Morgunblaðið - 27.01.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.01.1959, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 27. janúar 1959 MORGVNBLAÐ19 3 Aðeins rœtt um að bœgja hœttunni frá Upplýsingar dómsmálaráðherra á Alþingi ER fundur hafði verið settur í neðri deild Alþingis í gær, kvaddi Lúðvík Jósefsson, 2. þm. Sunn- mýlinga sér hljóðs utan dagskrár. Kvaðst hann vi'ja ber fram fyrir- spurn til dómsrnálaráðherra um störf landhelgisgæzlunnar. Ný- lega hefði verið skýrt frá því í útvarpi og blöðum, að skipherr- ann á Þór heíði gert samning við Anderson flotafctingja um sérstaka rráðstafanir til að koma í veg fyrir veiðarfœraskemmdir íslenzkra fiskibáta. Kvaðst Lúð- vík Jósefsson vilja beina þeirri fyrirspurn til dómsmálaráðherra, hvaða samkomulag hér hefði átt sér stað. Hvort samið hefði verið um það, hvernig íslenzkir fiski- bátar skuli leggja veiðarfæri sín innan og uta» 12 mílna mark- anna. Friðjón Skarphéðinsson, dóms málaráðherra, varð fyrir svörum. Kvað hann það rétt, að viðræð- ur hefðu farið fram milli Eiríks Kristóferssonar, skipherra á Þór, og Andersons flotaforingja, en hins vegar hefðu engir samnir.gar átt sér stað í þá átt sem fyrir- spyrjandi hafði vikið að. Viðtal þetta hefði eingöngu verið gert í því skyni að bægja yfirvofandi hættu frá íslenzkum fiskibátum, en það væri alkunnugt, að erlend skip hefðu oft og mörgum sinn- um farið yfir veiðarfæri íslenzkra báta á undanförnum árum. Landhelgislínuna hefði ekki borið á góma í þessum viðræðum. Brezki flotaforinginn hefði lofað að áminna togarana um að virða veiðarfærin, enda væru þau merkt. Kvaðst Friðjón Skarphéð- insson ekki geta gefið meiri upp- lýsingar í þessu máli og að því er hann bezt vissi, væri þetta allt og sumt, sem íslenzka skipherr- anum og brezka flotaforingjanum hefði farið á milli, endu hefðu þeir enga heimild til neinnar samningsgerðar. Grafan braut gat á vatns- œðina Olli vatnsskorti í nokkrum hverfum sl. laugardag NOKKUÐ bar á vatnsskorti hér í bænum um helgina, einkum á laugardaginn, en þá varð algjör- lega vatnslaust mikinn hiuta dagsins í stórum bæjarhverfum, svo sem í Laugarneshverfinu, Laugarásnum og víöar. r Islenzk dagskrá í bandarísku útvarpi ELLEFTA þessa mánaðar var 15 mínútna íslenzkri dagskrá útvarp að frá New York frá útvarpsstöð sem útvarpar yfir öll Bandaríkin. Var dagskrá þessi tekin upp, þegar íslenzku blaðamennirnir voru staddir í New York snemma í vetur í boði Loftleiða. Fjallaði þátturinn almennt um ísland svo og starfsemi Loftleiða. Fram í honum komu Nicholas Graig, um boðsmaður Loftleiða í Bandaríkj- unum, Peter J. Heller, blaðafull- trúi ameríska sendiráðsins héT, Sigurður Magnússon, blaðafull- trúi Loftleiða og Agnar Bogason. ritstjóri. Orsök vatnsskortsins var bilun á 12 þuml. aðalæð vatnsveitunn- ar í Suðurlandsbraut á móts við Bolholt, að því er vatnsveitu- stjóri tjáði Mbl. í gær. — Þarna er verið að grafa fyrir ræsi þvert í gegnum Suðurlandsbrautina þessa dagana. — Rétt fyrir há- degi á laugardaginn vildi það óhapp til, að grafan, sem þarna er notuð, lenti á vatnsæðinni og braut gat á hana, svo vatnið flæddi út í stríðum straumum. Var að sjálfsögðu þegar hafin viðgerð á æðinni, en henni varð ekki lokið fyrr en undir kvöld. Var ekki hægt að hleypa vatninu á aftur fyrr en laust fyrir kl 8. Hins vegar mun hafa verið lítið um vatn sums staðar fram eftir kvöldi, því að í svona tilfellum hlýtur óhjákvæmilega að líða alllangur tími frá því að vatninu er hleypt á og þar til það hefir náð að dreifast um kerfið. Þessi bilun, sem varð á laug- ardaginn, var sú þriðja á einni viku á þessari sömu æð, en hún liggur allt innan frá Elliðaám og niður. að Laugavegi og er um 50 ára gömul, lögð árið 1908. Fyrra laugardag varð bilun á æðinni inni í Ásenda, og taldi vatns- veitustjóri, að þar hefðu frost- hræringar verið orsökin. Síðast- liðinn þriðjudag brast æðin síð- an aftur, þá við Holtaveg, og var orsökin talin sú, að hún hafði sigið þar niður á grjót. Enginn andvígur MOSKVU, 26. jan. — Moskvuút- varpið skýrði svo frá í kvöld, að Krúsjeff væri efstur á lista þeirra sem kjósa ætti til Æðsta ráðsins í rússneka „lýðveldinu". Allir hlutaðeigandi studdu hann ein- róma til efsta sætisins, sagði út- varpið. Um þessar mundir dvelur nem- andi frá Menntaskólanum í Reykjavík í Bandaríkjunum í boöi New York Heráld Tri- bune og Pan American flug- félagsins, en þessir aöilar bjóöa árlega einum menntaskóla- nemanda allt aö þriggja mán- aöa dvöl í Bandaríkjunum, tii að kynnast amerískum þjóö- háttum og kennslufyrirkomu- lagi. Pilturinn, sem í þetta sinn varö fyrir valinu, heitir Jón Gunnarsson, og er sonur frú Svanhildar Jónsdóttur á Sól- vállagötu 57. Lagöi hann upp í feröina á aöfangadagskvöld. Fyrst dváldist Jón ásamt 33 öörum gestum í Sarah Law rence menntaskólanum Bronxville í New York, en síðan tóku fjórar bandarískar fjölskyldur hann að sér og veröur hann hjá þeim meðan hann dvelst % Bandaríkjunum. 18. febrúar fer allur feröa■ hópurinn til Washington, þar sem útlendingunum gefst kost- ur á aö skoöa höfuöborgina, koma í þingiö og sjá hin frcegu minnismerki þar. Myndin hér aö ofan var telc- in þegar Jón kom til New York meö flugvél frá Pan American og tvœr bandarískar skóla stúlkur tóku á móti honum. Björgvin Þorkelsson for- maður Sjálfstœðisfélags Miðneshrepps SL. SUNNUDAG var haldinn að- alfundur Sjálfstæðisfélags Mið- neshrepps í félagsheimili Knatt- spyrnufélagsins Reynis í Sand- gerði. Varaformaður félagsins, Mar- •grét Pálsdóttir, setti fundinn og gaf síðan fráfarandi formanni, Ingimar Einarssyni, Reykjavík, orðið. Rakti hann störf fráfar- andi stjórnar og ræddi um hin miklu verkefni, sem félagsins bíða þar sem væntanlega stæðu fyrir dyrum tvennar Alþingis- kosningar á þessu ári. Benti hann á að Landsfundur Sjálfstæðis- flokksins yrði haldinn 11. marz Fœddi barn sift á bílpalli — í frosti og hríð AKUREYRI, 26. jan. — Það atvik skeði aðfaranótt s.l. föstudags, að kona ein hér í bæ varð léttari í sjúkrakörfu uppi á vörubíls- palli. — Var verið að flytja kon- una í sjúkrahúsið, en sakir ófærð ar og vegna þess. hve fæðinguna bar brátt að, hafði konan alið Frystur fiskur til Ameríku og Rússlands LAGARFOSS fer á næstunni til Rússlands og á honum fyrsti hrað frysti fiskurinn, sem þangað fer á þessu ári. Hér í Reykjavík hafa að und- anförnu staðið yfir samningar við Rússa um verðið á frysta fiskin- um og eru þeir samningar nú komnir á lokastigið, því Lagar- foss byrjaði að lesta hér í Reykja- vik á laugardaginn. Hann tekur einnig fisk á Akranesi og í Hafn- arfirði. Þá má geta þess, að nú er Sel- foss á Norðurlandi, en hann á að taka um 2000 lestir af hraðfryst- um fiski á Bandaríkjamarkað. Goðafoss, sem kominn er að utan, mun strax og lokið er af- fermingu, byrja að lesta á Rúss- landsmarkað. Loks er þess að geta að um miðjan febrúar mun Dettifoss fara til Bandaríkjanna með fullfermi af freðfiski og loks munu Goðafoss og Selfoss fara til Ameríku og Rússlands um mán aðamótin febr.—marz. barn sitt, er komið var með hana í fæðingardeildina. Nánari tildrög þessa atburðar eru þau, að á 5. tímanum á föstu dagsnóttina var sjúkrabifreið kvödd á vettvang út í Glerár- þorp til þess að sækja þangað konu í barnsnauð. — Er komið var út fyrir Glerárbrú, festist sjúkrabifreiðin í snjó, og varð þá að leita aðstoðar kraftmikillar flutningabifreiðar. Var hún síð- an sjúkrabifreiðinni til aðstoðar við að sækja konuna. Ferðalagið gekk þó svo illa, að loks varð að skilja sjúkrábíl- inn eftir, og var þá körfunni með konunni komið fyrir á palli vöru- bifreiðarinnar — og ekið sem skjótast upp í sjúkrahús. Er þangað kom, hafði konan alið barn sitt, sem fyrr segir. Hríð var og frost allmikið með an á þessum sérstæða flutningi stóð. — Þrátt fyrir hinar óvenju legu óhagstæðu aðstæður við fæðinguna, heilast móður og barni ágætlega. — vig. n.k. og myndi sá fundur að sjálf- sögðu marka stefnu flokksins einstökum málum um nánustu framtíð. — Loks gat formaður inn þess, að mikils og vaxandi áhuga hefði undanfarið gætt með al Sandgerðinga og annarra Mið- nesinga á málefnum og gengi flokksins, og sæist það m.a. af því, að síðustu þrjú árin hefði meðlimafjöldi í félaginu tvöfald ast. Kvað hann ástæðu til að ætla að enn mætti fjölga félags mönnum til mikilla muna og hvatti væntanlega stjórn til þess að leggja alla alúð við það. Miklar umræður urðu um fram tíðarstarfið, bæði við væntanleg- ar tvennar kosningar svo og efl ingu félagslífsins að öðru leyti. I stjórn félagsins voru kosnir Björgvin Þorkelsson, form., Mar grét Pálsdóttir, varaform., Jón H, Júlíusson, ritari, Páll Ó. Pálsson gjaldkeri og Aðalsteinn Gísiason; meðstjórnandi. — f varastjórn voru kosnir: Gísli Guðmundsson, Guðjón Guðjónsson og Magnús Þórðarson. Endurskoðendur þau Þorbjörg Einarsdóttir og Sigur hans Jóhannsson. — Þá voru fundinum kjörnir fulltrúar til að sitja 13. Landsfund flokksins 11 marz n.k. — Stjórn félagsins kýs 15 menn í fulltrúaráð félagsins en auk þeirra eiga sæti í fulltrúa ráðinu stjórn og varastjórn. Kirkjuþing 1961? PÁFAGARÐI, 26. jan. — Ólíklegt er talið, að kirkjuþing það, sem Jóhannes páfi XXIII. hefur boð að til verði haldið fyrr en í fyrsta lagi árið 1961. Mun það ætlun páfa að reyna á þingi þessu, að kanna möguleikana á bandalagi rómversk kaþólskra og hinnar austrænu orþodosku kirkju. — Mikils undirbúnings er þörf og sennilega mun um 5,000 fulltrú um boðið til þingsins. SIAKSTEISVAR „Einokun“ útflutnings- verzlunatrinnar í nokkra áratugi hafa hinir svokölluðu vinstri flokkar látið málgögn sín hamast mjög gegn því sem þeir kalla „einokun“ ;t- flutningsverzlunarinnar. Þeir hafa haldið því fram, að Sjáif- stæðisflokksins hafi skapað og viðhaldið skipulagi á útflutningi sjávarafurða, sem fæli í sér „arð- rán“ á framleiðslunni. Á þessari staðhæfingu hafa málgögn vinstri flokkanna staglazt ár eftir ár og útmálað það „brask“ og „afætustarfsemi“, sem Sjálf- stæðisflokkurinn stæði fyrir á þessu sviði. , En hvað hefur svo gerzt i þessu máli. Ekkert, bókstaflega ekkert annað en það, að vinstri stjórnin iét samþykkja lög um stofnun nýrrar nefndar. í þessari nefnd eiga sæti 3 skrifstofumenn, auð- vitað allir „vinstri“ menn. Eng- inn þeirra hefur minnstu reynsiu eða þekkingu á útflutningi eða verzlun með sjávarafurðir. En úað gerir ekkert til. Vinstri stjórnin þurfti bara að búa tii nefnd. Það gerði ekkert til þótt mennirnir, sem í henni voru hefðu ekkert vit á því, sem þeir endur sjálfir, útvegsmenn og áttu að fjalla um. En það skipulag, sem framleið sjómenn í öllum landshlutum, höfðu byggt upp um afurðasölu sina helzt auðvitað óbreytt. Allt blaðrið um „arðrán“, „afætustarf semi“ og „einokun" útflutnings- framleiðslunnar er að engu orð- ið, Misnotkun láuastofn- ana Önnur meginásökun vinstri flokkanna á hendur Sjálfstæðis- flokknum var sú, að hann mis- notaði völd sín og áhrif í lána- stofnunum þjóðarinnar á hinn herfilegasta hátt. Til þess að hindra þetta, setti vinstri stjórn- in all marga fylgismenn sína í bankastjórastöður og bankaráð íslenzkra lánastofnana. En hefur nokkur maður orðið þess var að meira réttlæti ríkti í úthlutun lánsfjár nú en áður Hefur nokk ur maður séð það fé vaxa, sem bankarnir hafa til útlána í þágu atvinnulífs og einstaklinga? Vissulega ekki. Engin breyting hefur orðið til batnaðar á starf- semi bankanna. Fjármagn þeirra hefur ekki vaxið og enginn hef- ur orðið var aukins réttlætis við lánaúthlutun. Eina breytingin sem gerzt hefur er sú, að nokkr- ir kommúnistar, Alþýðuflokks- menn og Framsóknarmenn hafa fengið bankastjóra- og bankaráðs stöður. *• Þetta er eina breytingin, sem gerzt hefur. En ekki einn einasti íslendingur trúir því, að hags- muna almennings sé i nokkru betur gætt eftir að kommúnist- um, Framsóknarmönnum og Al- þýðuflokksmönnum fjölgaði í bankastjórastöðum. Þetta voru þá afrek vinstri stjórnarinnar á þessu sviði. Nú eru þeir vaknaðir Kommúnistar hafa nú flutt til lögu á Alþingi um að reka her- inn úr landi. Þetta mátti víst ekki seinna vera. 1 hálft þriðja ár hafa kommúnistar setið í ríkisstjórn og ekki hreyft legg eða lið til þess að framkvæma það fyrir- heit sitt og allra flokka vinstri stjórnarinnar, að reka hið ame- ríska varnarlið úr landi. En nú eru kommúnistar farnir úr ríkis- stjórn. Þá er óhætt að hreyfa við þessu máli á ný. Þá kostar það hvorki Hannibal né Lúðvík ráð- herrastól að krefjast brottrekstr- ar hersins úr Keflavík.!!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.