Morgunblaðið - 23.09.1958, Page 1
20 síður
vinnuveitenda í gœrkvöldi
Mánaðarkaup hækkar um 10-11%
Samningar tókust milli Dagsbrúnar og
KLTJKKAN rúmlega 10 í gærkvöldi tókust samningar milli vinnu-
veitenda í Reykjavík annars vegar og verkamannafélagsins Dags-
fcrúnar hins vegar, um kaup og kjör verkamanna. Voru samningar
þá undirritaðir af samninganefndum aðila með þeim fyrirvara að
þeir hiytu síðar samþykki hlutaðeigandi samtaka. Síðar í gær-
kvöldi samþykktu bæði verkamenn og atvinnurekendur samn,-
ingana, og var verkfalli því, sem hefjast átti kl. 12 á miðnætti
í gærkvöldi þá aflýst. Sáttanefnd sú, sem unnið hafði að lausn
deilunnar, sat á fundi með fulltrúum deiluaðila frá því kl. 4 a
sunnudag þangað til kl. 10,15 í gærkvöldi, er samkomulag hafði
náðzt. Stóð sá fundur í rúmar 30 klst.
9,5% kauphækkun
í allri tímavinnu
Aðalbreytingarnar, sem hin
ir nýju samningar fela í sér,
eru þessar:
1) Grunnkaup verkamanna í
í allri tímavinnu í lægri launa
flokkum hækkar almennt um
9,5%. Verður grunnkaup Dags
brúnarverkainanna í allri al-
mennri dagvinnu þá kr. 11,69 í
grunn en var kr. 10,68 í grunn
samkvæmt gömlu samningun-
um. í /ðrum launafl. hækkar
grunnkaupið um 9%.
2) Mánaðarkaup hækkar
um 10-11%, auk þess sem mán
aðarkaupsmenn skulu fá 5%
Jcauphækkun eftir að hafa unn
ið samfleytt í 2 ár hjá sama
vinnuveitanda.
3) Auk framangreindra
beinna kauphækkana, var
samið um nokkrar tilfærzlur
á milli kaupgjaldsflokka. Hafa
þær ennfremur í för með sér
nokkrar kauphækkanir, í sum-
um tilfellum verulegar.
Þeir verkamenn, sem mesta
hækkun fá samkvæmt þessu,
eru þeir, er vinna í frystiklef-
um og kælilestum.
4) Hinir nýju samningar
gilda frá 23. sept., það er í dag,
til 15. okt. 1959 eða tæpa 13
mánuði. Eru þeir þá uppsegj-
anlegir með eins mánaðar fyr-
irvara. Sé samningunum ekki
sagt upp, framlengjast þeir til
1. júní 1960.
5) Aðilar lýsa sig sammála
um að beita sér fyrir endur-
bótum á aðbúnaði verka-
manna á vinnustöðum, einkan
lega í byggingarvinnu og á
öðrum vinnustöðum, sem ekki
eru staðbundnir til lengri
tíma’
6) Samþykktar voru ákveðn
ar reglur um ráðningu verka-
manna, er vinna hefst við ferm
ingu eða affermingu skipa. Ef
skip kemur í höfn fyrir há-
degi eða er væntanlegt, skal
verkamönnum tilkynnt ekki
seinna en kl. 9,40, hvort vinna
við afgreiðslu skipsins hefjist
fyrir hádegi, enda fari ráðn-
ing fram fyrir kl. 10. Ef hefja á
vinnu við afgreiðslu nýkomins
Framh. á bls. 3
Samningar undirritaðir í Alþingishúsinu í gærkvöldi: Á myndinni sjást, talið frá vinstri, fyrst
fulltrúar vinnuveitenda, þeir Kjartan Thors og Guðumndur Vilhjálmsson, og síðan fulltrúar
verkamanna, þeir Hannes Stephensen og Eðvarð Sigurðsson. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. tók allar
myndirnar, sem fylgja þessari frásögn.
Chehab tekur við forseta-
embœttinu í dag
Óttazt er, að borgarastyrjöld kunni
oð brjótast út á nýjan
leik
BEIRUT, 22. sept. — NTB —
I Reuter — í kvöld rikti mikil
1 spenna í höfuðborg Líbanons,
Sherman Adams sagði
af sér í gœrkvöld
WASHINGTON, 22. sept. — NTB
— AFP — Sherman Adams, sem
verið hefir aðalráðgjafi Eisen-
howers Bandaríkjaforseta síðan
í janúar 1953, hefir sagt af sér.
Tilkynnti hann þetta í útvarps-
ræðu í kvöld. Sagði Adams, að
afsögn hans hefði verið lögð fyr-
ir forsetann í dag.
Adams var fyrir skömmu sak-
aður um að hafa beitt áhrifum
sínum til að ívilna vini sínum,
kaupsýslumanninum Bernard
Goldfine. Var Adams sagður hafa
þegið dýrmætar gjafir af Gold-
fine fyrir vikið.
Sagði Adams í ræðu sinni í
kvöld, að hann hefði verið rægð-
ur og hefði tilgangurinn verið
að eyðileggja mannorð hans og
koma Bandaríkjastjórn í vand-
ræði.
Beirut, og óttazt var, að borgara-
styrjöld kynní að brjótast út á
nýjan leik, eftir að virki höfðu
verið reist víða á götum borgar-
innar. Stjórn Sami Solh sagði
formlega af sér í morgun, og á
morgun myndar hinrn nýkjörni
forseti, Fuad Chehab, stjórn.
Sprengja sprakk í miðbiki borg
arinnar í dag, og í úthverfun-
um var víða skipzt á skot-
um. Falangistaflokkurinn, sem
mestmegnis er skipaður kristn-
um mönnum, hefur víða reist sér
virki á götunum, og talið er, að
hætta sé á óeirðum, er Chehab
tekur við forsetaembættinu. Gerð
ar hafa verið umfangsmiklar ör-
Frh. á bls. 18.
11 köiiur látnar
lausar á Kýpur
Níkósía, 22. sept.
— NTB — Reuter. —
BREZK yfirvöld á Kýpur létu
í dag lausar 11 grískumælandi
konur, sem hafa verið í gæzlu-
varðhaldi grunaðar um skemmd-
arverkastarfsemi. Er litið á þetta
sem lið í aðgerðum Breta til að
draga úr spennu á eynni, áður en
Kýpuráætlun brezku stjórnarinn-
ar kemur til framkvæmda 1. okt.
Einnig var búizt við, að 30 tyrk-
neskumælandi Kýpurbúar yrðu
látnir laysir í dag og 33 á morg-
un. í dag var aflétt í Nikosíu út-
göngubanni, er náði til æskufólks
á aldrinum 15—25 ára.
I síðari fregnum segir, að alls
hafi 130 pólitískir fangar verið
látnir lausir í dag — 100 grisku-
mælandi og 30 tyrkneskumælandi
menn. Enn eru um 1900 grísku-
mælandi pólitískir fangar í haldi
og 35 tyrkneskumælandi menn.
Sherman Adam
Sáttanefndin að lokinni úrslitahríðinni. — Talið frá vinstri:
Jónatan Ilallvarðsson, Torfi Hjartarson og Gunnlaugur Briem.
Solli f ariirn
til Tyrklands
BEIRUT, 22. sept. — Fyrrver-
andi forsætisráðherra í Líbanon,
Sami Solh, fór sl. laugardag frá
Beirut til Tyrklands og mun
dveljast þar lengi. Fór Solh á
laun frá Beirut, þar sem óttazt
var, að hann kynni annars að
verða fyrir árásum. Solh var
tvisvar sýnt banatilræði í sumar.
Solh fór til flugvallarins í Beirut
í bandarískri þyrlu. Hann lýsti
yfir því í útvarpsræðu fyrir
nokkru, að hann myndi segja af
sér og yfirgefa Líbanon um óá-
kveðinn tíma.
Hœgri menn og Jafnað-
armenn vinna á í Svíþjóð
Ohlin segir ef til vill af sér formennsku
vegna fylgistaps Frjálslyndra
KARACHI, Pakistan, 22. sept. —
Tyrkneski forsetinn Celal Bayar
kom hingað í dag. Mun hann
dveljast hér í tvo daga.
STOKKHÓLMI, 22. sept. — NTB
— í bæjar- og sveitastjórnar-
kosningum, sem fram fóru í
Svíþjóð í gær, unnu Jafnaðar-
menn, Hægri flokkurinn og Mið-
flokkurinn á, Frjálslyndir töp-
uðu talsverðu fylgi, en kommún-
istar bættu við sig miðað við
þingkosningar, sem fram fóru í
vor. —
Skiptist atkvæðamagnið þann-
ig:
% atkv. í vor %
Jafnaðarm. 47,4 (1,777,144) 46,9
Hægri fl. 19,7 (739,220) 18,7
Frjálslyndir 15,5 (580,127) 18,0
Miðfl. 13,4 (501,726) 12,9
Kommúnistar 4,0 (152,802) 3,4
1 þessum kosningum töpuðu
borgaraflokkarnir meirihluta sín
um í bæjarstjórninni í Stokk-
hólmi.
O—★—O
Forsætisráðherrann Tage Er-
lander sagði í dag, að úrslit kosn-
inganna jafngiltu traustsyfirlýs-
ingu á stefnu stjórnarinnar í eft-
irlaunamálunum, en þau mál
voru hæst á baugi í kosninga-
baráttunni.
1 siðustu bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningum fengu Frjáls-
lyndir 21,6%, og talið er, að þessi
ósigur kunni að verða til þess,
að Bertil Ohlin láti af störfum
sem leiðtogi flokksins.
O—★—O
Jafnaðarmannaflokkurinn hef-
ir ekki tryggan meirihluta í
neðri deild þingsins, og þyí get-
ur svo farið, að eftirlaunamálinu
verði ráðið til lykta með hlut-
kesti. Orðrómur er nú á kreiki í
Stokkhólmi um, að samningar
muni takast með jafnaðarmönn-
um og frjálslyndum um eftir-
launamálin. Erlander sagði í dag,
að það sé komið undir frjáls-
lyndum hvort eftirlaunamálin
verði útkljáð með hlutkesti eða
ekki.
9,57o kauphœkkun í allrí tíma- j SZZZ?
vinnulœgstlaun-
uðu verkamanna