Morgunblaðið - 05.11.1958, Side 1
20 síður
Ný bónbjargaferð til
W ashington
Vilhjálmur Þór leitar 6
milljóna dollara láns
hjá Ðulles
ENN er verið að leita
eftir nýju láni af hálfu
ríkisstjórnar íslands. Að
þessu sinni í Washing-
ton á vegum utanríkis-
ráðuney tis B andar í k j -
anna. Upphæðin, sem nú
er reynt að kría út hjá
Bandaríkjastjórn er 6
milljónir dollara. Vil-
hjálmur Þór aðalbanka-
stjóri dvelst einmitt um
þessar mundir vestra
þeirra erinda að afla
lánsins.
Við 1. umr. fjárlaga-
frumvarpsins á dögun-
um upplýstist, að tekin
höfðu verið þá þegar er-
WASHINGTON, 4. nóv. —
1 dag fóru fram kosningar til
Bandaríkjaþings, eins og skýrt
hefur verið frá í fréttum. Einnig
voru kosnir margir ríkisstjórar
og fleiri embættismenn. Um 48
milljónir manna neyttu atkvæð-
isréttar síns.
★
Fréttamenn sögðu í kvöld, að
allt benti til þess, að demókratar
mundu stórlega vinna á. Mestur
áhugi var á úrslitunum í New
York-fylki, þar sem tveir millj-
ónamæringar, Harriman og
Rockefeller, berjast um hylli
kjósenda og í Kaliforníu, þar sem
Knowland, einn af helztu leið-
togum repúblikana, er í fram-
boði, en þar hafa repúblikanar
verið við stjórn í 60 ár. Nú er
aftur á móti búizt við, að demó-
kratar sigri, því að klofningur
kom upp í repúblikanaflokknum.
★
Knowland hefur verið talinn
eitt helzta frambjóðendaefni
flokks síns í forsetakosningunum
1960, en ef hann fellur þá lækkar
stjarna hans mjög. Eins er ástatt
um Harriman. Hann hefur þótt
eitt vænlegasta frambjóðenda-
efni demókrata 1960, en ef hann
tapar fyrir Rockefeller, sem er
nýr í stjórnmálabaráttunni, þá
þykir ósennilegt, að hann verði
lend lán að upphæð
618,5 millj. krónur frá
því að núverandi ríkis-
stjórn tók við völdum.
Er þá miðað við það
gengi sem var á íslenzku
krónunni áður en bjarg-
ráðin voru lögfest á s.l.
vori. Ef bónbjargaför
Vilhjálms Þórs á fund
Dulles ber tilætlaðan ár-
angur, bætast enn við 6
milljónir dollara. Óvíst
er með hvaða gengi
þeim verður ráðstafað
hér innanlands.
Ef farið væri eftir
hinu formlega gengi er
þetta h.u.b. 100 millj.
króna viðbót við skuld-
útnefndur forsetaefni flckks síns.
Uockefeller er að allra dómi
skæður keppinautur Harrimans
og segja margir, að í honum hafi
republikanar séð væntanlegt
leiðtogaefni sitt.
★ ~
Eftir kosningarnar í dag þótti
ekki ósennilegt, að demókratar
mundu bæta við sig 20—25 mönn
um í fulltrúadeildinni og 14
mönnum í öldungadeildinni.
GENF, 1. nóv. — Reuter. —
Fulltrúar Breta, Bandaríkja-
manna og Rússa komu í dag
saman til fundar í þriðja sinn
til að ræða möguleika á því að
binda endi á tilraunir með kjarn-
orkuvopn. Forseti fundarins var
Wadsworth, sérstakur ráðgjafi
Eisenhowers Bandaríkjaforseta í
afvopnunarmálunum og fyrirliði
bandarísku fulltrúanna í Genf.
HELSINGFORS. — Finnar fagna
metuppskeru á þessu hausti. Upp
skera korns til brauðgerðar var
54000 tonnum meiri en í fyrra.
Kartöfluuppskera er 1438 millj.
kg. eða 183 millj. kg. meiri en í
fyrra.
irnar. Sé reiknað með
55% álagningu eru þetta
nær 160 milljónir króna.
Erlend lán hafa því á
2 V3 árs valdatíma nú-
verandi stjórnar verið
tekin svo nemur milli
700—800 mill j ónum
króna. Til samanburðar
má geta þess, að þau nær
þrjú ár, sem stjórn Ólafs
Thors sat 1953—1956
jukust opinberar skuldir
einungis um 130 millj-
ónir króna.
I HINNI miklu rússnesku al-
fræðibók, sem gefin er út undir
ströngustu ritskoðun stjórnar-
valdanna er minnzt á Nóbels-
skáldið Boris Pasternak og skáld-
skap hans. Það, sem hér fer á
eftir, er kaflinn um skáldið og
má geta þess, að hann er sam-
inn áður en Pasternak fékk
Nóbelsverðlaunin.
Boris L. Pasternak (f. 1890).
Rússneskt-sovézkt ljóðskáld,
fæddur í Moskvu, sonur lista-
manns. Fyrstu kvæðasöfn Past-
ernaks bera vitni um áhrif sym-
bolismans og hneigð hans til að
forðast vandamál líðandi stund-
ar. Árið 1923 kom út safn lýr-
iskra ljóða „stef og tilbrigði.“
Viðleitni hans til að skilja sögu-
lega viðburði sýnir sig í stefi
byltingakvæðanna Smith undir-
foringi, Og árið 1905. Hugmynd-
in um fórnfúsa þjónustu er eins
og rauður þráður í báðum þess-
um kvæðum og öðrum kvæðum
þeim skyldum. Árið 1932 kom út
kvæði hans Endurfæðing. Ætt-
jarðarást Pasternaks kom fram
í kvæðum hans í seinni heims-
styrjöldinni.
Ljóðlist Pasternaks einkennist
af mjög ljóðrænu formi, sem líð-
í Genf
Fyrirliði rússnesku fulltrúanna
er Semen Tsarapkin.
Áður en fundur hófst í dag
ræddust þeir við Wadsworth og
Ormsby-Gore, fyrirliði brezku
fulltrúanna, og báru saman til-
lögur Breta og Bandaríkjamanna
annars vegar en Rússa hins veg-
ar. —
Vitað er, að Rússar leggja á-
herzlu á, að tilraunir með kjarn-
orkuvopn verði bannaðar nú þeg
ar og um tíma og eilífð. Vestur-
veldin telja hins vegar, að fram-
ar öllu verði að koma á stofn
eftirlitskerfi með banni við
kjarnorkutilraunum, en jafn-
framt verði öllum slíkum til-
raunum hætt um eins árs skeið,
svo að tími gefist til að koma
eftirlitskerfi á laggirnar
Pasternak
ur þó af einstaklingsheimsskoð-
un og einkennist af flóknum lík-
ingum og fáguðu máli. — Paster-
nak er frábær þýðandi. Kunnar
eru þýðingar hans á verkum
grúsínskra skálda, Goethe og
Shakespeares.
Athöfnin hófst með því, að
páfinn var borinn í heiðurssæti
í langri skrúðgöngu. Fjöldi and-
legrar stéttar manna tók þátt í
göngunni, biskupar og munkar,
svo einhverjir séu nefndir. —
Höfðu margir þeirra komið til
Rómar í tilefni af krýningunni.
í kirkjunni var páfinn borinn
úr kapellunni inn í altarið, þar
sem hann móttók hollustueið
erkibiskupa og biskupa, sem kom
ið höfðu úr fjarlægum lönd-
um. — Síðan söng páfi messu
og flutti langa ræðu á latínu.
TAIPEH, 4. nóv. — Reuter —
Kínverskir kommúnistar hafa
borið þjóðernissinnum á brýn, að
þeir hafi skotið gasspiengjum á
meginland Kína. Segja kommún-
istar, að þetta sé árangurinn af
viðræðum Dulles og Chiang Kai-
sheks á dögunum. Þjóðernissinna
stjórnin á Formósu og bandaríska
utanríkisráðuneytið hafa harð-
lega neitað þessari ásökun.
Stórbruni
í Brussel
BRUSSEL, 4. nóv. — Aðal-
flugvélaskýlið á alþjóðaflug-
vellinum í Briissel brann til
kaldra kola í kvöld eftir að
sprenging hafði orðið í því.
Síðar í kvöld tilkynnti lög-
reglan að farþegaafgreiðsla
flugvallarins hefði einnig
hrunnið.
Allt slökkvilið borgarinn-
ar var kvatt út, en ekki tókst
því að ráða niðurlögum
eldsins. Eldsupptök voru í
kjallara afgreiðslunnar. —
Flugvöllur þessi er nýr og
var opnaður til afnota í
sumar. Hann mun hafa
kostað um 300 milljónir ísl.
króna. — Lögreglan segir,
að vel komi til greina að hér
hafi verið um skemmdar
verk að ræða.
Stjórnarskipti
BRÚSSEL, 4. nóv. — Gaston
Eyskens, forsætisráðherra minni-
hlutastjórnarinnar í Belgíu, lagði
í dag fram lausnarbeiðni fyrir
sig og ráðuneyti sitt. Stjórnina
skipuðu menn eingöngu úr
katólska flokknum, sem vantar
tvö sæti upp á meirihluta í neðri
deildinni. Gert er ráð fyrir að
ný stjórn með aðild Frjálslynda
flokksins og Katólska flokksins
verði mynduð innan tíðar.
Þess má geta, að Jóhannes páfi
23. verður 77 ára í þessum mán-
uði. —
★-------------★
Miðvikudagur, 5. nóvember.
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 3: Ljóð Davíðs Stefánssonar á
hljómplötum.
— 6: Fundurinn í Genf. (Erl. yfir-
litsgrein).
— 8: Grein Vilhjálms Finsen nm
Morgunblaðið 45 ára.
30 ára afmæli Héraðsskólans á
Laugarvatni.
— 9: Kvenþjóðin og heimilið.
— 10: Ritstjórnargreinin: — „Áhugt
Framsóknar ekki reynzt mik-
ill“. —
Aldarafmæli Theodors Roose-
velts. (Utan úr heimi).
— 11: Frá sjómannanámskeiði á ísa-
firði.
— 13: „Því dæmist rétt vera . . .•%
eftir Guðlaug Einarsson hdl.
— 18: íþróttir.
★---------------------------★
Tvísýnt þótti um
úrslitin í bandarísku
kosningunum í gær
Þingið
í rússnesku alfrœðibók-
inni er rœtt um œttjarð-
arást Pasternaks
Þar segir einnig, að hann sé trábœr þýðandi
Jóhannes páfi 23.
var krýndur í gær
Um 10 milljónir manna fylgdust
með athöfninni
RÓMABORG, 4. nóvember. — Jóhannes páfi 23. var í dag
krýndur eftir fjögurra klukkustunda langa athöfn og var
henni í fyrsta skipti útvarpað til milljóna manna um alla
Evrópu. Um 300 þús. manns höfðu safnazt saman á Péturs-
torginu til að fagna krýningu hins nýja páfa. Fréttamenn
gizka á, að um 10 milljónir manna hafi fylgzt með krýn-
ingunni. —