Morgunblaðið - 02.11.1958, Side 23

Morgunblaðið - 02.11.1958, Side 23
Sunnudacrur 2. nóv. 1958 MORGVlVTtTAÐIÐ 23 — Dagskráin Framh. af bls. 22. — Ég rakst á hana í Vesturveri, fór að blaða í henni og fannst hún skemmtileg. Það er allt og sumt. Ég frétti seinna, að hún hafi verið dramatíseruð í útvarp vestanhafs og auk þess sett á svið í Teater Courage í París. — Hvað segir þú um reiðina, sem leikritið hefur valdið? — Mér finnst það bara ágætt, að einhver skuli vera reiður. Það er nauðsynlegt fyrir hvern mann að „lofta svolítið út“. Ég hef feng ið þrjú bréf í tilefni af flutningi fyrsta þáttar. Eitt var frá „reiðri rnóður", annað frá „reiðum föð- ur“------ — — en það þriðja? — Það var frá einhverjum, sem er ekki reiður. Þeir eru líka til. Annars get ég sagt þér, að mér datt í hug þessi vísa Egils, þegar ég fékk bréfið frá „reiðri móð- ur“: „Þat mælti mín móðir ... “ , en ég vil geta þess, að í leikritinu eru börn hvorki hvött né lött til „at vega mann ok annan“. Og ef foreldrar eru hræddir um, að börnin spillist við að hlusta á þáttinn, þá er ekkert annað en að setja þau í rúmið á venju- legum háttatíma. Þegar við fórum á fund Knúts Skeggjasonar og Sigurðar Þor- steinssonar, höfðum við heyrt, að þeir hefðu samið geimiararsögu, sem flutt verður, eða öllu heldur leikin í útvarpið í vetur. Mun þetta vera fyrsta „geimsagan", sem skrifuð hefur verið á ís- lenzku, að minnsta kosti svo okkur sé kunnugt. — Þegar þeir Knútur og Sigurður komu upp á ritstjórnarskrifstofur Morgunbl. sagði sá fyrrnefndi: — Það er svo heitt hér, að manni gæti helzt dottið í hug, að maður væri kominn til Venusar. — Ekki verður svona heitt í geimskipinu okkar, sagði Sig- urður. — Geimskipið, hvað heitir það? — Óskírt ennþá. — Eruð þið búnir að ráða skip- stjóra? — Nei, ekki ennþá. — Kannski þú takir það að þér, Knútur? — Nei, guði sé lof. — Heldur hver? — Ja, við höfum ekki fundið neinn heppilegan skipstjóra enn þá. Islenzkir leikarar eru flestir svo jarðbundnir. — Hvað viljið þið segja um söguna? — Við semjum hana í samein- ingu. Hún hefst á íslandi og henm lýkur hér. — Hvert er ferðinni heitið? — Til tunglsins. En það er svo annað mál, hvort karlinn í tungl- inu tekur á móti skipinu. Ann- ars getum við bætt því við, að, að sagan verður aðallega á ís- lenzku, en þó bregður fyr'r „geimmáli", ja, það er ekki ósvipað því, sem heyrist í Þjóð leikhúskjallaranum, Naustinu eða Borginni, ekki svo afleitt að skilja það. — Hversu margir verða leik- ararnir? — Fimm eða sex, en svo er þess að gæta, að við sögu kemur laumu farþegi, sem gerir strik í reikn- inginn. — Er það Haraldur Á? •— Nei, þetta er lítið geimskip. Og nú þótti okkur nóg komið af „geiminu", svo við fórum loks á fund Andrésar Björnssonar í leit að alvarlegra efni. Ilann sér um „Lestur fornsagna" og tekur til meðferðar: Mágus sögu Jarls. Andrés sagði um söguna: — Þetta er riddarasaga frá 14. öld. Hún er full af ævintýrum, kurteisi og riddaramennsku. Telja má fullvíst, að sagan sé rituð á Islandi, en fyrirmyndin er franskt miðaidakvæði, sem fylgt er mjög lauslega, að sögn þeirra, sem gerst þekkja. Ýmislegt fleira mætti nefna hér, en þetta verður látið nægja að sinni. Við fréttum að vísu, að útvarpið hygðist taka upp sér- staka leikfimitíma í vetur, en það á heima á íþróttasíðu blaðsins Togararnir lönduðu alls um 2700 tonnum af karfa Mafreiðslukona í GÆRDAG var verið að landa fiski úr þrem togurum hér í Reykjavík, en þeir höfðu allir verið á Nýja Fylkismiðum við Nýfundnaland. — Voru þessir togarar alls með um 900 tonn. Áður í vikunni höfðu aðrir tog- arar landað um 1800 tonnum af karfa, svo að segja má að viku- aflinn sem kom hér á land hafi orðið um 2700 tonn alls. Segja má að aflabrögðin á hin- um fjarlægu miðum sé svipuð því sem þau hafa verið undanfar- ið, og er karfinn sem togararnir hafa landað í senn prýðilegur og fallegur fiskur. Enn sem kom- ið er hafa togararnir ekki orðið fyrir neinum teljandi töfum. Hér á heimamiðum héfur tog- urunum, sem nú veiða fyrir er- lendan markað gengið erfiðlega, því stöðug ótíð er fyrir sunnan land og fiskur lítill. Togararnir sem lönduðu í vik- unni eru þessir: Karlsefni 299 tonn, Egill Skallagrímsson 302. (hann er farinn á veiðar fyrir er- lendan markað) Jón forseti 321 tonn, Úranus 290, Austfirðingur 285 og Fylkir 318. — Einnig hafði hann farið á veiðar fyrir er- lendan markað, þá er hann lét úr höfn í gær. Hinir togaranna fóru aftur á karfaveiðar. Togararnir sem verið var að losa í gærdag eru: Askur með um 293 tonn, Neptúnus með um 330 tonn og Hvalfellið sennilega með rétt innan við 300 tonn. Nú um helgina koma af veiðum Þorsteinn Ingólfsson, Gerpir og Skúli Magnússon. Sjaldan meiri þröng við Iðnó í KVÖLD verður þriðja sýning á „Allir synir mínir“ eftir Arthur Miller í Iðnó. Þetta er fyrsta við- fangsefni Leikfélagsins á vetrin- um og hefur hlotið mjög góðar undirfektir. Það má til tíðinda teljast, að allir miðar á 3. sýning- una seldust í gær á þremur stundarfjórðungum og hefur sjaldan sést meiri mannþröng við miðasöluna í Iðnó. Næsta sýning verður á miðvikudaginn. Leiðrétting í FRÁSÖGN af fundi Alþingis, er birt var á 14. síðu blaðsins í gær, hafði slæðzt inn meinleg villa. Rétt er málsgreinin þann- ig': Flm. teldi óeðlilegt, að Reykja vík fengi hluta af þeim óvenju- lega gróða, sem ríkið skammtaði sér af þessum fyrirtækjum. Hins vegar fyndist honum ekki óeðli- legt, að Reykjavík fengi útsvar miðað við venjulega verzlunar- umsetningu. óskast í íslenzkt sendi'ráð erlendis. Upp- lýsingar í síma 1-7486. Skáfakaffi Skátafélag Reykjavíkur gengst fyrir kaffisölu á af- mælisdegi félagsins 2. nóvember í Skátaheimilinu kl. 3—6 e.h. Ýmis skemmtiatriði. Drekkið síðdegiskaffið í Skátaheimilinu. SILÁTAFÉLAG REYKJAVlKUR. Karlmaður helzt vanur í herrafatabúð óskast nú. Iiegar. Tilboð merkt: „7159“ sendist Mbl. fyrir miðvikudag. Samstarfsfólki, félögum, stofnunum, vinum, kunningj- um og vandafólki, er sýndu mér margvíslega vinsemd á sextugsafmæli mínu 29. september s.l. Þakka ég inni- lega og bið þeim allrar blessunar. Jón Axel. Nokkrar saumastúlkur óskast strax. Upplýsingar í síma 13637. Starfssfúlkur óskast að Vífilstaðahæli nú þegar og í desember. Upplýs- ingar gefur yfirhjúkrunarkonan í síma 50332 kl. 18,30—20 alla virka daga. Simm 455 til sýnis og sölu í dag, mjög hagkvæmir greiðsluskil- málar (til dæmis skuldabréf) skipti geta einnig komið til greina. Upplýsingar í síma 19457. Foroyingafélagið heldur aðalfund leygardagin 8. nóv. kl. 9 í Aðal- stræti 12. Aftan á fundin verður dansur. Mötið væl og stundvisliga. Stjórnin. N auðungaruppboð sem fram átti að fara á timburhúsi á Bústaðabletti 8, hér í bænum, mánudaginn 3. nóvember 1958, kl. 3Vi síðdegis, fellur niður. BORGARFÓGETINN I REYKJAVlK. KON A sem fengist hefur við matreiðslu óskast strax. Sími 19611. Konan mín og móðir okkar SIGURBJÖRG ÁMUNDADÓTTIR Freyjugötu 8, andaðist í Sjúkrahúsi Hvítabandsins 31. október. Jarðarförin ákveðin síðar. Friðrik J. Ólafsson og börn hinnar látnu. Maðurinn minn HALLDÓR ÞÓRÐARSON trésmíðameistari, Hringbraut 91, Keflavík. andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur þann 31. okt. Aðalheiður S. Jóhannesdóttir. Móðir okkar HÓLMFRlÐUR JÓNSDÓTTIR verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjud. 4. nóv- ember kl. 1,30. Jarðarförinni verður útvarpað. Fyrir hönd okkar systkinanna. Áróra Guðmundsdóttir. Við þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður, tengdaföður og afa okkar GUÐMUNDAR JÓNSSONAR Hringbraut 76, Keflavík. Sérstaklega þökkum við öllu starfsfólki sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs góða hjúkrun í veikindum hans. Börn, tengdabörn og barnabörn. Þökkum hjartanlega öllum þeim sem sýndu okkur samúð við andlát og jarðarför sonar og bróðurs okkar HALLDÖRS BENEDIKTSSONAR Garði. Guð blessi ykkur öll. Matthildur Halldórsdóttir, Benedikt Baldvinsson, og systkini. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför ALDlSAR JÓNSDÓTTUR Hverfisgötu 65A. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Ólafur Jónasson.' Þökkum innilega samúð og vináttu við andlát og útför JÓNS SIGFÚSSONAR skattstóra. Vandamenn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.