Morgunblaðið - 18.02.1959, Blaðsíða 19
MiSvikudagur 18. febr. 1959
MORCVISBLAÐIÐ
19
Blómlegt start Varðar á
Akureyri
AKUREYRI, 11. febrúar. — Síð-
astliðinn föstudag var haldinn
aðalfundur í Verði, félagi ungra
Sjálfstæðismanna á Akureyri. —
Magnús Björnsson, bankaritari,
formaður félagsins, setti fundinn
og flutti skýrslu stjórnarinnar, en
starfsemi félagsins var allmikil
á sl. ári — fundahöld og stjórn-
málanámskeið. — Að lokinni
skýrslu formanns, las gjaldkeri
reikninga félagsins.
Þessu næst var gengið til kosn-
inga, en áður hafði Magnús
Björnsson eindregið beðizt und-
an endurkosningu. — Þessir voru
kjörnir í stjórn: Leifur Tómas-
■on, formaður, Gunnar Sólnes,
varaformaður, Magnús Jónsson,
ritari, Svavar Magnússon, gjald-
keri og Friðrik Friðriksson,
spjaldskrárritari. — Meðstjórn-
endur: Rafn Hjaltalín og Hafliði
Helgason. — I varastjórn voru
kjörnir: Bjarni Gestsson, Benja-
min Ármannsson og Rafn Magn-
ússon. — Þessir hlutu kosningu í
fulltrúaráð Sj álfstæðisfélaganna:
Bjarni Sveinsson, Magnús Björns
■on og Valdimar Pálsson.
A8 loknum aðalfundarstörfúm
Heimdallarfumlur
um stefnuskrá
félagsins
Á SÍÐASTA aðalfundi Heimdall-
ar var stjórn félagsins falið að
láta endurskoða stefnuskrá fé-
lagsins fyrir næsta aðalfund.
Stjórn Heimdallar kaus því á sl.
hausti nefnd til þess að hafa um-
*jón með endurskoðuninni, og
tók hún þegar til starfa.
Skipti hún stefnuskránni niður
f fimm málaflokka og skipaði
nefndir til þess að gera tillögur
f hverjum málaflokki fyrir sig.
Er nú störfum flestra þessara
nefnda að verða lokið.
Hefur verið ákveðið að halda
félagsfundi um álit nefndanna,
en aðalfundur Heimdallar í marz
gengur endanlega frá stefnu
skránni.
Fundirnir verða haldnir sem
hér segir:
Miðvikudaginn 18. febr.: Efna
hagsmál.
Sunnudaginn 22. febr.: Stjórn-
■rskráin og utanríkismál.
Miðvikudaginn 25. febr. Trygg-
lngamál og menningarmál.
Samkv. þessu verður fyrsti
fundurinn annað kvöld og verð-
ur þar rætt um efnahagsmál.
Nánar verður tilkynnt um fund-
inn í blaðinu á morgun.
— Enska
knattspyrnan
Framh. af bls. 18.
Swlndon — Chesterfleld 1:2
Wrexham — Southampton ... 1:3
Hull Clty 33 19 6 8 68:39 44
Plymouth 30 16 11 3 63:37 43
Southend 32 15 7 10 58:50 37
Colchester „ 29 12 10 7 50:38 34
Brentford 29 12 10 7 37:30 34
Southampton .... 31 12 9 10 70:52 33
Burg 31 12 8 1 53:42 32
Reading 31 12 8 11 47:41 32
Chesterfield 32 12 8 12 52:48 32
Bournemouth .... 33 13 6 14 50:53 32
Tranmere 30 12 7 11 49:44 31
Norwich C. ........ 28 11 8 9 49:41 30
Accrington 29 11 8 10 48:41 30
Halifax 29 13 4 2 47:55 30
Swindon 29 11 7 11 36:34 29
Bradford C. ........ 29 11 7 11 52:50 29
Newport Co 29 11 7 11 4747 29
Mansfield 30 11 7 12 53:65 29
Wrexham „„ 29 10 8 11 46:54 28
Q. P. R 30 10 6 14 45:62 26
S-tockport ............ 30 9 6 15 45:54 24
Notts Co. 30 6 11 13 41:63 23
Doncaster 31 8 2 21 32:65 18
Rochdale ..... 31 5 7 19 28:61 17
í gær var dregið um 6. umferð bik-
arkeppninnar ensku og þá leika þessi
liS saman:
Arsenal eCa Sheffield Utd. gegn Tott-
enham eSa Norwich City.
Blackpool gegn Luton Town.
Birmingham City eða Nottlngham
Forest gegn Bolton eða Preston.
Aston Villa gegn Burnley.
(Fyrrnefndu liðin leika á heimavelli)
flutti Gísli Jónsson, menntaskóla-
kennari, erindi um stjórnmála-
viðhorfið — einkum efnahagsmál
in, kjördæmamálið og þörfina á
stofnun nýrra atvinnugreina hér
á landi. — Þá flutti' Jónas G.
Rafnar ávarp og ræddi einkum
samskipti stjórnmálaflokkanna
og unga fólksins.
Að lokum voru frjálsar umræð
ur. — Þess má geta, að tuttugu
manns gengu í félagið á aðalfund-
inum. — vig.
Óslitin illviðratíð
í Kjós
VALDASTÖÐUM, 15. febr. —
Eftir að skiþti um veðráttu seinni
hluta janúar sl. má segja að ver-
ið hafi óslitin illviðratíð, vindur
ýmist á suðaustan, sunnan eða
suðvestan og þá oft allhvasst með
úrkomu, ýmist snjó eða rigningu.
Hefir þetta hvað eftir annað vald-
ið skemmdum á veginum norðan
Laxár. Hefir svo mikið vatn runn
ið yfir veginn á kafla, að hann
hefir orðið ófær bifreiðum. Staf-
ar þetta aðallega af því, að vatns-
ræsi sem eiga að taka við auknu
vatnsmagni, eru ekki nógu víð,
þegar mikið aukið vatn berst að.
Fyrir fáum dögum fauk í af-
takaveðri hús, sem í voru alifugl-
ar og fáeinar kindur. Hafði hús
þetta jafnast við jörðu. Ekki er
mér kunnugt um að tjón hafi
orðið á fuglunum eða fénu. Eig-
andi hússins var Jón bóndi Helga
son í Blönduholti.
Einstöku bændur hafa bei
sinu þegar veður hefir leyft. Þó
munu fleiri hafa gefið því alveg
inni frá því það var tekið á gjöf,
en það munu flestir hafa geri
sejnt i nóvember eða fyrst í des-
ember. Eitthvað mun enn úti ai
hestum sem ekki er farið að gefa
enda alltaf nógir hagar. En hest-
um fer nú fækkandi. í janúar var
víða orðið lítið um vatn og sums-
staðar vatnslaust. Nú munu flest-
ir vera búnir að fá vatn aftur.
— St. G.
Lokað
vegna jarðarfarar frá kl. 1—4 í dag.
Vátryggingafélaið h.f.
Trolle & Rothe.
Lokað í dag
milli kl. 1—4 e.h. vegna jarðarfarar Garðars Gíslasonar stórkaupmanns.
EIN AR ASMUNDSSON hri. HAFSTEINN SIGURÐSSON hdl. skrifstofur Hafnarstræti 8.
Lokað
frá kl. 12 vegna jarðarfarar
Garðars Gíslasonar stórkaupmanns.
Innf ly t j endasambandið.
Lokað í dag
vegna jarðarfarar.
.1«
¥
Skrifstofur
vorar
og féBagsmaiina
verða lokaðar í dag milli kl. 1—4 vegna jarðarfarar
Garðars Gislasonar stórkaupmanns.
FÉLAG ISLENZKRA STÓRKAUFMANNA.
Lokað
vegna jarðarfarar frá kl.
í dag.
Bifreiða og landbúnaðarvélar h.f
Brautarholti 20.
Lokað í dag
milli 12 og 4 vegna jarðarfarar.
Gísli Jónsson & Co.
Ægisgötu 10.
Skrifstofa vor
verður lokuð kl. 1—4 í dag, vegna jarðarfarar
Garðars Gíslasonar stórkaupmanns.
Verzlunarráð íslands
Hjartkær eiginkona mín
HELGA THORSTEINSSON
andaðist að heimili okkur Mímisvegi 8 þ. 16. febr. Jarðar-
förin auglýst síðar.
Árni Thorsteinsson.
Elskuleg móðir okkar
ÁSTROS jónasdóttir
Hverfisgötu 96,
andaðist í Landakotsspítla 16. þ.m.
Bðrnin.
Eiginmaður minn
JÓHANNES ÁRMANNSSON
frá Húsavík, andaðist laugardaginn 14. þ.m.
Ása Stefánsdóttir
Jarðarför litlu dóttur okkar
SIGRÉÐAR
sem lézt í Sjúkrahúsi Akraness 13. þ.m. fer fram frá
Akraneskirkju fimmtud. 19. þ.m
Athöfnin heima hefst kl 13,30 að Kirkjubraut 19.
Sjöfn Geirdal, Skúli Þórðarson.
Konan mín, móðir og tengdamóðir
GUÐRtJN MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR
Skólavörðustíg 16A,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 20.
þ.m. kl. 1,30 e.h. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Blóm og kransar afbeðin eftir ósk hinnar látnu.
Björn Guðnason, Guðmundur Björnsson,
Ólafía Karlsdóttir.
Þökkum hjartanlega auðsýndan hlýhug og kærleiksþel
við andlát og útför
ÞORVALDAR KOLBEINS
prentara.
Hildur Kolbeins, börn, tengdabörn og barnabörn.
Hugheilar þakkir flytjum við ykkur öllum nær og f jær,
sem auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát
og jarðarför
VILHJÁLMS G. SNÆDAL
frá Eiríksstöðum.
é
Fyrir hönd aðstandenda.
Elín Pétursdóttir.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug vlð
andiát og jarðarför
KRISTINS EYJÓLFSSONAR
símamanns, Hringbraut 45.
Katrín Guðnadóttir,
Margrét Kristinsdóttir, Sjöfn Björg Krlstinsdóttir,
Magnús Daníelsson, Grétar Geir Nikulásson.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
GEIRS SIGURÐSSONAR
fyrrv. skipstjóra.
Aðstandendur.