Morgunblaðið - 23.09.1958, Síða 19
Þriðjudagur 23. sept. 1958
MORGVNBLAÐIÐ
19
— Utan úr heími
Frh af bls 10
svo aftur knýr skipsskrúfurnar.
Kjarnorkustöð í kafbáti hefur
tvo mikla kosti. í fyrsta lagi þarf
vélin ekki að fá utanaðkomandi
súrefnisbirgðir og getur þess
vegna starfað neðansjávar, svo
lengi sem eldsneytið endist, og
í öðru lagi getur skipið siglt
ótrúlega langa vegalengd án
þess að endurnýja eldsneytið.
Þannig hafði Nautilus farið
115,736 km vegalengd á tímabil-
inu frá því i janúar 1955 þar til
1957, þegar kjarnaeldsneyti hans
var endurnýjað í fyrsta sinn. Sér-
fróðir menn segja, að venjulegur
kafbátur af svipaðri stærð hefði
eytt 11.400,000 litrum af olíu til
þess að fara sömu vegalengd.
Dógóð reknetjuveiði í ísoiirði
Aukasúrefnisbirgðir eru í skip-
inu til þess að halda andrúms-
loftinu hreinu, og er súr-
efninu veitt smám saman inn
í skipið. Sérstakt kerfi kemískra
tækja er notað til þess að eyða
óhreinindum.
Stjórnkerfið í Nautilusi mjög
nákvæmt
Eitt merkasta tæki í Nautilusi
er stjórnkerfið, en það er útbúið
með það fyrir augum að skipið
haldist sjálfkrafa á braut, sem
áður hefur verið ákveðin. Þetta
er langtum nákvæmara stjórn-
kerfi en hingað til hefur þekkzt,
og er mun fljótlegra að finna
stöðu skipsins, þar eð engra út-
reikninga er þörf, heldur má lesa
hana af tækinu.
Þrír sívalir hraðamælar uppistaða
stjórnkerfisins
Aðaluppistaða þessa merkilega
stjórnkerfis eru þrír sívalir
hraðamælar. Þeir standa á lóð-
réttum öxlum. Þessi tæki mæla |
allar hreyfingar eða fráhvörf frá j
þeirri stefnu, sem upphaflega var
tekin, í hvaða átt sem er. Sjálf-
virk tæki reikna út stefnu og:
styrkleika hreyfinganna og breyt- |
ingar, sem gera þarf, til þess að
skipið komist aftur á rétta braut.
Sölíunaraðstaða góð
ÍSAFIKÐI 22. sep't.: — Síðustu
daga hefur verið dágóð reknetja
veiði hér. í fyrradag, laugardag,
var Húni frá Skagaströnd afla-
hæstur með 98 tunnur. Heildar-
afli bátanna til söltunar síðan rek
netjaveiði hófst er sem hér grein-
ir, miðað við uppmældar tunn-
— Quemoy
Framh. af bls. 11.
Bandaríkjamenn hafa lýst því
yfir að þeir muni hjálpa þjóð-
ernissinnum að verja Quemoy.
Hins vegar hafa þeir beinlínis
bannað þjóðernissinnum, að gera
loftárásir á fallbyssuvirki komm-
únista á meginlandinu. Er það þó
margra álit og þar á meðal
Chiang Kai-sheks, foringja þjóð-
ernissinna, að örðugt verði að
verja eyjarnar meðan fallbyssu-
virki kommúnista fa óhindrað að
strá sprengikúlum yfir þær.
Sendiherrar Bandaríkjanna og
Pekingstjórnarinnar í Varsjá
hafa að undanförnu ræðzt við
um möguleikana á lausn þessa
vandamáls. Það virðist þó ekki
hægt að eygja neina lausn í bili.
Þófið virðist halda áfram og allt
strandar á því að bæði kommún-
istar og þjóðernissinnar þykjast
eiga þessar umdeildu eyjar. Hitt
er þó miklu alvarlegra, þegar
stórveldi er svo ábyrgðarlaus að
hóta með heimsstyrjöld, þótt
eitthvað skerist í odda.
ur: Auðbjörn 308, Guðbjörg 719,
Gunnvör 858 og Sæbjörn 201
tunna. Þessir fjórir eru Isafjarð-
arbátar.
Nokkrir aðkomubátar hafa lagt
upp hér, sumir aðeins einu sinni.
'Þeir af aðkomubátunum, sem
mestan afla hafa fengið til þessa
eru Aðalbjörg, Skagaströnd 421
uppmæld tunna. Baldvin Þor-
valdsson, Dalvík, 98. Bjarmi 101
og Húni 593 tunnur.
Síldarsaltendur vilja gjarna
láta þess getið, að skilyrði til mót
töku á síld hér eru hin ákjósan-
legustu og vona þeir að fleiri að-
komubátar komi hingað með afla
sinn. Yfirleitt er síldin góð til
söltunar sem fyrr greinir. Er afl-
inn orðinn um 3300 uppinældar
tunnur, en um 2100 tunnur upp-
saltaðar. Allmikið hefur og verið
fryst til beitu.
Nokkrir bátar hafa byrjað
veiðaf í þorskanet og fengið
góðan afla hér inni í Djúpinu.
'Sólborg kom á föstudag af Fylk-
ismiðum með fullfermi af karfa.
Veðurblíða hefur verið hér und-
anfarnar tvær vikur. —Guðjón.
Þórarinn Jónsson
löggiltur skjalaþýðandi
og dómtúlkur ensku.
Kirkjuhvoii. — bími 18655.
EGGERT CEAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn.
Þórshamri við Templarasund
Plötusmiður óskast
í fasta vinnu.•
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir föstudags-
kvöld merkt: „Plötusmiður
4984‘
Auk stjórnkerfisins er Nautilus
búinn fjölmörgum öðrum nýjum
og fullkomnum siglingatækjum.
Þar á meðal eru sjálfvirkir dýpt-
ar- og stefnumælar, sem stjórna
dýptarstöðu og stefnu kafbátsins.
Styttir siglino'aleiðina um rúma
5 þús. km.
Eitt merkasta atriðið í sam-
bandi við Norðurskautssiglingu
Nautilusar er auðvitað, að þarna
virðist hafa opnazt styttri sigl-
ingaleið milli Atlantshafs og
Kyrrahafs fyrir kaupskip og
flutningaskip framtíðarinnar. Hin
venjulega siglingaleið frá Hono-
lulu til Lund’ma er 17.500
km, en leiðin, sem Nautilus fór,
er 12,400 km
Neðansjávarkauuskip í kjölfar
Nautilusar
Margir fulltrúar skipaiðnaðar-
ins eru þeirrar skoðunar, að næsta
áratug eða svo verði teknir í
notkun risastórir olíuflutninga-
kafbátar. Nú standa yfir athyglis-
verðar ránnsóknir á vegum fyr-
irtækisins, sem smíðaði Nautilus,
Electric Boat Division of General
Dynamics, varðandi byggingu,
gerð og kostnað við smíði slíkra
kafbáta. Auk þess hefur fyrir-
tækið Aerojet-General með hönd-
um uppdrátt að byggingu flutn-
ingakafbáts fyrir siglingamála-
ráðuneyti Bandaríkjanna.
Fyrstu neðansjávarkaupskipin
verða aðeins örlítið stærri en
venjulegir kafbátar, en sennilegt
er '’ið, að slík skip verði langt-
urn jtærri, þegar fram í sækir.
Nautilus er t. d. 96 metrar að
lengd, en 100,000 smálesta olíu-
flutningakafbátar, sem nokkrir
skipaeigendur hyggjast láta
smíða, verða 270 metrar að lengd.
Sumir sérfræðingar álíta jafn-
vel, að unnt verði að smíða allt
að 300 metra langa kafbáta til
olíuflutninga.
Einbýlishús
sem er 2 hæðir og kjallari við Skaptahlíð til sölu. Á 1. hæð
eru 2 stofur og eldhús, á efri hæð 4 herbergi og bað, en í
kjallara 2 herbergi, þvottahús og geymslur. Flatarmál
80 fermetrar. Bílskúrsréttindi og ræktuð lóð.
STEINN JÓNSSON, hdl.,
lögfræðiskrifstofa — fasteignasala
Kirkjuhvoli — símar 19090 — 14951.
Ra&hús til sölu
Höfum til sölu raðhús á góðum stað við Langholtsveg.
I kjallara er bifreiðargeymsla, þvottahús, kyndiklefi og
geymsla. A 1. hæð eru 2—3 stofur, eldhús, snyrting, skáli
og ytri forstofa. Á 2. hæð eru 4 herbergi, bað, forstofa og
stórar svalir. Ibúðirnar eru seldar fokheldar. Lán á 2. veð-
rétti kr. 50.000,00. Fyrsti veðréttur laus.
Fasteigna & Verðbréfasalan,
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4 — Símar: 13294 og 14314.
Blesugróf
UNGLING vantar til blaðburðar í
BLESUGRÓF
Talið við bókhaldið.
|;ÍI orgiilíMadid
‘alstræti 6 — Sím;
MANUFACTURAS OE CORCHO
®r
Soc/ec/ac/ Anómma
Gólia — korkeinangrun
mstrong
fyrir geisla-hitunarketrfi fyrirliggjandi
Borgartúni 7 — Sími 22235
Hjartans þakkir til ykkar, sem minntust mín á átt-
ræðisafmælinu.
Bið ykkur öllum blessunar Guðs.
Guðrún Jóhannsdóttir frá Ásláksstöðum.
Hlýan hug, heillaóskir og aðra vinsemd á afmælisdag-
inn minn, 15. þ.m. þakka ég vinum mínum hjartanlega.
Árni Böðvarsson, Akranesi.
Hjartanlega þakka ég öllum, fjær og nær, skyldum og
vandalausum, sem glöddu mig níræða með heimsóknum,
gjöfum, blómum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Bjarnadóttir,
Drápuhlíð 22.
Systir okkar
KRISTlN B. ÞORLÁKSDÓTTIR
Grettisgötu 75, andaðist þann 21. september.
Systkini hinnar látnu.
Bróðir okkar
DR med. HALLDÓR KRISTJÁNSSON
andaðist að heimili sínu í Kaupmannahöfn 19. þ.m.
Sólveig Eggerz, Elísabet Foss.
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi
JÓN EIRlKSSON
skipasmiður, Hjallaveg 9, lézt í Landakotsspítala 20. sept.
Magnea Torfadóttir
Torfhildur Jónsdóttir, Aðalsteinn Ólafsson,
Kristján Vattnes, Lovísa Helgadóttir,
Geir R. Jónsson, og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við
fráfall og jarðarför móður okkar og tengdamóður
THEÓDÓRU PÁLSDÓTTUR ÁRDAL
Siglufirði.
Börn og tengdabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför mannsins míns
KRISTJÁNS LINNETS
fyrrv. bæjarfógeta.
Jóhanna Linnet.
Hjartanlega þökkum við hlýhug og samúð við andlát og
jarðarför
KRISTINS GUÐNASONAR
í Skarði. Einnig þökkum við vinum hins látna fyrir höfð-
inglega minningargjöf til Kirkjugarðssjóðs Skarðskirkju.
Sigríður Einarsdóttir og börn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
GERTINE SCHRAM
Sérstaklega viljum við þakka þeim sem hjúkruðu henni
og hjálpuðu á Elliheimilinu Grund síðustu ævistundirnar.
Fyrir hönd ættingja.
Sigurður Schram.