Morgunblaðið - 05.11.1958, Page 20
VEORIÐ
SV kaldi eða stinningskaldi,
— skúrir. ___________
253. tbl. — Miðvikudagur 5. nóvember 1958
Pasternakmálið er líkast skrök-
sögu saman settri af óvinum
sovézkrar menningar...
Undanfarið hafa togararnir komið hver á fætur öðrum af
Nýju Fylkismiðunum við Nýfundnaland til Reykjavíkur til
að landa aflanum. Myndina tók ljósmyndari Mbl. fyrir nokkru
niður við Reykjavíkurhöfn. Verið er að Ijúka við að losa
fyrsta nýsköpunartogara Bæjarútgerðar Reykjavíkur, Ingólf
Arnarson, og verkamennirnir eru að búast til að hefja vinnu
við að losa nýjasta togara Bæjarútgerðarinnar, Þormóð goða,
sem er að koma inn á höfnina.
Reynt að tara beint af
Nýfundnalandsmiðum
til söluhafnar
HEIMDALLUR F.U.S. efndi til
almenns fundar í Sjálfstæðishús-
inu í gærkvöldi kl. 8.30. Um-
ræðuefnið var „Andleg kúgun
austan járntjalds — Pasternak-
málið“. Baldvin Tryggvason for-
maður Heimdallar setti fundinn
með stuttu ávarpi, þar sem hann
skýrði frá tildrögum fundarins
og rakti örlög Pasternaks í stuttu
máli.
Ræða Gunnars Gunnarssonar
Þá tók til máls Gunnar Gunn-
arsson skáld, sem var aðalræðu-
maður fundarins. Talaði hann um
mál Pasternaks og kvað atburða-
rásina í henni áþekkasta uppi-
stöðu í skröksögu, saman settri
til þess eins að svívirða sovézka
menningu, mannúð og skyn-
þroska. En þessi saga væri
raunalega sönn. Ræða Gunnars
Gunnarssonar verður birt í heild
í blaðinu á morgun.
Ljóð um Pasternak
Að ræðu skáldsins lokinni las
Matthías Johannessen blaðamað-
ur frumort kvæði um Pasternak.
Ræða Eyjólfs K. Jónssonar
Síðan tók til máls Eyjólfur K.
Jónsson. Hann benti á, að bók
Pasternaks, „Zívagó læknir“,
væri ekki pólitísk bók heldur
listrænt skáldverk. Sök Paster-
naks væri sú ein, að hann hefði
sótt yrkisefni sitt í líf rússnesku
þjóðarinnar og lýst því eins og
honum kæmi það fyrir sjónir,
öfga- og ofstækislaust. Þess
vegna væri hið glórulausa of-
stæki rússneskra valdamanna
óskiljanlegt. Jafnvel áhangendur
alheims kommúnismans hér á
landi hefðu séð sig knúða til að
mótmæla mannfyrirlitningu og
ofsóknum hins ógnarlega ein-
veldis.
Hann spurði, hvort mennta-
menn hefðu raunverulega opnað
augun fyrir þeim ógnum, sem
vofðu yfir heimsbyggðinni og
skírskotaði í því sambandi til
reynslunnar. Benti hann á, að
áþekktir og raunar alvarlegri srt-
burðir hefðu áður gerzt undir
ráðstjórn, en það hefði ekki megn
að að uppræta kommúnisma úr
röðum frjálsra menntamanna.
Benti hann á í þessu sambandi á
atburðina í Ungverjalandi fyrir
Enn landar hér
a-þýzkur togari
ENN hefur austur-þýzkur togari
landað hér í Reykjavík, er það
togarinn Luna, sem kom hingað
til hafnar í gær eftir 10 daga úti-
vist og landaði þá milli 10—15
tonnum af fiski. Hafði togarinn
komið inn vegna smávægilegrar
bilunar. Hér landaði þessi sami
togari fyrir 8—10 dögum, er hann
einnig kom inn vegna smávægi-
legrar bilunar.
Náungi einn, sem oft er niður
við höfn og fylgist vel með skipa-
ferðum, sagði í gær, að það virt-
ist ekki vera dýrt að reka togara-
útgerð í hinu þýzka járntjalds-
landi, ef hægt væri að landa hér
smáslöttum með lOdaga millibili.
sem ekki nægði til þess að standa
undir kexkaupum, vegna skips-
hafnarinnar, hvað þá heldur
meira.
Búizt var við að togarinn færi
„aftur á veiðar“ i dag.
tveimur árúm. Þá hefði Nóbels-
verðlaunaskáldið okkar sent hús-
bændum sínum orðsendingu og
bent þeim á, að ekki væri rétt
að drepa Ungverjana, því það
skaðaði baráttu sósíalista utan
kommúnistaríkjanna. Laxness
hefði nú enn sent skeyti í sama
anda með þessum niðurlagsorð-
um: „Fyrir alla muni þyrmið
vinum Ráðstjórnarríkjanna við
þessu óskiljanlega og mjög svo
ósæmilega fargani".
Þetta væri sá boðskapur, sem
hið hlutlausa ríkisútvarp hefði
boðið formanni menningar-
tengsla fslands og Ráðstjórnar-
ríkjanna að flytja sama daginn
og hann hefði lýst því yfir, að
Pasternakmálið væri „innanfé-
lagsmál" rússneska rithöfunda-
sambandsins og sér óviðkom-
andi.
Eyjólfur ræddi að lokum um
hlutverk hinna nytsömu sakleys-
ingja, sem lömuðu andstöðu
frjálsra þjóða gegn ásælni komm
únista. Hvatti hann til öflugrar
sóknar gegn hvers konar undir-
SL. laugardag leitaði blaðið
fregna hjá fréttaritara sínum á
ísafirði um útgerðina á norðvest
anverðum Vestfjarðakjálka.
Á ísafirði eru tveir bátar byrj-
aðir á línuveiðum. Hafa þeir far-
ið í nokkrar legur og fengið upp
í 5 lestir í róðri. Þessir bátar róa
stutt. Tveir bátar stunda ennþá
veiðar með þorskanetjum í Djúp-
inu, og auk þeirra eru hér 2 bátar
frá Reykjavík, sem einnig stunda
veiðar með þorskanetjum. Aflinn
hefur verið allt upp í 8 lestir í
róðri. Er nú verið að búa fleiri
báta á línuveiðar, en mjög treg-
lega gengur að manna bátanna.
Atvinna hefur verið mjög mikil á
ísafirði og jafnvel fólksekla.
í Hnífsdal er enginn bátur enn-
þá byrjaður að róa með línu, en
verið er að búa einn bát á línu-
veiðar. Einn bátur frá Hnífsdal,
Rán, hefir síðan í september
stundað veiðar með þorskanetj-
um á sömu slóðum og ísafjarðar-
bátarnir og fengið 200 lestir alls,
og er það ágætur afli. Mjög mikil
atvinna er einnig í Hnífsdal.
í Bolungarvík fór fyrsti bátur-
inn í róður með línu á laugard.,
en reri stutt. Aflinn var 3 lestir.
í þessari viku munu 3 stórir bát-
ar og 3 trillubátar hefja róðra og
Bolungarvík. 1 nóvemberlok er
væntanlegur til Bolungarvíkur
fyrsti báturinn af nokkrum 250
lesta togbátum, sem koma eiga
til landsins frá Austur-Þýzka-
landi. Bátur þessi heitir Guð-
mundur Pétur, eg er eign Einars
Guðfinnssonar, útgerðarmanns í
SL. SUNNUDAG var vígður nýr
barna- og unglingaskóli í Höfða-
kaupstað á Skagaströnd. Hófst
athöfnin með guðsþjónustu, séra
Pétur Ingjaldsson messaði. Ávörp
og ræður fluttu oddviti kauptúns
ins, Þorfinnur Bjarnason, Stefán
Jónsson, námsstjóri, Páll V.
Kolka, héraðslæknir, Lárus Guð-
mundsson, fyrrverandi skóla-
nefndarformaður, Sigríður Guðna
dóttir, formaður Kvenfélags
Skagastrandar og Hafsteinn Sig-
urbjarnarson, formaður skóla-
nefpdar. Páll Jónsson, skólastjóri,
setti skólann.
lægjuhætti við ofbeldisöflin og
bað menn að geyma örlög Paster-
naks í fersku minni.
Fleiri tóku ekki til máls. Fund-
urinn var fjölsóttur, og máli
ræðumanna vel tekið.
Stefán Briem og
Reimar efstir
í FJÓRÐU umferð í Haustmóti
Taflfélags Reykjavíkur fóru
leikar svo að Reimar Sigurðsson
vann E. Gilfer, Guðmundur Ár-
sælsson vann Bjarna Linnet. —
Jafntefli gerðu Haukur Sveins-
son og Sigurður Gunnarsson, og
Ólafur Magnússon og Ágúst
Ingimundarson.
I Meistaraflokki eru nú hæst-
ir nr. 1—2 Stefán Briem og Reim
ar Sigurðsson með 3 vinninga og
1 biðskák hvor. 5. umferð verð-
ur tefld í Breiðfirðingabúð í
kvöld kl. 8, og biðskákir verða
tefldar í Grófin 1 á föstudags-
kvöld kf. 8. —
Bolungarvík. Leifur Jónsson
verður skipstjóri á bátnum.
Á Suðureyri er enn ekki byrj-
að að róa með línu, en línuveiðar
munu hefjast innan skamms. Á
Flateyri er engin útgerð með
línu á veturna, en gerðir eru
þaðan út tveir gamlir togarar.
Eru þeir báðir að veiðum núna.
Á Flateyri er mikil atvinna og er
svo um flestar verstöðvarnar.
Tveir þilfarsbátar munu
stunda veiðar með línu frá Þing-
eyri í vetur. Eru þeir ekki byrj-
aðir enn, en þess verður ekki
langt að bíða, að róðrar hefjist.
DANSKA BLAÐIÐ Ber-
lingske Tidende, birti í gær
eftirfarandi frétt frá frétta-
ritara sínum í Lundúnum:
Bretar hafa ákveðið að halda
áfram ,fiskveiðistríðinu‘ við
ísland í allan vetur. Enn
fremur er ætlunin að veita
brezkum togurum, sem vilja
veiða innan þeirrar land-
helgi, er íslendingar hafa
upp á sitt eindæmi markað,
aukna herskipavernd.
Yfirmaður brezku herskipanna
á íslandsmiðum, Harry Anderson
skipherra, hefir undanfarinn hálf
an mánuð dvalizt í Lundúnum og
átt í leynimakki við flotamála-
ráðuneytið, en togaraeigendur
hafa einnig verið viðstaddir. —
Flotamálaráðuneytið hefur enn
ekki viljað láta neitt uppi um
þessar viðræður, en mönnum hef-
ÍSLENZKIR togarasjómenn, sem
verið hafa vestur á Nýju Fylk-
ismiðum, hafa skýrt Mbl. svo frá,
að þýzkir karfatogarar séu komn-
ir á þær slóðir, er íslendingar
sóttu fyrst á. Á sömu slóðir og
íslendingar nú veiða, eru rúss-
neskir togarar, og hefur þeim
farið fjölgandi, stórum og litlum
togurum.
Enn er veiði góð á miðunum.
Þá er mönnum kunnugt um, að
II stiga hiti á Egils-
stöðum í gœr
í REYKJAVÍK var sunnan átt í
gær og gekk á með skúrum. Hit-
inn varð mestur 7 stig í Reykja-
vík, en var á Egilsstöðum 11 stig
og í Fagradal. Mest var úrkom-
an á Hólum í Hornafirði og
Djúpavogi, 8 mm.
ur skilizt, að fyrir atbeina tog-
araeigenda hafi flotamálaráðu-
neytið fallizt á að halda „vernd-
ar“-aðgerðunum og gera brezkum
fiskimönnnum þannig kleift að
stunda veiðar í allan vetur innan
12 mílna markanna.
News Chronicle segir í dag, að
flotamálaráðuneytið hafi ákveðið
að endurskipaleggja aðgerðir sín
ar við ísland. Til þessa hafa brezk
ir fiskimenn stundað veiðar í
fjórum hópum hér og þar við
ströndina, og hver hópur hefur
notið verndar eins brezks her-
skips.
í framtíðinni er ætlunin, segir
blaðið, að stunda veiðar í stór
um hóp i vernd fjögurra her-
skipa. Þessi nýja aðferð mun
hafa verið tekin upp sem mót-
leikur gegn þeim áformum,
sem íslendingar eru sagðir
hafa i hyggju um að efla sókn
á hendur brezkum togurum.
Þar sem um leynilegar fyrir-
skipanir er að ræða, vill flota-
málaráðuneytið ekkert segja um,
þeir vestur-þýzkir togarar, sem
verið hafa á Nýfundnalandsmið-
um, og hafa farið þaðan söluferð-
ir beint til Þýzkalands, hafi náð
hagstæðum sölum á fiski sínum.
Mun nú jafnvel í athugun, að
togarinn Þormóður goði, fari í
slíka veiðiför. Togarinn er nú á
næstunni að fara til Þýzkalande
til skoðunar og eftirlits. Hann er
nú orðinn 6 mánaða gamall.
Togarinn kom hingað inn í gser
vegna vélarbilunar, er gerði vart
við sig vestur á Nýfundalands-
miðum. Hér verður hægt að fram
kvæma viðgerð, skipta um sveif-
aráslegu, sem sendar verða flug-
leiðis frá Þýzkalandi. . Standa
vonir til að togarinn geti farið út
undir næstu helgi.
Legurnar höfðu bilað með 19
klst. millibili og var vélaafli skips
ins hvergi fyllilega beitt á heim-
leið, en siglingin tók þó aðeins
rúma 5 sólarhringa.
hvort upplýsingar News Chron-
icles séu réttar.
Mönnum hefur skilizt, að her-
skipin muni í vetur leggja ríka
áherzlu á að veita togaramönnum
læknishjálp og aðstoð við við-
gerðir, svo að þeir verði ekki
háðir því að leita til íslenzkra
hafna. íslendingar hafa reyndar
lýst yfir því, að herskipum verði
ekki leyft að flytja sjúka sjómenn
til hafnar. Þetta merkti, að flytja
yrði sjúka sjómenn á togurunum
sjálfum til hafnar, og það myndi
samsvara töku togarans og máls-
höfðun gegn skipstjóranum.
Spilakvöld
í Firðinum
HAFNÁFIRÐI — Mikil aðsókn
hefir verið að spilakvöldum
Sjálfstæðisfélaganna, og verður
hið þriðja að þessu sinni í kvöld
og hefst kl. 8,30. Eins og áður
verður spiluð félagsvist og verð-
laun veitt.
Línuveiðar eru hafnar trá
Isafirði og Bolungarvik
Anderson í leynimakki við
brezka flofa-
málaráðuneytið