Morgunblaðið - 23.09.1958, Page 6
MORCVWRLAÐIÐ
Þriðjudagur 28. sept. 1958
Hátalararnir bitrasta vopnið í
„kalda stríðinu" við
landhelgisbrjótana
Stutt samtal við Carðar Pálsson
sfýrimann á Þór
VARÐSKIPIÐ ÞOR var hér í
Reykjavíkurhöfn í gærdag. Er
það í annað skiptið, sem skipið
kemur til hafnar síðan 1. septem-
ber. í gær átti Mbl. tal við Garð-
ar Pálsson, fyrsta stýrimann, sem
gat þess m.a., að Þór hefði nú
kært alls 42 brezka togara fyrir
ólöglegar veiðar innan hinna
nýju fiskveiðitakmarka. Þá gat
Garðar þess, að ekkert lát væri
á brotum, og kæmi þar stöðugt
„skip í skips stað“. Nú þegar hef-
ur komið í Ijós, hvernig brezkir
skipstjórar ætla sér að bregðast
við, er óhapp og slys verða um
borð í togurum þeirra. Varð t.d.
togari einn að hætta veiðum um
daginn og sigla með slasaðan
mann heim til Bretlands, svo al-
varlegt var ástand mannsins orð-
ið.
í þessari síðustu útivist Þórs,
bar það helzt til tíðinda, að tvö
brezk herskip, Hogue og Lagos,
björguðu togaranum Read Lancer
frá Lundúnum, er varðskipsmenn
frá Þór gerðu sig líklega til að
taka togarann.
Gerðist þetta út af Svínalækj-
artanga fyrra mánudag. Togar-
anum hafði verið skipað að nema
staðar. Þegar skipunin var gefin,
voru allir skipsmenn kallaðir upp
á þilfar, jafnvel þeir, sem voru
í kojum, og gripu allir barefli og
röðuðu sér meðfram borðstokkn-
um. Jafnhliða þessu var sent út
neyðarkall til herskipanna
brezku, um að handtaka væri yf-
irvofandi. Frá Þór lagði af stað
einn af léttbátum skipsins vel
mannaður. Togarinn tók það ráð,
að slaka á vírum og setti á fulla
ferð, en það sást til brezku her-
skipanna, sem legið höfðu kipp-
korn frá, að þau settu á fulla
ferð, beittu öllu vélaafli sínu
og náðu brátt 30 mílna ferð. Þórs-
menn sneru léttbátnum við og
sigldu að Þór aftur. Þar sem her-
skipin höfðu legið, vaggaði á öld-
unum léttbátur frá öðru þeirra,
sem hafði verið skilinn eftir á
þessari miklu hættustund!
„Víggirða" skipin betur
Áberandi er það, að togara-
skipstjórarnir hafa nú „víggirt"
skip sín rammlegar en áður og
er öllu tjaldað sem til er, netjum,
bómum og botnrúllum.
í hinu kalda stríði, sem ís-
lenzku varðskipin hafa haldið
uppi gegn hinum brezku land-
helgisbrjótum, hefir talstöðv-
um og magnaraútbúnaði óspart
verið beitt. Gat Garðar Páls-
son þess til dæmis, að Ei-
ríkur skipherra Kristófersson,
hafi í þessu efni einkum beint
máli sínu til hásetanna á togur-
unum, gert þeim grein fyrii;
ýmsu er deilu þessa varðar, svo
og þeirra eigið öryggi og afkomu.
Sagði Garðar Pálsson stýrimað-
ur, að árangurinn væri sennilega
góður, a.m.k. verða skipstjórarn-
ir alveg vitlausir er við komum
og beinum orðum okkar til skip-
verja þeirra, því þá láta þeir
flauta, svo tæplega heyrist manns
ins mál. Það er áreiðanlegt, að
ekki er á taugaspennuna bætandi,
jafnvel þótt rommskammturinn
hafi verið aukinn.
Reyna að sigla á varðskipin
í þessari för varðskipsins Þórs
hefur skipshöfnin kynnzt nýrri
hlið á aðgerðum brezku togara-
skipstjóranna. Þeir hafa gripið
til þess að reyna að sigla nið-
ur varðskipið. Kom það fyrir í
þessu síðasta úthaldi, að tveir
togarar komu sinn hvorum megin
að varðskipinu. Því tókst að forð-
ast árekstur, en togararnir voru
nær því skollnir saman fyrir aft-
an Þór.
Við teljum okkur hafa örugg-
ar heimildir fyrir því, að her-
skipin hafi ekki mótmælt slíkum
aðferðum, sagði Garðar. Þetta
kom fram í talstöðvarsamtali
milli brezku togaranna Kingston
Crystal frá Hull og Artic Explor-
er einnig frá Hull. Var Ander-
son, aðmírállinn nafnkunni,
staddur um borð í þeim síðar-
nefnda er skipstjórinn á hinum
fyrrnefnda, sagðist hafa leitað
álits herskipsins á því, hvort
ekki mætti haga vörninni þann-
ig gegn ísl. varðskipunum, að
beinlínis sigla á þau, ef þau
gerðu sig líkleg til að taka tog-
arana. Upplýsti skipstjórinn á
Kingston Crystal, að herskips-
menn hefðu svarað því til, að
allt væri í lagi með það.
íslenzkur skipstjóri
í þessari ferð urðu Þórsmenn
þess vísari, að íslenzkur mað-
ur, Þorsteinn Hólm frá Hafnar-
firði, er skipstjóri á togaranum
Northern Princess, sem um dag-
inn var staðinn að veiðum í land-
helgi. Þá hafa Þórsmenn siglt upp
að togaranum Northern Foam,
sem mjög hefur komið við sögu,
en nú er þar skipstjóri, einn
þeirra manna er Þórs-menn
björguðu fyrir nokkrum árum, er
togari, sem hann var á, fórst á
blindskeri. En það er óneitan-
lega umhugsunarvert, að nú er
maður þessi rekinn út í það að
fremja lögbrot og láta skipsmenn
sína búast til varnar með kylf-
ur og hvers konar barefli, er við
nálgumst skip hans, sagði Garð-
ar Pálsson.
Aðgerðirnar stórveldiniu ekki
ósamboðnar!!
Eg er óðum að komast á þá
skoðun, að Bretar muni neita
að viðurkenna fyrir einum
eða neinum, að aðgerðir þeirra
hér við land séu slíku stór-
veldi ekki samboðnar. Þeir
munu telja hátterni sitt köll-
un, en á móti þeim berjist hálf-
gerðir villimenn með öllu rétt-
lausir, vegna þess að skoðun
Breta á málinu sé í raun og veru
hin eina rétta. Sé það furðulegt,
að ekki sé hægt að koma þessum
norðurslóðalýð í skilning um svo
einfaldan sannleika! Það er af
þessum sökum, sem togaraskip-
stjórarnir eru hræddir við að
láta strákana á dekkinu, heyra
sjónarmið og skýririgar fslend-
inga, þegar varðskipin „útvarpa"
til togaramannanna. Skynsamleg
yfirvegun staðreyndanna er mál-
stað Breta hættuleg, sagði Garð-
ar Pálsson að lokum.
Kosningar til Alþýðusambandsþings
Kosið var í 14 félögum — samtals 68 fulltrúar
UM SL. HELGI fór fram full-
trúakjör til Alþýðusambands-
þings í allmörgum verkalýðsfé-
lögum. Vitað er m.a. um úrslit í
eftirtöldum félögum:
Sjómannafélag Reykjavíkur. —
Listi lýðræðissinna varð sjálf-
kjörinn, en hann er skipaður eftir
töldum mönnum:
Aðalfulltrúar: Garðar Jónsson,
Hilmar Jónsson, Jón Sigurðsson,
Sigfús Bjarnason, Sigurður Back-
mann, Steingrímur Einarsson, Ól-
afur Sigurðsson, Ólafur Friðriks-
son, Jón Ármannsson, Jón Juníus-
Algeng sjón í hernaði Breta hér við land. Brezkur togari, sem
reynir að villa á sér heimildir, en skammt frá má
sjá eitt af herskipum brezka flotans, sem er tilbúið að beita
valdi, ef íslenzku varðskipin ætla sér að stöðva lögbrot
veiðiþjófanna.
(Ljósm.: Garðar Pálsson).
son, Guðmundur H. Guðmunds-
son, Hjalti Gunnlaugsson, Krist-
ján Guðmundsson, Haraldur Ól-
afsson, Pétur Sigurðsson, Jón
Helgason, Þorgils Bjarnason, Pét-
ur Einarsson.
Varafulltrúar: Ásgeir Torfa-
son, Karl Karlsson, Guðbergur
Guðjónsson, Ólafur Árnason,
Bjarni Stefánsson, Sigurður Sig-
urðsson, Björn Guðmundsson, Sig
urður Benediktsson, Sigurður Sig
urðsson, Björn Andrésson, Guð-
mundur Bærings, Guðjón Sveins-
son, Þorsteinn Ragnarsson, Karl
E. Karlsson, Sveinn Valdimars-
son, Sigurður Ingimundarson,
Karvel Sigurgeirsson, Sæmundur
Ólafsson.
Félag íslenzkra rafvirkja. —
Listi lýðræðissinna varð sjálf-
kj örinn.
Aðalfulltrúar: Kristján Bene-
diktsson, Magnús Geirsson, Ósk-
ar Hallgrímsson, Sveinn Lýðsson.
Varafulltrúar: Auðunn Berg-
sveinsson, Kristinn K. Ólafsson,
Páll J. Pálsson, Sigurður Sigur-
jónsson.
Hið íslenzka prentarafélag. —
Listi lýðræðissinna varð sjálfkjör
inn.
Aðalfulltrúar: Magnús Ástmars
son, Kjartan Ólafsson, Sigrurður
Eyjólfsson.
Varafulltrúar: Ellert Magnús-
son, Gunnhildur Eyjólfsdóttir,
Pétur Stefánsson.
Verkakvennafélagið Framsókn.
— Kosið var á fundi í félaginu
sl. sunnudag og var listi lýðræð-
issinna sjálfkjörinn.
Aðalfulltrúar: Jóhanna Egils-
dóttir, Jóna Guðjónsdóttir, Guð-
skrifar ur
daglegq iífinu
U
Ágætur tómstundaþáttur
M DAGINN hlustaði ég á
Tómstundaþátt barna og ungl
inga í útvarpinu, þátt, sem sagð-
ur er ákaflega vinsæll nieðal
stálpaðra barna. Sýnir það að
unglingar eru þakklátir fyrir
leiðbeiningar og aðstoð við val
hugðarefna og framkvæmd
þeirra, og að þeir vilja ekkert
síður nota orku sína og lífsþrótt
í að búa til eitthvað eða skapa
smáhluti en í uppvöðslusemi og
óknytti, einungis ef þeir fá nauð-
synlega uppörvun og hjálp til að
komast af stað. Jón Pálsson, sem
stjórnar þessum þætti, er sannar-
lega réttur maður á réttum stað.
Útskýringar hans eru ljósar og
einfaldar og öll vandamál barn-
anna leysir hann fúslega og af
ljúfmennsku, hversu lítilfjörleg
sem þau virðast vera.
I
Sýning á heimagerðum
smáinunum
ÞESSUM umrædda tómstunda
þætti heyrði ég sagt frá at-
hyglisverðri ráðagerð. Æskulýðs-
ráð Reykjavíkur hyggst innan
skamms koma upp „tómstunda
sýningu“ þ.'e. sýningu á smá-
munum, sem ungt fólk innan við
tvítugt vinnur heima hjá sér. Og
verða hvers konar smáhlutir
teknir á sýninguna, sem verður
í sambandi við híbýlasýningu á
vegum ráðsins. Það verður sann-
arlega gaman að sjá hvort ekki
finnast unglingar, sem seinna
meir geta orðið liðtækir list-
iðnaðarmenn. En til að sýningin
geti orðið sem fjölbreyttusr verða
allir þeir, sem fást við að búa
til smáhluti, að lána þá á þessa
sýningu.
Þetta er lofsverð tilraun til að
ýta undir heimilisiðnað og sköp-
un fallegra smáhluta. í þei;m
efnum stöndum við enn talsvert
að baki frændþjóðum okkar á
Norðurlöndum, sem á seinnj ár-
um hafa lagt ríka áherzlu á að
efla slíkt og iðulega hreppt verð-
laun fyrir gripi sína á alþjóðleg-
um listiðnaðarsýningum. Við
hljótum engu síður en þeir að
hafa tekið i arf frá víkingunum
smekk fyrir fallegar línur
og form, en skip þeirra sem
fundizt hafa, eru eins og kunn-
ugt er, smíðuð af einstakri smekk
vísi og listfengi.
Nýfætt 73 ára barn
EINN ekki fæddur í gær“
skrifar:
„Fyrir fáum dögum rakst ég
á eftirfarandi fyrirsögn í einu
dagblaðanna (ékki Mbl.): Á
tæplega 100 árum hefur meðal-
ævi nýfæddra barna lengst um
35 !ú—37’/2. í greininni er þetta
svo endurtekið og þar sagt að
hér sé um 35%—37% ár að ræða.
Síðan kemur útvarpið og fræðir
okkur á því, að meðalævi ný-
fæddra barna sé nú komin upp
í 69—73 ár.
Ekki veit ég hvernig á að
skilja þetta. Hvort maður getur
verið 73 ára gamalt nýfætt barn?
Að vísu byrjum við öll ævi okk-
ar sem nýfædd börn, en að við
höldum áfram að vera það fram
í andlátið, það á ég erfitt með að
fella mig við. Þetta þykir ef til
vill óþarfa hótfyndni, en ég get
satt að segja ekki fundið neina
skynsamlega skýringu á þessu
orðalagi. Segðu mér nú, Velvak-
andi góður, mundir þú kalia 70
ára kerlingu nýfædd barn?“
Velvakandi er maður kurteis
við konur en þó mundi hann
varla ganga svo langt í guíl-
hömrunum við hið veikara kyn,
að kalla konu, ja á bezta aldri,
nýfædd barn.
Þetta orðalag minnir á r.öguna
um milljónamæringana í Amer-
íku, sem voru að metast á um
það' hvort hefði komið sér betur
áfram í lífinu.
Annar sagði: Ég byrjaði sem
berfættur drengur. Þá sagði hinn:
En ég byrjaði allsnakinn.
Þetta mun hvort tveggja rétt
vera, öll byrjum við ævina sem
nýfædd og allsnakin börn, en við
erum það því miður ekki lengi.
björg Þorsteinsdóttir, Guðrún
Þorgeirsdóttir, Þórunn Valdimars
dóttir, Guðbjörg Brynjólfsdóttir,
Pálina Þorfinnsdóttir, Guðbjörg
Guðmundsdóttir, Línbjörg Árna-
dóttir, Jenný Jónsdóttir, Kristín
Símonardóttir, Sólveig Jóhanns-
dóttir, Anna Guðnadóttir.
Múrarafélag Reykjavíkur. —
Allsherjaratkvæðagreiðsla fór
fram sl. laugardag og sunnudag
og urðu úrslit þau að A-listi lýð-
ræðissinna hlaut 95 atkvæði, en
listi kommúnista hlaut 48 atkv.
Aðalfulltrúar: Eggert G. Þor-
steinsson, Einar Jónsson.
Varafulltrúar: Jón G. S. Jóns-
son, Ásmundur Jóhannsson.
Málarafélag Reykjavíkur. —.
Kosið var á fundi í félaginu sl.
sunnudagskvöld og var fulltrúi
kommúnista kosinn.
Aðalfulltrúi: Kristján Guðlaugs
son.
Félag járniðnaðarmanna. —
Listi kommúnista hlaut 191 atkv.
en listi lýðræðissinna 99 atkv.
Aðalfulltrúar: Snorri Jónsson,
Kristinn Á. Eiríksson, Guðjón
Jónsson, Kristján Huseby, Haf-
steinn Guðmundsson.
Varafulltrúar: Íngimar Sigurðs
son, Þorleifur Þorsteinsson,
Sveinn Jónasson, Hörður Hafliða-
son, Sigurður Jónsson.
Verkakvennafélag Keflavíkur
og Njarðvíkur. — Listi stjórnar
og trúnaðarráðs varð sjálfkjör-
inn.
Aðalfulltrúar: Vilborg Auðuns-
dóttir, Ólafía Guðmundsdóttir,
Sigurborg Sigurðardóttir.
Varafulltrúar: Jóhanna Frið-
riksdóttir, Þuríður Ágústsdóttir,
Hulda Elíasdóttir.
Iðja, félag verksmiðjufólks á
Akureyri. — Listi stjórnar og
trúnaðarráðs var sjálfkjörinn.
Aðalfulltrúar: Ingibergur Jó-
hannesson, Guðlaug Jónasdóttir,
Hjörleifur Hafliðason, Ingibjörg
Björnsdóttir, Jón Ingimarsson,
Sigurður Karlsson.
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar. — Listi stjórnar og
trúnaðarráðs varð sjálfkjörinn.
Aðalfulltrúar: Haraldur Þor-
valdsson, Ingólfur Árnason, Loft-
ur Meldal, Torfi Vilhjálmsson.
Verkamannafélagið Þór, Sel-
fossi. — Kosið var á fundi sl.
sunnudag. Kommúnistar fengu
sína fulltrúa kjörna, en þeir eru:
Aðalfulltrúar: Skúli Guðnason,
Jón Bjarnason.
Sjómannafélagið Jötunn, Vest-
mannaeyjum. — Allsherjarat-
kvæðagreiðsla fór fram á laugar-
dag og sunnudag og urðu úrslit
kosningarinnar þau að listi komm
únista hlaut 74 atkvæði, en listi
lýðræðissinna hlaut 56 atkvæði.
Aðalfulltrúar: Sigurður Stefáns
son, Grétar Skaftason.
Verkalýðsfélag Hveragerðis. —
Kosið var á fundi sl. sunnudag.
Þar var kjörinn fulltrúi komm-
únista.
Aðalfulltrúi: Sigurður Árnason.
í Verkakvennafélaginu Eining
á Akureyri mun listi stjórnar
og trúnaðarráðs hafa verið sjálf-
kjörinn.
Komfrtúnistar hindra allsherjar-
atkvæðagreiðslu í tveimur
félögum
Það kom í ljós á greinilegan
hátt um sl. helgi, hve ótti komm-
únista er mikill um það að þeir
i Framh. á bls. 15.