Morgunblaðið - 18.02.1959, Page 2
monr.rriynLÁÐiÐ
Miðvik'odagur 18. febr. 1959
Nýr gervihnöttur Bandaríkjanna
Veldur bylfingu í veðurathugúrium
CAPE CANAVERAL, 17. febrúar.
— Enn ein tilraunin var í dag
eerð með Vanguardflugskeyti —
og nú heppnaðist allt vel. Flug-
skeytið flutti lítinn 9,8 kg. gervi-
hnött út í geiminn — og 11 mín-
útum eftir að hinni 10 tonna og
liðlega 21 meters löngu eldflaug
▼ar skotið upp frá Cape Cana-
veral á Florida hóf hnötturinn
(öngu sína umhverfis jörðu.
★
Hnötturinn, sem hlotið hefur
nafnið Vanguard 2. er hálfur
meter í þvermál hann gengur 16
sinnum umhverfis jöi-ðu á sólar-
hring — og mun haldast á lofti
í mörg hundruð ár. Mesta fjar-
lægð hans frá jörðu er 2.560 km.
Mælitæki og útbúnaður í hnett-
inum er nýstárlegur og talinn
valda byltingu í veðurfræði. 11
móttökustöðvar allt umhverfis
hnöttinn taka reglulega við hljóð-
Viðrœðudagur kennara
og foreldra
í Laugarnesskólanum
a morgun
Á MORGUN, fimmtudaginn 19.
febrúar, verður í Laugarnesskól-
anum svokallaður foreldradagur.
Þann dag fellur öll kennsla nið-
ur í skólanum, en kennarar verða
við hver í sinni stofu til viðræðna
við foreldra eða aðstandendur
barnanna um námið og til að gefa
upplýsingar, sem nýlokið miðs-
vetrarpróf hefur gefið, og um
■kólagöngu barnsins almennt.
Skólastjóri Laugarnessskólans
hefur sent foreldrum barnanna
bréf um þetta mál og hvatt þá
til að koma þennan umrædda
dag, til samstarfs og viðtals við
kennarana. í bréfinu er tilgreint
hvenær og hvar í skólanum hver
kennari verður til taks umrædd-
an dag.
A skólastjóri Laugarnessskól-
ans þakkir skildar fyrir þetta
framtak. Er ekki að efa að for-
eldrar vilja nokkuð á sig leggja
til að styðja að góðum árangri
aí námi og starfi barna sinna í
Hættn við oð
bjdðo Krúsjeff?
KAUPMANNAHÖFN, 17. febr.
Einkaskeyti til Mbl. — H. C.
Hansen, forsætisráðherra Dana,
hefur látið svo ummælt, að legg-
ist íhaldsmenn og vinstrimenn
í utanríkismálanefnd þingsins
gegn því að Krúsjeff verði boðið
til Danmerkur í sumar, muni
endanleg ákvörðun um boðið
verða tekin í Ijósi þeirra stað-
reynda.
skólanum og að þeir muni nota
þetta tækifæri til að taka upp
samstarf við kennarana.
Verið vakandi,
segir Bourgiba
TUNIS, 17. febrúar — Bourgiba
upplýsti í dag, að hann hefði farið
þess á leit við fulltrúa Túnis hjá
Sameinuðu þjóðunum, að þeir
vektu athygli öryggisráðsins á á-
standinu á landamærum Túnis
og Alsír. Kvað hann Túnisstjórn
og vera reiðubúna til þess að
gera einhverja tilslökun gagnvart
aðstöðu Frakka í flotahöfninni
Bizerta, ef Frakkar sæju sig um
hönd í Alsír.
Kýr ber 3 kálfum
HÚSAVÍK, 17. — Enn hefur kýr
ein í Reykjadal borið fleiri kálf-
um en einum og fleiri en tveim
og urðu þeir þrír talsins, en eng-
inn þeirra lifði. Þetta gerðist á
bænum Lautum í Reykjadal. Kýr
þessi átti að bera fyrir tæplega 2
mánuðum síðan. Þar sem svo
langt var komið fram yfir tím-
ann, kallaði bóndinn, Garðar
Jakobsson á Einar dýralækni
Björnsson. Sagði hann kúna vera
með dauðann kálf. Gaf hann
henni síðan meðal sem framkalla
skyldi burð og verkaði meðalið
svo sem til hafði verið ætlast. í
gærkvöldi bar kýrin og var kálf-
urinn dauður og vanþroska. Bónd
inn mjólkaði siðan kúna og gekk
frá henni. Er hann kom út í fjós
í gærmorgun, brá honum heldur
í brún, því í flórnum lágu tveir
dauðir kálfar ósjálegir eins og
hinn fyrsti. Þótti auðljóst að þeir
hefðu drepizt í kúnni fyrir löngu
síðan.
Kýr þessi er 3 vetra og hefur
hún reynzt góð mjólkurkýr. —
SPB
merkjum frá hnettinum, sem að-
allega gefa til kynna skýjamynd-
anir umhverfis jörðu. Hnöttur-
inn veitir og aðrar veðurfræði-
legar upplýsingar. Og með þess-
um upplýsingum er hægt að gera
mynd af skýjamynduninni eins
og hún lítur út utan úr geimnum.
★
Bandaríkjastjórn hefur til-
kynnt, að öllum hinum 66 þjóð-
um, sem tekið hafa þátt í rann-
sóknum alþjóðlega jarðeðlis-
fræðiársins verði gefin kostur á
að fá jafnóðum upplýsingar þær,
sem þessi nýi hnöttur lætur í té.
7 létust af
tréspíritus
ISMAILIA, 17. febr. — f morg-
un kom 12 þús. lesta norskt olíu-
flutningaskip til hafnar í Ismail-
ia. Höfðu 22 - skipverjar
veikzt alvarlega vegna tréspíritus
drykkju — og lézt hinn fyrsti
um það leyti, er skipið sigldi i
höfn. Hinir voru allir fluttir í
sjúkrahús — og lézt hinn sjöundi
síðdegis í dag, en nokkrir voru
enn í mikilli hættu. Yngstur
hinna látnu var aðstoðarmat-
sveinn, 22 ára gamall.
Nú er hver síðastur að sjá „Alla syni mína“, leikrtt Arthura
Millers, sem hlotið hefur einstaklega góðar viðtökur. Leikriti*
er sýnt í Iðnó á morgun (fimmtudagskvöld) í 29. slnn. —■
Myndin sýnir leikstjórann, Gísla Halldórsson, Helgu Valtýa-
dóttur og Brynjólf Jóhannesson. Myndin var tekin á æfinga.
Menderes slapp
Flugvél hans fórst og 12 manns
naumlega
febr.
LONDON, 17.
mikillar þoku á Lundúnaflug-
velli var Viscount-flugvélinni,
sem flutti Menderes, forsætisráð-
herra Tyrklands, til Kýpurráð-
stefnunnar í Lundúnum, beint til
Gatwick-flugvallarins, sem er
skammt suður af London. Fórst
flugvélin skammt frá flngvellin-
um, en Menderes komst lífs af.
1 Gatwick var að visu einnig
þoka, en þó minni en í London
— Vegna — og þurfti flugvélin að notast
við blindflugslendingarvita flug-
vallarins. Hún náði geisla vitans
og var í eðlilegu aðflugi, þegar
hún fór skyndilega út af réttri
braut. Svo virtist sem flugmenn-
irnir misstu stjórn á flugvélinni,
hún hálf-steyptist til jarðar —
um 8 km frá brautarendanum,
sem henni var ætlað að fljúga
Steyptist flugvélin til jarðar
Endurbœtur á norsku
landhelgisgœzlunni
OSLÓ, 14. febrúar. — Þingnefnd,
sem fjallað hefur um málefni
landhelgisgæzlunnar norsku, hef
ur nú skilað áliti. Samkvæmt
niðurstöðu hennar ber að gera
landhelgisgæzluna að deild í
norska flotanum. Gerir nefndin
jafnframt tillögu um smíði
nýrra og hraðskreiðra gæzlu-
Tekur sœnska þingið í
að forða SAS-verkfalli?
KAUPMANNAHÖFN, 17. febrú-
ar — Einkaskeyti til Mbl..
Politiken segir í dag, að svo geti
farið, að stjórnir Norðurland-
anna, sem standa að SAS, geri ráð
stafanir til að tekið verði í taum-
ana vegna verkfallsboðunar
starfsmanna flugfélagsins.
★
Verkfallið, sem boðað er 1.
Btarz mundi hafa í för með sér
algera stöðvun allra flugsam-
gangna á vegum félagsins og
valda því tjóni, sem næmi hálfri
annarri millj. danskra kr. á dag.
Mundi slík stöðvun veikja mjög
fjárhagsgrundvöll þann, sem SAS
hefur verið byggt á, veikja álit
fólks um allan heim á félaginu
og þar af leiðandi spilla að-
atöðu félagsins í samkeppninni
▼ið stóru flugfélögin.
★
Kjarabætur þær, sem flugfélag
lð hefur boðið, eru í rauninni
•mávægilegar, en kröfur starfs-
manna hins vegar geysiháar. Virð
lat óhugsandi að hægt verði að
miðla málum á grundvelli þeirra.
Málgagn dönsku stjórnarinnar,
Socialdemokraten, gefur og til
kynna, að svo geti farið, að hið
opinbera grípi í taumana.
Skýrir blaðið svo frá, að SAS
sé háð sænskum lögum og lög-
leiði sænska þingið e. t. v. ein-
taumana til
hverja miðlunartillögu mun hún
þegar öðlast gildi í Norðurlönd-
unum þremur — og danskir,
sænskir og norskir starfsmenn
félagsins hafa jafna aðstöðu hvað
það snertir.
Fastlega er búizt við þvi, að
stjórnir Norðurlandanna rreði
málið sín í milli hið bráðasta og
leggi á ráðin.
skipa — og segir, að 6 slík skip
nægi, ef landhelgin verði ó-
breytt. En ef hún verður færð
út í 12 mílur dugi ekki færri
en 8. Verð hvers skips um sig
er áætlað 7,5 millj. norskra kr.
Þá er gert ráð fyrir að leigja
flugvélar til gæzlustarfanna
öðru hverju.
AKRANESI, 17. febrúar. — A
sunnudagsmorguninn, þegar
þrumuveðrið stóð sem hæst, sló
eldingu niður í eitt skiptiborð-
anna í símstöðinni á Akranesi.
Næturvörðurinn greip blöð af
skiptiborðinu svo ekki kviknaði
í þeim — og átti síðan fótum
fjör að launa. Þegar hann stakk
höfðinu inn um dyragættina
drykklangri stundu síðar, var
allt með ró og spekt. Síðar kom
í ljós, að um 50 númer í bænum
voru sambandslaus.
Krúsjeff kann þvi illa að sitja heima
PARÍS, 17. febrúar. — Það er
haft eftir stjórnmálamönnum í
höfuðstöðvum Atlantshafsbanda-
lagsins, að ekki sé ósennilegt að
Ráðstjórnin dragi að svara orð-
sendingum Vesturveldanna og til
lögum um utanríkisráðherrafund
um Þýzkalandsmálið þar til
heimsókn Macmillans til Rúss-
lands sé lokið. Eru menn og
þeirrar skoðunar, að Krúsjeff
reyni í einkaviðræðum við Mac-
millan að telja hann á að fallast
á rikisleiðtogafund — þar sem
Krúsjeff gæti sjálfur mætt í
broddi hinnar rússnesku fylk-1 Kvað Adenauer Rússum ekki
ingar. verða nein meiri ógnun af sam-
Á lokuðum fundi þingflokks' einuðu Þýzkalandi en V-Þýzka-
kristilega demókrataflokksins í landi eins og það er í dag — og
V-Þýzkalandi í gær sagði Aden-1 taldi hann, að alls ekki væri
auer, að fyrsta verkefni hugsan- j um neina ógnun að ræða. En ef
legs utanrikisráðherrafundar yrði V-Þýzkaland gengi úr Atlants-
að fá Rússa til þess að falla frá hafsbandalaginu mundi varnar-
úrslitakostum sínum gagnvart kerfi það, sem hinar frjálsu þjóðir
Berlín. Það hefði að visu sljákkað hafa verið að byggja upp, stór-
í Rússum síðustu vikurnar, sagði iega veikjast sagði Adenauer —
Adenauer, en við getum aldrei lý gi algerlega andvígan
verið vissir um það, að Russum , ....
finnist ekki einn góðan veðurdag Þvi, að slík raðstofun gæti komið
of mikið slakað tiL 1 til greina.
skammt frá þjóðveginum miIH
London og Brighton — og þustu
vegfarendur -þegar að slysstaðn-
um. Björgunarlið kom fljótlega
á vettvang frá flugvellinum —
og kom þá í ljós, að meirihluti
þeirra 21, sem innanborðs voru,
höfðu farizt.
Utanríkisráðherrar Breta,
Tyrkja og Grikkja sátu um þetta
leyti á rökstólum í London og
ræddu Kýpurmálið. Barst þeim
fregnin um flugslysið þegar í
stað. Hættu þeir umræðum og
biðu frekari fregna. Nokkrum
mínútum síðar barst svo fregnin
um að Menderes væri heill á
húfi. Settust ráðherrarnir þá aft-
ur að samningaborðinu.
Samkvæmt síðari fregnum
voru meiðsli Menderes töluverð.
Var honum ekið í sjúkrahús til
aðgerðar. — 12 lík höfðu þá fund-
izt. Flugvélin var frá tyrkneska
flugfélaginu og var hún í auka-
ferð — með Menderes og föru-
nauta hans á Kýpurráðstefnuna.
Fundi verður frestað á morgun
og beðið þess, að Menderes jafni
sig.
Flugvél gríska forsætisráð-
herrans, Karamanlis, var einnig
snúið til flugvallarins í Gatwick
vegna þokunnar í London.
Einn elzli íslend-
ingurinn látinn
o
LÁTINN er að Skúfslæk í Flóa
Margrét Símonardóttir, en hún
var meðal allra elztu íslendinga,
eða 102 ára gömul, og hefði orðið
103 ára 16. apríl nk. Gamla kon-
an var allt fram til þess síðasta
ótrúlega ern, en fyrir nokkrum
vikum veiktist hún af inflúenzu,
Var talið að hún myndi ná sér
eftir veikina, því að hún hafði
mikið talað um að hún gæti brátt
klæðzt á ný. En fyrir nokkrum
dögum, eða áður en hún hafði
farið á fætur á ný, tóku ættingj-
ar hennar eftir því að lífsþróttur
Margrétar virtist vera að fjara
út, enda fékk hún mjög hægt
andlát seint á mánudagskvöld. —
Hún var í heimili dóttur sinnar,
frú Ingibjargar Gísladóttur, og
Magnúsar bónda Eiríkssonar á
Skúfslæk.