Morgunblaðið - 22.04.1959, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 22. am-u 1059
MORCVNBT. AÐIÐ
17
Mikilvægri upplýsingaþjónustu
hrundið í framkvæmd
Frá opnun „Byggingarþjónustunnar"
sl. laugardag
SÍÐASTLIÐINN laugardag
opnaði Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri, nýstárlegt og
merkilegt „fyrirtæki'* að
Laugavegi 18 A hér í bæ, er
hlotið hefur nafnið „Bygg-
ingarþjónustan“. — Er hér
um að ræða fastasýningu á
byggingarefnum og tækjum
og öðru því, er að byggingum
og byggingarstarfsemi lýtur.
— Verður sýning þessi fram-
vegis opin öllum almenningi
kl. 1—6 síðd. alla virka daga,
nema laugardaga, þá er hún
opin kl. 10—12 f. h. — auk
þess miðvikudaga kl. 8—10
síðd., og geta menn þar feng-
ið hinar margvíslegustu upp-
lýsingar endurgjaldslaust. Að
gangur að sýningunni er
einnig ókeypis. — Það er fyr-
ir forgöngu Arkitektafélags
íslands, að þessi merkilega
starfsemi er nú hafin.
Tildrög og hlutverk
Við opnunarathöfnina á laugar
daginn voru viðstaddir Emil Jóns
son, forsætisráðherra og Friðjón
Skarphéðinsson, félagsmálaráð-
herra, auk allmargra gesta ann-
arra. Athöfnin hófs með því, að
Gunnlaugur Halldórsson, formað
ur. Arkitektafélags fslands, flutti
ávarp, þar sem hann rakti til-
drögin að sýningu þessari og hlut
verk hennar. — Sagði hann m.a.,
að þetta væri raunar ekki fyrsta
byggingarefnasýning hér á landi
— þar væri skemmst að minnast
iðnsýningarinnar miklu, sem hér
var haldin fyrir nokkrum árum
— en þetta væri hin fyrsta sinn-
ar tegundar, „sem ætlað er að
standa áfram — öllum til nokk-
urs gagns og hjálpar, þeim er
starfa að byggingarmálum, eða
láta sig þau nokkru varða“.
Lengi á döfinni
Gunnlaugur kvað fyrirmyndir
af slíkri starfsemi til víða um
heim, og hefðu arkitektar víðast
hvar beitt sér fyrir að koma
henni á fót, en ríkisvaldið víða
styrkt hana og jafnvel tekið að
sér reksturinn. Kvað hann Arki-
tektafélag íslands lengi hafa haft
hug á að koma þessu máli í fram-
kvæmd og haft nefndir starfandi
í því skyni um margra ára skeið.
Nú hefði hins vegar meira rekið
á eftir en áður, vegna þess hve
byggingarhættir væru orðnir
fjölbreyttir og eins ykist framboð
byggingarefnis og fjölbreytni svo
með degi hverjum, að ekki væri
á neins manns færi að henda þar
reiður á. Byggingariðnaðurinn í
landinu væri orðinn ótrúlega mik
ill, og margt væri nú hægt að gera
hér eins vel og oft jafnvel betur
en viða erlendis. Slík kynningar-
starfsemi sem Byggingarþjónust-
an væri því orðin brýn nauðsyn
og nánast óumflýjanleg.
í nóv. sl. árs var hafizt handa
um að kanna undirtektir vænt-
anlegra þátttakenda í slíkri
fasasýningu. Voru undirtektir
mjög góðar. Arkitektafélagið sam
þykkti síðan tillögur og áætlanir
starfandi framkvæmdanefndar og
fól henni að Ijúka við að stofna
Byggingarþjónustu A. í. Fleiri
umsóknir bárust um sýningar-
svæði en hægt var að sinna, en
sýnendur eru 46 talsins. Nokkrir
þeirra eiga enn eftir að koma
sýningum sinum fyrir. — Af þátt
takendum er röskur helmingur
iðnfyrirtæki, sem framleiða
byggingarefni, byggingarhluta
og tæki, en knappur helmingur
er innflutningsfyrirtæki.
Rekstrartilhögun
Gunnlaugur Halldórsson kvað
þessa starfsemi verða rekna með
þeim hætti, að leigutekjum af
sýningarsvæðinu væri ætlað að
standa undir rekstrarkostnaði, en
öll þjónusta við almenning yrði
veitt ókeypis. — Jafnframt væri
Frá Byggingarþjónustunni.
sýnendum veitt aðstaða til að
kynna vörur sínar með fyrirlesr-
um og myndasýningum í hliðar-
sal við sýningarsvæðið. — Hann
kvað starfslið stofnunarinnar
mundu gera sér far um að veita
sem haldbeztar upplýsingar
tæknilegs efnis og svara fyrir-
spurnum um vinnuaðferðir, efn-
isnotkun o.s.frv. Einnig mundu
veittar upplýsingar viðskiptalegs
eðlis, er samrýmzt gætu viðskipta
legri samkeppni. — Við lok
máls síns þakkaði Gunnlaugur
Halldórsson, fyrir hönd A. I.,
öllum þeim, er stuðlað hefðu að
framgangi þessa máls. — Síðan
bað hann borgarstjóra að opna
sýninguna,
Mikilvæg upplýsingaþjónwsta
í stuttri ræðu minntist borgár-
stjóri m.a. á hið mikla átak, sem
hér hefði verið gert í bygging-
armálum á skömmum tima. Taldi
hann upplýsingaþjónustu þá, er
hér væri stofnað til, mjög mikil-
væga, og e.t.v. væri hennar enn
meiri þörf hér en víðast annars
staðar vegna óvenjumikillar og
almennrar þátttöku almennings
í byggingarstarfsemi. Hér hefðu
fleiri einstaklingar komið sér
upp eigin húsnæði en víðast hvar
annars staðar. — Þakkaði borg-
arstjóri Arkitektafélagi Islands
forgöngu þess um þetta nauð-
synjamál og bar fram þær óskir,
að starfsemin mætti verða mikil
lyftistöng allrar byggingarstarf-
semi í landinu. — Sagði hann
síðan Byggingarþjónustuna opn-
aða.
Margt að sjá
Gestir tóku nú að skoða sýn-
inguna og var þar margt að sjá.
Er sýningunni allri mjög smekk-
lega fyrir komið. Hvert fyrirtæki
hefir þar afmarkaðan „bás“, en
þeir eru að sjálfsögðu misstórir
eftir aðstæðum, — Hér verður
sýningunni ekki lýst í einstökum
atriðum, en þar má yfirleitt sjá
hvaðeina ,sem til bygginga þarf,
allt frá skrúfum og róm, hurðar-
lömum og læsingum upp í bað-
herbergis- og eldhúsinnrétting-
ar, lofthitunarkerfi, miðstöðvar-
katla og rafgeisla-hitunarkerfi.
Víða liggja frammi smekklegir
myndskreyttir upplýsingabækl-
ingar um vörur viðkomandi fyrir
tækis.
Þess má að lokum geta hér, að
í framkvæmdanefnd þeirri, er
undirbjó þetta mál og kom því í
framkvæmd, voru eftirtaldir arki
tektar: Sigurður Guðmundsson,
er lézt í des. sl., Gísli Halldórsson,
Gunnlaugur Pálsson og Gunn-
laugur Halldórsson. Þeim til að-
stoðar var Guðmundur Kr. Krist
insson ,húsameistari, en hann hef
ir verið ráðinn framkvæm’da-
stjóri Byggingarþjónustunnar.
Á sunnudaginn var sýningin
opnuð almenningi, og var aðsókn
mjög mikil bæði þá og í gærdag.
Bifreiðasmiðir óskast
eða menn vanir body-viðgerðum.
Bifreiðaverkstæðið Múli. Sími 32131.
ATHUCIÐ !
Vörukynning i EGILSKJÖiKI í dag
(Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Hjukrunarkona óskast
á Sjúkrahúsið Sólheima.
Uppl. hjá yfirhjúkrunarkonunni.
Auglýsing
um skoðun bifreiða
i lógsagnarumdæmi
Reykjavíkur
Samkvæmt umferðalögum tilkynnist hér með, að að-
alskoðun. bifreiða fer fram 24. apríl til 6. ágúst n.k., að
báðum dögum meðtöldum, svo sem hér segir
Föstud. 24. apríl R-1 til R-150
Mánudaginn 27. — R-151 — R-300
Þriðjudaginn 28. — R-301 — R-450
Miðvikud. 29. — R-451 — R-600
Fimmtud. 30. - R-601 — R-750
Mánud. 4. maí R-751 — R-900
Þriðjud. 5. — R-901 — R-1050
Miðvikud. 6. — R-1051 — R-1200
Föstud. 8. — R-1201 — R-1350
Mánud. 11. — R-1351 — R-1500
Þriðjud. 12. — R-1501 — R-1650
Miðvikud. 13. — R-1651 — R-1800
Fimmtud. 14. — R-1801 — R-1950
Föstud. 15. — R-1951 — R-2100
Þriðjud. 19. — R-2101 — R-2250
Miðvikud. 20. - R-2251 — R-2400
Fimmtud. 21. — R-2401 — R-2550
Föstud. 22. — R-2551 — R-2700
Mánud. 25. — R-2701 — R-2850
Þriðjud. 26. — R-2851 — R-3000
Miðvikud 27. — R-3001 — R-3150
Fimmtud. 28. — R-3151 — R-3300
Föstud. 29. — R-3301 — R-3450
Mánud. 1. júní R-3451 — R-3600
Þriðjud. 2. — R-3601 — R-3750
Miðvikud. 3. — R-3751 — R-3900
Fimmtud. 4. — R-3901 — R-4050
Föstud. 5. — R-4051 — R-4200
Mánud. 8. júní R-4201 — R-4350
Þriðjud. 9. — R-4351 — R-4500
Miðvikud. 10. — R:4501 — R-4650
Fimmtud. 11. — R-4657 — R-4800
Föstud. 12. — R-4801 — R-4950
Mánud. 15. — R-4951 — R-5100
Þriðjud. 16. — R-5101 — R-5250
Fimmtud. 18. — R-5251 — R-5400
Föstud. 19. — R-5401 — R-5550
Mánud. 22. — R-5551 — R-5700
Þriðjud 23. — R-5701 — R-5850
Miðvikud. 24. — R-5851 — R-6000
Fimmtud. 25. — R-6001 — R-6150
Föstud.. 26. — R-6151 — R-6300
Mánud. 29. — R-6301 — R-6450
Þriðjud. 30. — R-6451 — R-6600
Auglýsing um skoðunardaga bifreiða frá R-6601 til
R-10450 verður birt síðar.
Skoðun á bifreiðum, sem eru í notkun hér í bænum, en
skrásettar anna' 3 staðar, fer fram 4. til 15. maí.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar til
bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og verður skoðun fram-
kvæmd þar daglega kl. 9—12 og kl. 13—16,30, nema
föstudaga til kl. 18,30.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram
fullgild ökuskírteini.
Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðaskattur og vá-
tryggingariðgjöld ökumanna fyrir árið 1958 séu greidd,
og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi.
Hafi gjöld þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki
framkvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin eru
greidd.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar
á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum sam-
kvæmt umferðalögum og Iögum um bifreiðaskatt og
bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem tii hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögregiustjórinn I Reykjavík, 21. apríl 1959
SIGURJÓN SIGURÐSSON