Morgunblaðið - 23.09.1958, Side 16
lHOKCTnSBLAÐIÐ
l>ri3judagur 23. sept. 1958
16
5l)2tE WONCr
ÍkALPt>/AC-A EFTlfc RlCHARP MMON
«8 óskum. Þegar ég sagði henni
frá Suzie, var sem hún skammað-
ist sín fyrir að vera svo hamingju
Böm.
„Ég á að vinna í nótt“, sagði
hún. „Ég skal vitja um hana öðru
hverju".
„Mér þætti mjög vænt um það,
Kay. Ég er svo hræddur um, að
enginn ske-yti um að láta mig vita,
ef eitthvað kemur fyrir".
„Hafðu engar áhyggjur vegna
J>ess. Ég skal sjá um það“.
Ég hélt kyrru fyrir í herbergt'
mínu, þar til klukkan var orðin
níu, og beið þess að síminn
hringdi. Ég tók viðbragð í hvert
skipti sem heyrðist í hjólhesta-
bjöllu úti á götunni. Ég gat ekki
afborið biðina í einrúmi lengur og
sagði símastúlkunni að gefa mér
símasamband niður í veitingasal-
inn. Þar drakk ég nokkur vínglös,
og Gwenny kom að borðinu til þess
að spyrja um Suzie og sagði mér
jafnframt, að systir hennar hefði
verið að trúlofa sig.
„Það eru dásamlegar fréttir,
Gwenny", sagði ég. „Ég vona, að
maðurinn sé forríkur?"
„Nei, hann er ekki sérlega rík-
ur. Hann á aðeins tvær bifreiðir".
„Það virðist nú prýðilegt". Ég
hlustaði stöðugt með öðru eyranu
eftir símanum. „Þú getur þá hætt
að vinna?“
„Já, um leið og systir mín er
gift. Ég er svo ánægð. Við verð-
um að gera okkur dagamun, þeg-
ar Suzie er batnað".
Síminn á skenkiborðinu hringdi,
og það dró samstundis úr mér
METSÖLUPLÖTURNAR með:
NÍNU & FREDERIK
&
V
&
5$>
%
Sendum í póstkröfu.
JJlfóS^œrauerzlun Sicfrikar ^JJeÍyaclóttu
Vesturveri — sími 11315
j ©Ci=2«?=<Q=^(F^Q=^(?=<Q=»íC=>,Qs='í(/=“<Q=<d=<Q=«d:='!Q==<(/='!Q=<
\ <Q=?<Cr=<Q^.CP^CirfCP^Ci^(P^Cb^.ö==<Ci=<CP<Ci=<Cra<Q=<CP!<CI=<ö
allan mátt. Typhoo tók upp tólið,
lagði það síðan frá sér á borðið
og litaðist um í salinn. Hún sá
mig og brosti út að eyrum.
„Heyrðu, Chow-fan — það vill
einhver stúika tala við þig. Ég
hugsa, að hún sé nýbúin að frétta
að þú sért giftur, og ætli aö koma
þér í klípu".
Ég var svo máttlaus í hnjálið-
unum, er ég gekk yfir gólfið, að
ég óttaðist að ég kæmist ekki alla
leið. Ég tók upp tólið og heyrði
rödd Kay. „Halló, Robert? Láttu
þér ekki verða bilt við. Ég ætlaði
aðeins að láta þig vita, að ég er
að koma frá henni, og það er ver-
ið að gefa henni aðra blóðgjöf".
„Ég hélt, að” þeir hefðu tekið
ákvörðun um að gera það ekki“,
sagði ég, þar sem mér var kunn-
ugt um, að fyrri blóðgjöfin hafði
fyllt Suzie skelfingu og ofsa yfir
að fá í sig framandi blóð, og hin-
ar sálrænu afleiðingar þess höfðu
varað dögum saman. „Læknirinn
sagði mér, að hann vildi ekki hætta
á að gera það aftur".
„Ég veit það, en ég held, að
hann hafi nú komizt að þeirri nið-
urstöðu, að í því fælist eina von-
in“, sagði Kay. „Ég hringi til
þin aftur, strax og ég hef einhverj
ar nýjár fréttir".
Ég dvaldizt í veitingasalnum til
miðnættis og hélt þá aftur til her
bergis míns. Ég sat á svölunum,
hlustaði eftir símanum, og horfði
jafnframt á ljósaskiltin, sem
slokknuðu hvert á fætur öðru með-
fram höfninni. Síðustu ferjurnar
skriðu sem lýsandi tólffótungar
eftir höfninni; húsbátar lyftust
og sigu á víxl í dökku vatninu,
sem gjálfraði við bryggjurnar, og
siglutré skútanna vögguðu hægt
til hliðanna.
Eitt sinn hringdi síminn í öðru
herbergi, og ég hrökk við og var
með ákafan hjartslátt lengi á eft-
ir. Skyndilega varð ég svo ör-
magna af þreytu af hinni erfiðu
bið, að ég fór inn í herbergið og
lét fallast á rúmið. „Hún er dá-
in“, hugsaði ég. „Hún er dáin fyr-
ir nokkrum klukkustundum, en
það hefur gleymzt að láta mig
vita“. Ég teygði mig eftir síman-
um og hugðist hringja til sjúkra-
hússins, en hætti við það á síðustu
stundu. „Nei“, hugsaði ég, „það
er betra að hafa óvissuna". Nýr
dagur rann upp, ég lá og horfði
á, er grá skíman læddist inn í her-
bergið og heimurinn endurfæddist
í kaldri, grárri dögun, ömurlegri
og litlausri.
„Hún er dáin“, hugsaði ég.
„Nýr dagur er runninn upp án
hennar".
En skyndilega birtust daufir
litir meðal hins gráa, síðan kom
sólin upp. Ég gekk út á svalirnar
og horfði á, meðan borgin var að
vakna til nýs lífs og hlustaði á
æðaslátt hennar. Sólargeislarnir
mynduðu gylltar rákir í þröngum,
ömurlegum strætunum, höfnin lifn
aði öll og glitraði í sólinni, og
fyrsta ferjan, nýmáluð og glamp-
andi hvít að lit, var að skríða frá
bryggjunni. Og von bráðar iðaði
höfnin af lífi smábáta, og stórt'koma. Ég hafði næga peninga til
skemmtiferðaskip sigldi á milli j fararinnar, og kvöld eitt flaug mér
þeirra. Farþegar stóðu við borð- j allt í einu í hug: „Langi Suzie til
stokkinn og bentu. „Þetta er Hong
Kong — og þarna er Tindurinn!"
Allt í einu vai-ð ég gripinn fögn
uði. „Henni er borgið — Suzie
hlýtur að líða betur! Annars væri
ég búinn að frétta eitthvað!" Ég
þvoði mér og rakaði mig í skyndi,
klæddist síðan hreinum buxum og
beztu skyrtunni, sem ég átti og
tróð því næst í vasann nægilegum
peningum til blómakaupa og þaut
í áttina til dyranna. En þá hringdi
síminn, og ég nam snöggt staðar.
Ég stóð í opnum dyrunum og
starði á símann. Hann hringdi
aftur langa hringingu og ég nálg-
aðist hann hikandi. Ég stóð sem
að fara, og hafi hún kjark til þess
— hví skyldi ég þá hafa á móti
því?“ Daginn eftir, þegar ég heim
sótti hana í spítalann, sagði ég
henni, að við myndum fara til Eng
lands og dvelja þar í sex vikur.
Þrem mánuðum síðar, er hún
losnaði af sjúkrahúsinu, héldum
við til Englands. Við fórum með
vöruflutningaskipi og komum að
vorlagi, um það leyti sem þreytt
vetrarandlit Lundúnabúans er að
þiðna og fá á sig bros, og laufin
að springa út í skemmtigörðun-
um. Hlýtt, bjart sólskinið á stræt-
unum bauð okkur velkomin. Við
bjuggum í málaravinnustofu með
lamaður með útrétta hönd fyrir j húsgögnum, ser.i Roy Ullman
°fan °g 6r SÍminn ..hringdi I hafði tekizt að hafa upp á í Ful-
ham Road, en ég málaði ekki mikið
enn nokkrum sinnum, snöggt og
óþolinmóðlega, þreif ég tólið. —
„Halió?“ var sagt með rödd Kay.
„Halló, ert það þú, Robert?“
„Já“, sagði ég.
„Það er ágætt“, sagði hún. —
„Jæja, ég hef góðar fréttir að Ábbé“y," sigldum * nWu
fT5a ?ef_.TT blÓðgjÖfT bar tilætl; j Greenwich, villtumst
aðan árangur, og hún var vel
hress í morgun......... Halló?
Halló, ertu þarna ennþá?“
„Já, ég er hérna“.
Það varð að standa í biðröð á
sporvagnastöðvunum, og mér
tókst ekki að fá leigubifreið. Ég
fór því í dráttarkerru upp að hæð
inni, og fór síðan fótgangandi upp
hana. Þegar ég komst á leiðar-
enda, bogaði af mér svitinn og
hárið límdist við höfuðið, eins og
ég væri nýkominn úr steypibaði.
Ég þaut upp stigann í nokkrum
stökkum og inn i sjúkrastofuna,
rakleitt að rúmi Suzie, án þess
að skeyta hót um umhverfið. Ég
hló og kyssti hana, og Suzie sagði:
„Góðan daginn, mér líður dásam-
lega í dag.
„Þú lítur dásamlega út, Suzie“.
„Já, mér var alveg sama um
blóðið í þetta skipti. Ég held, að
þeir hljóti að hafa tekið það úr
betra manni. Já, í þetta skipti
gáfu þeir mér allra bezta blóð“.
ÁTTUNDI KAFLI.
„Suzie, læknirinn segir, að þeg-
ar þú komir úr sjúkrahúsinu væri
gott, að þú ættir heima í háfjalla
lofti. Hvernig myndi þér líka að
eiga heima í Japan? Mjg hefur
alltaf langað til að fara þangað
aftur til að mála, og það eru marg
ir dásamlega fallegir staðir uppi
í fjöllunum“.
„Já, það væri gaman“. — Hún
fyrsta hálfa mánuðinn, þar sem
við höfðum nóg að gera að skoða
borgina og aka um í strætisvögn-
um. Við fórum til Tower, St.
Pauls kirkjunnar og Westminster
r fljótið til
í Hampton
Court og mötuðum apana í dýra-
garðinum á hnetum. En Suzie
hafði ekki eins gaman af dýragarð
inum og búast hefði mátt við, hún
hafði mun meiri ánægju af að
virða fyrir sér fólkið en dýrin.
Við lukum því ekki við að skoða
dýragarðinn, heldur lögðumst við
á grasflöt í Regent’s Park, og þar
var hún svo niðursokkin í að skoða
þá, sem fram hjá gengu, að ,iún
hefði getað legið þar allan daginn.
Við fórum einnig nokkrum sinn
um í leikhús, því að hún hafði
meiri ánægju af því en nokkru
öðru. 1 fyrstu forðaðist ég leikrit
alvarlegs eðlis, þar sem ég bjðst
við, að hún myndi eiga erfitt með
að fylgjast með samtölunum. Ég
fór því með hana á bandarískan
söngleik og síðan á vinsælan skop-
leik. Næst fórum við á gamanleik,
og er hún hafði látið í Ijós álit
sitt á honum með þessum orðum:
„Ég hef aldrei vitað neinn hegða
sér svona“, fórum við að sjá ný-
tízku harmleik. Hún skildi tæpast
mikið, en hún fylgdist af miklum
áhuga með því sem gerðist, augu
hennar viku ekki af sviðinu, og
væri ég að hvísla einhverju að
henni til skýringar, greip hún
fram í fyrir mér með því að kinka
kolli; hún skildi hvað fram fór af
svipbrigðum og athöfnum. Eftir á
kunni hún skil á hverju leikriti í
smáatriðum, því að hugur hennar
var jafnmóttækilegur og barns-
bikaði. „Myndum við fara beint hugurinn; og marga daga á eftir
til Japan?“
„Já, við myndum fara beint frá
Hong Kong“.
Hún reyndi að leyna vonbrigð-
um sínum. Ég vissi, að hún myndi
hafa verið að vona, að ég færi
með hana í stutt ferðalag til Eng-
lands áður: hana hrfði alltaf lang
að til að sjá London, Piccadilly
Cirkus, stóru verzlanirnar og
drottninguna. En ég gat tæplega
farið með hana þangað, því að það
myndi kosta ósannindi, blekking-
ar og látalæti. Hún yrði að þykj-
ast önnur en sú, sem hún var, og
án efa kæmist sannleikurinn upp
um síðir með tilheyrandi baknagi
og háðsglósum. Nei, það var óhugs
andi.
En það var sannarlega gremju
legt að England skyldi vera okk-
ur lokað. í því fólst eins konar
ögrun. Það átti að halda sýningu
á málverkum mínum í London, og
Roy Ullman, sem sá um hana, var
stöðugt að leggja fast að okkur að
a
(A
ó
1) „Nei, ert
«r? Hvað ert
jLg w komiitn
það þú, Vermund-
þú að gera hér?“
til að éta allt ofan
í mig, Markús“.
2) „Tryggvi, þetta er Vermund
ur, útgefandi Náttúrufræðttima-
ritsins. Hann var áður vinnuveit-
andi minn“.
3) „Markús, ég vil fá þig aítur I
í vinnu til mín ..... og é'g hef
stórkostlegt verkeíni fyrir þig“.
ræddum við bau vandamál, sem
um hafði verið fjallað i leikritinu.
Að lokum gafst ég alveg upp á
ajlltvarpið
Þriðjudagur 23. septeniber:
Fastir liðir eins og venjulega.
19,30 Tónleikar: Þjóðlög frá ýms-
um löndum (plötur). 20,30 Erindi:
Þættir um íslenzk mannanöfn og
nafngiftir; fyrri hluti (Hermann
Pálsson lektor). 21,05 Tónleikar
(plötur). 21,30 Útvarpssagan:
„Einhyrningurinn“ eftir Sigfrid
Siwertz; IV. (Guðmundur Frí-
mann skáld). 22,10 Kvöldsagan:
„Presturinn á Vökuvöllum“ eftir
Oliver Goldsmith; IX. (Þorsteinn
Hannesson). 22,30 Hjördís Sævar
og Haukur Hauksson kynna lög
unga fólksins. 23,25 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 24. september.
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50—14,00 „Við vinnuna“: Tón-
leikar af plötum. 19,30 Tónleikar:
Óperulög (plötur). 20,30 Tónleik-
ar (plötur). 20,50 Erindi: Galileo
Galilei, meistari undir merki
Kopernikusar; V. (Hjörtur Hall-
dórsson menntaskólakennari). —•
21,15 Tónleikar (plötur). — 21,35
Kímnisaga vikunnar: „Drauga-
veizlan“ eftir Alexander Pushkin
(Ævar Kvaran leikari). — 22,00
Fréttir, íþróttaspjall og veður-
fregnir. 22,15 Kvöldsagan: „Prest
urinn á Vökuvöllum" eftir Oliver
Goldsmith; X. (Þorsteinn Hannes
son). 22,35 Djassþáttur (Guðbjörg
Jón-edóttir). 23,05 Dagskrérlok.