Morgunblaðið - 05.11.1958, Blaðsíða 8
8
MORCVNBL AÐIÐ
Miðvikudagur 5. nóv. 1958
Ýtarleg grein Vilhjálms Fin-
sens um Morgunblaðið 45 ára
VILHJÁLMUR FINSEN ritar
kjallaragrein sl. fimmtudag í
Berlingske Aftenavis og skýrir
frá stofnun Morgunblaðsins og
sögu. Er greinin skrifuð í tilefni
af 45 ára afmæli blaðsins, en eins
og kunnugt er, var Finsen fyrsti
ritstjóri þess.
í upphafi greinarinnar skýrir
höfundur frá þeim erfiðleikum,
sem á vegi hans voru, við blaðs-
stofnunina og segir, að mönnum
hafi ekki litizt á að gefa hér út
slíkt dagblað: „Það er bara vit-
leysa“, sögðu menn. Reykjavík
er alltof lítil, var bætt við, og
hér á landi gerist ekkert frétt-
næmt. Auk þess eru samgöng-
urnar slíkar, að ómögulegt er
að dreifa blaðinu. — Þannig
voru hugmyndir manna um út-
gáfu dagblaðs um svipað leyti og
Mbl. hóf göngu sína.
Þá segir Finsen, að hann hafi
látið slíkar bollaleggingar sem
vind um eyru þjóta og hann
hafi alltaf verið þess fullviss, að
þetta nýja blað mundi fljótt
verða stærsta og áhrifamesta
blað landsins.
Hann ræðir síðan um áhuga
sinn á blaðamennsku. Hann hafði
strax fengið „sýkilinn" á stúd-
entaárum sínum í Kaupmanna-
höfn og numið þessa list af Hen-
rik Cavling, mesta blaðamanni
á Norðurlöndum í þann tíð. Síð-
an ræðir hann um blaðamennsku
sína, utanferðir o.s.frv. og getur
þess ennfremur, að Vísir hafi
verið stofnaður sem dagblað í
Reykjavík þremur árum áður en
Mbl. hóf göngu sína, en hann
hafi ekki komið í veg fyrir, að
hið nýja blað gæti þrifizt. Þá
hafi Vísir oft aðeins verið tvær
síður eg helmingurinn smáaug-
lýsingar. En nú sé Visir orðinn
nýtízku blað, með stórt upplag.
Finsen getur þess, að Morgun-
blaðið hafi verið stofnað fyrir
2.500 króna lán, sem fengizt hafi
í banka. Síðan snýr hann sér að
Ólafi Björnssyni og ræðir um
samstarf þeirra, vikublaðið ísa-
fold og prentsmiðjuna. Allt var
handsett sem kallað er og seink-
aði það auðvitað mjög allri vinnu
við blaðið. Á ritstjórninni störf-
uðu tveir menn og vikapiltur
var þar með þeim. Um Árna Óla
segir greinarhöfundur, að hann
hafi verið mjög lánsamur að fá
hann að blaðinu í upphafi. hann
sé einn bezti blaðamaður lands-
ins, góður stílisti og hafi hann
ætíð verið blaðinu hinn þarfasti.
Þeir voru allt í senn ritstjórar,
skrifstofumenn, auglýsingastjór-
ar, gjaldkerar og afgreiðslumenn.
— Á þessum árum var Reykja-
vík í örum vexti, þótt þar byggju
aðeins um 11 þús. manns, þegar
Mbl. var stofnað. Þá komu út
4—5 vikublöð í Reykjavík og lét
Morgunblaðið þau um pólitíska
rifrildið, en lagði höfuðáherzlu á
fréttaefni. Blaðið var 8 síður á
sunnadögum, en 4 hversdags-
lega. Fyrstu blöðin seldust fljótt
upp, enda var efnið mun fjöl-
breyttara en tíðkaðist í vikublöð-
unum. Blaðið kostaðí 65 aura á
mánuði og 3 aura í lausasölu. Á-
skriftum fjölgaði með hverjum
degi sem leið, en erfiðar gekk
að fá auglýsingar. Bærinn var
lítill og kaupmennirnir litu
svo á, að ekki væri nein nauð-
syn á því að auglýsa í blaðinu.
Fólk vissi, hvað þeir höfðu á
boðstólunum. Þetta lagaðist með
tímanum, en lengi vel þurfti að
telja kaupmennina á að auglýsa
og „oft urðum við líka að skrifa
auglýsingarnar fyrir þá“.
„Mér er minnistæður dálítill
atburður frá þessum árum. Jól-
in voru á næstu grösum og við
höfðum ekki getað fengið neina
auglýsingu frá umsvifamiklum
kaupmanni, sem verzlaði með
alls konar vörur. Hann var í
næsta nágremni við okkur, svo
að ég skrapp til hans dag nokk-
urn að ræða við hann um aug-
lýsingar. Nei, hann vildi ekki
auglýsa, „fólk les ekki auglýs-
ingar, það er svo margt skemmti-
legt efni í blaðinu", sagði hann.
Ég'smjaðraði auðvitað mjög fyrir
honum og bauð honum í því
skyni að sannfæra hann um áhrif
auglýsinga, að setja þrjár smá-
auglýsingar frá honum án þess
að hann þyrfti að borga þær. Við
urðum ásáttir um það að auglýsa
þrjá hluti, sem menn kaupa
venjulegast ekki í jólaönnunum
og við völdum gólfmottur, rottu-
gildrur og eitthvað það þriðja.
Ef hann á næstu dögum seldi
eitthvað slangur af þessum varn-
ingi, skyldi hann í staðinn setja
auglýsingu í blaðið. Nokkrum
dögum síðar kom hann með
skrautritaða og vel samda auglýs
ingu upp á háifa síðu. Hann hafði
nefnilega óvænt selt nokkrar
rottugildrur og gólfmottur. —
Þessi kaupmaður varð eftir þetta
fastur auglýsandi í blaðinu“.
Finsen getur þess, að skömmu
eftir að Mbl. hóf göngu sína, þá
hafi verið framið morð í Reykja-
vík, og þó að það hafi verið hinn
sorglegasti atburður, var þar
auðvitað ágætur blaðamatur.
Ekki hafði verið framið morð á
íslandi í 20 ár, svo þetta vákti
mikla athygli. Kona nokkur
myrti bróður sinn með því að
setja rottueitur í hafragrautinn
hans og var ástæðan sú, að hún
vildi komast yfir bankabók hans.
Hún hélt, að númer bókarinnar
væri sú upphæð, sem bróðirinn
ætti í bankanum, en þegar til
kom, var innstæðan aðeins nokkr
ar krónur. — Þessum sorglega
atburði var slegið upp í blaðinu,
með stórum fyrirsögnum, mynd-
um, jafnvel af húsinu, þar sem
morðið var framið og líkkistu
hins myrta manns. Sumum þótti
nóg um, en menn fylgdust af á-
huga með málinu í blaðinu, enda
gátu þeir þar fengið samfellda
og rétta frásögn. Við þetta allt
saman jókst sala á blaðinu. Ann-
ar hörmulegur atburður, sem jók
mjög á útbreiðslu blaðsins fyrsta
árið var heimsstyrjöldin fyrri,
sem hófst 10 mánuðum eftir að
blaðið var stofnað.
Þá getur höfundur þess, að
þegar hann lét af ritstjórn Mbl.
í ársbyrjun 1922 hafi upplag þess
verið 4,500 eintök. Síðan ræðir
hann um Mbl. eins og það er í
dag og segir m.a., að það sé eitt
af stærstu blöðum Evrópu, ef
miðað sé við fólksfjölda og ef
útbreiddasta blað Danmerkur,
Berlingske Tidende, hefðd til-
tölulega jafnmikla útbreiðslu,
ætti upplag þess að vera 750.000,
og ef Daily Mail í London, sem
er útbreiddasta blað í Evrópu,
hefði tiltölulega jafnstórt upplag
og Mbl., ætti það að vera gefið út
í 8 millj. eintaka á hverjum degi.
Upplag blaðsins er hins vegar
„aðeins“ 4 milljónir. Þessa miklu
útbreiðslu þakkar Finsen fyrst
og fremst Valtý Stefánssyni, sem
hefur verið ritstjóri blaðsins frá
1924.
Stúlkur við saumv
Tómsfundaiöja á vegum
Æskulýðsráðs Rvíkur
VETRARSTARF Æskulýðsráðs
Reykjavíkur er nú haf-
ið. — Starfað verður á
mörgum stöðum í bænum, m.a.
í Golfskálanum, sem Æ.R. fær
nú til afnota að nokkru leyti. Út-
lit er fyrir að fjöldi unglinga
sæki námskeiðin, og gætir þar
áhrifa frá tómstunda- og híbýla-
sýningunni „Með eigin höndum",
sem Æ.R. gekkst fyrir í okt. sl.
Eftirtalin námskeið hefjast í
þessari viku og standa fram að
jólum.
Föndur
Tómstundaheimilið Lindargötu
50, miðvikud. kl. 7 og 9 e.h., Golf-
.Takmarkað" fríverzlunarsvœði í
ráði, ef annað bregzt
LONDON og Brussell 3. nóvem-
ber. — Bretar hafa nú í undir-
búningi aðgerðir, sem gripið
verður til gegn markaðsbanda-
laginu, ef hugmyndin um frí-
verzlunarsvæði verður ekki að
veruleika. Ekki er ljóst í hverju
ráðstafanir Breta liggja, en full-
víst er, að hér er um að ræða
efnahagssamband, sem á að
verða nægilega öflugt til þess að
standast „framsókn" landanna í
markaðsbandalaginu.
Löngu áður en úrslit viðræðn-
anna í Maudling-nefndinni urðu
ljós höfðu Bretar, Svisslending-
ar, Austurríkismenn og Norður-
landaþjóðirnar ráðgast á laun um
„takmarkað" fríverzlunarsvæði í
Evrópu, en jafnframt er hug-
myndin sú að síðar geti lönd utan
Evrópu gerzt aðilar að þessu
sambandi.
Vonlaust er talið, að hugmynd
inni um fríverzlunarsvæði verði
hrundið í fiamkvæmd á næstu
áramótum eins og áður hafði
verið áformað, nema að Mac-
millan, Adenauer og de Gaulle
hittist oð reyni að afnema ágrein
inginn. Hingað til hafa allar til-
raunir til þess að koma á sam-
komulagi farið út um þúfur og
ekki er talið á neinna færi ann-
arra en hinna æðstu að lægja
öldurnar.
Ráðherranefnd markaðsbanda-
lagsins kemur saman í Brussel á
morgun og talið er fullvíst, að
þar verði rætt um hugsanlegan
fund hinna stóru.. V-Þjóðverjar
hafa alla tíð verið milligöngu-
menn í málefnum þessum — og
það er að undirlagi Adenauers,
að reynt verður að koma á fund-
Þrjátíu ára afmœlis
Héraðsskólans á Laug-
arvatni minnzt
Á SUNNUDAGINN var setti
Bjarni Bjarnason héraðsskólann
á Laugarvatni í 30. skipti. Hér-
aðsskólinn er 30 ára um þessar
mundir, en fyrsta árið var séra
Jakob Lárusson í Holti skóla-
stjóri. Var afmælisins minnzt
veglega og eftirminnilega og var
mikill fjöldi eldrí nemenda við-
staddur skólasetningu.
Á sunnudaginn var blíðskapar-
veður austur á Laugarvatni. Fán-
ar blöktu við hún og á þriðja
tímanum tók fólk að streyma til
staðarins úr öllum áttum. Dreif
brátt að mikinn mannfjölda. Kl.
3,30 var samkoman sett. Hófst
athöfnin með því að sunginn var
sálmur, en því næst flutti sókn-
arpresturinn bæn. Milli 60 og 70
manna samkór frá héraðsskólan-
um og menntaskólanum söng
undir stjórn Þórðar Kristleifsson-
ar, en að söngnum loknum flutti
skólastjóri setningarræðu sína.
Var það mjög greinargóð yfir-
litsræða um framvindu í skóla-
málum síðustu 30 árin. Þá minnt-
ist skólastjóri kennara, sem lát-
izt hafa á þessu tímabili, færði
sérstakar þakkir þeim mennta-
málaráðherrum, sem staríað hafa
í tíð skólans svo og fræðslumála-
stjórum og skólanefndum.
Þá flutti Jónas Jónsson langa
ræðu um aðdraganda skólastofn-
unarinnar og fleira. Böðvar
Magnússon, hreppstjóri, lét þetta
mikla óðal af hendi sem skóla-
setur. Hann talaði næstur, og
rakti ýmis tildrög skólastofnun-
arinnar. Þá söng frú Guðrún
Tómasdóttir einsöng við undir-
leik Magnúsar Bl. Jóhannsson-
ar. Vakti söngur hennar mikla
hrifningu áheyrenda.
Þá fluttu þessir menn ávörp:
fræðslumálastjóri, Helgi Elías-
son, formaður skólanefndar, Sig-
urður Óli Ólafsson, alþm., sýslu-
maður Rangæinga, Björn Björns-
son, sem færði bókasafni skól-
ans fégjöf frá Skógaskóla, Magn-
ús Böðvarsson í Miðdal, sem
færði skólastjóra 10,000 kr. frá
sveitungunum til að prýða og
rækta skógarlund í nágrenni
skólans, Benedikt Sigvaldason,
sem afhenti Bjarna Bjarnasyni
Guðbrandsbiblíu að gjöf frá
samkennurum. Allir skólastjórar
staðarins létu í Ijós þakklæti til
skólans og skólastjóra fyrir gott
samstarf, en þessir skólar eiga
allir náið samstarf við héraðs-
skólann. Þá sendi Guðmundur
frá Miðdal skólanum stórt mál-
verk af Heklugosi 1947.
Skólastjóri bauð öllum gestum
og starfsmönnum staðarins heim
í sína einkaíbúð til veizlu og
mannfagnaðar. Var veitt þar af
mikilli rausn og stóð mannfagn-
aðurinn til kl. 2 e. m. Það er sögn
þeirra, sem vel þekkja til, að
þetta hafi verið ógleyman-
legasti dagurinn í ævi skólans.
Innan skamm* mun koma á
markaðinn mikið rit, sem hefur
að geyma sögu Laugarvatns frá
fyrstu tíð og skrá yfir alla nem-
endur, sem hafa stundað nám
við skólann.
240 fluttir brott
ADEN, 3. nóvember. — Aðfara-
nótt mánudags voru 240 manns
fluttir frá Aden til Yemen vegna
óeirðanna á föstudag og laugar-
dag, þegar 5 voru drepnir og
12 særðir hættulega. Alls voru
560 manns handteknir, en nokkr.
um var sleppt. Hinir brottfluttu
eru allir heimilisfastir í Aden.
NEW YORK, 3. nóv. — Gæzlulið
S.þ. skal áfram vera á Gaza-
svæðinu — samkv. áliti stjórn-
málanefndar S.þ. í dag voru
atkv. greidd um málið og féllu
þau 49:9, en 13 sátu hjá.
skálinn, miðvikud. kl. 8, Garða-
stræti 6, mánud. kl. 8, Húsi
U.M.F.R. við Holtaveg, mánud.
kl. 8, samkomusalur Laugarnes-
kirkju, mánud. kl. 8,30, Víkings-
heimilið, þriðjud. kl. 8, Kirkju-
teig 23, hús K.F.U.M. miðvikud.
kl. 8. — f föndurflokkunum verð-
ur unnið úr basti, tágum, beini
o. fl.
Bókband
Tómstundaheimilið Lindargötu
50, miðvikud. kl. 7,30.
Útskurður
Tómstundaheimilið Lindargötu
50, þriðjudaga kl. T,30.
Radíó-vinn»
Tómstundaheimilið Lindargötu
50, mánudaga kl. T,30.
Táknmerki sýningarinnar
„Með eigin höndum“.
Módelger*
Tómstundaheimilið Lindargötu
50, fimmtudaga kl. T,30.
Brúðuleikhns
(leikbrúðugerð o. fl.)
Miðbæjarskólinn, fimmtudaga
kl. 8.
Smíðar
Melaskólinn, mónudaga kl. 8,
Kirkjuteig 23, húsi K.F.U.M., mið
vikudaga kl. 8.
Ljósmyndaiðja
Tómstundaheimilið Lindargötu
50, alla virka daga kl. 7,30.
Kvikmyndaklúbbar
Sýningarsal Austurbæjarskól-
ans, sunnudaga kl. 4, Breiðagerð-
isskóla, laugardaga kl. 4 og 5,30.
Þjóðdansar
f leikfimisal Austurbæjarskól-
ans, þriðjudaga kl. 8—9.
Taflklúbbar
Tómstundaheimilið Lindargötu
50, þriðjudaga kl. 5 11 ára og
yngri, þriðjudaga kl. 8 12 ára og
eldri, Golfskálinn, þriðjudaga
kl. 5 11 ára og yngri, þriðjudaga
kl. 8 12 óra og eldri, hús U.M.F.R.
við Holtaveg, þriðjudaga kl. 8,
Tómstundaheimili ungtemplara,
miðvikudaga kl. T.
Frímerkjaklúbbar
Auglýstir síðar.
Sníðanámskeið
Hefjast væntanlega um 15. nóv.,
auglýst nánar.
Innritun í flokkana verður á
hverjum stað á auglýstum tíma.