin koma vel heim
við þær tölur, sem flugvallar-
stjóri Keflavíkurflugvallar hefur
sent blöðunum. Segir þar að að-
eins 54 farþegaflugvélar, hefðu
komið við í Keflavík allan marz-
mánuð. Af þeim eru flugvélar
frá Pan Americanfélaginu 20.
Þær flugvélar hafa nokkra sér-
stöðu hér, því sem kunnugt er
flýgur PAA áætlunarflug hingað
til landsins.
Flugvélar frá BOAC-félaginu
komu aðeins 7 sinnum við á flug-
vellinum og frá hollenzka flug-
félaginu KLM 4 sinnum.
Kópavogur
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN I
Kópavogi efna tii skemmtunar
nk. þriðjudagskvöld í Oddfellow.
____.....
/í >x? : :ij
Færeyska sjómannaheimilið í Reykjavík
Fromtíð Keflaviknrilngvallar, sem
Killilendingorstöð var tvísýn
— segir fulltrúi brezka flugfélagsins BOAC