Morgunblaðið - 05.11.1958, Qupperneq 2
z
M O f? C r N R L A Ð 1 f>
Miðvikaidagur 5. nov. 1958
Þá vœri jafnrík ástœða
til að krefja menn um
gjald þegar þeir syngja
Rœtt um rithöfundarétf og prentrétt
á Alþingi í gœr
FUNDIR voru settir í báðum
deildum Alþingis á venjulegum
tíma í gær. Á dagskrá efri deild-
ar var eitt mál. Frumvarp til laga
um gjaldaviðauka 1959. Var það
til fyrstu umræðu og vísað til 2.
umr. með samhljóða atkv.
Tvö mál voru á dagskrá neðri
deildar. Frumvarp til laga um
breytingu á lögum frá 1943 um
breytingu á lögum frá 1905 um
rithöfundarétt og prentrétt, flutt
af Magnúsi Jónssyni, Halldóri E.
Sigurðssyni og Benedikt Gröndal.
Gerði Magnús grein fyrir frum-
varpinu.
Gat hann þess í upphafi máls
síns, að aðallögin um höfunda-
rétt, sem nú gilda, væru frá 1905,
en 1943 hefðu verið gerðar á
þeim nokkrar breytingar á víð-
tækari grundvelli, en lögin frá
1905 gerðu ráð fyrir. Eldri lögin
náðu aðeins til ritverka, en í
breytingunni frá 1943 er gert ráð
fyrir að lögin gildi um öll hug-
verk.
í gildandi lögum um höfunda-
rétt, hélt ræðumaður áfram, er
gert ráð fyrir því, að ef stofnuð
séu samtök, skuli þau hafa rétt
til að innheimta gjald af flutn-
ingi þeirra verka, sem undir þessi
lög falla. Er gert ráð fyrir að
réttur höfunda sé verndaður með
þessu móti. Magnús skýrði frá
því, að samtökin STEF hefðu ver
ið stofnuð í þessu augnamiði.
Hefði STEF sett gjaldskrá og
fært starfsemi sína æ meir út
eftir því sem árin hefðu liðið.
Rithöfundar hefðu ekki haft eins
víðtæka starfsemi en þó hefðu
þeir m.a. gert samning við Rík-
isútvarpið.
STEF hefur nú starfað um
nokkurra ára bil og hefur útfært
innheimtukerfi sitt æ meir og
nær það til æ fleiri liða, sagði
Árbók Fornleifa-
félagsins komin út
ÁRBÓK Hins íslenzka fornleifa-
félags 1957—1958 er nýkomin út.
Ritstjóri árbókarinnar er Dr.
Kristján Eldjárn, þjóðminjavörð-
ur. Af efni má nefna ýtarlega og
mikla skýrslu um íslenzkan tré-
skurð í erlendum söfnum eftir
Ellen Marie Magerþy. Er það
framhald úr síðasta hefti árbókar
og fjallar um gripi í Nordiska
Museet í Stokkhólmi. Er grein
þessi, sem er á annað hundrað
síður í ritinu, prýdd fjölda
mynda.
Þá ritar Kristján Eldjárn grein,
sem hann nefnir Þrjú kuml norð-
anlands. Eru það kumlið á Sól-
heimum í Sæmundarhlíð, kumiið
i Elivogum í Seyluhreppi og kumi
ið að Daðastöðum í Núpasveit. í
árbókinni er einnig skýrsla um
Þjóðminjasafnið 1956, félagatal o.
fi.
Dagskrá Alþingis
1 DAG er boðað til fundar í sam-
einuðu Alþingi og eru átta mál
á dagskrá. — 1. Fyrirspurn til
ríkisstjórnarinnar frá Magnúsi
Jónssyni um togarakaup. — 2.
Þáltill. um almannatryggingar-
lög. —• Hvernig ræða skuli. —
3. Þáltill. um skýrslu um Ung-
verjalandsmálið. Framh. fyrri
umr. (Atkvæðagreiðsla). —
4. Þáltill. um ríkisábyrgðir. Ein
umræða. — 5. Þáltill. um nám-
skeið í meðferð fiskileitartækja.
Fyrri umr. — 6. Þáltill. um að-
búnað fanga. Fyrri umr. 7. Þáltill.
um hafrannsóknir. Fyrri umr. —
8. Þáltill. um vinnuheimili fyrir
aldrað fólk. Fyrri umr.
ræðumaður. Á sl. ári bjrti það
auglýsingu í blöðum, þar sem
eigendur segulbandstækja eru
krafðir um ákveðið árgjald af
tækjunum, en sæti ábyrgð ella.
Mun það almennt álit manna, að
með þessu hafi STEF gengið of
langt og er vafasamt hvort sam-
tökin hafa heimild til að beita
þeim viðurlögum, sem gert er ráð
fyrir í auglýsingunni.
Magnús benti á, að í lögunum
frá 1905 og breytingunni frá 1943
er gjaldskyldan miðuð við, að
verkið sé flutt opinberlega og í
ábataskyni. Notkun segulbands-
tækja á heimilum miðast hins
vegar fyrst og fremst við að taka
upp útvarpsefni, sem menn af
einhverjum ástæðum gætu ekki
hlýtt á þegar flutt væri, eða við
einhverskonarpersónulegan flutn
ing. Ef taka ætti gjald af þess-
um flutningi, væri jafnrík á-
stæða til að taka gjald af mönn-
um í hvert sinn, sem þeir syngju
tónverk og sæju þá allir, að inn-
heimtan væri komin út í öfgar.
Kvað hann þó mega deila um
hvort innheimtukrafa STEFs
væri með öllu óheimil, en frum-
varp það, sem lægi fyrir, væri
fyrst og fremst flutt í því skyni,
að taka af öll tvímæli í þessu
efni.
Fleiri tóku ekki til máls og
var frumvarpinu vísað til 2. um-
ræðu með 25 samhljóða atkv. og
til menntamálanefndar með 24
samhlj. atkv.
Annað mál á dagskrá neðri
deildar var frumvarp til laga um
tollskrá o. fl. Var það til fyrstu
umræðu. Fjármálaráðherra fylgdi
því úr hlaði, gat þess að það væri
komið frá efri deild og samhljóða
gildandi lögum. Var frv. samþ.
til 2. umr. með 26 samhlj. atkv.
og til fjárhagsnefndar með
samhlj. atkv.
Myndin er tekin úr Information — og þarna eru þeir kommúnistarnir Ib Nörlund, Alfred Jen-
sen, ritari lettneska kommúnistaflokksins A. J. Pelsje og sjálfur Pospelov — sá, sem sendur var
frá Kreml til þess að gefa dönsku kommúnistunum línuna. „Takið eftir því, að þeir hafa allir
aðra liöndina fyrir aftan bak“, segir Information.
Frumvarp um veitinga-
sölu og gistihúsahald
lagt fram á Alþingi
Ný þingskjöl
f gær var útbýtt á Alþingi
nefndarálit frá meiri hluta alls-
herjarnefndar neðri deilífar um
frv. til laga um breytingu á lög-
um um biskupskosningu og
breytingartillögu við vegalög frá
Gísla Guðmundssyni.
Vrr'.'VHWrv-'pv-'-'-'frr'
ÚTBÝTT hefur verið á Alþingi
frumvarpi til laga um veitinga-
sölu, gististaðahald o.fl. frá sam-
göngumálanefnd. Er frumvarp
þetta mikill bálkur í sex köflum
og 25 greinum. í greinargerð
segir svo m.a.:
Á síðasta þingi flutti samgöngu
málanefnd Nd. frv. um veitinga-
25 1 sölu, gististaðahald o. fl. Var það
afgreitt nær óbreytt frá Nd., en
fellt í Ed.
Nefndin flytur frv. þetta að
nýju eftir beiðni samgöngumála-
ráðuneytisins, en einstakir nefnd
armenn hafa óbundnar hendur
um afstöðu til málsins. Greinar-
gerð milliþn., sem samdi frv.
um þetta efni 1949, er birt hér
óbreytt sem fylgiskjál til skýr-
ingar á málinu, þó að tilvitnanir
í fylgisskjalinu í einstakar grein-
ar eigi ekki að öllu leyti við þetta
frv. Frv. fylgdi svo svohljóðandi
greinargerð:
„Árið 1949 skipaði þáverandi
samgöngumálaráðherra milli-
þinganefnd til að endurskoða lög
um veitingasölu, gistihúsahald
o. fl. Nefndina skipuðu Brynjólf-
ur Ingólfsson, stjórnarráðsfull-
trúi, sem var formaður nefndar-
innar, Jón Sigurðsson, borgar-
læknir í Reykjavík, báðir skipað-
ir án tilnefningar, Böðvar Stein-
þórsson, tilnefndur af Sambandi
matreiðslu- og framreiðslu-
manna, Hörður Ólafsson, lögfræð
ingur, tilenfndur af Sambandi
veitinga- og gistihúseigenda, og
Sigurjón Danívalsson, tilnefndur
af Ferðaskrifstofu ríkisins.
• Milliþinganefndin samdi frum-
Bodil Begtrup sendiherra
í Sviss
KAUPMANNAHÖFN, 4. nóv. —
Aðalmálgagn danska Jafnaðar-
mannaflokksins, Social-Demo-
kraten, segir frá því á sunnudag,
að það hafi fregnað, að innan
skamms verði mikilvægar breyt-
ingar í utanríkisþjónustunni
dönsku eins og blaðið kemst að
orði. Bodil Begtrup, fyrrum
sendiherra Dana á íslandi, eigi
í Sviss, og á frúin að leysa af
hólmi Hans Jacob Hansen sendi-
herra, sem verður sjötugur í maí
næsta ár og kemst þá yfir aldurs-
takmarkið.
Bodil Begtrup var skipuð sendi
herra á íslandi 1949, en var köll-
uð heim til Kaupmannahafnar
fyrir tveimur árum og hefur síð-
an gegnt skrifstofustjóraembætti
í utanríkisráðuneytinu. Einnig
hefur hún verið fastafulltrúi
Dana hjá Evrópuráðinu í Strass-
að taka við sendiherraembættinu | borg síðustu tvö árim
varp til laga um veitingasölu,
gististaðahald o. íl., og var það
lagt fyrir Alþingi 1951, en varð
ekki útrætt.
Frumvarp nefndarinnar frá
1951 hefur nú verlð endurskoðað
af hálfu samgöngumálaráðuneyt-
isins og er nú flutt með nokkr-
um breytingum.
Breytingarnar eru þessar m.a.:
I frv. eru nú orðaskýringar um
einstök heiti gististaða.
Fellt er niður það skilyrði, að
forstöðumaður gistihúss verði að
hafa lokið brottfararprófi í mat-
reiðslu, framreiðslu eða gistihúsa
stjórn frá innlendum eða erlend-
um skóla, en í þess stað er leyfis-
Lng stúlka fékk
heilablóðfall
í bílaafgreiðslu
NÚ liggur í Landakotsspítala
ung stúlka, sem skyndilega veikt
ist á mánudaginn í bílaafgreiðslu
hér í bænum. Hafði hún komið
þangað inn, keypt farmiða austur
fyrir Fjall, en síðan hafði af-
greiðslumaðurinn tekið eftir því,
að stúlkan var setzt á bekk í af-
greiðslunni og að lítilli stundu
liðinni var hún sofnuð. Taldi mað
urinn að konan væri hvíldar-
þurfi, og þar eð lítið annríki hafði
verið í afgreiðslunni, hafi hann
lofað stúlkunni að sofa.
Um klukkan 8, ætlaði af-
greiðslumaðurinn að vekja stúlk
una, en hún virtist sofa djúpum
svefni. Gerði hann lögreglunni
viðvart, en hún kallaði sér til
aðstoðar sjúkraliðið, sem flutti
stúlkuna í slysvarðstofuna, þar eð
hér virtist alvara vera á ferðum.
Við rannsókn í slysavarðstof-
unni gat læknir ekki strax gert
sér grein fyrir því, hvað um væri
að vera, en það mun svo hafa
komið í ljós, við nánari athugun
að um heilablóðfall var að ræða.
Var stúlkan þessu næst flutt í
Landakotsspítalann og þar er hún
nú og prjun vera eitthvað á bata-
vegi. Ekki mun stúlkan fyrr hafa
kennt sér neins meins og verið
heilsuhraust-
hafa samkvæmt þessu frv. gert
að skyldu að ráða mann með þá
sérþekkingu í þjónustu sína.
Samkvæmt þessu frv. skal
endurnýja leyfi til gistihúsahalds
á 5 ára fresti, en ekki árlega, eins
og lagt var til af milliþinganefnd-
inni.
Aðalritari brezka
Stefs ritar
tim lancihelgina
SVO sem áður hefir verið til-
kynnt skrifaði íslenzka STEF um
landhelgismálið sambandsfélög-
um sínum erlendis, er ná til um
hundrað og fimmtíu þúsund rétt-
hafa í öllum löndum heims á-
samt lögmönnum þeirra og rétt-
indafræðingum. Svar frá þessum
félögum hafa nú borizt hingað,
og hafa þau gengizt fyrir dreif-
ingu til blaða og sérfræðinga á
bæklingi ríkisstjórnar íslands um
fiskveiðilögsöguna.
Aðalritari brezka STEFs í
London hefir auk þess ritað
grein, er nefnist „Auðlindir ís-
lands“ í stórblaðið „Daily Tele-
graph“ og „Morning Post“. Þar
segir:
„Ég þekki ekkert til sjóréttar
né þeirra lagaréttinda, er snerta
deiluna við Island um fiskveiði-
mörk, en ég þekki nokkuð til
íslands, með því að ég dvaldi
þar tvö ófriðaráranna. Þetta er
eyðilegt land og ófýsilegt, og það
er svo lítt frjósamt, að tré vaxa
þar ekki, nema þau séu gróður-
sett. Landið á sér alls engar auð-
lindir, nema fisk í ám og sjó,
enda er það sú auðlind, sem
eitthvað 100.000 manna norræn
myndarþjóð treystir á til þess að
geta lifað fátæklegu, áhættusömu
lífi.
Það kann að vera að lagalega
hafi íslendingar á röngu að
standa, en frá mannlegu sjónar-
miði hafa þeir fullan rétt til
þess að reyna að vernda sína
einustu lífsbjargarmöguleika.
Hvað sem lagaréttindum líður,
tel ég, að endalaust þvarg rík-
isstjórna stærri og auðugri þjóða
út af þessum fiskveiðimörkum sé
í augum heimsins ákaflega lítt
uppbyggilegt sjónarspil.
Satt er það, að ríkisstjórn vor
hefur tiltekinna þjóðarhagsmuna
að gæta. En ekki hygg ég að
þjóðin öll, sem ann fornum venj-
um um fagran leik, hafi nokkurn
áhuga á þeim ófagra leik að
„banna öðrum að lifa.“
Yðar einlægur,
K. F. Whale."