Morgunblaðið - 24.05.1958, Qupperneq 23
Laugar'dagur 24. maí 1958
MORC, 11 yUTAÐlÐ
23
— de Gaulle
E'ramh. a£ bls. 1
nú gæti aSeins de Gaulle bjargaS
einingu frönsku þjóðarinnar.
Bidault, fyrrum forsætisráðherra
tók í sama streng í dag, enda þótt
hann segðist eiga erfitt með að
viðurkenna það fyrir sjálfum sér.
★ ★ ★
Það er því sýnt, að fylgi de
Gaulle hefur aukszt mjög síð-
ustu dagana, ekki sízt af ótta
við að franski herinn í Frakk-
landi geri uppreisn gegn
stjórn Pflimlin tii þess að
hrinda baráttumáli herstjórn
arinnar í Aisír íframkvæmd.
í dag hvíldi ró yfir búgarði de
Gaulle. Hann vann fyrrihluta
dagsins að minningum sínum, en
síðari hlutann fór hann í langa
gönguför um skóginn í grennd-
inni. Hann mun ekki hreyfa hönd
til þess að jafna ágreininginn með
frönsku stjórninni og herstjórn-
inni í París fyrr en eftirfarandi
skilyrðum hefur verið fullnægt:
★ að Coty forseti biðji hann
að mynda stjórn
★ að hann fái að flytja þjóð-
þinginu stefnuskrá sína án
þess að til atkvæðagreiðslu
né umræðna komi um hana á
þingi
★ að hann fái að mynda stjórn
án íhlutunar stjórnmálaflokk
anna og fái að velja þá menn
í stjórnina, sem honum líkar
★ að þingið samþykki að leggja
niður störf í l1A—2 ár
Á meðan hyggst hann breyta
lögum um starfsemi þingsins,
rétta þjóöarhaginn við — og af-
sala sér síðan völdum í hendur
þeim þingmanni, sem þingið fel-
ur að mynda stjórn.
★ ★ ★
Við þetta má því bæta, að sam-
bandið milli stjórnar Marokko og
Túnis annars vegar og frönsku
stjórnarinnar hins vegar hefur
farið mjög versnandi síðustu dag-
ana — og það er margra mál, að
engum væri treystandi betur en
de Gaulle til þess að jafna á-
greininginn þar í milli sakir vin-
sælda hans í Afríku.
Pflimlin flutti útvarpsávarp til
frönsku þjóðarinnar í kvöld og
skoraði á hana að sýna stillingu
og einhug í því að bjarga Frakk-
landi — og láta Alsír ekki ganga
Frökkum úr greipum. Nú riði
mjög á að þjóðin virti lýðræðið
og lögin — og ekkert yrði gert,
sem kollvarpað gæti þingræðinu.
★ ★ ★
Síðari fregnir herma, að
Pinay hafi sannfært bæði
Coty og Pflimlin og meiri-
hluta stjórnar hans — um að
nú gæti ekkert annað bjargað
Frökkum en de Gaulle. Fast-
lega er búizt við því að Pflim
lin sendi fulltrúa sinn til
fundar við de Gaulle á morg-
un eða hvítasunnudag til þess
að undirbúa viðræðufund, en
lausafregnir herma, að þegar
sé búið að koma á sambandi
með þeim de Gaulle og Pflim-
lin — og muni þeir ræðast við
leynilega í kvöld eða fyrra-
málið.
'k 'k 'tc
í Frakkiandi eru ekki allir
jafnhrifnir af því að de Gaulle
taki við, enda þótt svo virðist á
yfirborðinu sem mikill hluti
þjóðarinnar vilji nú kalla de
Gaulle til valda.
Kommúnistar telja tilkomu
de Gaulle reiðarslag fyrir sig —-
og viðbúið er, að þeir reyni að
lama allt atvinnulíf landsins með
verkföllum, ef svo fer að hann
taki við. Sex miðflokkar í
franska þinginu mynduðu i dag
„þjóðarnefnd" til verndar lýð-
veldinu og ríkisstjórninni og eru
jafnaðarmenn þar á meðal, en
ekki kommúnistar. Er ásetningur
þeirra sá, að berjast gegn öllum,
sem sýna munu franska þinginu
og þingræði landsins óhlýðni __
og skorar nefndin á alla sanna
Frakka að bregðast ekki málstað
lýðveldisins. Talið er, að þessi
nefnd muni veita de Gaulle einna
harðasta andstöðu, ef hann verð-
ur kvaddur til valda.
400 börn í barnaskóla
ísafjarðar í vetur
ISAFIRÐI, 21. maí. — Barna-
skóla Isafjarðar var slitið laugar-
i_^ 17. maí í Skátaheimilinu
hér, að viðstöddum þeim nem-
endum, er luila barnaprófi, for-
eldrum þeirra og nokkrum öðrum
gestum.
í byrjun minntist skólastjórinn
Jón H. Guðmundsson, fyrrver-
andi skólastjóra Björns H. J'rns-
sonar og konu hans, Jónínu Þór-
hallsdóctur, sem létu af störfum
við skólann sl. vor. Höfðu þau
starfað við skólann í um 30 ár.
Las skélastjórinn upp skeyti er
skólinn sendi þeim skólaslita-
daginn.
Þá greindi skólastjóri frá vetr
arstarfinu. í skólanum voru 400
börn og luku 62 barnaprófi. 12
fastir kennarar starfa við skcl-
ann. Heilsufar nemenda var gott,
ef frá er talinn infúenzufarai lur
sá, er hér gekk í nóvember si.,
en þá varð að loka skólanum um
tíma.
Hæztu einkunn á barnapróii
hlaut Auður Birgisdóttir, 1. ág.
9,3. Fjögur önnur börn hlutu yf-
ir 9 í einkunn á barnaprófi. Þau
voru: Jóna M. Guðmundsdóttir,
,2, Auður Matthíasdóttir, 9,1,
Jón Þ. Kristjánsson, 9,1 og Kol-
brún jhannsdóttir, 9,0. — Allii
hiutu þessir nemendur bókaverð-
1. frá skóla..un.. — Sýning á
liandavinnu og teikningum nem-
enda var sunnudaginn 11. maí.
Var hún fjölbreytt og vel sótt.
■—Guðjón.
Stutt ræða um
„bjargráðin"
FUNDIR voru settir í deildum
Alþingis kl. 1,30 í gær, en þeim
var þegar frestað til kl. 3, vegna
flokksfunda. Hófust þá umræður.
„Bjargráðin“ voru tekin fyrir í
neðri deild. Framsögumaður 1.
minnihluta fjárhagsnefndar deiid
arinnar, Skúli Guðmundsson, tók
til máls og flutti stutta ræðu.
Lýsti hann því yfir, að þeir Emil
Jónsson gerði það að tillögu sinru,
að frv. ríkisstjórnarinnar yrð.
samþykkt með nokkrum brey -
ingum. Lýsti hann 9 breytinga-
tillögum, sem þeir flytja í sam-
ráði við stjórnina. Skipta þær
fæstar miklu, helztu tillögurnar
eru um, að kauptrygging sjó-
manna hækki um 5% frá 1. júní.
heimilt skuli að greiða vátryg^-
ingariðgjöld fiskibáta úr útflutt’
inssjóði allt þetta ár og að laun
útlendra manna skuii undanþegin
yfirfærslugjaldi, ef fyrir þeim er
unnið fyrir 1. júní. Að loklum
sagði Skúli örfá orð um frv. al-
mennt. Síðan frestaði forseti
deildarinnar umræðu og sagði
fundi slitið.
Öllum þeim sem sendu mér hlýjar kveðjur á 65 ára
afmæli mínu, þakka ég fyrir sýndan vinarhug til mín
bæði fyrr og síðar.
Ásmundur Sveinsson.
N Ý T T
vandað sófasett og géBfteppi
vegna flutnings. Tækifærisverð. Góðir greiðslu-
skilmálar.
Upplýsingar í síma 32226 næstu daga.
Skriístofnheibergi óskast
3 góð skrifstofuherbergi í Miðbænum óskast til
leigu. Upplýsingar í síma 16694.
MEISTARAS AMBAND
BYGGINGAMANNA.
OpeB Capitani 1955 tii solu
Bíllinn er keyrður að mestu leyti erlendis. Er vel
með farinn og í fyrsta flokks ásigkomulagi.
Upplýsingar í síma 34082 í dag til kl. 19.
K.F.U.M.
K.F.U.M.
! I
Hótíðissamkoma
verður í húsi félaganna á Hvítasunnudagskvöld kl.
8,30 í tilefni af 90 ára afmæh sr. Friðriks Friðriks-
sonar.
Lokað vegno jorðafaror
þriðjudaginn 27. þ.m.
Björgvin Schram
uiuboðs- og heildverzlun
Öilum skyldum og vandalausum sem á margan hátt
sýndu mér vinsemd og hlýhug á áttræðisafmæli mínu 11.
maí sl. sendi ég innilegar þakkir og árnaðaróskir. ^
Kristín Jósefsdóttir, Staðarhóli. í
Hjartanlega þakka ég börnum mínum tengdabörnum
og öðrum vinum og frændum sem á margvíslegan hátt
glöddu mig á 75 ára afmælisdegi mínum.
Guð blessi ykkur öll og farsæli lífsins veginn.
Jón II. Gíslason.
Konan mín
MAGDALENA SCHRAM
andaðist 22. þ.m. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 27. þ.m. kl. 10.30.
Eliert Kr. Schram.
Hjartkær dóttir mín, systir og mágkona
ÞÖKEY MAGNCSDÓTTIR
lézt í Landsspítalanum 23. maí.
Magnús Gíslason,
Ingibjörg Magnúsdóttir, Hermann Þorsteínsson.
Maðurinn minn og faðir okkar
INGIMUNDUR GUÐJÓNSSON
Garðstöðum, Garði, andaðist 22. þ.m.
Jónina Guðmundsdóttir og börn.
Maðurinn minn
ÁGÚST GUÐJÓNSSON
málarameistari verður jarðsunginn frá kapellunni í Foss-
vogi miðvikudaginn 28. þ.m. kl. 1.30
Pálína Magnúsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir aðsýnda hluttekningu við andlát
og jarðarför
SÆMUNDAR STEINGRlMSSONAR
málarameistara.
Iinstjana Katarínusdóttir, Ilörður Sæmundsson,
Kristín Steingrímsdóttir, Jónas Halldórsson,
Ingunn Steingrímsdóttir, Alfreð Lilliendahl.
•iHiininiiBanaMmnnuMaaMaannnaanraiini
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við and-
lát og jaröarför
GUNNVARAR PÁLSDÓTTUR
Vandamenn.
Mínar dýpstu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd
við andlát og jarðarför móður minnar
JÓHÖNNU SIGRlÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Fyrir mína hönd og skyldmenna.
Sigurþór Eiríksson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd við frá
fall og jaröarför
TEITS STEFÁNSSONAR
trésmíðameistara, Akranesi.
Vandamenn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd við frá-
fali og jarðarför
ÓLAFS A. BJARNASONAR
Erla Erlendsdóttir og börn,
Bjarni Ólafsson.
Hjartanlegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu
samúð sína og hjálpsemi við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar og bróður
CARLS EMILS OLE MÖLLERS JÓNSSONAR
Sérstaklega viljum við þakka Sláturfélagi Suðurlands og
starfsmönnum þess fyrir rausnarlegar gjafir og aðstoð.
Guð launi góðan hug og blessi ykkur öll.
Hrefna Ólafsdóttir og börn og systur hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð við útför mannsins míns og
föður okkar
JÓNS GUÐMUNDSSONAR
skipstjóra.
Aðalheiður Maguúsdóttir og börn hans.