Morgunblaðið - 06.05.1959, Qupperneq 2
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 6. maí 1959
Rússar senda ekki mannaða eldfiaug
en eftir 3-5 ár
fyrr
HINGAÐ til lands er komin.-.
rússneskur stjörnufræðingur,
Dimitri Martynov, að nafni. —
Hann er prófessor við Sternberg
stjarnfræði stofnunina í Moskvu
og jafnfrarpt forstöðumaður henn
ar, en þar má segja að sé mið-
stöð stjarnfræðirannsókna og
geimrannsókna Hússa. Martynov
er nafntogaður maður og á að
baki sér langan feril í vísinda-
grein sinni.
★ ★
Blaðamenn áttu í gær tal við
hann og inntu hann eftir því nýi-
asta, sem er að gerast í geim-
rannsóknum Rússa. Það, sem
einna mesta athygli vakti, voru
ummæli hans þess efnis, að Rúss-
ar mundu áreiðanlega ekki geta
sent mannaða eldflaug út í geim-
inn fyrr en eftir 3—5 ár. Hann
taldi, ð tök myndu á að senda
eldflaug til tunglsins innan árs,
flest tæknileg vandamál varð-
andi ferðalög út í geiminn væru
leyst. Tekizt hefði að smíða nægi-
lega stórar eldflaugar til þess að
bera menn og allan þann útbún-
að, sem þeim fylgdi. Hins vegar
'hefði enn ekki tekizt að leysa
vandamálið viðvíkjandi endur-
komunni inn í gufuhvolf jarðar.
Sem sakir stæðu væru það hreint
og beint sjálfsmorð fjrrir Rússa
að fara með eldflaug út í geim-
★ ★
Martynov hefur að mestu fja’il-
að um „breytilegar stjörnur" á
undanförnum árum. Hann hefur
Kaffisala
Kvenfélags
Laugarneskirkju
Á MORGUN (uppstigningardag)
efnir Kvenfélag Laugarnessókn-
ar til kaffisölu í kirkjukjallaran-
um. Hefst hún kl. rúmlega þrjú,
að lokinni guðsþjónustu séra
Bjarna Jónssonar vígslubiskups
í kirkjunni. Við guðsþjónustuna,
sem byrjar kl. 2 e.h. mun Krist-
inn Hallsson óperusöngvari
syngja einsöng.
Þessi árlega kaffisala kvenfé-
lagsins er einn liðurinn í því, að
afla fjár til þeirrar margháttuðu
starfsemi, sem félagið hefir með
höndum, og er kaffisalan áreið-
anlega einn skemmtilegasti lið-
urinn.
Þarna er alltaf þröng á þingi,
kaffiilmur í lofti og gleðisvipur
á öllum.
Þarna má ár eftir ár sjá sömu
stóru fjölskyldurnar, sem alltaf
koma aftur og aftur. Þarna koma
ungar meyjar og piltar úr flest-
um bæjarhlutum, og þarna má
sjá einstaklinga úr flestum stétt-
um þjóðfélagsins, leika og lærða.
En það sem mér hefir þótt
einna ánægjulegast að sjá er hve
eðlilegt kvenfélagskonum hefir
verið það, að taka þannig á móti
hverjum einstökum gesti, að
hann hlaut að finna það, að ein-
mitt hann var alveg sérstaklega
velkominn.
Verið velkomin í kaffið.
Hittumst á morgun í kirkju-
kjallaranum.
Garðar Svavarsson.
Dagskrá Alþingis
DAGSKRÁ efri deildar Alþingis
miðvikudaginn 6. maí 1959, kl.
1% miðdegis.
Stjórnarskrárbreyting, frv. —
3. umr. Tekjuskattur og eignar-
skattur, frv. — Ein umr.
Dagskrá neðri deildar Alþingis
miðvikudaginn 6. maí 1959, kl.
1% miðdegis.
Útflutningssjóður o.fl., frv. —
Frh. 3. umr. (Atkvgr.) Virkjun
Sogsins, frv. — 3. umr. Sýsluvega
sjóðir, frv. — 2. umr. Kornrækt,
frv. — 3. umr. Happdrætti há-
skólans, frv. — 2. umr. /Ef leyft
verður/.
ritað margar greinar og bæklinga
um vísindaleg grein sína, aðal-
lega ljósbreytingar á stjörnum.
Varðandi ferðir til annarra
hnatta sagði hann, að Mars og
Venus kæmu fyrst og fremst til
greina — og rauninni engir aðrir,
nema ef vera skyldi tunglið. —
Samkvæmt rannsóknum vísinda-
manna væru þar beztu skilyrði
að finna fyrir menn utan jarð-
arinnar.
Hann fór nokkrum orðum um
samvinnu stórveldanna í sam-
bandi við alþjóðalega jarðeðlis-
fræðiárið — og kvað góða sam-
vinnu hafa verið með Rússum
annars vegar og Bretum, Frökk-
um og Bandarikjamönnum hins
vegar. Sagði hann Bandaríkja-
menn jafnan senda upplýsingar
um gervitungl Rússa, því að
Bandaríkjamenn gætu fylgzt vel
með ferðum þeirra.
Prófessor Martynov mun halda
hér fyrirlestra um vísindagrein
sína og rússnesku gervituglin. —
Hann mælir á þýzku.
10 ára afmælis Evr-
ópu ráðsins minnzt
f GÆR voru 10 ár liðin frá því
Evrópuráðið var stofnað. Hefur
þess þegar verið minnzt í Strass-
borg, þar sem Evrópuráðið hefur
aðsetur, með margvíslegum há-
tíðahöldum þann 20. apríl sl. við
setningu 11. ráðgjafarþings og 24.
fundar ráðherranefndarinnar. Að
alhátíðahöldin fóru þó fram í
Lundúnum í gær, en þar var stofn
samningurinn undirritaður 5. maí
1949.
Grundvöllur að stofnun Evrópu
ráðsins var þó lagður ári fyrr í
maí 1948 þegar um 1000 fulltrú-
ar frá 19 Evrópulöndum komu
saman í Haag og töldu óhjá-
kvæmilegt að Evrópuríkin bynd-
ust nánum samtökum _ til að
hindra fleiri styrjaldir. í janúar
1949 komu utanríkisráðherra
Bretlands, Frakklands og Bene-
lux-landanna siðan saman til
fundar og urðu ástáttir um stofn
un Evrópuráðs. Fyrir stofnfund
bættust í hópinn Noregur, Sví-
þjóð, Danmörk, írland og Ítalía
og enn síðar hafa bæzt í hópinn
ísland, Grikkland, Tyrkland,
Vestur-Þýzkaland og Austurríki
og eru þátttökuríkin nú 15.
f fréttaauka ríkisútvarpsins í
gær flutti Henrik Sv. Björnsson,
ráðuneytisstjóri, ávarp frá Guðm.
í. Guðmundssyni, utanríkisráð-
herra í tilefni 10 ára afmælis
Evrópuráðsins. Þar komst ráð-
herrann m.a. svo að orði:
„Evrópuráðið berst ekki mikið
Reykvíkingiir
hlaut 100 þús. kr.
f GÆR var dregið í 5. flokki
Vöruhappdrættis S.Í.B.S. Dregið
var um 300 vinninga.
Hæstu vinningarnir
eftirtalin númer:
komu á
Kr.
Kr.
100.000.00
27626
50.000,00
17523
Kr. 10.00,000
6358 13513 23776 24809 27676
33272 41725 63438
Kr. 5.000,00
2244 2763 3109 6220 21776
24509 38529 50870 51276 52599
Hún dró þorskinn
AKRANESI, 5. maí: — Það er
ekki ofsögum sagt af því, að sjó-
mennskan er þeim í blóð borin,
sem eru af vestfirzku bergi brotn-
ir. Þennan dýrmæta eiginleika
hafa bæði kynin tekið að erfð-
um. Þótti það ásannast á sunnu-
daginn, er ungfrú hér í bænum,
upprunnin af Vestfjörðum, reri
til fiskjar á einum trillubátana.
Dró ungfrúin þorskinn engu síður
en hinir og suma væna. Hún
fann ekki til sjóveiki, þar sem
hún stóð við færið í hnéháum
stígvélum í rauðri plastkápu, og
víst mun hún kunna áralagið, ef
í það færi. —Oddur.
á og þær raddir heyrast þvi oft,
að það sé lítið annað en málskrafs
samkunda. Vilja sumir telja, að
tilgangslítið sé fyrir oss íslend-
inga að taka þátt í störfum þess.
Ég tel á hinn bóginn, og_ byggi
það á reynslu, að fátt sé íslend-
ingum nauðsynlegra en að fylgj-
ast, sem allra bezt með störfum
ráðsins, bæði á fundum ráðherra-
nefndar og á ráðgjafarþinginu.
Fyrir smáþjóð sem íslendinga,
er það mjög þýðingarmikið, að
eiga sæti á þingi þar sem við get-
um hreyft deilumálum okkar og
vandamálum og hlustað á vanda
mál annarra. Hefur og okkar
mikla mál, landhelgismálið oftar
en einu sinni borið á góma á fund
um ráðgjafarþingsins og hafa
margir mikilsmetnir fulltrúar frá
nágrannaþjóðunum og öðrum
löndum Vestur-Evrópu tekið þar
til máls og léð islenzka málstaðn-
um lið.
Sökum þess, hversu fáir vér
erum og lítilsmegnandi að eigin
rammleik er það oss lífsnauðsyn
að taka þátt í samstarfi þjóða og
sýna, að þar séum við gjaldgeng-
ir aðiljar. Með því móti getum
við bezt tryggt virðingu annarra
fyrir sjálfstæði voru og tilveru-
rétti.'Til þessa bjóðast oss fá tæki
færi betri en einmitt innan
Evrópuráðsins, sem ekki er tak-
markað við úrlausa mála á til-
teknu sviði, heldur hefur sam-
kvæmt yfirlýsingu aðildarríkj-
anna verið valið það hlutverk að
vera hinn almenni vettvangur
evrópskrar samvinnu“.
Þessi mynd var tekin fyrir skömmu í Keflavíkurhöfn, á ein-
um mesta afladegi vertíðarinnar. Það er rélbáturinn Þor-
steinn sem er að koma úr róðri, hlaðinn sem síldarbátur á
vertíð nyrðra. Er Þorsteinn 38 tonna bátur, en úr honum hafði
verið landað í þessum róðri 40 tonnum af fiski.
(Ljósm. Birgir Guðnason).
Auknar varnir nauðsyn-
legar gegn mœðiveikinni
á Vestfjörðum
Tillaga Sigurðar Bjarnasonar rœdd
Á FUNDI sameinaðs Alþingis í gær var tekin til umræðu þings-
ályktunartillaga Sigurðar Bjarnasonar um skjótar varnarráðstaf-
anir gegn útbreiðslu mæðiveiki á Vestfjörðum. Fylgdi flm. tillög-
unni úr hlaði með stuttri ræðu.
Sigurður Bjarnason hóf mál sitt með því, að þingsályktunartil-
laga þessi skýrði sig sjálf og væri ekki þörf að fara um hana
mörgum orðum. Lagt væri til, að Alþingi ályktaði að skora á
íikisstjórnina að fela sauðfjársjúkdómanefnd að gera nú þegar
ráðstafanir til að hindra útbreiðslu mæðiveiki á Vestfjörðum, en
sá landshluti hefði átt ríkan þátt í að tryggja íslenzkum landbún-
aði heilbrigðan fjárstofn.
Eins og kunnugt er, hélt ræðu-
maður áfram, spurðust þau ótíð-
indi rétt fyrir páskana, að mæði-
veiki hefði orðið vart á Reyk-
hólum í Barðastrandasýslu. Það
lætur að líkum, að þessar fregn-
ir hafa vakið mestan ugg á Vest-
fjörðum, en Vestfirðir hafa um
áratug verið svo til eini lands-
hlutinn, sem ekki hefur orðið
fyrir ágangi mæðiveikinnar fyrr.
í Reykhólasveit hefur veikinnar
ekki orðið vart áður, en nú hef-
ur komið á daginn að því er lækn
ar telja, að veikin er þar á fleiri
bæjum en Miðhúsum. Þá er einn-
ig nokkur samgangur við féð í
Reykhólasveit af fé úr Stein-
Kommúnistar krefjast
setu í stjórn Iraks
BAGDAD, 5. maí. — (Reuter).
— írakskir kommúnistar herða
nú róðurinn fyrir því að fá sæti
í ríkisstjórn Kassems. Eini
stjórnmálaflokkurinn sem nú á
Kaffisala kven-
stúdenta í Sjálf-
stæðishúsinu
KVENSTÚDENTAFÉLAG fs-
lands hefur kaffisölu í Sjálfstæð-
ishúsinu á morgun, uppstigning-
ardag. Markmið félagsins með
þessari kaffisölu er að afla fjár
til styrktar íslenzkum kvenstúd-
ent, sem stundar nám við Há-
skóla fslands.
Fyrri kaffisölur Kvenstúdenta
félagsins, sem efnt hefur verið til
í svipuðu augnamiði, hafa verið
mjög vel sóttar og þannig aflazt
fé til námsstyrkja fyrir bæði ís-
lenzkan kvenstúdent við háskóla
nám erlendis og erlendan kven-
stúdent, sem stundaði nám við
Háskóla íslands.
Veitingar verða bornar fram í
Sjálfstæðishúsinu frá kl. 2 til kl.
5 og mun hljómsveit hússins leika
/yrir kaffigestL
fulltrúa í stjórninni ér hinn hæg-
fara Þjóðlegi demókrataflokkur.
Kommúnistablaðið Saut al
Ahrar birtir í dag áskoranir frá
mörgum einstaklingum og sam-
tökum, þar sem þess er krafizt
að kommúnistar fái sæti í stjórn-
inni til þess að styrkja lýðveldið
og í forustugrein blaðsins er því
lýst yfir, að stjórnarþátttaka
kommúnista myndi verða trygg-
ing fyrir því að lýðveldið sigri
alla óvini sína.
Kassem forsætisráðherra lagð-
ist hins vegar ákveðið gegn því
að stuðlað væri að myndun
flokka og sérstakri þátttöku
þeirra í ríkisstjórn. Taldi hann
að slíkt myndi aðeins leiða til
sundrungar.
Leiðrétting
f MINNINGARGREIN um Jón
Guðmundsson í Valhöll, í blaðinu
í gær, féllu niður tvö nöfn, þeg-
ar talin voru systkini hans og
voru það:
Kjartan Guðmundsson, fæddur
31. maí 1885, dáinn 15. nóv. 1950,
ljósmyndari og útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum og María Guð-
mundsdóttir, fædd 21 jan. 1893
og dáin næsta dag.
grímsfirði og Nauteyrarhreppi
við Isafjarðaidjúp. í Steingríms-
firði hefur mæðiveiki orðið vart
áður en aldrei við norðanvert
ísafjarðardjúp, og ekki vestan
Kollafj arðar girðingar.
Ég skal ekki fullyrða, hvaða
ráðstafanir eru heppilegastar í
þessu máli, sagði Sigurður
Bjarnason. í greinargerð fyrir
tillögunni bendi ég á nauðsyn
þess, að treysta sem bezt varnar-
girðingunan úr Kollafirði í ísa-
fjörð og verja þannig allan vest-
urhluta Vestfjarða. í öðru lagi að
girða Reykhólasveitina af. Bænd-
ur á Reykjanesi hafa sett fram
þá skoðun, að ekki sé heppilegt
að girða aðeins sjálft Reykjanes-
ið af, því þá missi þeir af nauð-
synlegum beitilöndum. 1 þriðja
lagi kemur svo til greina að efla
varnargirðingu úr Berufirði í
Steingrímsfjörð. Vel má vera að
fleiri ráðstafanir komi til greina,
sagði þingmaðurinn.
Það er kunnugt, að sauðfjár-
sjúkdómanefnd er nú þegar að
undirbúa ráðstafanir, sem að
gagni megi koma. Enda þótt lok-
ið sé afgreiðslu fjárlaga vona
ég að ríkisstjórn og sauðfjár-
sjúkdómanefnd sjái sér fært að
gera víðtækari ráðstafanir en
þær, sem takmarkast af því litla
fé, sem í þessu skyni er veitt á
fjárlögum. Má minna á það, að
Vestfirðirnir hafa á undanförn-
um árum bjargað sauðfjárstofni
íslendinga og er >ess því að
vænta, að einskis verði látið ó-
freistað til að stemma stigu fyrir
útbreiðslu veikinnar þar nú.
Að lokum lagði Sigurður
Bjarnason til, að tillögunni yrði
vísað til fjárveitinganefndar.
Sigurvin Einarsson, þm. Barð-
strendinga, kvaddi sér hljóðs.
Kvaðst hann vonast til að tillag-
an yrði samþykkt, en sér sýndist
eitt aðalatriðið í þessu máli, að
ekki yrði skorin við nögl fjár-
veiting til að gera nýjar varnar-
línur og væri ekki úr vegi í því
sambandi, að gera nýtt hólf vest-
an þess, sem veikin væri nú
komin upp í. Kvaðst hann að
lokum leggjast eindregið með
því, að tillagan yrði samþykkt.
Atkvæðagreiðslu um tillöguna
var frestað.