Morgunblaðið - 23.09.1958, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.09.1958, Blaðsíða 20
VEDRIÐ S eða SA kaldi og rigning fram eftir nóttu. Léttir sennilega til QUEMOY Sjá bls. 11 jv' íj jf' k fWy?: 'JH 5 Myndir þær, sem hér birtast eru teknar síðastliðinn föstudag í Skeiðaréttum. Skeiðaréttir munu vera hinar stærstu á landinu og þar var réttað nú í fyrstu göng- um fast að tuttugu þúsund fjár að því er fróðir menn þar eystra telja. Þarna var saman kominn meginhluti fjárins milli Þjórsár og Hvítár nema það sem dreg- ið var sundur í réttunum í Gnúp- verjahreppi og Hrunamanna- hreppi, en þar var réttað daginn áður. Féð sem þarna er saman komið er því úr Flóa, af Skeiðum og úr Hreppum. önnur myndin er tekin í almenningnum og sýn- ist svo sem fólkið sé ekki færra en féð í réttinni. Hin myndin sýnir hvar verið er að reka féð úr gerðinu og inn í almenning- inn. (Ljósm. vig). Verðhœkkanir á kartöfl- um, gulrófum og eggjum Allt að 50*^0 frá i fyrrahaust t GÆR auglýsti Framleiðsluráð landbúnaðarins haustverð á kartöfl- um, gulrófum og eggjum. Gildir hið nýja verð frá og með deginum * gær. Eftirfarandi verð hefur verið ákveðið á kartöflum. — Tölurnar í svigunum sýna verðið á kartöflum í fyrrahaust og prósentutölurnar sýna hækkunina frá sama tíma í fyrra. Kartöflur: Úrvalsflokkur 1. flokkur 2. flokkur Heildsöluverð: 2.20 1.48 1.08 Smásöluverð: 2,80 (2,25) 1,90 (1,40) 1,40 Hækkun í % 24.44% 32.14% Ofan á smásöluverðið má leggja sannanlegan flutningskostnað og er því ekkert því til fyrirstöðu að smásöluverðið hækki enn meira en hér er sagt. Verðið er að öðru leyti miðað við óbreyttar niðurgreiðslur á hvert kg. Eftirfarandi verð hefur verið ákveðið á gulrófum: Heildsöluverð kr. 3.45 hvert kg. Smásöluverð kr 4,50 kg. (um 3.00 kr.) hækkun ca 50%. Þá hefur eftirfarandi verð verið ákveðið á eggjum: Heildsöluverð kr. 30.00 kg. (26.50) hækkun 13.2% Smásöluverð kr. 37,50 kg. (31,00) hækkun 20.97% Maður drukknaði við bryggju á Siglufirði Verkstjóri bíður bana um borð í norsku skipi SIGLUFIRÐI, 20. sept. — Sá hörmulegi atburður varð hér um kl. 10 í gærkvöldi, að Kristinn Sigurðssón, bryggjuformaður á Bíll eyðilagðist á Keflavíkurflug- velli KEFLAVíKURFLUGVELLl, 22. sept. — Klukkan 1,30 síðd. í dag varð harður árekstur hér á flug- vellinum milli jeppabilsins J-ll sem er eign flugmálastjórnarinn- ir og fólksbifreiðarinnar Ö-7, sem er leigubíll frá Keflavík. Varð áreksturinn á veginum milli aðalhliðs flugvallarins og hótels- ins. Var jeppinn á aðalbrautinni, en leigubíllinn kom af hliðar- braut og skullu bílarnir saman með þeim afleiðingum að J-ll gjöreyðilagðist, en leigublíllinn skemmdist mikið. — Tveir menn voru í jeppanum og meiddust báðir lítilsháttar, en farþegi og bílstjóri leigubílsins sluppu ómeiddir. Stanz merki var ekki á gatnamótunum, því merkið hafði verið tekið niður í sumar er malbikun fór fram og var ekki farið að setja það upp aftur þó liðinn sé fullur mánuður síðar malbikun fór fram. Leigubíllinn kom á vinstri hlið jeppans, sem kastaðist til við höggið um 5—6 metra. — B.Þ. söltunarstöð Reykjanessins h.f., féll af bryggjunni í sjóinn og drukknaði. Lítill vélbátur, sem var á höfninni, náði Kristni fljót- lega, en lífgunartilraunir báru ekki árangur. Kristinn heitinn var fæddur 3. ágúst 1899. Hann var einhleypur. Kristinn var hinn vænsti maður og er að honum mikill mann- skaði. — Fréttaritari. KNATTSPYRNUKAPPLEIKUR var háður á Bíldudal þann 8. sept. milli Patreksfirðinga og Bílddæl- inga og lauk með sigri Bílddæl- inga, sem skoruðu 4 mörk gegn 3 Leikurinn var á vegum fþrótta félagsins á Bíldudal. Leikurinn var nokkuð jafn og fór vel fram af beggja hálfu Dómari var Hai't- dór Helgason forstjóri á Bíldudal. BOLUNGARVÍK, 22. sept. — Nú eru um það bil þrjár vikur síðan reknetjabátar byrjuðu ' síldveið- ar héðan. Sjö bátar hafa stund- að þessar veiðar í haust. Er stutt að sækja á miðin þar sem þeir leggja net sín eða um tveggja SKÖMMU fyrir hádegi í gær varð dauðaslys hér í Reykjavíkur höfn, er bóma féll niður í norsku vöruflutningaskipi. Vildi þá svo hörmulega til að Sigurður Gísla- son, verkstjóri Birkihlíð við Reykjaveg varð fyrir bómunni og beið samstundis bana af. Annar maður meiddist á höfði. Þessi sviplegi atburður átti sér stað um borð í norska saltflutn- ingaskipinu Dener frá Osló er liggur við Faxagarð. Verið var að setja saltfisk í lest nr. 2, en hún er rétt framan við yfirbyggingu skipsins, sem er miðskips. Voru saltfiskpakkar í trossu, sem ver- ið var að taka af bíl og láta í lestina. Bóma, sem dregur aðal- bómuna inn yfir lestaropið og slakar hleðslunni niður í lestina, féll skyndilega ofan á lunning- una, en við hana stóðu tveir menn og urðu báðir fyrir bóm- unni. — Kom hún ofan á höfuð Sigurðar Gíslasonar verkstjóra hjá Togaraafgreiðslunni, með þeim afleiðingum að hann var örendur samstundis. Maðurinn, sem við hlið hans stóð var Sig- valdi Jónsson, verkamaður Soga- vegi 98. Bóman snart einnig höf- til þriggja klukkustunda sigling. Veiðarnar hafa gengið mjög vel það sem af er og hafa alls borizt hér á land ellefu þúsund tunnur af ágætri síld. Er nú búið að salta í tæpar fimm þúsund tunn- ur, en hitt hefur farið í fryst- ingu. — Fréttaritari. uð Sigvalda og skaddaði það, en ekki var það högg svo mikið að hann félli í ómegin. Var hann fluttur í Slysavarðstofuna og átti að vera þar til rannsóknar í gær- dag allan. Við rannsókn á útbúnaði bóm- unnar kom í ljós að keðja sem heldur henni uppi, brast þar sem gömul sprunga var í hlekk, Skip- stjórnarmenn gáfu skýrslu um það til rannsóknarlögreglunnar, að keðjan hefði verið burðarþols- reynd hinn 24. ágúst síðastl., og var þá allt í lagi með hana. Skipið sjálft er einnig nýlega komið úr slipp þar sem það var til viðgerðar og eftirlits. Sigurður Gíslason verkstjóri lætur eftir sig konu og sjö börn, á aldrinum 6—25 ára. Kona hans er Kristín Þórðardóttir. Sigurður hefur verið starfsmaður Togara- afgreiðslunnar allt frá því hún tók til starfa, en sem einn af föst- um verkstjórum hennar hefur hann starfað siðastliðinn 5 ár. Hann var 53 ára að aldri. 3ÖÖ tunnur í róðri AKRANESI, 22. sept. — Átján reknetjabátar, sem róa héðan, voru úti í nótt. Annar þeirra tveggja báta, sem ekki komu hing að inn í dag, fór með slatta til Sandgerðis, en hinir 16 komu heim með ágæta síld, sem er prýðileg til söltunar. Þrír þeir hæstu fengu um hálft sjöunda hundrað tunnur og eru þeir: Fylk ir með 300, Svanur með 200 og Ólafur Magnússon með 146. Hin- ir fengu frá 20 til 70 tunnur. Sementskipið Dacia er komið í lag og liggur nú við sements- bryggjuna. Fyrri hluta dagsins í dag gekk hér á með regnskúrum. — Oddur. Lyfjafræðingar greiða atkv. um verkfall í KVÖLD lýkur allsherjarat- kvæðagreiðslu um vinnustöðvun lyfjafræðinga í öllum apótekum landsins. Lyfjafræðingafélag íslands hef ur undanfarið staðið í kaup- og kjaradeilu við eigendur apótek- anna. Sögðu lyfjafræðingar upp gildandi samningi frá og með 1. október. Gera þeir kröfu um 12 prócent -kaunahækkun umfram hina lögákveðnu 5 prósent hækk- un. Þá gera þeir kröfur um breyt ingar á eldri samningi m.a. um framlag til lífeyrissjóðs félags- manna. Vilja þeir að hlutur apó- tekanna verði 6 prósent, en lyfja- fræðinganna 4 prósent. Samningar milli deiluaðila hafa nú strandað a.m.k. í bili. Komi til verkfalls mun stjórn Lyfjafræðingafélagsins bo&V það frá og með 1. október, sama dag og núgildandi samningar ganga úr gildi. Kvikmyndcihús íKópavogi Á SEINASTA fundi bæjarstjórn- ar Kópavogs var samþykkt að bærinn hefji kvikmyndasýningar i húsakynnum félagsheimilis Kópavogs, og að leitað verði eft- ir úndanþágu á greiðslu á skemmt anaskatti, enda verði öllum á- góða af rekstrinum varið til menn ingarmála. Fyrsta hæð félagsheimilisins er nú nærri fullgerð. Þar verður meðal annars kvikmyndasalur, sem rúmar allt að 300 manns. Að auki er á þeirri hæð minni samkomusalur. Vonir standa til að hægt verði að hefja bráðlega byggingu annarrar hæðar húss- | ins. Reknetjaveiðar frá Rol ungarvík ganga vel 11000 tunnur hafa horizt á land

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.