Morgunblaðið - 26.03.1959, Blaðsíða 16
16
MORGUWBLAÐIÐ
Fimmf«t<$agnr 26. m»rz 1969
Félagslíf
Knattspyrnumenn Þróttar.
Útiæfing verður í dag kl. 2
fyrir M, 1. og 2. fl. Menn eru beðn
ir að mæta í ÍR-húsinu við Tún-
götu. Mjög áríðandi að sem flest-
ir mæti. — Þjálfarinn.
KR — Knattspyrnumenn.
Skákmót verður í öllum aldurs
flokkum á páskadag. Það hefst
kl. 2 í félagsheimilinu. 3., 4. og 5.
fl. drengir keppa hver í sínum
aldursflokki og verður verðlauna
bikar fyrir hvern flokk. — Hróks-
mótið verður fyrir 2., 1. og meist
araflokk. — Knattspyrnumenn,
fjölmennið í öllum flokkum. Mun
ið að taka með ykkur töfl og mæt-
ið stundvíslega. — Stjórnin.
KR — Knattspyrnumenn.
í dag verður innanhússmót í
knattspyrnu fyrir alla drengi I
yngri flokkum félagsins. Það hefs
kl. 2 og verður sem hér segir: —
5. flokkur kl. 2—3,30. 3. flokkur
kl. 3,30—5. 3. flokkur kl. 5—6. 2.
flokkur kl. 6—7,30. — Mætið all-
ir stundvíslega. — Stjórnin.
Farfuglar.
Dvalið verður í Heiðarbóli um
hótíðina. Fjölmennið. — Nefndin.
Sundmót ÍR
verður haldið Sundhöll Reykja-
víkur 8. apríl. Keppt verður í
eftirtöldum greinum:
100 m skriðsúnd karla (bikar).
100 m baksund karla. (Baksunds-
bikar S.S.Í.).
200 m bringusund karla.
100 ra skriðsund kvenna.
100 m bringusund kvenna.
100 m bringusund drengja
50 m skriðsund drengja.
50 m skriðsund telpna.
50 m bringusund telpna.
3x100 m þrísund karla.
Þátttökutiikynningar sendist
Guðmundi Gíslasyni Njörvasundi
34, fyrir 3. apríl.
Dansk páskegudstjeneste afholdes i Domkirken
1. páskedag kl. 2
Orinatiónsbiskup, dr. theol. Bjarni Jónsson prædiker.
Glædelig páske
DET DANSKE SELSKAB.
Aðalfundur
SJÁLFSTÆÐISH fJSSINS AKRANESI
verður haldinn í húsi íélagsins 26. marz (á skírdag)
kl. 3 e.h.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf 2. Önnur mál.
STJÖRNIN.
H V Ö T
Sjáífstæðiskvennafélagið helður
fund
í Sjálfstæðishúsinu miðvikudaginn 1. apríl n.k. kl. 8,30
eftir hádegi.
Dagskrá:
Félagsmál
Fréttir af Landsfundi
Frú Kristín Sigurðardóttír
Skemmtiatriði
Kaffidrykkja og dans.
Frú Kristín Sigurðardóttir
Félagskonur takið með ykkur gesti. Aðrar Sjálfstæðis-
konur velkomnar meðan húsrúm leyfir.
STJÓRNIN.
Silfurtungíid 'fe
★ Opið í dag frá kl. 3—5.
★ Opið í kvöld frá kl. 9—11.30.
★ Opið laugardag frá kl. 3—5.
★ Opið laugardag frá kl. 9—11,30.
★ Opið 2. í páskum frá kl. 3—5.
Hljómsveit AAGE LORANGE leikur
- ÓKEYPIS AÐGANGUR —
NÝJU DANSARNIR
Aðgöngumiðasala
2. í páskum frá kl. 4.
SILFURTUNGLIÐ
2. I páskum k). 9.
Hljómsveit
• AAGE LORANGE
0 SiHigvari:
Sigurdór —
I
LESBÓK BARNANNA
LESBÓK BARNANNA
S
Fró. yngstu höfundunum:
— Ritgerðasamkeppni —
17. Brél til Lósn frú Lóha
Kæri vinur!
Héðan er allt gott að
frétta. Öllum líður vel,
nema páfagauknum henn-
ar mömmu. Hann dó í
gær. Mamma segir, að það
sé mér að kenna, en það
er ekki rétt. Ég ætlaði
bara að fjörga hann svolít
ið, hann var svo daufur
i dálkinn í gærmorgun.
Ég hélt hann væri þyrst-
ur, svo mér datt í hug að
gefa honum svolítið úr
flöskunni, þú veizt, þess-
ari, sem pabbi verður svo
kátur af að drekka úr. Og
það fór nú 'svona.
Mamma er dálítið geð-
vond út af þessu og reynd-
ar fleiru smávegisr sem
hefur komið fyrir. Hérna
um daginn tók ég eftir
því, að fína stofuklukkan,
sem stendur á pfanóinu,
gekk svo hægt, að mínút-
urnar rétt dröttuðust á-
fram. Mér datt í hug að
laga hana, svo að hún
gengi hraðar og tíminn
væri ekki eins lengi að
líða. Svo illa vildi til, að
mamma kom að mér, þeg-
ar ég var rétt nýbúinn að
taka úr henni stóra hjól-
ið. Hún varð voðalega
vond. Hún sagðist ætla að
flengja mig og ég forðaði
mér upp á stóra skápínn,
þennan sem allt glerdótið
er L Auðvitað þurfti hann
endilega að detta og allt
fór í mask. Ég meiddi mig
ekkert, þegar ég datt, en
á eftir . . . Nóg um það!
Það eru ljótu vandræð-
in með hann afa. Hann er
alltaf að týna gleraugun-
um sínum. Mig langaði til
að hjálpa honum, svo að
um daginn keypti ég mér
lím, sem límir allt. Það
er ægilega sterkt. Ég bar
það vandlega á gleraugun
og fékk honum þau svo,
en hann hafði þá týnt
þeim rétt einu sinni. Þeg-
ar afi var búinn að lesa
Moggann, ætlaði hann að
taka af sér gleraugun og
leggja þau einhversstaðar
ó bak við eitthvað, svo að
þau týndust eins og vant
var. En þá náði hann þeim
ekki af sér.
Það varð voðalegt uppi-
stand. Afi varð alveg
grenjandi vondur og æddi
um, en mamma varð að
koma með heitt vatn í fati
og halda höfðinu á hon-
um niðri í því, þangað til
gleraugun losnuðu.
Ég var óheppinn í morg
un. Þegar ég var að ná
mér í rúsínur úr eldhús-
skápnum, felldi ég niður
piparbaukinn svo að
hann brotnaði. Hann var
næstum fullur af pipar.
Ég vildi ekki láta pipar-
inn skemmast, svo að ég
setti hann bara í saltbauk
inn, sem var hér um bil
tómur.
Jæja, nú nenni ég ekki
að skrifa þér meira. Það
er líka úti friðurinn.
Pabbi og mamma eru íar-
Kæra Lesbók!
Um leið og ég þakka
þér fyrir alla skemmtun-
ina ætla ég að senda þér
eina mannanafnagátu:
Fyrsti gerir með ísum erja,
annar byrjar viku hverja.
t>riðji hylur ásjón íta,
fjórða má í skógum líta.
Fimmti gerir að húsuxn hiúa,
sjötti gerir gufu spúa.
Sjöundi dauða sífellt fjser,
áttundi saur og mold pjakka
iær.
Vertu blessuð og sæl.
Ragnhexður Ágústsdóttir,
11 ára.
★
Kæra Lesbók!
Við ætlúm að senda þér
nokkrar skrítlur:
Mamma: — Hvernig í
ósköpunum stendur á
þessu, allur rjóminn horf-
inn úr skálinni!
Ási: — Eg-é-ég veit það
ekki, mamma, en ég sá,
in að rífast út af grautn-
um. Pabbi segir, að þetta
sé eldsterkt pipar-eitur-
bras, en mamma segir, að
það geti ekki verið. Ætli
að mér verði ekki kénnt
um, eins og vant er.
Vertu blessaður. Þinn
▼inur, L á k i.
Hrekkjalómur, 12 ára.
að hún kisa kafroðnaði,
þegar ég kom inn.
Ungur maður, sem var
nýkominn frá Ameríku,
var spurður, hvað hann
hafi gert á leiðinni.
„Ég var skipsaugnlækn-
ir“, svaraði hann.
„Skipsaugnlæknir, —
hvað er það eiginlega?"
„Ég skrældi augun af
kartöflunum".
— Hann sonur minn er
að semja skáldsögu una
þessar mundir.
— Er ekki ódýrara að
kaupa þær?
Maður nokkur gekk
fram hjá hænsnahúsi sínu
að næturþeli og heyrði
ólæti og hávaða þar inni.
— Er nokkur þarna?,
spurði hann.
— Néi, bara við ungarn
ir, var svarað innan úr
húsinu.
Guðbjörg og Guðrún.
Töfraskórnir
Hvað átti hann nú að
gera?
Fjórir, fimm, sex, sjö,
átta, níú, hélt Villi áfram
að telja eins hægt og
hann gat.
Kaldur sviti braust
fram á enni hans, meðan
hann gerði síðustu, ör-
væntingarfullu tilraun-
inrar til að koma skón-
um á fæturna á dvergn-
um. En á síðustu stundu
kom honum ráð í hug. Um
leið og hann sagði tíu,
skellti hann skónum á
hendur dvergsins einmitt
um leið og hann vaknaði.
— Hvað hefur þú gert?
æpti hann upp og réði sér
ekki fyrir reiði. — Ég skal
breyta þér í mús — ég
skal------
— Af stað til tunglsins!,
hrópaði Villi skjálfandi
af æsingi og eftirvænt-
ingu.
Og þá skéði nokkuð
skrítið. Allt í einu stóð
dvergurinn á höndunum
og fór að ganga út úr
stofunni, Því að sá, sem
einu sinni var í töfra-
skóna kominn, neyddist
til að fylgja þeim, hvert
sem þeim var skipað að
fára. Þar sem dvergurinn
hafði skóna á höndunum,
varð hann að gera sér að
góðu að ganga á þeim.
— Miskunn —. misk-
unn, æpti hann. — Taktu
þá af mér.
Meira.
tSI
— Fröken, getið þér
sagt mér, hvenær síðast
verður flogið til Vest-
mannaeyja?
— Nei, því miður, hvor
ugt okkar kemur til með
að lifa það.