Morgunblaðið - 02.11.1958, Side 11
Sunnnilneriir 9 nAv 1058
Mnncvisfíj a»ib
11
tOambraA un \
UndiríjOni]
Miklabi-aut
CB
!>>
•í
Zihfi/fn ws/jj >{{{{f>ý\ *winftfpi
3>fr e iéa s tæ&í ...TO1.........^ ®
1« « 1 56 s,\ 1 Lí^ 16 \
1
»
•0
03
“nwfftnje&?i2gri
Þessi teiking sýnir hvernig Miklabrautin verður þá er hún er fullgerð, með neðan.iarðargangbraut
undir götunni við gatnamót Lönguhliðar, bilastœðin og biðstöðvar strætisvagnanna.
Miklabrautin verður mikið mannvirki
og ein mesta umferðargafa í bcenum
Fyrsta neðanjarðar-gangbrautin lögð
undir hana
SENN fer að líða að því að hægt
verði að opna á ný þann hluta
Miklubrautarinnar, sem í sumar
hefur verið unnið að lagníngu á.
Verður þessi mikla umferðar-
gata um margt merkilegt mann-
virki, en Miklabraut á sennilega
eftir að verða aðalsamgönguleið-
in til og frá bænum, sem þúsund-
ir bíla munu leggja leið sína um
daglega.
Um daginn hitti tíðindamaður
Mbl. að máli þá þrjá verkfræð-
inga í skrifstofu bæjarverkfræð-
ings, er mest hafa komið við j
sögu við lagningu Miklubrautar- I
innar, en það eru þeir Einar B. j
Pálsson yfirverkfræðingur, Skúli
Guðmundsson deildarverkfræð-
ingur, er hefur með höndum
stjórn gatnagerðarinnar hér í
bænum, og Guttormur Þormar
verkfræðingur, sem hefur dag-
legt eftirlit með verkinu.
Ef við skoðum þessa teikningu
!ftf Miklubrautinni, sagði Einar,
þá fáum við nokkurn veginn fulln
aðarmynd af brautinni, eins
og hún verður á kaflanum milli
Rauðarárstígs og Stakkahlíðar.
Alls verður þessi mikla umferð-
aræð 38,5 metra breið frá lóða-
mörkum húsanna sunnan meginn
götunnar og norður yfir nyrðri
gangstétt. Næst íbúðarhúsunum
liggur sérstök akbraut, sem ein-
göngu er ætluð fyrir þá umferð,
sem liggur að og frá húsunum.
Meðfram þeirri akbraut eru einn-
ig bílastæði. Þetta er gert til
þess að beina allri umferð íbú-
anna við götuna af aðalak-
brautum Miklubrautar, því að
ekki kynni það góðri lukku að
stýra að stöðugur straumur gang
andi væri þvert yfir akbrautirn-
ar. Ekki má því skoða þessa
ráðstöfun sem einhvern lúxus fyr
ir íbúana, heldur er hér um ör-
yggisráðstafanir að ræða. Og sem
lið í þeirri viðleitni verður að-
eins leyfður einstefnuakstur um
þessa akbraut meðfram húsun-
um.
Þá tekur við syðri ak-
brautin, fyrir umferðina í bæinn.
Akbrautin, sem er 7,50 m breið,
verður lítið eitt breiðari en ak-
brautir Lækjargötu og Hring-
brautar, sem eru 7 m breiðar, og
verður brautinni skipt niður í
tvær akreinar. Þá sjáum við á
teikningunni, hvernig leyst er
vandamálið um strætisvagnabið- j
stöðvarnar. Þarna verða gerðir
nokkurs konar básar fyrir þá að
nema staðar í og eru þeir það
breiðir að bílaumferðin þarf ekki
að tefjast af þeirra völdum. Verk
fræðingarnir vöktu athygli á því,
að ekki er gert ráð fyrir að bíla-
umferðin úr götum þeim sem r.ð
Miklubraut liggja, eins og t.d.
Reykjahlíð, skeri báðar akbraut-
ir Miklubrautarinnar. Ekki verð-
ur því hægt að komast úr Reykja
hlíð, Engihlíð eða Stakkahlíð og
beygja til hægri austur Miklu-
braut. Það verður aðeins hægt
við gatnamót Lönguhlíðar. Þar
sem um er að ræða slíka um-
ferðaræð sem Miklabraut
tíðkast það hvergi að þær séu
skornar af þvergötum á fleiri
stöðum en brýnustu nauðsyn ber
til. Nyrðri akbrautin verður svo
aðskilin frá þeirri syðri með
„eyjum'1.
Með þessu fyrirkomulagi að
hafa þrjár akbrautir á að vera
hægt að banna allar bifreiðastöð-
ur á aðalakbrautunum, án þess
að það valdi óþægindum, og losna
þannig við þær tafir og hættur,
sem standandi bílar hafa alltaf í
för með sér á slíkum götum.
Seinnihluta sumars var ákveð-
ið að leggja neðanjarðargang-
braut undir Miklubrautina við
gatnamót Lönguhlíðar og Miklu-
brautar og er nú verið að hefja
mótasmíði þessara jarðganga.
Hér var um mikla nauðsyn að
ræða til þess að auðvelda fólki
að komast í strætisvagnana, sem
hafa biðstöð við gatnamótin og
líka verður þetta til þæginda
fyrir fólk að komast yfir götuna
þegar stundir líða fram og
skemmtigarður er kominn þar
sem nú er Klambratúnið.
í sumar vOru það aðalakbraut-
irnar tvær, sem unnið var
við. Sem kunnugt er fór 'fram
mikið jarðrask við þessar fram-
kvæmdir, því það var hreinlega
skipt um jarðveg undir götunni.
Voru notuð ýmis stórvirk tæki,
vélskóflur og jarðýtur, sem mok-
uðu og ýttu hinu upphaflega jarð
lagi undir götunni út á Klambra-
túnið, og stórir amerískir sand-
llutningsvagnar sem taka um
15 tonn í ferð, fluttu að nýja
jarðveginn. í sumar var rutt úr
götustæðinu um 35.000 tenings-
metrum og annað eins flutt að í
staðinn. Er nú verkinu svo langt
komið, að púkklag er komið á
götuna milli Lönguhlíðar og
Rauðarárstígs, og milli Löngu-
hlíðar og Stakkahlíðar fer senn
að því að líða að lagt verði púkk-
lagið undir malbikunina, sem
væntanlega hefst þegar næsta
vor, ásamt lagningu gangstétta,
en í vetur, þegar Miklabrautin
verður opnuð, sem vonandi verð-
ur áður en langt um líður, verð-
meira en sá áfangi sem lokið var
í fyrrahaust, er lögð var syðsta
akbrautirt, en hefur ekki tekið
mikið lengri tima. Þetta stafar
m.a. af því að fengin er mikils-
verð reynsla á hvernig slík stór-
mannvirki verða unnin á sem
skemmstum tíma, með þeim réttu
tækjum sem við eiga, og þegar
svigrúm til framkvæmdanna er
nægilegt.
í fyrrasumar þurfti t.d. að
moka öllum jarðveginum upp á
vagna og flytja gegnum um-
ferðina á norðurhluta götunnar
út á túnið, en nú var hægt að
moka og ýta því beint út á tún-
ið, án þess að bílar eða önnur
flutningatæki kæmu þar nærri.
Af þessum sökum m.a. mun það
koma í ljós, sagði Einar B. Páls-
son yfirverkfræðingur, að að-
stöðumunurinn hefur meiri áhrif
í þá átt að gera mannvirkið ó-
dýrara en við höfðum þorað að
vona.
— Já, sumir hafa haldið því
fram, að það hafi verið dýrt
spaug að leggja Miklubrautina?
— Jú, heyrt höfum við það
hér, sagði Einar, en sannleikur-
inn er sá að þetta var óhjákvæmi
legt Og bæjaryfirvöldin hefðu
séð eftir því í 1000 ár, ef það
hefði ekki verið gert.
Vatnið í jarðveginum í götustæð
inu var 2—7 sinnum meira en.
föstu efnin miðað við þyngd. En
það þýðir það að jarðvegurinn
var nær því að vera tjörn jarð-
fræðilega séð en fast land.
En það er svo staðreynd líka,
að fyrir 20 árum hefði ekki
verið í slíkt lagt, og það kann
að hafa hér nokkur áhrif er menn
leggja dóm sinn á framkvæmdir
þessar. Og ef við eigum að svara,
af hvaða ástæðum þá hefði ekki
verið í verkið lagt, þá er
svarið: af tæknilegum ástæð-
um. En nú var þetta með okkar
stóru og miklu tsekjum nærri því
leikur einn, sagði Skúli Guð-
mundsson deildarverkfræðingur.
Þegar komið verður inn fyrir
Stakkahlíð verður Miklabrautin
allmiklu mjórri, aðeins tvær 7,5
m breiðar akbrautir og það er
' af þeim sökum, að engin hús sem
nærri Miklubraut standa, eiga
umferð að henni, heldur frá öðr-
um hliðargötum. En hér má geta
þess að Miklabraut verður aðal-
samgönguæðin fyrir hið nýja
15.000 ibúa hverfi sem nú er að
rísa af grunni á Háaleitinu. Það
er því hvergi ofmælt að innan
fárra ára verður Miklabraut
sennilega orðin mesta umferðar-
gata bæjarins. — Sv. Þ.
Séð vestur yfir Miklubrautina. — Myndin er tekin fyrir nokkru. *
ur gatan merkt með gulum stein
um, svo sem oft er gert þegar
ekki hefur verið lögð gangstétt.
Um leið og skipt var um jarð-
veg í nyrztu akbrautinni var lagt
nýtt holræsi í götuna. Holræsi var
fyrir í ræmunni milli suðurak-
brautarinnar og akbrautarinnar
næst húsunum. Þar liggur einnig
vatnsæð og stokkur með aðal-
háspennustrengjum Rafmagns-
veitunnar inn í bæinn. Þetta
nýja holræsi er lagt til að auka
öryggi holræsakerfisins í Hlíðar-
hverfinu.
Það verk sem unnið hefur ver-
ið í sumar er miklu umfangs-
Skáfar — skáfar
Piltar, stúlkur 16 ára og eldri.
Afmælisdansleikur Skátafélags Reykjavíkur verður
í Skátaheimilinu í kvöld kl. 8,30.
Mörg skemmtiatriði. — Góð hljómsveit.
Aðgöngumiðar á aðeins kr: 20 viö innganginn.
NEFNDIN.
Húseigendur
Vil kaupa 2—4 herbergja íbúð. Til greina kæmi að
iáta 58 model Volkswagen lítið keyrðan upp í hluta
af útborgun. Upplýsingar í dag sunnudag í síma
32826.
Látið okkur annast hreinsun
á gólfteppum og húsgögnum
með nýjustu og fullkomn-
ustu aðferðum.
Engir flutningar og engin
fyrirhöfn fyrir yður nema
hringja í síma 11-4-65, Þ&
munum við koma og hreinsa
hlutinn á staðnum.
HREINSUN.
Ný sending
Hol!enzóar kvenkápur
Fjölbreytt úrval.
(^roó
Hafnarstræti 4 — Sími 13350.