Morgunblaðið - 01.05.1959, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
FBstudagur 1. maí 1959
Fullfrúarád verkalýðsfélaganna
í Reykjavík hefur unnið fjölþœtt
störf r þágu launþegasamtaka
Fulltrúaráð meðal verkalýðs-
íélaga er ekki sérstakt fyrirbæri
fyrir Reykjavík eða íslenzka bæi.
Um heim allan hafa verkalýðs-
félög borga og byggðarlága mynd
Jón SigurSsson
að svokölluð fulltrúaráð verka-
lýðssamtakanna.
Þegar lög Alþýðusambands fs-
lands voru samin austið 1915, var
þegar í upphafi gert ráð fyrir
stofnun fulltrúaráðs í þeim bæj-
um, þar sem tvö eða fleiri félög
væru innan Alþýðusambandsins.
Samkvæmt þessum ákvæðum Al-
þýðusambandslaganna var Full-
trúaráð stofnað í Reykjavík þeg-
ar að afloknu stofnþingi A. 'S. í.
í þessu sambandi má t. d. geta
þess að þegar verkalýðsféiögin
í Reykjavík kusu fulltrúa sína
á stofnþing Alþýðusambandsins,
var fulltrúakosningin bókuð
þannig: „Kosning fulltrúa á stofn
þing Alþýðusambands íslands og
til Fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík".
í fyrstu lögum Alþýðusam-
bandsins var gert ráð fyrir því,
að fulltrúaráðip færu með hin
sameiginlegu mál verkalýðsfé-
laganna í Reykjavík".
í fyrstu lögum Alþýðusam-
bandsins var gert ráð fyrir því,
að fulltrúaráðin færu með hin
sameiginlegu mál vekalýðsfélag-
anna í hverjum bæ. Fulltrúa-
ráðin voru þannig þegar í upp-
hafi eins konar samnefnari eða
sameiginlegur málsvari verka-
lýðsins í sínu byggðarlagi.
Guðni H. Árnason
Fyrstu verkefnin.
Fulltrúaráðið beitti sér
í upphafi fyrir ýmsum
þegar
fram-
Ráðskona
Ungur bóndi á austurlandi óskar eftir ráðskonu í
sumar. Má hafa með sér barn. Tveir í heimili.
Upplýsingar í sma 24595 eftir kl. 6 á kvöldin.
Lítið hús eða fallegur skúr
óskast til kaups nú þegar. Tilboð sendist fyrir
n.k. þriðjudag, merkt: „Félagshús", Box 404 Reykja-
vík.
Glæsilegur bíll
T I L S ö L U
FORD VEDETTE árg. 1956. — Þetta er lítill sex
manna bíll, ekinn aðeins 12 þús. km.
Verðið mjög sanngjarnt.
Aðal Bílasalan
Aðalstræti 16, sími 15.0.14.
Bifreiðasýning
Sölusýning verður hjá okkur í dag.
Notið frídaginn og veljið yður bíl fyrir
sumarið.
Bifreiðasalan
Ingólfsstræti 9.
Símar: 19092 og 18966.
kvæmdum til hagsmuna fyrir
vinnandi fólk. Má þar fyrst og
fremst nefna stofnun Alþýðu-
brauðgerðarinnar, sem um ára-
ttugi var stærsta brauðgerðar-
hús landsins. Fulltrúaráðið lét
fisksölusmálin einnig mjög til sín
taka og beitti sér fyrir endur-
bótum á fisksölunni í bænum.
Þegar fjöldi botnvörpuskipa var
seldur úr landi í lok fyrri heirns-
styrjaldarinnar, fékk Fulltrúa-
ráðið því framgengt að nokk-
ur hluti söluverðs togaranna
var fenginn Fulltrúaráði til
umráða, en fé þetta var
notað til þess að stofna „Styrkt-
arsjóð verkamanna og sjómanna-
félaganna í Reykjavík, og er sá
sjóður ennþá starfandi og stjórn
hans kosin af Fulltrúaráðinu. —
Sjóður þessi hefur árlega veitt
meðlimum verkalýðsfélaganna
tugi þúsunda í styrki vegna sjúk-
dóma og elli.
Fulltrúaráðinu var þegar í upp
hafi ljós nauðsyn þess að verka-
lýðssamtökin eignuðust húsnæði
fyrir starfsemi sína og með það
í huga keypti Fulltrúaráðið lóð.
Guðjón Sv. Sigurðsson
Þar var síðan hafi bygging Al-
þýðuhússins, sem síðar varð
eign samnefnds hlutafé’.ags, sem
verkalýðsfélögin eru langstærsti
hluthafinn í. Fulltrúaráðið keypti
á sínum tíma Iðnó og rak þar
umfangsmikla starfsemi.
Þegar hugmyndinni um orlof
verkafólks fór að vaxa fiskur um
hrygg, festi Fulltrúaráðið kaup
á landspildu í Rauðhólum og
reisti þar skála. Þar voru um ára-
bil haldnar útiskemmtanir á veg-
um verkalýðsfélaganna og hug-
myndin var að stofna þar til
reglulegs orlofs- og hvíldarheim-
ilis fyrir verkafólk. Starfsemi
þessi lagðist síðar niður með öllu.
En nokkru síðan var hafin starfs
ræksla barnaheimilis í Rauðhól-
um, í nánum tengslum við verka-
lýðssamtökin og síðar gaf Full-
trúaráðið Barnaheimilinu Vor-
boðinn land sitt í Rauðhólum
ásamt skálanum, sem á því stóð.
Þar er nú rekið myndarlegt barna
heimili á hverju sumri.
Fræðslustarfsemi
Á árum heimsstyrjaldanna
herjaði atvinnuleysi mjög á allt
verkafólk. Átti Fulltrúaráðið
mikinn og giftudrjúgan þátt í því,
að koma á atvinnubótavinnu til
þess að bæta úr sárustu nevðinni
meðal verkafólks, sem iitla eða
enga atvinnu hafði.
Allt af öðru hvoru hefur Full-
trúaráðið beitt sér fyrir fræðslu-
starfsemi fyrir verkafólk og á
Fulltrúaráðið vísi að bókasafni
um verkalýðs- og þjóðfélagsmál.
Þegar. eftir 1930 var byrjað
að vinna að þvi að Fulltrúaráð
verkalýðsféiaganna starfrækti
skrifstofu og réði sér fastan starfs
mann. En það var ekki fyrr en
haustið 1943 að Fuiltrúaráðið
kom þessu máli fram. Þá var
skrifstofa sett á stofn og ráðinn
starfsmaður.
Skrifstofuhaldi Fulltrúaráðsins
var þegar frá upphafi ætlað það
verkefni, að rækja hin sameigin-
legu mál verkalýðsfélsganna í
Reykjavík, jafnframt því að vera
samastaður og aðsetur þeirra
verkalýðsfélaga sem ekki höfðu
sjálf neitt skrifstofuhald.
Það kom þegar í ljós, að þörf-
in fyrir rekstur skrifstofu Full-
trúaráðsins var mjög brýn. Flest
hinna smærri verkalýðsfélaga
hér í bæ tóku sér þegar bólfestu
hjá Fulltrúaráðinu og nutu þar
Þórunn Valdimarsdóttir
hvers konar fyrirgreiðslu í starf
semi sinni.
Margþætt fyrirgreiðsla.
Skrifstofa Fulltrúaráðsins hef-
ur með höndum margþætt störf
og fyrirgreiðslu fyrir verkalýðs-
félögin og meðlimi þeirra. Ann-
ast bréfaskriftir, samningagerðir,
Aðvörun
Öll umferð um lönd og eyjar jarðarinnar „Vogs“,
í Hraunhreppi í Mýrasýslu, er stranglega bönnuð.
Sömuleiðis notkun skotvopna og eggjataka. Brot
á banni þessu varðar sektum og skotvopn gerð upp-
tæk. EIGENDUR
Skrifstúlka óskast
strax hálfan eða allan daginn eða hluta af degi eftir
samkomulagi. Þarf að kunna vélritun. Tilboð, helzt
ásamt mynd, sem verður endursend, sendist afgr.
Morgunbl. merkt „Skrifstofustúlka 9761“, fyrir 3.
maí næstkomandi.
Þorsteinn Pétursson
upplýsingaöflun og úrlausn
ágreiningsefna fyrir félögin. Inn
heimtir vangoldin laun og oriofs
fé, greiðir úr ágreiningi um ráðn
ingu verkafólks og uppsögnum
á vinnu, veitir upplýsingar um
kaup og vinnutíma og önnur fríð
indi sem samningar viðkomandi
verkalýðsfélaga ákveða, hsfur
milligöngu um veitingu atvinnu-
leyfa til erlendra manna o. m. fl.
Þótt mikið hafi áunnizt með
skrifstofuhaldi Fulltrúaráðsins,
skortir þó enn mikið á það að
það sé þess umkomið að
sinna öllum sameiginlegum
málum verkalýðsfélaganna og
vera til leiðbeiningar og ryðja
brautina til nánara og sam-
ræmdra starfs verkalýðsfélag-
anna. Veldur þar mestu um, að
fjárráð Fulltrúaráðsins hafa
ávallt verið mjög lítil, en ekki
það að forráðamönnum Fulltrúa-
ráðsins, á hverjum tíma hafi ekki
verið ljós þörfin á því, að efla
samstarf verkalýðsfélaganna í
Reykjavík.
Núverandi stjórn:
Núverandi stjórn Fulltrúaráðs-
ins skipa: Jón Sigurðsson, for-
maður, Guðni Árnason, varafor-
maður, Guðjón S. Sigurðsson,
ritari, Þórunn Valdimarsdóttir,
gjaldkeri og Óli Borgholt Lút-
hersson, meðstjórnandi. Fram-
kvæmdastjóri Fulltrúaráðsins er
Þorsteinn Pétursson.
Þá skal þess að lokum getið,
að Fulltrúaráðið hefur allt frá
1923, gengizt fyrir hinum árlegu
hátíðahöldum verkalýðsins 1. maí
og er svo enn. Hátíðahöldin 1.
maí eru fyrst og fremst uppskeru
hátíð hins vinnandi fólks, þar
sem minnst er árangursins af
'Mi B. Lútherssor
giftunku starfi samtakanna á
liðnum áratugum, 1. maí er
einnig dagur hinnar miklu sán-
ingar, dagurinn sem markar þær
kröfur sem á hverjum tíma eru
efst á baugi meðal alþýðunnar,
dagur þeirra krafna, vona og
óska, sem munu móta afkomu
fólksins í landinu á næstu árum
og áratugum.
í dag minnist alþýða Reykja-
víkur þess skerfs, sem hún hef-
ur lagt fram til aukinnar vel-
megunar þjóðarinnar, andlega
og efnislega, og metur þann hlut
sem hún hefur borið frá borði
með striti sínu og starfi.