Morgunblaðið - 26.03.1959, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 26.03.1959, Qupperneq 24
VEÐRIÐ Austan kaldi, skýjað, e.i úrkomulítið. Reykjavíkurbréf Sjá bls. 13 71. tbl. — Fimmtudagur 26. marz 1959 Þessi unga stúlka vinnur í búð og selur páskaegg. Hún hefur undanfarna daga selt hundruð ef ekki þúsundir af þeim. Þegar ljósmyndari blaðsins tók þessa mynd af henni var hún að selja stærðar egg, sem hún heldur á. Grein um páskaegg er á bls. 3 í blaðinu í dag. Góðviðri um allt land Norðaustanátt og kólnandi veður í aðsigi UNDANFARNA daga hefur verið austanátt eða suðaustlæg átt um allt land, og gott veður, nema •mávegis strekkingur við suður- (tröndina og rigning. Líkur eru Varðarkaffi verður n. k. laugardag Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt heldur fund í Sjálfstæðishúsinu miðvikudaginn 1. apríl. Fundir félagsins I vetur hafa verið fjöl. mennir og þar ríkt mikil eining. Vonast stjóm Hvatar til að konur fjölmenni ekki síður á þennan fund. Á fundinum verða rædd félags- mál og Kristín Sigurðardóttir segir fréttir af landsfundinum. Á eftir verða skemmtiatriðL Félagskonum er heimilt að taka með sér gesti og öllum Sjálfstæð- iskonum er heimill aðgangur með an húsrúm leyfir. til þess að á föstudag eða laugar- dag snúist til norðaustanáttar og því fylgi kólnandi veður, að því er Veðurstofan tjáði blaðinu. Or- sökin er lægð, sem virðist líkleg til að fara fyrir sunnan land. í gær var hlýtt um allt land. Sunnanlands var víða 8 stiga hiti. Norðanlands voru 4—7 stig, hlýj- ast á Ak:'.reyri, 7 stig. Minnstur hiti mældist á Egilsstöðum, 3 stiga hiti. í dag er gert ráð fyrir austan eða suðaustan kalda við Faxa- flóa, skýjum, en lítilli rigningu, og fyrir norðan er spáð góðviðri. Hálf millj. kr. lán 1H1 Atvinnuleysiistrygigingasjóður hefur tilkynnnt bæjarráði að sjóð- urinn hafi veitt 500.000 króna lán til byggingar verkamannahúss þess við Reykjavíikurhöfn, sem bærinn er nú að láta byggja. Nýtt Valafellsmál í uppsiglingu Þór stöðvar togara innan v/ð 4 milna mörkin 1 GÆRKVELDI voru allar horf- ur á því að nýtt Valafellsmál væri í uppsiglingu, því heyra mátti á bátabylgjum að alvar- lega hefði skorizt í odda milli skipherrans á Þór og skipherr- ans á herskipinu Palliser. Ekki var vitað hvar atburður þessi gerðist, en af skeytunum milli skipanna mátti ráða að varðskipið Þór hefði staðið gaml- an Fleedwood-togara, sem Cord- ella heitir, að ólöglegum veiðum langt fyrir innan línu. í orð- sendingu Eiríks Kristóferssonar, skipstjóra, krafðist hann þess að brezka herskipið stöðvaði án taf- ar hinn brezka veiðiþjóf, sem verið hefði að ólöglegum veiðum fyrir innan gömlu fjögurra mílna lníuna. Eiríkur skipherra kvaðst og vilja mótmæla harðlega ógn- unum brezka herskipsins. Hann kvaðst mundu senda skipsmenn af Þór yfir í togarann, ef skip- herrann á Palliser stöðvaði ekki veiðar hans. Skömmu síðar mátti heyra svarskeyti skipstjórans á Palliser, sem var á þá leið, að hann hefði fullkomlega skilið skeyti skip- herrans á Þór. Hann kvaðst hafa sent skeyti til flotamálaráðu- neytisins brezka um þennan at- burð, en á meðan hann biði svarl hefði hann lagt fyrir skipstjór- ann á togaranum „Cordella" aS halda áfram veiðum, en í skeyt- inu til Eiríks skipherra á Þór kvaðst skipherrann á Palliser mundu stöðva ásarnt áhöfn tog- arans hverja tilraun, sem Þón- menn gerði til þess að fara um borð í togarann. í gærkvöldi leitaði blaðið eftir nánari upplýsingum hjá Land- helgisgæslunn-i um þennan at- burð, en hún varðist allra frétta, en kvað hér um alvarlegt mál aS ræða. Borholan v/ð Hátún gefur góðar vonir í GÆR var lokið borun eftir heitu vatni með stóra bornum við Hátún. Borað var 750 m. niður og er búist við að vatnsmagn og hiti í þessari holu sé svipað og í borholunni við Laugarnesveginn, að því er Gunnar Böðvarsson, verkfræðingur tjáði blaðinu í gær, en sú hola var sú bezta sem fengizt hefur hér. Hitinn á botni hennar var 130 stig. Er reiknað með að þarna sé um mikið vatnsmagn að ræða, en gera verður ráð fyrir að sam- band sé á milli þessara tveggja stóru hola, og því muni opnun holunnar við Hátún draga eitt- hvað úr vatnsmagninu í holunni við Laugarnesveg. Seint í gærkvöldi lagði þegar mikla gufu úr holunni og hafði slökkviliðið verið fengið til að- stoðar við að dæla vatni í tank, en því var síðan þrýst úr hon- um niður í borholuna til þess að halda gosinu niðri á meðan Fullyröingar um misþyrm- ingar hafa ekki við rök að styöjast 1 GÆRKVÖLDI barst Mbl. ýtar- leg greinargerð frá Barnavernd- Neytendasamtökín leito úrskurSar dómstóla vegno „gæðasmjörsins" STJÓRN neytendasamtakanna af henti í gær borgardómara kæru á hendur Osta- og Smjörsölunni s.f. fyrir meint brot á lögum nr. 84, frá 1933 um varnir gegn óréttmætum verzlunarháttum. — Eins og áður hefur verið getið var Osta- og smjörsölunni gefinn frestur til 20. marz til að verða við þeim tilmælum Neytendasam takanna að láta framleiðslustaðar getið á umbúðum smjörs og fella jafnframt niður vöruheitið „gæða smjor. Fyrirtækið svaraði Neytenda- samtökunum með bréfi 18. þ. m. en varð ekki við tilmælum þeirra. Ákvað stjórn Neytendasamtak- anna þá að leita úrskurðar dóm- stólanna um þetta mál. Mbl. fékk þessar upplýsingar í gær, er það sneri sér til Sveins Ásgeirssonar formanns Neytenda samtakanna og innti hann frétta af málinu, sem almenningur hef- ur fylgst með af miklum áhuga. arnefnd Reykjavíkúr út af grun- semdum um misþyrmingu á ung- barni. Hér í Mbl. var sagt frá barni þessu er það hafði verið um nokkra hríð í sjúkrahúsinu, en er komið var með það þang- að, var það mjög illa útlítandi og vanhaldið. Var þess getið í skýrslu læknis að hugsanlegt væri að því hefði verið mis- þyrmt. 1 greinargerð Barnaverndar- nefndar, sem sjálf hefur haft at- hugun á máli þessu með hönd- um, og einnig rannsóknarlög- reglan, segir á þessu leið: „Við rannsókn þessa hefur ekkert komið í Ijós um það, að full- yrðingar þær og getsakir, er fram hafa verið bornar um mis- þyrmingu á umræddu barni, hafi við rök að styðjast.“ Mbl. mun síðar birta greinar- gerð Barnaverndarnefndar um mál þetta. verið var að ná bornum npp, — Var jafnvel búizt við al þessi nýja borhola yrði þegaf beisluð í nótt. — Brezkir landhelg- isbrjótar SANDGERÐISBATARNIR þrír. sem enn eru með línu, reru djúpt út í gær, út fyrir fjögurra mílna mörkin. Þegar þeir voru að leggja, sáu þeir hvar komu brezkir tog- arar, en þeir hafa áður lítið orðið varir brezkra landhelgisbrjóta. Flautuðu togararnir og héldu sínu striki. Urðu bátarnir að vífcja því togararnir gegndu engum merkjum. Þegar bátarnir fóru að draga línuna kom í ljós að á vant- aði þriðjung og upp í helming* Afli var góður á þá h'nu, sem náðist, en eins og áður er getið höfðu bátarnir tapað miklu af veiðarfærunum. Akranesbátar af la vel AKRANESI, 25. marz: — Undan farna þrjá daga hefur afli Aki-a- nesbáta verið afar góður, svo að þeir hafa það sem af er vikunni, en miðvikudagurinn þó ekki með- talinn, landað alls um 1000 tomn- um af fiski. Þriðjudagsaflinn hjá flotanum (20 bátum) var 315 tonn alls. — Komst aflahæsti báturinn, Böðv- ar, upp í 37 tonna afla. Næst hæsti báturinn var með 28 tonn og sá þriðji með 24 tonn. Tvöslysígær ÞAÐ slys varð í gær á móts við Þverveg 3 í Reykjavík, að Kjart- an Georgsson, féll af dráttarvél og mun hafa meiðst talsvert. — Maðurinn var fluttur í Slysavarð- stofuna. Síðdegis í gær fékk stúlka að- svif í Sláturfélagi Suðurlands og meiddist hún á höfði er hún féll. Hún var einnig flutt í Slysavarð- stofuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.