Morgunblaðið - 21.03.1959, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 21.03.1959, Qupperneq 13
Laugardagur 21. marz 1959 MORGVTSBLAÐIÐ 13 Guðmundui Helgi Ólulsson MEÐ Guðmundi Helga eins og hann var nefndur í daglegu tali, er fallinn í valinn einn af frum- herjum Keflavíkur, hann tók sterkan þátt í þeirri uppbygg- ingu, sem hófst í Keflavík upp úr síðastliðnum aldamótum og var forustumaður á því sviði á meðan heilsan entist. Guðmundur fæddist í Narfa- koti í Inriri-Njarðvíkum hinn 16. september 1883. Foreldrar hans voru Oddný Guðmundsdóttir, ljós móðir, sem eldri Keflvíkingar mega vel muna fyrir hennar far- sælu störf sem ljósmóðir í Kefla- vik um áratuga skeið, og Ólafur Magnússon, þau hjón eignuðust 5 börn og var Guðmundur þeirra elztur, eitt barnanna dó í æsku. Guðmundur var vel gefinn maður og hafði sterka löngun til að mentast, hann fór því ungur á Flensborgarskólann og var þar einn vetur, næstu tvo vetur var hann á Sjómannaskólanum og lauk þaðan prófi. Árið 1902 missti Guðmundur föður sinn, þá íluttist móðir hans til Keflavíkur með fjögur börn- in, sem eftir lifðu, þau Guðmund, Ingiber, Albert og Aldísi eftir að fyrirvinnan var horfin. Þau mynduðu þar sameigin- legt heimili og tók móðir hans þá að stunda ljósmóðurstörf eins og fyrr segir, en Guðmundur sem var elztur barnanna varð fyrir- vinnan meðan yngri börnin voru að komast á fót. Upp úr þessu fór Guðmundur að gerast athafnasamur, hann stundaði sjómennsku á skútum og opnum skipum, sem kallað var. Hann fór til Austfjarða og heppn aðist vel að afla þar, sem sagt atorkan var mikil og tókst vel með að afla nauðþurfta fyrir sameiginlega heimilið. Nú fór framsæknin og athafna þrá Guðmundar ört vaxandi sam- hliða því sem efnahagsaðstæðan batnaði, hann réðist í af stórhug að byggja myndarlegt íbúðarhús við Aðalgötu í Keflavík, sem nú er eign Þórarins Ólafssonar tré- smíðameistara, hann hafði forustu um í félagi við Ingiber bróður sinn að byggja opið skip (áttræð ing), sem Ingiber gjörðist for- maður á svo fóru þeir út í að byggja mótorbát með fleirum sem var nefndur „Framtíð" á þeim bát varð Ingiber formaður við formensku á áttræðingnum tók þá Albert bróðir þeirra svo höfðu þeir bræður forustu um að byggja annan mótorbát, sem var nefndur „Sæborg“ sem Albert varð formaður á. Var hann ávallt formaður á mótor- bátum upp frá því þar til nú fyr- ir fáum árum að hann varð að hætta fyrir aldurssakir, alla tíð var Albert í allra fremstu röð sem sjósóknari og fiskimaður. í sambandi við þessar útgerð- arframkvæmdir reisti Guðmund- ur stórt og myndarlegt fisk- geymsluhús 6g mikla fiskreiti til saltfiskverkunar, og var það al- stærsta fiskverkunarstöð í ein- staklings eigu á þeim tíma í Keflavik og þótti stórt átak þá, síðar fór hann að drífa verzlun og reisti fyrir það myndarlegt verzlunarhús rétt hjá íbúðarhúsi sínu. Síðasta stórvirki hans var að reisa þriggja hæða steinhús í Keflavík, sem stendur við Tún götu og er í daglegu tali kallað Klappinborg, sem allir Keflvík- ingar kannast við, þetta hús var fyrirhugað helmingi stærra en það er og var fyrirhugaður þar hótelrekstur. Um þetta leyti missti Guðmundur heilsuna og varð að gefast upp við sínar at- hafnir. Þannig var lífsferill Guð- mundar óslitin athafnakeðja, sem ekkert lát var á, á meðan heilsan entist. Guðmundur giftist færeyskri konu, Jónu, að nafni, í september 1912, en hún dó 1929. Þau eign- uðust 4 börn, misstu eitt ungt, en á lífi eru Ólafur, Emil og Lovísa, auk þess ól hann upp tvö stjúp- börn sem kona hans eignaðist áð- ur en þau giftust, það eru þau Vilhelm Ellefsen og Inga Nielsen. Eftir konu missirinn og samtím is að steðjaði heilsuleysi, hvarf allur athafna þróttur Guðmund- ar, fluttist hann þá til Reykja- víkur, það mun hafa verið árið 1933. Þar myndaði hann heimili með frú Guðrúnu Sigurðardóttir, sem varð honum stoð og stytta í veik- indaörðugleikum hans. Síðar lag aðist heilsa Guðmundar svo, að hann gat á ný hafið störf sér til lífsframdráttar. Hann myndaði sér þá sjálfstæðan atvinnurekstur enda undi hann ekki öðru en að vinna í eigin brauði. Nú verður þú vinur til mold- ar borinn í þinni gömlu Kefla- vík, sem í dag er orðin allt önn- ur og meir heldur en hún var á okkar uppvaxtarárum, fyrir þitt og þinna framtak og dugnað, ég þakka þér fyrir alla samferðina og vona að við hittumst glaðir og hreifir á fyrirheitna landinu eins og ávallt hér í lífi. Guð blessi þig vinur. Elías Þorsteinsson. Corunna í árekstri BREZKA blaðið Daily Telegraph skýrir frá því að brezki tundur- spillirinn Corunna hafi rekizt á brezka tundurspillinn Barrosa á sunnanverðu Atlantshafi og hafj bæði skipin skemmzt verulega. Corunna var ekki alls fyrir löngu uppi á íslandsmiðura að vernda brezka landhelgisbrjóta. Hann var annar þeirra tundurspilla, sem komu togaranum Valafelli til hjálpar, þegar Þór hafði tekið hann út af Loðmundarfirði. FER VEL MEÐ HENDU þvol SKÝRIR LITI I ULLARTAUI Þvol er betra en sápuspænir til að þvo ull, silki og nælon. Það freyðir vel og skolast mjög auðveldlega úr. Þvol þvær jafnt í köldu sem heitu vatni. Þvol skýrir liti í ullartaui. MIKILL VINNUSPARNAÐUR Fita og önnur óhreinindi renna af diskum og glösum. Ef þér hafið uppþvottagrind og notið vel heitt vatn, þá þarf hvorki að skola né þurrka og leirtauið verður ský- laust og gljáandi. ★ Þvol er einnig mjög gott til hreingem- inga, gólfþvotta, blettahreinsunar o.m.fl. ★ Þvol er mjög drjúgt. Skrifstofustúlka óskast nú þegar. Uppl. á skrifstofunni. Sjóklœðagerð íslands Skúlagötu 51. Stúlkur óskast á Hótel úti á landi. Upplýsingar í síma 10039. Stórt hús nálægt Miðbænum til sölu. Húsið er ca. 140—150 ferm., tvær hæðir kjallari og ris. Þeir sem áhuga hafa sendi nöfn sín í lokuðu umslagi á afgr. blaðsins merkt: „Gott hús — 5359“. Prjónastofan Hlín óskar eftir stúlkum sem vanar eru að sníða og sauma á samansaumingarvélar. Uppl. á Flókagötu 21. Tilkynning frá póststofunni Vegna 40 ára afmælis Póstmannafélag Islands verð- ur póststofan lokuð frá kl. 14 í dag. PÓSTMEISTARI. 6 herbergja nýtízku íbúðarhæð fæst í skiptum fyrir góða 4ra herbergja íbúðarhæð í Laugarneshverfi. Hef kaupanda að góðri 5 herbergja íbúðarhæð í Laugar- neshverfi og Vesturbænum, einnig góðri 3ja herbergja íbúð í Norðurmýri eða Vesturbænum. Mjög háar útborg- anir. STEINN JÓNSSON, hdl. lögfræðiskrifstofa — fasteigna-Sala. Kirkjuhvoli — Símar 19090 — 14951. Rafmótorar ýmsar stærðir. Verðið mjög hagstætt. = HÉÐINN = Vélaverzlun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.