Morgunblaðið - 06.05.1959, Page 17
Miðvikudagur G. maí 1959
MORGUISBLAÐIÐ
17
— Ræða Sigurðar
Bjarnasonar
Framh. af bls. 14.
um væru orðnir kjóser’',’ir í
stærri kjördæmum.
Missa þeir áhugann?
Af tilefni þesara ummæla hv.
þm. Barðst. mætti spyrja hann og
hv. þm. Strand að því, hvort þeir
.ætli sér að hætta að berjast fyrir
hagsmunum fólksins í Stranda-
sýslu og Barðastrandasýslu, ef
þeir kynnu að verða kosnir þm.
í hinu nýja Vestfjarðarkjördæmi?
Missa þeir virkilega allan áhuga
fyrir hagsmunamálum fólksins í
þessum héruðum, enda þótt þeir
verði kosnir með atkvæðum
fleira fólks en þeir hingað til hafa
haft bak við kosningu sína? Þá
ályktun virðist mega draga af
ummælum hv. þm Barðst. og
raunar hv. þm Strand. líka.
En ég vil segja þessum hv. þm.
Framsfl. það, að það er ekki ætl-
an mín að láta af baráttu fyrir
framfaramálum fólksins við ísa-
fjarðardjúp, sem hingað til hafa
verið kjósendur mínir, enda þótt
ég kynni með haustinu að verða
kosinn á þing í hinu nýja Vest-
fjarðakjördæmi, sem nær yfir
allar sýslur Vestfjarða. Ég mun
þvert á móti halda áfram að gæta
hagsmuna þess hér á Alþ. eftir
megni um leið og ég teldi mér
skylt að berjast jafnhliða fyrir
hagsmunamálum annarra byggð-
laga á Vestfjörðum. Ég geri mér
vonir um að milli allra þm; hins
nýja Vestfjarðarkjördæmis geti
tekizt góð samvinna um fram-
fara og hagsmunamál þess lands-
hluta. Það er einmitt slík sam-
vinna, sem strjálbýlið þarf mjög
á að halda, ekki aðeins milli þm.
sinna, heldur og milli hinna ein-
stöku byggðalaga og ráðamanna
þeirra. Og það er mín skoðun, að
með hinum stærri kjördæmum
muni samvinna fólksins í strjál-
býlinu aukast að miklum mun og
styrkja aðstöðu þess í sókn þess
fyrir bættum lífskjörum, meira
jafnrétti og batnandi aðstöðu í
lífsbaráttunni.
Tengslin við þingmenn-
ina rofna ekki
Það er líka fjarstæða sem hv.
þm. Framsóknarfl. þrástagast á,
að tengslin milli þingmanns og
kjósenda séu úr sögunni með
stækkun kjördæmanna. Þing-
mennirnir og stjórnmálaflokkarn
ir hafa nákvæmlega sömu hags-
muna að gæta í því, að halda
tengslum við fólkið, þekkja óskir
þess og vilja og reyna að full-
nægja réttmætum kröfum þess.
Við þm. Sjálfstæðisfl., sem
fylgjum þessu frv., og hinni nýju
kjördæmaskipun, sem það gerir
ráð fyrir, gerum það vegna þess,
að við teljum að með því sé
lagður grundvöllur að auknu
réttlæti, traustara lýðræði og
þingræði og heilbrigðara stjórnar
fari í landinu. Það er vissulega
kaldhæðni örlaganna, að sá
stjórnmálaflokkur, sem fyrst og
fremst hefur kennt sig við sam-
vinnustefnuna skuli snúast gegn
þeirri breytingu á kjördæmaskip-
un landsins, sem einmitt mun
hafa rík áhrif í þá átt að auka
samvinnu héraðanna og fólks
þeirra um hagsmunamál þess.
En Framsfi. hefur dagað uppi
eins og nátttröll, sem lítur brún
nýs dags á lofti. Hann hefur á
sér yfirskin samvinnunnar en af-
neitar hennar krafti.
Réttlætið mun sigra
En enginn stjórnmálaflokk-
ur þolir það til lengdar að
standa gegn heilbrigðri þróun
í þjóðfélagi sínu. Þess vegna á
Framsfi. eftir að iðra þess sár-
lega, að hann hefur staðið eins
og þrándur í götu alls sam-
komulags um réttláta iausn
kjördæmamálsins. Misréttinu
verður eytt, réttlætið mun
sigra. Og á grundvelli þess
mun Alþingi, hin forhelgasta
stofnun þessarar þjóðar, halda
áfram að vera brjóstvörn ís-
lenzku þjóðarinnar í sveit og
við sjó í sókn hennar fyrir
batnandi þjóðfélagi i landi
sínu.
AKRANESI, 4. apríl. — Kvik-
myndin um bandaríska prédik-
arann Billy Graham var sýnd í
Bíóhöllinni hér á laugardags-
kvöldið. Allur aðgangseyrir rann
til íslenzka kristniboðsins í
Konso í Afríku. Oddur.—
SANDGERÐI, 16. apríl. — í gær
voru héðan á sjó 18 bátar og
fengu þeir samtals 93 tonn miðað
við óslægðan fisk. Muninn fé'kk
16,4 tonn, Rafnkell 11,8 tonn og
Faxi 9,8 tonn. Þessir bátar voru
allir með net. Afli línubáta er
sáratregur og fengu þeir í gær
3—4,5 tonn. — Axel.
Borgarastyrjöldin
Framh. af bls. 8
voru framkvæmdar í sama anda
og trúvillingaaftökurnar fjórum
öldum fyrr.
Þjóðfélags- og efnahagsmál
skiptu litlu máli í þessum fyrsta
þætti borgarastyrjaldarinnar.
Það var hið persónulega og sál-
ræna hatur, sem öllu réði í við-
leitni beggja aðilja til að hreinsa
af spænskri grund allt sem þeir
álitu spillt og fordæmanlegt.
Æfður Marxisti ferðaðist um
Katalóníu og Aragóníu í ágúst
og september 1936. Hann lýsti
undrun sinni yfir því, að anar-
kistarnir, sem höfðu orðið sigur-
sælir í þessum héruðum höfðu
drepið alla landeigendurna, en
þeir höfðu steingleymt að skipta
landi þeirra milli smábænda, eða
að hækka laun vinnufólks í
sveitunum.
Allt þetta drápæði ríkti með-
an sumarfríin stóðu yfir í öðrum
Evrópulöndum og athygli heims
blaðanna beindist mest að Ol-
ympíuleikunum í Berlín. Jafn-
vel utanríkisráðuneytin voru
varla starfhæf af því hve margt
starfsfólk þeirra var í sumar-
fríi. Það tók þau langan tíma
að fá öruggar fréttir af atburð-
unum og meta þær. Almennings
álitið í Evrópu var gjarnt á að
líta á allar deilur, sem baráttu
milli fasisma og lýðræðis. Og
eftir sigra fasismans í Mið-
Evrópu, var almennt litið svo
á, að hér hefðu fasistar enn
einu sinni reýnt að hrifsa til sín
völdin, en sem betur fer, hefði
þeim einu sinni verið veitt mót-
spyrna, Fyrir það urðu Spán-
verjar vinsælir.
EN á meðan voru styrjaldarað-
ilarnir á Spáni smámsaman
að komast að raun um það að
engar líkur voru til að skjótur
sigur næðist. Löng barátta var
framundan, og það var nauð-
synlegt að sýna meiri gætni.
Með haustinu hófst nýr þáttur
borgarastyrjaldarinnar. Fyrsti
þáttur hennar hafði staðið í tvo
mánuði, annar þátturinn átti
eftir að standa tvö ár. Með hon-
um féll niður hinn andlegi eldur
og frumstæða grimmd. Borgara-
styrjöldin varð reglubundin, leið
inleg og hægfara hernaðarleg og
stjórnmálaleg samkeppni.
Nú voru litlu staðbundnu bar-
dagarnir í hverri borg og hverju
þorpi úr sögunni. Tveir helm-
ingar Spánar stóðu andspænis
hver öðrum, sitt hvorum megin
við víglínuna, eins og tvö aðskil-
in ríki, sem áttu í styrjöld hvort
við annað. Víglínan var óra-
löng og þunnskipuð herliði. Til
þess að manna hana og vinna
styrjöldina urðu báðir aðilar að
kveðja menn til herþjónustu og
þjálfa stóra heri. Þetta þýddi
líka að nú urðu þeir að fara að
leita eftir erlendum vopnum og
vistum, erlendum bandamönn-
um. Héðan í frá var styrjöldin
háð á þremur sviðum, — á víg-
línunni, á heimavígstöðvunum
og í alþjóðlegum stjórnmálum
og áróðri.
Aþessu tímabili bar mest í
fréttunum á hernaðaraðgerð
um, en þær leiddu þó ekki til
neinna úrslita. í fyrstu voru her
irnir örsmáir, samanborið við
hina löngu víglínu. Smámsaman
jukust þeir, þar til um hálf
milljón manna var undir vopn-
um hvoru megin. Báðir herirnir
voru samt hægfara og getulitlir,
aðeins færir um að heyja tak-
markaðar staðbundnar orustur.
Á einstaka stöðum var um að
ræða smávegis landvinning eða
tap, en hvergi herfræðilegur sig-
ur.
„Þjóðernissinnar" höfðu í
byrjun svolítinn vinning fram
yfir „Lýðveldismenn“. Oftast
báru staðbundnar sóknir þeirra
nokkurn árangur svo langt sem
þær náðu, meðan Lýðveldissinn-
ar virtust mæðast fyrr. Eini veru
legi sigur Lýðveldismanna var
varnarsigur. Það var vörn Madr-
id, veturinn 1936—37.
Þrátt fyrir. þessar litlu sólcnir
og gagnsóknir sýndi heildar-
myndin þrátefli og aldrei virtist
þráteflið vera endanlegra en ein-
mitt haustið 1938, rétt áður en
lýðveldið hrundi. Hrun þess staf-
aði heldur ekki af hernaðarástæð-
um, þó það kæmi fram í hernaðar
stöðunni. Lýðveldið hrundi vegna
þess að stjórnmálaástandið innan-
lands var orðið óheilbrigt og mjög
næmt fyrir atburðum á vettvangi
alþjóðamála. Þegar þau þróuðust
lýðveldinu í óhag, var úti um
það.
(Observer. — öll réttindi áskilin)
Margrét B!örns-
dóttir frá Álfta-
vatni
M I N N I N G
Svo leiftursnöggt mannlífið líður á
braut
sem ljósglit, er blikar á kveldi.
Og erfitt finnst mörgum
að þola þá þraut,
þeim, er af kærleikans eldi
var vermdur og alinn
á æskunnar stund
af alúð og viðkvæmri gleði.
í>að sjá mega börnin
er sorgmæddri lund.
syrgja hér móður á beði.
Þú horfin ert burt af hérvistarbraut.
Við kveðjum með söknuð í hjarta,
því loks hefur skaparinn leyst þig
frá þraut,
og leitt þig í sæluna bjarta.
Með einstöku þoli þá byrði þú barst.
er bölið á herðar þér lagði.
í lífinu hreinasta hetja þú varst
er hryggðin að dyrunum barði.
Aldraðir foreldrar, ástfólgin börn
af elsku þér kveðjurnar færa,
í lífinu ávallt þú varst þeirra vöm
þau votta þér þökkina kæra.
Og vinirnir kveðja þig kærasta fljóð
með klökkva í huga þess biðja,
að alfaðir himneskur efli þann sjóð
er ást þín gaf til þinna niðja.
Ragna Sigríður GunnarsdóttiK
Málverkauppboð vorður í Sjálfstæðishúsinu n.k. föstudag— Sýnt kl.
2—6 fimmtudag (Uppstigningadag) ogkl. 10—1 á föstudag.
Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar
Austurstræti 12 — Sími 13715.
Ameríski söngkví ntettinn
FIVE KEYS
Þar sem hljómleikaför Five Keys út á land seinkar um
einn dag, verður hægt að hafa eina hljómleika ennþá í
Austurbæjarbíói í kvöld kl. 11,15.
Allra síðasta sinn
Aðgöngumiðasala í Austurbæjarbíói eftir kl. 2 í dag.
Sími 11384.
Blindrafélagið