Morgunblaðið - 06.05.1959, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.05.1959, Blaðsíða 22
22 MORCUHBLAÐIÐ Miðvikudagur 6. maí 1959 F.H. mætir Þjóðverjum í kvöld f KVÖLD fer fram að Háloga j er leikur þeirra gegn fslands- landi næstsíðasti leikur þýzku meisturum FH. handknattleiksmannanna frá Leikur Þjóðverjanna við KR Hamborg, en sennilega sá sem I var afar tvísýnn, Þjóðverjarnir áhorfendur að Hálogalandi bíða með mestri eftirvæntingu. Það Knattspyrnudóm- arafélag Suðurnesja Kiattspyrnudómarafélag Suð- u -nesja var stofnað í Keflavik í gærkvöldi. Þeir Grétar Norð fjörð og Guðbjörn Jónsson frá Knattspymudómarafél. Rvík- ur komu til Keflavíkur og 7»eittu sér fyrir stofnun félags þessa. Meðlimir félagsins eru allir starfandi knattspyrnudóm arar á Suðurnesjum. í stjóm voru kosnir Magnús Gíslason form., Hörður Guð- mundsson og Sigurður Stein- dórsson meðstjórnendur, Bogi Þorsteinsson varamaður. Að kosningum loknum flutti Guð björn Jónsson mjög fróðiegt er indi um störf knattspyrnudóm ara og reynslu sína í þeim efn um. Ennfremur svöruðu þeir Grétar og Guðbjörn fyrirspurn um og útskýrðu knattspyrnu- lögin. — B.Þ. urðu þá að láta í minni pokann fyrir því ísl. liði, sem áðeins tap- aði einum leik í fslandsmótinu nýafstaðna. Er KR fyrsta ísl. lið- ið sem vinnur erlent lið í fullum leik að Hálogalandi. í leikjum sínum í hraðkeppn- inni ollu Þjóðverjarnir nokkrum vonbrigðum. En gangur hrað- keppna er oft þannig að sterk lið falla snemma út. Það sama kom fyrir t.d. KR og ÍR. Öllum er í fersku minni hinn glæsilegi sigur Hafnfirðinga á ís- landsmótinu — og hraðkeppninni á dögunum. Víst er að þeir munu einskis láta ófreistað til að ná ekki síðri árangri en KR — og það er einmitt það sem tryggir að leikurinn í kvöld verður án efa skemmtilegur. Sigurvegararnir í I. flokki Páll Eiríksson, Steinar Erlendsson og Einar Sigurðsson. Víðavangshlaup F.H. Víðavangshlaup Hafnarfjarð,ar 1 VÍÐAVANGSHLAUP Hafnar- fjarðar var haldið sumardaginn iyrsta, en til slíks hlaups hefur ekki verið efnt síðastliðin 20 ár. Hlaupið hófst við Barnaskóla Hafnarfjarðar, hlaupið var upp Tjarnarbraut inn á Reykjanes- braut eftir henni niður hjá íshúsi Reykdals, niður Lækjargötur og og endað við Barnaskólann. Leið in var alls um 1800 m. Frjálsíþróttadeild FH stóð fyrir hlaupi þessu. Keppt var í 3 aldursflokkum. 1. flokkur 17 ára og eldri. II. flokkur 14—16 ára og III. flokkur 13 ára og yngri. Þátttakendur voru 55, og er þvílíkur fjöldi óvenjulegur í víðavangshlaupi. En það, að gefa hinum yngstu tækifæri til að spreyta sig eykur áhugann mjög og er þetta gott fordæmi. Von- andi verður þessu fram haldið og þátttakendur mun örugglega ekki vanta. Áður en hlaupið hófst lék Lúðrasveit Hafnarfjarð ar nokkur lög. Úrslit í einstök- um flokkum urðu þessi: Elzti flokkur 17 ára og eldri: 1. Steinar Erlendsson FH 5:07,2. 2. Páll Eiríksson FH 5:21,2. 3. Einar Sigurðsson FH 5:28,1. 4. Erling Georgsson SH 5:47,7. Steinar sigraði þarna örugg- lega og leiddi allt hlaupið utan fyrstu 100 m. enda í góðri þjálf- un, og nær efalaust góðum ár- angri í sumar. í þessum flokki flokki var keppi um bikar er Stefán Jónsson, forstjóri, gaf. II. flokkur, 14—16 ára: 1. Þórarinn Ragnarss. FH 5:34,2. 3. Guðm. Kristjánsson FH 5:42,5. 3. Rögnv. Hjörleifss. FH 5:49,5. 4. Viðar Símonarson FH 6:00,6. Þórarinn leiddi allt hlaupið. Keppt var um bikar er Hafsteinn Sveinsson langhlaupari, gaf. III. flokkur 13 ára og yngri: 1. Trausti Sveinbj.ssT FH 4:24,6. 2. Geir Hallsteinsson FH 4:27,3. 3. Ingvar B. Friðleifss. FH 4:32,9. Vegalend þessa flokks var nokkru styttri, eða um 1400 m. Mest þátttaka var í þessum flokki. Margir hlupu og þarna meira af áhuga en mætti. En þessi flokkur var skemmtilegast- ur, og yngsti þátttakandinn að- eins 5 ára. Keppt var um verð- launagrip er íþróttamennirnir Ragnar, Bergþór og Ingvar gáfu. Þetta víðavangshlaup Hafnar- fjarðar var um margt til fyrir- myndar og stjórn þess góð. Hlaupið hófst á auglýstum tíma og hvergi dauðir púnktar, en líf og fjör allan tímann. Þetta mætti taka til athugunar á öðrum stöð- Eldur íverksmiðju VESTMANNAEYJUM, 5. maí': — Það hafði litlu munað í nótt, að illa færi í fiskmjölsverksmiðj- unni hér við Vestmannaeyjahöfn. Olíurör við olíukyndingu hafði sprungið, eldur komizt í oliuna og virtist sem stórbruni væri yf- irvofandi. Dæla sem var nærtæk í verksmiðjunni, kom í veg fyrir að allt færi í bál, og litlu síðar kom slökkviliðið á vettvang og tókst fljótlega að ráða niður- lögum eldsins. Bj. Guðm. ! um. Þetta sýndi og, að ekki þarf endilega að hafa einhverja af- reksmenn til að gera mót skemmtileg, heldur góða stjórn, áhuga og að gefa sem flestum tækifæri að keppa. Til hamingju með þetta framtak frjálsíþrótta- menn í FH og haldið svo fram stefnunni. Margir ætla að ferðast með Páli í sumar FERÐASKRIFSTOFA Páls Ara- sonar mun efna til margra ferða um hina ýmsu hluta landsins í sumar. Þann 23. maí verður m.a. lagt upp í 10 daga ferð umhverfis landið. Farið verður til Horna- fjarðar, yfir Jökulsá á Breiða- merkursandi, e.t.v. út í Papey, en þar er mjög skemmtilegt að koma á þessum tíma árs, um Fljótsdalshérað, Möðrudal, Mý- vatn og til Akureyrar — og sem leið liggur til Reykjavíkur. • ★ • Á uppstigningardag verður far ið í Krýsuvík, Ögmundarhraun — til Grindavíkur og út á Reykjanes. Er hér um að ræða nýja leið, sem sjaldan hefur ver- ið farin áður. Hópferð hesta- maima á uppstign- ingardap; REYKJUM, 5. maí. — Hópferð hestamanna úr Reykjavík verð- ur að Hlégarði á Uppstigningar- dag, og ef að líkum lætur, má búast við fleiri hundruð hesta- mönnum í þeirri ferð. Kvenfélag Lágafellssóknar hefir kaffiveit- ingar í félagsheimilinu fyrir gest- ina, en hestamenn héðan úr sveitum fara til móts við hópinn og fylgja komumönnum úr hlaði. Þessi fasti liður í starfi hesta- manna er ákaflega vinsæll og jafnan verið mjög mikil þátt- taka. — Þennan sama dag mun kvenfélagið halda bazar og eru á honum fjöldi ágætra muna, aðal lega handavinna félagskvenna. Verður því þarna margt eigu- legra muna, sem m.a. gestirnir munu hafa ríkan hug á að eign- ast. — J. Um Hvítasunnuna ráðgerir ferðaskrifstofa Páls þrjár ferðir: Á Snæfellsjökul, til Stykkis- hólms og Breiðafjarðareyja og á Eiríksjökul og í Surtshelli. Þegar blaðið átti tal við Pál Pál Arason í gær skýrði hann svo frá, að þegar hefðu margir pant- að far í Snæfellsnesferðina áður en hún var auglýst. Allt benti til þess, að óvenjumikið yrði ferðast út á land og um óbyggðir í sum- ar, e.t.v. sumpart vegna þess hve lítil gjaldeyrisyfirfærzla hefur verið fáanleg undanfarin ár til ferðalaga erlendis. Benti hann á, að í Öræfaferðinni um páskana hefði verið 121 þátttakandi. Banialeikvöllur á Hvolsvelli HVOLSVELLI, 3. maí. — Fyrir forgöngu nokkurra áhugasamra manna á Hvolsvelli var hafizt handa um á sl. sumri að afgirða svæði í miðju þorpinu er ætlað skyldi til barnaleikvallar. Jafn- framt hét hreppsnefndin stuðn- ingi sínum með fjárframlag til efniskaupa varðandi girðingar og leiktæki. Sl. mánuð var unnið af kappi við smíði á leiktækjum, svo sem rólum, hringjum, „vega- söltum“, sandkössum og að ó- gleymdri rennibraut. Eru flest þessara leiktækja komin á sinn stað og verið tekin í notkun. Er barnaleikvöllur þessi til hins mesta sóma fyrir forystumenn hans og hreppsnefndina. Geta skal þess að öll vinna hefur verið unnin af sjálfboðaliðum er sýnt hafa framúrskarandi ósérhlífni og dugnað. — Fréttaritari. Blaðagreinar Jóns Sigurðssonar gefnar út á 150 ára afmœli hans Þáltill. þess efnis á Alþingi í GÆR var tekin til umræðu í sameinuðu þingi þingsályktunar- tillaga um útgáfu á blaðagrein- um Jóns Sigurðssonar. Tillaga þessi er flutt af formönnum þing flokkanna, þeim Emil Jónssyni, Bjarna Benediktssyni, Eystelni Jónssyni og Einari Olgeirssyni. Er tillagan á þessa leið: Alþingi ályktar, að gefið skuli út safn blaðagreina eftir Jón Sig urðsson forseta, er komi úr árið Áfta firmu berjast um bikar í handknattleik Á UPPSTIGNINGARDAG verð- ur efnt til ,,firmakeppni“ í hand- knattleik. Er það HSÍ sem stend- ur að keppninni og gerir það í fjáröflunarskyni við utanferð ísl. landsliðsins í kvennaflokki sem fer utan til þátttöku í Norður- landamóti í handknattleik í sum- ar. —■ Átta firmu taka þátt í þessari ekppni, sem hefst kl. 8 síðdegis og lýkur um kl. 11 það kvöld. Er aðeins keppt í karlaflokki — — en stúlkurnar fá að njóta á- góðans sem fyrr segir. Þegar hefur verið dregið hvaða lið leika fyrir hvert firma og Haraldur Árnasonar (ÍR) gegn Samvinnutryggingum (Valur). 3. leikur Dairy Queen (Víking- ur) gegn Sindra h.f. (Fram) og 4. leikur Álafoss (Afturelding) gegn Teiknistofunni Tómasar- haga 31 (KR). Leiktími í þessari keppni er 2x10 mín. og stendur keppni milli firmanna um bikar sem gefinn hefur verið. Hraðkeppni er alltaf óútreikn- anleg — eins og ýmsir leikir í nýafstaðinni hraðkeppni sýndu. Það félag, sem veikast er talið getur á stuttum leiktíma „staðið í“ eða sigrað það sem jafnvel hvernig fyrsta umferðin verður. | sterkast er talið. Sjón er alltaf 1. leikur er H. Benediktsson sögu ríkari í slíkum keppnum og & Co. (Ármann) gegn Hörpu h.f. þar við bætist að ágóðinn renn- (Þróttur). 2. leikur Heildverzl. . ur til góðs málefnis. 1961, á 150 ára afmæli hans. Fel- ur Alþingi ríkisstjórninni að leita samninga við Menntamála- ráð íslands um, að Bókaútgáfa menningarsjóðs standi fyrir út- gáfunni gegn ríkisstyrk, er nemi kr. 100000.00 á ári í þrjú ár. Hagn aður sá, er verða kann af útgáfu þessari, renni óskiptur í sjóðinn „Gjöf Jóns Sigurðssonar". Bjarni Benediktsson fylgdi til- lögunni úr hlaði í veikindafor- föllum Emils Jónssonar. Sagði hann, að eins og kunnugt væri, yrðu 150 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar árið 1961,- Hefði verið til athugunar, með hverjum hætti þessa merka' manns yrði minnzt á verðskuld- aðan hátt á þessu afmæli. Hefði nú komið upp sú hugsun, að minn ast hans með því að gefa út blaða greinar, sem Jón Sigurðsson rit- aði, ekki eingöngu í íslenzk blöð, heldur einnig í erlend. íslenzkur almenningur hefði ekki aðgang að þessum greinum, sem bæði fjölluðu um íslenzk og erlend málefni. Væri því stór- mikill vinningur að því að fá þetta gefið út svo íslendingar gætu kynnzt enn einni hlið á þessum afburðamanni. Mundi þegar ákveðið, að Menntamála- ráð og Bókaútgáfa menningar- sjóðs tækju þessa útgáfu að sér ef tillagan yrði samþykkt. Bjarni Benediktsson lagði að lokum til, að tillögunni yrði vis- að til 2. umr. og fjárveitinga- nefndar. Aifreð Gíslason kvaddi sér hijóðs og kvaðst vilja koma á framfæri persónulegri athuga- semd frá sér. Á 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar hefði Háskóli íslands verið stofnáður og því væri lítilmótlegt að gefa nú að- eins út blaðagreinar eftir hann. Væri nær að leggja hornstein að væntanlegu Listasafni ríkisins á afmælisdegi hans 1961. Bjarni Benediktsson kvaðst ekki sjá að það væru nein rök á móti þessari tillögu þó lagt væri til' að afmælisins yrði minnzt frekar. Á 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar hefði einnig verið gefið út bréfasafn hans í tilefni afmælisins og hefði það þótt merk og góð bók á sínum tíma. Hefði það ekki skyggt á útgáfu hennar þó Háskóli ís- lands væri stofnaður sama dag. Þá hefði verið mikil þörf á að gefa út bréf Jóns Sigurðssonar og eins væri nú mikil þörf á að gefa út blaðagreinar hans og mik ill fengur að fá þær útgefnar. Færi vel á að það væri gert við þetta tækifæri. Skipti ekki máli í því sambandi hvort menn vildu, gera annað og meira í tilefni dagsins. Jóni Sigurðssyni hefði mak- lega verið sýndur margháttaður sómi eins og þegar lýðveldið var stofnað á afmælisdegi hans. Hvort menn vildu nú binda stofnun einhvers þjóðþrifafyrir- tækis við minningu hans væri svo annað mál, en það kæmi þeirri tillögu, sem hér um ræddi, ekki við. Tillögunni var vísað til 2. umr. og fjárveitinganefndar með sam- hljóða atkvæðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.