Morgunblaðið - 23.09.1958, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.09.1958, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐ1Ð ■Þriðjudagur 23. sept. 1958 Alsírmálið tekið á dag• skrá Allsherjarþingsins NEW YORK, 22. sept. — NXB. — AFP. — Allsherjarþing SÞ sam- þykkti í dag að taka Alsírmálið Gúmverksmiðja í Pai ís sprengd í loft upp París, 22. september. — NTB — Reuter. — MIKIL sprenging varð í dag í gúmmíverksmiðju í úthverfi Par- ísarborgar Tveir menn fórust, 20 særðust — 8 menn alvarlega -- og verksmiðjan hrundi til grunna. Lögreglan.í París telur, að hér sé um skemmdarverkasfarfsemi Serkja að ræða, og allir Serkir, búsettir í nágrenni við verk- smiðjuna voru handteknir og yfirheyrðir. Sprengingin var svo öflug, að veggur í húsi hinum megin við götuna hrundi. Samtímis gaf franska innan- ríkisráðuneytið skipun um að rannsaka nákvæmlega farangur allra farþega, er ferðast með flug félaginu Air France. Einkum fer fram nákvæm rannsókn í sam- bandi við flugferðir til Norður- Afríku og Miðausturlanda Varð þetta til þess, að tafir urðu á flugsamgöngum. á dagskrá yfirstandandi þings. Var samþykktin gerð án þess, að nokkrar umræður færu fram um málið, en dagskrárnefnd þings- ins hafði mælt með því, að fjallað yrði um Alsír. Enginn fulltrúi greiddi atkvæði gegn þessari sam þykkt. ★ • ★ Er dagskrárnefndin hafði mál- ið til meðferðar s.l. miðvikudag, benti franski utanríkisráðherr- ann Couve de Murville á, að franska sendinefndin óskaði ekki eftir að taka þátt í neins konar umræðum um Alsírmálið. Sagði utanríkisráðherrann, að slíkar umræður væru í ósamræmi við stofnskrá SÞ og yrðu Alsír í óhag. Enginn franskur fulltrúi tók til máls á Allsherjarþinginu í dag, og verða þeir ekki viðstadd- ir, þegar Alsírmálið verður rætt í stjórnmálanefndinni og síðar í •Vllsherjarþinginu sjálfu. r Utlagastjórnin ÚTLAGASTJÓRN Alsír upplýsti í gær í Kairó, að hún hafi sent utanríkisráðuneytum 84 ríkja orð sendingar og mælzt þar til viður- kenningar. Kínverska alþýðulýð- veldið viðurkenndi útlagasfjórn- ina í gær. Til þessa höfðu aðeins Arabaríki viðurkennt stjórnina. — Chehab Framh. af bls. 1 yggisráðstafanir, og útgöngubann sett um gjörvallt landið. ★ Orsök þess, að svo mikil spenna ríkir milli Múhameðstrúarmanna og kristinna manna er sú, að rænt hefur verið blaðamanni, er starf- aði við eitt af blöðum falang- ista. Falangistar hafa hvatt verkamenn til að gera verkfall í mótmælaskyni við ránið, sem þeir kenna stjórnarandstöðunni og Múhameðstrúarmönnum. Leið togar stjórnarandstöðunnar full- yrða, að þeir eigi engan þátt í brottnámi blaðamannsins. Frétta menn í Beirut benda á, að stjórn- arandstöðunni geti ekki verið neinn akkur í því að lenda nú í átökum við falangista. í mörgum þorpum í grennd við Beirut voru í dag farnar mót- mælagöngur, og kváðu falang- istar telja, að hlutur þeirra hafi verið algjörlega fyrir borð bor- inn, en hins vegar hafi stjórnar- andstæðingar fengið öllum sínum kröfum framgengt. ★ Orðrómur er á kreiki um, að falangistar muni reyna að koma í veg fyrir, að Chehab taki við forsetaembættinu á morgun. Her vörður er við bygginguna, þar sem þingið hefir aðsetur sitt. og vopnaðar varðsveitir eru á verði viða í borginni. » Öllum bandarískum hermönn- um, sem ekki gegna nauðsyn- legum störfum, hefur verið skip- að að halda sig í herbúðum sín- um. Hin ólöglega útvarpsstöð hægri manna, Rödd Líbanons, sagði í kvöld, að sennilega standi nú yfir samningaumleitanir í þeim til- gangi að koma á fót frjálsri stjórn í Libanon, sem tryggt geti rétt- læti og frelsað landið úr hönd- um svikara. Camille Chamcoin forseti verS- ur ekki viðstaddur, er Chehab tekur við embættinu. Chamoun tilkynnti í dag, að hann muni halda áfram pólitískri baráttu í landinu sem leiðtogi nýs flokks óháðra þjóðernissinna. ♦-------♦ í skeyti frá AFP segir, að í kvöld hafi verið gerðar ráðstaf- anir til að flytja á brott útbúnað bandarískra herja í Líbanon, en talsmaður Bandaríkjahers þar upplýsti, að engar liðssveitir yrðu að sinni fluttar á brott. Til þessa hafa aðeins landgönguliðssveitir úr bandaríska flotanum farið frá Líbanon, og engar áætlanir hafa verið gerðar um brottflutning 8000 bandarískra hermanna, sem þar eru staðsettir. Holldór frú Hrountúni 80 drn f DAG verður áttræður Halldór Jónasson fyrrum bóndi og bók- sali frá Hrauntúni í Þingvalla- sveit. Halldór er borinn og barn- 'íæddur Þingvellingur, fæddist að Hrauntúni 23. sept. 1878. Þar var hann fram á fullorðinsár, því hann tók við búinu af föður sín- um, er var fjárbóndi, og hélt Hall dór búið fram til þess tíma að lögin um Þjóðgarðinn komu til framkvæmda og bændurnir á bæjunum inni í Þingvallahrauni, urðu að bregða búi. Þá hætti Halldór að fást við búskap flutt- ist hingað til Rykjavíkur og gerð ist hér bóksali. Lengi vel rak hann bókaverzlun á Klapparstígn um, rétt ofan við Laugaveginn. Þangað komu margir menn fleiri en þeir sem gagngert komu þang að til bókakaupa, því Halldór á margt vina og kunningja hér í bænum og komu margír til hans til skrafs um daginn og veginn Halldór hefur ætíð verið mikill áhugamaður um gang landsmála og þykir gaman um að ræða, ekki aðeins við skoðanabræður, heldur ekki síður við þá menn sem þá eru á öndveðri skoðun við hann sjálfan. Hér í gamla daga var hann einn þeirra er skipuðu sér fastast við hlið Hann esar Hafstein og kann hann vel að segja frá stjórnmálaerjum þeirra tíma. Halldór ferðaðist mikið hér fyrr á árum um landið, hefur ætíð haft gaman að lestri góðra bóka og er vel að sér um íslenzk- ar bókmenntir, einum hin klass- ísku rit. Halldór er mikill mannkosta- maður, sannur vinur vina sinna, og á langri lífsleið eru þeir orðnir margir. — Þeir munu samfagna honum í dag á þessu merkisaf- mæli hans, en Halldór er nú vist- maður í Hrafnistu, þar sem hann m. a. hefur á hendi bókavörzlu safnsins. — S. Hér sést yfir hraunbollann, sem Hafnfirðingar hafa augastað á fyrir knattspyrnuvöll. Ef að lík- um lætur, verður þarna risinn grasvöilur eftir fá ár. Vallarstæðið er hið ákjósanlegasta. (Myndirnar tók Ingim. Magnússon). Hafnfirðingar hyggjast koma upp fullkomnum grasvelli v/ð Engidal Mikill áhugi og framkvæmdavilji hjá 3 ára gömlum knattspyrnuflokki KNATTSPYRNA sumarsins er senn lokið. Á mikilsverð- asta móti ársins, íslandsmót- inu, hafa þó verðlaun eigi ver ið afhent því ýmsar deilur er varðað geta úrslitum í mótinu eru óútkljáðar. En að öllu óbreyttu fer bikarinn aftur til Akraness og Hafnfirðingar hverfa úr 1. deild en Keflvík- ingar koma í staðinn. En þó Hafnfirðingar hafi i bili kvatt 1. deild hefur þó áhugi á knattspyrnu sízt dvín- að þar syðra. Það kom greini- lega í ljós á ánægjulegum fundi er knattspyrnuráð Hafn arfjarðar átti með fréttamönn um s.l. laugardag. — Við stöndum á tímamót- um. Þau þrjú ár sem við höf- um átt knattspyrnuflokk hef- ur gengið á ýmsu, en í ljós hef ur komið að í Hafnarfirði er mikill og góður jarðvegur fyr- ir knattspyrnuíþróttina. Við ætluðum engan veginn að gef- ast upp þó á móti blási í bili, heldur þvert á móti að herða róðurinn. Þessi orð mælti Axel Kristjáns- son forstj. Rafha og Bæjarút- gerðarinnar en hann er form. knattspyrnuráðsins. Og þeir félagar í knattspyrnu- ráðinu Albert Guðmundsson og Vilhjálmur Skúlason auk for- mannsins, sýndu blaðamönnum skilyrðin sem knattspyrnumenn hafa verið að skapa sér og skýrðu nokkuð frá framtíðaráformum. Framtíðarverkefni Stærst framtíðaráformanna er bygging nýs_ og fullkomins knatt- spyrnuvallar, og ef dæma má eftir öðrum framkvæmdum sem knattspyrnuflokkurinn ■ hefur komið í framkvsemd á þeim þrem árum sem hann hefur verið við lýði, þá mun ekki langt um líða þar til nýr og glæsilegur leik- völlur hefur risið í hrauninu skammt frá Engidal — um 8 km frá Reykjavík. Þetta er þó bund- ið því skilyrði að knattspyrnu- ráðið fái þá lóð sem það hefur augastað á, en vallarstæði þar er mjög ákjósanlegt. ★ Vallarstæðið Vallarstæðið er í hraunbolla sem er um 100 metrar á breidd og 2—300 m á lengd. Bolli þessi er grasi gróinn og virðist í fljótu bragði vera mjög ákjósanlegur til ræktunar. Til allra hliða rísa hraunkambar sem eru ákjósan- legar undirstöður áhorfenda- bekkja. í einu orði sagt virðist þarna vera eitt ákjósanlegasta vallarstæði sem komið hefur til greina til slíks þar sem íþrótta- fréttamenn er þarna voru hafa séð til hér á landi. Slíkur grasvöllur með áhorf- endasvæði fyrir 5—10 þús. manns myndi leysa úr brýnni þörf. Iðulega hefur það komið fyrir, að utanbæjarfélögin s.s. Akranes, Akureyri og fleiri hafi farið fram á að láta erlend lið, er þau hyggjast bjóða heim leika í Reykjavík, en vellir þar verið fullsetnir af slíkum leikjum og afnotum í þágu Reykjavíkurfé- Iaganna. Hafnfirðingar gætu með nýjum velli haft nokkrar tekjur af að leigja hann, tekjur sem renna myndu til íþróttaiðkana í Hafnarfirði. Þannig má ætla að málin snúizt er völlur er tilbúinn. ★ Stuðningsmannafélag Það er engan veginn áhlaupa- verk að byggja nýjan leikvang. En Hafnfirðingar hafa í mörgu farið aðrar slóðir n annarsstaðar tíðkast, að minnsta kosti í Reykja vík. Að hugmynd Alberts Guð- mundssonar er nú í undirbún- ing stofnun meðal fullorðinna í Hafnarfirði til stuðnings þessari framkvæmd. Er það hliðstæða við hina alkunnu „supporters clubs“, sem starfa að baki allra stærri íþróttafélaga víða um Evrópu, en tilgangur þeirra fé- laga úti er að styrkja félögin með fjárframlögum. Albert snýr þess ari hugmynd við — að féla^s- menn leggi fram vinnu í stað beinharðra peninga. Þar sem kannað hefur verið um áhuga á þessum félagsskap í Hafnarfirði hefur hugmyndin fengið góðar undirtektir. Skapast hugmyndin svo, að Albert hefur talað við 5 menn um málið og beðið þá hvern um sig að fá 5 menn með sér og þannig koll af kolli. Hér er um svo merkilega hug- mynd að ræða, að fá dæmi eru á hinum síðustu timum, þegar enginn vill leggja neitt fram nema gegn fullri greiðslu og nær öll félagsstarfsemi ekki sízt íþróttafélaganna er mjög ábóta- vant fyrir þær sakir. Verður það Hafnfirðingum til mikils lofs ef verulegur hluti almennrar vinnu við glæsilegan leikvang verður unninn af almenningi í sjálfboða- vinnu. En slíkt er engan veginn fráleitt. Bæjarfélagið styður þessa hug- mynd eftir getu við efniskaup Hópurinn sem í Hafnarfirði byrjaði að iðka knattspyrnu fyrir 3 árum taldi 10 pilta, suma barn- unga aðra helzt til gamla til byrj- unar á keppnisíþrótt. Nú eru í flokknum um eða yfir 200 dreng- ir og piltar á öllum aldri. í flokkn um fá þeir aðstöðu til félags- starfs, til að eyða tómstundunum við íþróttir eða aðra skemmtan í félagsheimili knattspyrnu- manna. Þetta hefur mikla upp- eldislega þýðingu. Það skilja að- standendur barnanna og ungling anna og þeir eru af þeim sökum fúsir að láta eitthvað af mörkum til samtakanna, t.d. vinnu við nýjan völl. Knattspyrnuráð Hafnarfjarðar. Frá vinstri: Murdo McDougalI, skozkur þjálfari, sem Hafnfirðingar hafa ráðið til 5 ára, Al- bert Guðmundsson, Axel Kristjánsson, formaður og Vil- hjálinur Skúlason. — ★ Félagsheimilið Ja, félagsheimili Það eiga hafn firskir knattspyrnumenn. Það ásamt búningsklefum hefur ver- ið skapað á þessum þremur árum. Er það fyrir sjálfboðavinnu margra, sem fu»dið hafa ánægju af því að hindra í framkvæmd sameiginlegu áhugamáli. Það eru glæsilegar byggingar stórar og vistlegar. Bærinn hefur styrkt fyrirtækið rausnarlega og í sí- vaxandi mæli. Bærinn hefur og mikinn áhuga á að nýi völlurinn rísi. Sagan um búningsklefana og félagsheimilið er ævintýri út af fyrir sig, og vöxtur flokksins úr 10 í 200 á 3 árum. Sú hlið hafn- firzka ævintýrsins verður að bíða til morguns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.