Morgunblaðið - 27.01.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.01.1959, Blaðsíða 1
20 síður 46. árgangur 21. tbl. — Þriðjudagur 27. janúar 1959 Prentsmiffja Morginblaðsina Júgóslövum einum ekki hoðið til Kreml Krúsjeff einn á mælendaskrá MOSKVU, 26. janúar. — í fyrramálið verður 21. þing rússneska kommúnistaflokks- ins sett að viðstöddum fjöl- mörgum gestum frá öllum kommúnistaflokkum öðrum en þeim júgóslavneska. Vestrænum fréttamönnum verður nú í fyrsta sinn heimilað að verða viðstaddir setningu flokksþingsins og er því ætlað, að Krúsjeff muni þar kynna hina nýju 7 ára áætlun sína, en þar er miðað að því að Ráðstjórnarrík- in verði fyrir 1970 orðin efna- hagslega öflugri en nokkurt ann- að ríki. Krúsjeff er aðeins einn á mæl- endaskrá á þessum fyrsta fundi þingsins, en á síðasta þingi, árið 1956, var hann ásamt mörgum öðrum æðstu mönnum ríkisins á mælendaskrá fyrsta fundar. Er þessi breyting talin bera glögg- an vott um þær breytingar, sem orðið hafa í æðstu stjórn Ráð- stjórnarríkjanna. —★— Það var á síðasta þingi, sem Stalin var afhjúpaður — og ferill hans og persónudýrkun fordænid. Og eins og menn rekur minni tii, þá var það Krúsjeff, sem hafði forgönguna í því máli — og 1/sti hryðjuverkum Stalíns í margra klukkustunda ræðu. —★— Hinir æðstu foringjar Rússa, sem þá voru, hafa nú týnt töl- unni. Bulganin, fyrrum forsæt- isráðherra, Maienkov fyrrum forsætisráðherra, Kaganovitj fyrrum aðstoðarforsætisráðherra, Moiotov fyrrum utanríkisráð- herra, Shepilov fyrrum utanrík- isráðherra og Zhukov fyrrum landvarnarmálaráðherra. Allir stóðu þessir menn í fylkingar Ræða svarið til Rússa WASHIGTON, 26. jan. — Banda- ríska utanríkisráðuneytið upp- lýsti í dag, að í febrúarlok mundu fulltrúar Bretlands, Frakklands, V-Þýzkalands og Bandaríkjanna koma saman til fundar í was- hington til þess að ræða svar Vesturveldanna við tillögu Ráð- stjórnarinnar um að efnt yrði til alþjóðaráðstefnu til að ræða frið arsamninga við Þýzkaland. Nefnd þessari hefur verið falið að gera uppkast að svari Vestur- veldanna við rússnesku tillög- unni, en ekki er ljóst, hvort nefndinni verði falið að ræða Þýzkalandsmálið í heild, þ.e.a.s. Berlínardeiluna og sameiningu Þýzkalands. Formælandi Bandarfkjastjórn- ar sagði og við þetta tækifæri, að pólska tillagan um afvopnað belti í Evrópu uppfyllti ekki þær kröf ur, sem Bandaríkjamenn gerðu til öryggismála Evrópu. brjósti í Kreml, þegar 20. flokks- þingið var haldiff 1956. Nú hafa þeir allir veriff fjarlægffir úr flokksforystunni — útskúfaðir sem fjandmenn flokksins og föff- urlandinu hættulegir. —★— Meðal erlendra kommúnista- leiðtoga, sem komnir eru til Moskvu, eru Gomulka og Chou En-lai. Það vekur að vonum ó- skipta athygli að Júgóslavar eru nú ekki boðnir til þingsins og talið er ,að Rússar hafi nú í bili gefið upp alla von um að geta beygt Tító til hlýðni. Pravda ræðst harkalega á júgóslavneska Makarios LONDON, 26. jan. — Makarios vill hverfa til Kýpur, en þó ekki hvetja EOKA til þess að láta fyrir fullt og állt af hryðjuverk- um meðan hann er í Grikklandi. Segir hann, að þá mundu Kýp- urbúar álíta, að hann væri að kaupa sér fararleyfi til eyjar- innar. kommúnista í dag og segir þá hafa einangrazt frá hinum komm- úniska heimi. Tvö málgögn ung- kommúnista birta og greinar sama sinnis í dag. —★— Krúsjeff mætti í boð í indverska sendiráðinu í Moskvu í dag og lét hann þau orð falla þar, að ræða hans á flokksþinginu á morgun yrði svo löng, að hann hefði sagt mönnum að hafa með sér matarböggul. Debré í London PARÍS, 26. jan. — Tilkynnt vaf hér í dag, að franski forsætis- ráffherrann Michel Debré munl fara til London og íæffa viff Mac- millan í lok febrúar eða byrjun marz. Þaff er samkv. tillögu Ma« millans aff forsætisráffherrarnir ræffast viff. Sennilega munu þeir ræffa aukiff og nánara samstarf landanna á hernaffarlegum sviff- um — og svo hagsmuni þeirra og afstöðu hvað snertir efnahags samvinnu Evrópulanda. Krúsjeff Við gætum gert það enn kaldara — sagði Krusjeff í tækifærisiæðu MOSKVU, 26. jan. — Krúsjeff sagði í ræðu í indverska sendi- ráðinu hér í dag, að Bandaríkja- för Mikojans hefði sannfært hann um það, að hægt væri að draga úr kalda stríðinu milli Banda- ríkjanna og Rússlands. Hins veg- ar hefðu viðræður Mikojans við bandaríska ráðamenn ekki haft nein slík áhrif né varanlegan ár- angur. Sagði hann Rússa hafa gert sitt til þess að binda endi á kalda stríðið, en ef Vesturveldin vildu endilega halda því áfram, þá gætum við hæglega gert það enn kaldara. Það var í tilefni Fanfani biðst lausnar RÓMABORG, 26. jan. — Fanfani forsætisráðherra Ítalíu, baðst í dag lausnar fyrir sig og ráðu- neyti sitt eftir að verkamálaráð- herrann, sem er úr flokki jafn- aðarmanna, baðst lausnar. — Stjórnin hefur og þrisvar sian- Adenauer í London BONN, 26. jan. — Tilkynnt var hér í dag, aff Adenauer kanslari muni innan skamms fara til Lon- don til viffræðna viff Macmillan. wanfani um beðið ósigur við atkvæða- greiðslu í þinginu. Fanfani er úr flokki kristilegra demókrata, en ásamt þeim st)ðu að stjórninni hægri jafnaðar- menn. Ágreiningur hefur verið í flokki hægri jafnaðarmanna um það hvort flokknum beri að hefja samvinnu við vinstri jafn- Cóðar horfur KAUPMANNAHÖFN, 20. jan. — Ráðherrafundi Norður- landa lauk í gær í Osló og er talið, að árangur hafi orðið mjög góður. Aðalmál fund- arins var norrænt tollahanda- lag og sagði Erlander, for- sætisráðherra Svía, að aldrei hefði málunum miðað jafgn- vel og einmitt á þessum fundi. íslendingar tóku ekki beinan þátt í viðræðunum, en höfðu áheyrnarfulltrúa. aðarmannaflokk Nennis, sem samþykkti á flokksþinginu á dögunum að hætta öllu samstarfi við kommúnista, en reyna hins vegar að sameina báða flokka jafnaðarmanna undir eitt merki. Forseti ítalíu bað Fanfani að sitja áfram þar til önnur stjórn yrði mynduð — og fastlega er búizt við því að kristilegir demó- kratar myndi minnihlutastjórn, sem þó verður líklega ekki lang- líf. Er því viðbúið að ítalir eigi á næstunni eftir að glíma við langa stjórnarkreppu. Forseti Ítalíu mun á morgun hefja við- ræður við leiðtoga flokkanna. Fanfani hefur ekki átt sjö dag- ana sæla að undanförnu, því að margir flokksmenn hans hafa brugðizt honum og snúizt gegn stjórninni. Hægrisinnuðum sósíal demókrötum finnst hann ganga of langt til vinstri með sam- vinnu við jafnaðarmenn — og meðal þessara andstæðinga Fan- fanis eru Pella og Scelba, báðir virtir stjórnmálaforingjar. sem þjóðhátíðardags Indlands, boðið var til sendiráðsins. Krúsjeff var í góðu skapi, rabb aði við brezka og v-þýzka sendi- herrann í Moskvu — og, þegar Krúsjeff flutti ræðu sína sneri hann sér að þýzka sendiherran- um, Kroll, og sagði, að ekki þyrfti mikið til þess að eldflaugarnar færu að fljúga — og hann hefði stungið upp á því við Kroll, að þeir undirrituðu friðarsamning. Hann svaraði „Já“, sagði Krú- sjeff, „en á sanngjörnum grund- velli“ — og það, sem ég tel sann- gjarnt, telur Kroll ósanngjarnt ■— og það, sem hann leggur til finnst mér ósanngjarnt. Flugvél tekin til land- helgisgáezlu í Noregi? OSLO, 26. jan. Yfirforingi strandgæzlunnar viff Norður- Noreg hefur látiff svo um mælt, að komið gæti til athugunar, hvort ekki yrffi heppilegt fyrir norsku strandgæzluna aff taka í sína þjónustu fiugvél viff land- helgisgæzluna. Benti hann á, aff fslendingar hefðu fyrir nokkru eignazt flugvél til landhelgis- gæzlu og hefffi hún gefizt vel. —★— • Norskir fiskimenn óttast nú vaxandi ógengni erlendra tog- ara sem kunnugt er — og hafa brezkir togarar haft sig mjög í frammi við Noregsstrendur að undanförnu. Sjómenn £ Norður- Noregi hafa borið fram kröfur um að fiskveiðitakmörkin verði færð út í 12 mílur, en norska stjórnin hefur enn ekki tekið neina endanlega ákvörðun í mál- inu. Lange utanríkisráðherra sagði í ræðu fyrir nokkrum dögum, að norska stjórnin væri þeirrar skoðunar, að samningaleiðin væri heilladrýgst hvað útfærslu Bagdad-bandalagið mun enn styrkt KARACHI, 26. jan. — A ráð- herrafundi Bagdad-bandalagsins létu fulltrúar Breta og Banda- ríkjanna lét svo um mælt, að þeir væru staðráðnir í því að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu og alhliða eflingu Bagdad-banda- lagsins svo að það mætti verða brjóstvörn í baráttunni gegn kommúnistanum í þessum hluta heims. Loy Henderson, aðstoðarutan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði Bandaríkin mundu styðja bandalagsríkin með ráði og dáð gegn árásum alheimskommúnis- mans. Varnarsamningur sá, sem boðaður var í sumar að mundi gerður með Bandaríkjunum annars vegar og Persíu, Pakistan og Tyrklandi hins vegar mun þó ekki undirritaður á þessum fundi. Brezki utanríkisráðherrann, Duncan Sandys, sagði, að Bretar mundu einnig halda áfram full- um stuðningi við bandalagið — og síður en svo draga úr honum vegna byltingarinnar í írak í sumar. Kvað hann Breta telja Bagdad-bandalagið eitt hinna áhrifaríku meðala til viðhalds friðinum í heiminum. Fullvíst er talið, að írak gangi úr Bagdad-bandalagiitu, enda þótt ekkert hafi enn verið til- kynnt um það. Síðan byltingin var gerð hefur írska stjórnin eng in afskipti haft af bandalaginu. landhelginnar viðkæmi. Þó mundi stjórnin verða að grípa til sinna ráða, ef fiskiðnaðinum yrði hætta búin vegna ágangs er- lendra togara. -★- Nú er veriff aff gera rannsókn á því hve mikill fjöldi erlendra togara hefur stundaff veiffar und- an Noregsströnd og mun sú rannsókn aff mestu byggjast á samanburffi við fjölda togaranna á sama tíma í fyrra effa fyrir útfærslu fiskveiðitakmarkanna viff fsland. Reynist veiffar út- lendinga viff Noreg sýnilega meiri nú en áffur var, má búast viff aff eitthvaff athyglisvert ger- ist í landhelgismálum Norff- manna, segir í Oslóarfregnum. -★- Að lokum má geta þess, að yf- irmaður norsku strandgæzlunn- ar hefur látið svo um mælt, að núverandi strandgæzlufloti nægi hvergi til þess að annast eftirlit með fjögurra mílna fiskveiðitak- mörkunum. Þess vegna sé þýff- ingarlaust að hugsa um meiri út- færslu fiskveiðitakmarkanna, ef eftirlitsskipum verður ekki fjölg að til muna. Þriðjudagur 27. janúar. Efni blaðsins m.a.: Bls. 2: Lúðvík viðurkennir að náðst hafi beztu og hagkvæmustu samningar. — Frá umræðum á Alþingi. — 6: Bændahöllin í Stafangri, Roga- landsbréf frá Árna G. Eylands. — 8: Róbert Burns — 200 ára minn- ing. — 9: Hlustað á útvarp. — 10: Ritstjórnargreinarnar: Vanda- sömu embætti vel gegnt. — Vonbrigði kommúnista. Utan úr heimi: Berlín, tvískipt borg. — 11: Vetrarferð með flutningabíl frá Akureyri til Reykjavíkur. — 12: Rabb Gunnars Bjarnasonar, grein eftir Sigurð Jónsson frá Brún. — 18: íþróttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.