Morgunblaðið - 05.11.1958, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.11.1958, Blaðsíða 12
12 MORCl'TSnr. 4Ð1Ð Miðvikudagur 5. nóv. 1958 Keyndustu og elztu skipstjórarnir á námskeiðinu og allir miklir aflamenn: Hálfdán Einarsson, Bolungarvík; Jakob Þorláksson, Bolungarvík; Guðmundur Jensson, Ólafsvík; Jóakim Pálsson, Hnífsdal, og Tryggvi Jónsson, Ólafsvík. — Sjómanna námskeið haldi, en nokkuð af því er ekki nógu raunhæft. Vil ég í því sam- bandi taka undir það, sem Jakob sagði áðan. — Er nokkuð sérstakt, sem þú vilt segja um þína skólavist hér? — Það er nauðsynlegt fyrir — Þú átt við þetta með kennslu á ný tæki? — Já, hún mætti vera ýtarlegri, en ekki þar fyrir, margar náms- greinarnar eru nauðsynlegar. — Er þetta ekki nokkurs konar sumarfrí hjá ykkur um leið? — Það er ég hreint ekki viss um. Það er að mörgu leyti lítið minna erfiði að stunda bóklegt nám heldur en sækja sjóinn, auk þess er þetta mun leiðinlegra. Hver gerir sem hann getur Þá er hér Hálfdán Einarsson frá Bolungarvík. Hálfdán hefir verið skipstjóri síðan árið 1941 eða í 17 ár. — Hvað ert þú gamall, Hálf- dán? — Ég er 41 árs. — Og þú ert skipstjóri á Einari Hálfdáns? — Já, ég hefi verið það í nokk- ur ár, og þetta er sá fjórði er ég hefi verið með, með því nafni. — Hvernig er það, eruð þið Jakob ekki að keppa um afla- kóngssætið í Víkinni? Framh. af bls. 11. — Jú, þetta er sjálfsagt nauð- synlegt, en óneitanlega er það nokkuð einkennilegt að vera nú alit í einu kominn í skóla eftir J5 ára hlé, því að ég hefi ekki í skóla verið síðan ég var í barna- skóla. — Með hvaða bát hefir þú ver- ið undanfarið. — Hann heitir Hrönn og er 42 tonn. — Telur þú námið hér raun- hæft? — Margt af því sem hér er kennt kemur okkur að góðu Aflakóngur frá ölafsvík Tryggvi Jónsson, jafnaldri Guð mundar hefir stundað sjó frá blautu barnsbeini. Hann er skip- stjóri á Jökii frá Ólafsvík. — Ég hefi heyrt, að þú sért aflakóngur þeirra Ólafsvíkinga. — Ekki vil ég fullyrða neitt um það, en þetta hefir gengið vel. Skólabræður Tryggva vilja ekki samþykkja þetta yfirlætis- leysi og skýra mér frá því, að hann sé ávallt hæstur á vertíð í Ólafsvík og ennfremur með þeim hæstu á síldarvertíð fyrir Norðurlandi á sumrin. Karlmsannsreiðhjél var tekið úr porti hjá Morgunbl. í sl. mán. Þeir, sem gætu gefið nppiýsingar um hjól þetta, eru vinsaml. beðnir að hringja í Morgunblaðið strax. JKorgmthlabih Simi 2-24-80 Próiarkalesara Vantar þrjá daga i viku Uppl. á ritstjórn — Hver gerir sem hann getur, og sjómennskan hefir gengið vel. Þú ert með son þinn með þér, eins og Jakob. — Við erum hérna feðgarnir. Sonur minn heitir Einar og er 19 ára. Að lokum hitti ég að máli tvo bræður héðan frá ísafirði. Það eru þeir Ásgeir og Hörður Guð- bjartssynir, sem báðir hafa stund að sjó síðan um fermingu, enda rennur sjómannablóð í æðum Kveðja Feðgarnir Hálfdán Einarsson og Einar Hálfdánsson. alla að hafa próf nú til dags, og vissulega lærir maður margt hér, sem að gagni verður í störfum, en í sumu finnst mér kennslan nokkuð á eftir tímanum. frá Sigríði Ketilsdóttur til Guðrúnar Agnesar, sem var fædd 19. júlí 1936, dáin 12. sept. 1958. '★ Æskuvina, er það satt og rétt, ertu horfin bak við tjaldið dökkva? Þá ég hafði fengið þessa frétt, fannst mér allt í einu taka að rökkva. Feðgarnir Jakob Þorláksson og Finnbogi Jakobsson, sem er yngsti nemandinn. Nú er rétti tíminn til að selja málverk. — Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar Austurstr. 12, sími 13715. þeirra. Faðir þeirra er Guðbjart- ur Ásgeirsson sem var her skip- stjóri og mikjjl aflamaður í fjölda ára, og föðurbróðir þeirra var hinn þekkti skipstjóri Guð- mundur Júní. Ásgeir er 30 ára og hefir verið skipstjóri síðan 1948, nú síðast með Guðbjörgu, 48 tonna bát. Ás- geir hefir ávallt verið hluta- hæstur formanna hér á vertíð síðan hann byrjaði formennsku. Hörður er 4 árum yngri, mjög efnilegur sjómaður, eins og bróð- ir hans. Er nú skipstjóri á Gunn- hildi frá ísafirði. Flytja þjóðinni auð Æskilegt væri að eiga viðræð- ur við fleiri af þessum myndar- lega hópi, en tíminn er naumur. Ég þakka þeim sem við hefir verið rætt góð og greið svör. Það hefir verið ánægjulegt að kynn- ast viðhorfi þeirra til námsins. Eftir því sem mér heyrist á Sím- oni, forstöðumanni námskeiðsins, virðast þeir allir fullir af áhuga. AlJt eru þetta efnilegir menn, sumir að hefja störf sín á sjónum, aðrir reyndir og ráðsettir. En eitt eiga þeir sameiginlegt, að þeir eru sómi sinnar stéttar, þeirrar stéttar í þjóðfélaginu, sem þjóðin byggir mest tilveru sína á, eins og skáldið segir í þessum al- kunnu ljóðlínum: „ ... flytja þjóðinni auð, sækja barninu brauð, færa björgin í grunn undir fram- tíðarhöll". — Guðjón. Ó! hve marga yndislega stund áttum við á lífsins bjarta vori. Þá var sem við gengum laufgan lund, litum unaðsblóm í hverju spori. Man ég vel — og man ég alla tíð, mildan hlátur þinn og söngva- gleði. Þú sem varst svo barnsleg góð og blíð, blundar nú á köldum rósabeði. Þú ert horfin, hjartans vina mín, hvenær fæ ég þig að líta aftur? Þá er eitt sinn lífs mins dagur dvín, dyrnar opnar lifsins náðar kraftur. Svo kveð ég þig — og hljóðnar harpan mín — ég heyri líkt og óm af vængja- blaki. Á drottins vegum liggi lei'Tin þín hvar ljómar eilif sól að skýja- baki. Bifreiðasalan — Billinn, Varðarhúsinu. / dag verða til sýnis og sölu hjá okkur: DODGE 1957 stór glæsileg- ur bíll, keyrður aðeins 50 þús. km. FORD-FAIRLINE 1955 — bíllinn er alveg sérstaklega fallegur og í mjög góðu lagi DODGE 1955 (stærri gerð- in^ ósjálfskiptur, lítið keyrð BUICK 1956 alltaf verið í einkaeign lítið keyrður og er sjálfskiptur. DODGE 1955 (minni gerðin) sjálfskiptur með vökvótstýri og er í góðu lagi. MERCURY 1955 lítur mjög vel út og er í góðu lagi. FORD 1958, ekki sjálfskipt- ur, sérlega vel með farinn og iítur vel út. VOLKSWAGEN 1958 (svart ur að lit) keyrður 14 þús. AUSTTN 10 1947, lítur vel út og er í góðu lagi. I FIAT 1400 1957, lítur mjög vel út og er í góðu lagi. — Skipti koma til greina á eldri bílum, greiðsluskilmálar eft- ir samkomulagi. ur og mjög fallegur. ; Bifreiðasalan — Bíllinn, Varðarhúísinu Sími 18-8-33

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.