Morgunblaðið - 26.03.1959, Síða 14

Morgunblaðið - 26.03.1959, Síða 14
14 MORCVJSUL 4Ð IÐ Fimmtiiðagnr 26. marz 1959 FIÐLUR CT ARINET Tilvaldar fermingargjafir — Póstsendum — GÍTARAR HLJÖÐFÆRAVERZLUN SIGRlÐAR HELGADÓTTUR Vesturver — Sími 11315. I : : Bátafélagið BJÖRG Aðalfundur félagsins verður haldinn mánud. 30. marz n.k. (annan páskadag) í fundarsal Slysavarna- félags Islands Grófinni 1 kl. 4 e.h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundastörf, Lagabreytingar, Önnur mál. STJÓRNIN. SOL GRJÓN efla hreysti eanjahvftuofni* Skrif borð Okkar nýtízku skrifborð eru kærkomin fermingar- gjöí. Fást í eftirtöldum húsgagnaverzlunum. Karli Sörheller Árna Jónssyni Laugaveg 36 Laugaveg 68. Axel Eyjólfssyni Skipholti 7. 1 _______________________________________ Framh. af bls 13 þess samkvæmt ósk iögreglu- stjóra, að þingmenn færu ekki út úr þinghúsinu, fyrr en lög- reglustjóri teldi óhætt vegna upp hlaupsins úti fyrir. Létu þing- menn Sósíalistaflokksins í Ijós nokkra óánægju út af þessu“. 60 rúður brotnar á framhlið Alþingisliússins Síðan segir Hæstiréttur: „Nokkru síðar talaði ákærði Stefán Ögmundsson úr hátalara áðurnefndrar bifreiðar að nýju. Skýrði hann frá málalokum á Aiþingi og lét þess getið, að þing- mönnum Sósíalistaflokksins væri haldið sem föngum í Alþingis- húsinu. Að vætti fjöida vitna náði upphlaupið hámarki sínu eftir þessa yfiriýsingu. Urðu lög- reglumenn því ásamt varaliðs- mönnum að gera aðra útrás, en tókst ekki að stöðva upphlaupið. Lá mörgum lögreglumönnum við stórmeiðingum, og var hætta á því, að þeir gætu ekki veitt alþingismönnum nauðsynlega vernd. Töldu yfirmenn lögregl- unnar nú ekki verða hjá gasað- gerðum komizt, en létu, nær sam tímis og gasi var beitt, tilkynna í hátalara áskorun til mannfjöld- ans að rýma Austurvöll. Var þetta tilkynnt einu sinni úr dyr- um Alþingishússins, en mun lítt hafa heyrzt, enda háreysti mikil og gnýr úti fyrir og hátalarinn ekki i fuiikomnu iagi. Er tára- gasinu var beitt, flúðu árásar- menn og annað fólk undan því, en er gasinu létti, sóttu mjög margir aftur að lögreglumönn- unum, og varð að beita táragasi öðru sinni, áður dygði. Gerðar höfðu verið ráðstafan- ir til þess, að bifreiðir kæmu að Alþingishúsinu til að flytja alþingismenn þaðan. Komu þær nú, er gasaðgerðum var að ljúka, og komust alþingismenn slysa- laust leiðar sinnar. I prófum málsins eru nafn- greindir 6 lögreglumenn, sem urðu fyrir allmiklum meiðslum í upphlaupinu. Einn þeirra hlaut hættulegt lemstur. Auk þess fengu margir aðrir lögreglumenn áverka, aðallega af steinkasti. Nokkrir menn utan lögregluliðs- ins urðu og fyrir áverkum. Eftir árásina var framhlið Alþingishússins ötuð mold og eggjum. Fjöldi af rúðum í gluggum hússins og aðaldyrum voru brotnar, þ. á. m. um 60 á framhlið þess. Einkum hafði grjóthríðinni verið beint að glugga þeim, sem er á bak við stól forseta sameinaðs Alþingis, en þar brotnuðu allar rúðurnar, 12 að tölu. Á strætinu fyrir framan Alþingishúsið og á suð- urhluta Austurvallar voru dreif- ar af mold og grjóti, sem kastað hafði verið, en hraungrýti hafði verið rifið mjög úr gangstígabrún um vaiiarins og notað sem kast- vopn“. Alþingi liikaði ekki f>etta er hinn aimenni hluti af lýsingu Hæstaréttar á því, sem gerðist fyrir utan Alþingishúsið 29. og J30. marz fyrir 10 árum. Þrátt fyrir ‘árásina lét AJþingi ekki trufla sig í störfum. Jón Pálmason, forseti sameinaðs Alþingis sat óbifanlegur í for- sæti sínu, þó að grjóthríðin dyndi að baki hans. Og ekki einn einasti alþingismaður lét stein- ana hagga neinu um atkv. sitt. Þingmenn fóru hver eftir sinni sannfæringu. Eðlilegt er, að þeg- ar mikilvægar ákvarðanir á að taka, séu menn ósammála. Hins verður að krefjast, að þeir sem tekið hafa að sér forystu með setu á Alþingi, fylgi sannfær- ingu sinni og láti ekki undan síga fyrir hótunum um valdbeitingu. í sögu Alþingis hefur eftir end- urreisn þess aldrei fremur á þetta reynt en 30. marz 1949, og þá raun stóðust alþingismenn með prýði. Gugnuðu á framkvænid ályktunarinnar frá 28. marz Þessa dagana er annað af- mæli, sem vert er að hafa í huga. Hinn 28. marz fyrir þremur ár- um samþykkti Alþingi áiyktun um brottrekstur varnarliðsins. Sú samþykkt var síðan tekin upp í stjórnarsáttmála V-stjórn- arinnar. Þegar til kom gugnuðu fylgjendur þeirrar ályktunar þó á því að framfylgja henni. Einn af ráðherrum V-stjórnarinnar, Lúðvík Jósefsson, hefur í grein hinn 1. marz sl. sagt frá ástæð- unum til þess, að svo fór. Orð- rétt segir Lúðvík: „Ástæðan til frestunarinnar var sú, að með hernaðarárás Breta og Frakka á Súez og óeirð- unum, sem brutust út I Ungverja landi í nóvembermánuði, tókst hernaðarsinnum og ýmsum aft- urhaldsöflum í Reykjavík að þyrla upp siíku moldviðri blekk- inga og æsa svo upp ýmsa sak- leysingja, að óhugsandi var, á meðan sú æsingaalda stóð yfir að koma fram endurskoðun á hernámssamningunum við, Banda ríkin í þeim anda, sem Alþingi hafði ákveðið. Þeir aðilar úr Framsóknar- og Alþýðuflokknum, sem lofað höfðu að vinna að því að herinn færi úr landi, gáfust upp fyrir þessum æsingum afturhaldsins, sem skipulagði upphlaup hér og þar í bænum, braut rúður í hús- um, réðist á fólk og hótaði lim- lestingum“. Hvað sem menn segja um at- burðina, sem hér urðu 7. nóvem- ber 1956, aðallega fyrir utan rúss neska sendiráðið, þá þarf ekki um það að fjölyrða, að öll er frá- sögn Lúðvíks Jósefssonar af þeim mjög ýkt. Atferli þeirra, sem þá höfðu óspektir í frammi, var sízt lofsvert, heldur þvert á móti til þess lagað að spilla góð- um málstað, eins og Morgun- blaðið þegar sagði hinn 8. nóv. 1956. Þetta uppþot var þó bama- leikur miðað við það sem gerzt hafði 29. og 30. marz 1949. Samt segir Lúðvík, að þessir atburðir hafi nægt til að hræða megin þorra fylgjenda ályktunarinnar 28. marz 1956 frá að framkvæma hana. Ef sú frásögn V-stjórnar- herrans er rétt, hefur vissulega ekki mikill sannfæringarkraftur fylgt óheillaályktuninni, sem gerð var 28. marz 1956 og endur- nýjuð var með V-stjórnarsátt- málanum. Málflutningsakrif&tofa SVEIiNBJÖRIS DAGFINNSSON EINAR VIÐAR i Hafnarstræti 11. — Simi 19406. Ásgrímssýningin i Listasafni ríkisins í Þjóðminjasafninu er opin virka daga kl. 13—22, og helgi- og hátíðisdagana frá kl. 10—22. Aðgangnr ókeypis. Til leigu 130 fermetra nýtt húsnæði fyrir skrifstofur, teikni- stofur eða iðnað á góðum stað í bænum. Þeir, sem áhuga hafa á húsnæði þessu, sendi nöfn sín í umslagi til afgreiðslu blaðsins merkt: „Víðsýnt — 5424“ fyrir 1. apr. Pearce Duff CBRDUFT bregst engum. Reynið gerduftið í ,bláu dós- inni“ í dag. Munið einnig „köldu Búðing- anna“ frá Pearce Duff. Trjástofninn h.f.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.