Morgunblaðið - 26.03.1959, Side 3

Morgunblaðið - 26.03.1959, Side 3
Ffmmtudagur 26. mar* 1959 MORGVNBLAÐID 3 Sr. Óskar J. Þorláksson Í Ijóma páska sólarínnar að menn hafi á öllum öldum brot- ið heilan um hinn mikla leyndar- dóm krossþjónustu Jesú. Mörgum hefur krossinn orðið hneyksli, en öðrum hefur hann orðið tákn lif- andi trúar, vottur um Guðs eilífa kærleika. Yfir atburðum dymbilvikunn- ar ljómar páskasólin. Páskarnir eru hátíð lífsins í fullkomnustu merkingu þess orðs. Með upprisu sinni leiddi Jesús Kristur í ljós líf og ódauðleika, og sannaði læri- sveinum sínum að hann væri sá, sem hann sagðist vera, guðsson- urinn, og gaf boðskap sínum . ýtt lífsgildi í hugum þeirra. Og frá þessari uppsprettu trú- arinnar hafa kynslóðirnar fengið andlegan svaladrykk til þessa dags. II. Hvernig ætlar þú, sem lest þessi orð mín, að nota helgidag- ana, sem fram undan eru? Viltu ekki gefa páskaboðskapnum ofur- lítið rúm í hjarta þínu? Öll þurfum vér á þeim boðskap að halda, hvort sem oss mætir blítt eða strítt á lífsleiðinni. Þegar vér minnumst Frelsara vors við kvöldmáltíðarborðið, þá erum vér að koma til hans í sér- stökum skilningi, til þess að fá styrk hjá honum í vandamálum lífs vors. Vér megum ekki láta neina vanmáttartilfinningu eða feimni aftra oss frá því að koma að borði Drottins. Þar finnum vér bezt, að hann er vínviðurinn og vér erum greinarnar. Og í krossþjónustu hans sjáum vér hinn fórnandi kærleika. Við krossinn fáum vér styrk til þess að bera margvíslegt böl og erfið- leika, sem á veginum verða. Eng- inn kemst hjá því að reyna margt í skóla lífsins, en reynslan hefur sýnt, að samfélagið við hinn krossfesta og upprisna Drottinn hefur líknarlind andlegs kraftar. Yfir krossi Krists ég fagna, kærleiksundri Guðs og mannS, hundruð ljósin helgra sagna hverfa fyrir geislum hans. Eftir því sem fleiri og fleiri fölna lífsins stundarhnoss, eftir því er meiri og meiri, meinaléttir Jesú kross. Og í ljóma upprisunnar sjáum vér allt í nýju ljósi. Frelsari vor kvaddi þennan heim með bænar- orð á vörum; „Faðir í þínar hend- ur fel ég anda minn“, og í ár- dagsljóma hins fyrsta páskamorg uns, barst fregnin um upprisu Drottins er síðar varð lifandi reynsla í lífi allra þeirra, er hon- um stóðu næst. Líf postulanna er í raun og veru bezta sönnunin fyrir staðreynd og áhrifum upp- risu Jesú. Og nú hugsum vér til framtíðar innar í ljósi upprisunnar. Eilífðin breiðir út faðm sinn móti þeim, sem lifa í trú og trausti til Guðs handleiðslu. Einmitt nú fær páskaboðskap- urinn nýtt gildi í hugum margra. Margir hafa orðið að kveðja ást- vini sína með sorglegum og svip- legum hætti, og alltaf eru vanda. mál lífs og dauða hin sígildu við- fangsefni mannshjartans. Vér þrá um sigur lífsins og kærleikans, og þann sigur sjáum vér í bjarma páskasólarinnar. Guð gefi, að vér megum öll eignast þá trúarreynslu, sem pásk arnir fluttu lærisveinum Jesú. Hann gefi os öllum gleðilega páskahátíð. ' JHSÚS sagði: „Ég er upp- risan og lífið.“ (Jóh. 11:25). Dymbilvikan er hin kyrrláta vika kristinna manna, helguð þeim minningum úr lífi Frelsara vors, sem snerta hina viðkvæm- ustu strengi 1 hjörtum allra þeirra, sem vilja fylgjast með lífi hans. Vér sjáum Jesúm í anda, þegar hann er með lærisveinum sínum í loftsalnum í Jerúsalem og neyt- ir með þeim páskamáltiðarinnar, sem frá þeirri stundu fær nýja merkingu og verður minnisstæð- asta helgiathöfn kristinna manna og hefur fært þá nær honum í kærleika og í þjónustu. Vér erum ekki langt frá honum í Getsemane, þar sem hann dvel- ur með lærisveinum sínum í hinni hljóðu næturkyrrð, og leggur mál sín fram fyrir Drottin á örlaga- stund. Hvergi getum vér lært bet- ur auðmýkt trúarinnar en af þeirri mynd, sem sjáum þar af Frelsara vorum, þar sem hann segir: „Faðir! Allt er þér mögu. legt; tak þennan bikar frá mér, þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt.“ Og við lærisveinana segir hann: „Vakið og biðjið svo að fallið ekki í freistni." Er ekki eins og þessi orð séu hvatningar- og aðvörunarorð til vor allra, í þeim mörgu vanda- málum lífsins, sem mæta oss á lífsleiðinni. Og svo fylgjum vér Jesú á krossgöngu hans. Föstudagurinn langi með sínum minningum, minnir oss á orð hans á krossin- um: „Það er fullkomnað." Lengra var ekki hægt að komast en að gefá líf sitt í kærleiksþjónustunni fyrir oss mennina. Það er eðlilegt, ER PÁSKARNIR nálgast, fara börnin að spyrja eftir páskaeggjunum. Þau rifja það upp sín á milli, hvað þau hafi fengið stór páskaegg í fyrra og hvort það hafi verið margir ungar á þeim — og auðvitað metast þau um það, hver hafi fengið stærsta páskaeggið. í verzlunum verður ekki þverfótað fyrir páskaeggjum, sum eru stór, girnileg og skrautleg, og börnin mæna á þau vonar- augum. Mörgum þykir nóg um páskaeggjafarganið, og um það má alltaf deila. Súkkulaðiegg og silfuregg Þegar við seilumst eftir bita úr súkkulaðieggi, verður fæst- um hugsað til þess, að páskaegg eiga sér langa sögu að baki. Sá siður að gefa páskaegg mun einn- ig vera gamall. En eggin eru ekki alltaf úr súkkulaði. Öðru nær. Þau hafa verið gerð úr ýmsum efnum, mjöli, sykri og öðru matarkyns, og einnig úr varanlegri efnum — m. a. s. silfri og gulli. í ýmsum löndum eru páskaeggin venjuleg egg, gjarna máluð í skrautlegum litum, og slík egg eru mjög víða höfð um hönd i margs konar leikjum um páskana. Eggin — tákn hins nýja lífs Heiðnir menn fögnuðu komu vorsins með ýmiss konar hátíða- höldum og dýrkun frjósemisguða sinna. Eggin komu þar við sögu sem tákn þess nýja lífs, er vakn- aði með vorinu. Með Englum og Söxum voru þessi hátíðahöld t.d. helguð vorgyðjunni Ostara (má í því sambandi benda á, að pásk- ar heita á þýzku Ostern). Á þessum hátíðum voru m. a. kveikt bál vorgyðjunni til dýrð- ar. öskunni ásamt eggjaskurni var síðan dreift á akrana eða grafið í jörð og átti það að auka frjósemi akurlendisins. Heiðnir siðir færðir í kristi- legan búning Þó að páskahátíðina beri ekki alltaf upp á sama tíma á árinu, er hún samfara vorkomunni, og því hafa fjölmargir siðir, sem tíðkuðust á vorhátíðum heiðinna manna, verið teknir upp í sam- bandi við hátíðahöld kristinna manna á páskum. Prestarnir sáu í gegnum fingur við fólkið, sem ekki vildi sjá af fornum venjum, og hinir heiðnu hátíða- siðir voru færðir í kristilegan búning. 1 kaþólskri trú urðu eggin sér- stakur hátíðaréttur á páskum, þar sem bannað var að leggja egg sér til munns á föstunni. __ Þetta égg er víst hvorki úr silfri né gulli. Það er bara súkkulaðiegg. En ósköp væri garnan að opna pokann og fá sér ofurlítinn mola! Páskaegg eru eldgamalt fyrirbrigði Um 300 manns skoðuðu Ásgrímssýninguna um helgina Hún er opin kl 10-10 alla helgidagana Gíslason, menntamálaráðherra, sem opnaði sýninguna. Á sýningunni í Þjóðminjasafn- inu eru, eins og kunnugt er, 172 olíumálverk, vatnslitamyndir og teikningar, eða rúmlega helming- ur þeirra fullgerðu mynda, sem listamaðurinn ánafnaði Listasafni ríkisins eftir sinn dag. SÝNINGIN Á verkum Ásgríms Jónssonar hefur nú staðið í nokkra daga og verið vel sótt. Um helgina komu 3000 manns á sýninguna. Má búast við að marg ir muni nota páskahelgina til að skoða þessa merku sýningu, en hún verður opin alla virka daga frá kl. 1—10 og helgidaga frá kl. 10—10 fram á aðra helgi. Aðgang ur er ókeypis. Myndin hér á síðunni var tek- in í Þjóðminjasafninu opnunar- daginn. Á henni eru talið frá vinstri: Snorri Sigfússon, fyrrv. skólastjóri, forsetafrú Dóra Þór- hallsdóttir, forseti íslands herra Ásgeir Ásgeirsson, frú Bjarnveig Bjarnadóttir, frænka listamanns- ins og Jón Jónsson, bróðir hans, en þau önnuðust afhendingu lista verkagjafar Ásgríms og Gylfi Þ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.