Morgunblaðið - 10.05.1959, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.05.1959, Qupperneq 13
Sunnuðagur 10. maí 1959 MORGUNBLAÐ1Ð 13 Nú líður að vertíðarlokum. — Þessi mynd er frá Vestmannaeyjum. (Ljósm. Ól. K. M.) REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 9. maí Ofbeldisfálm Breta Á það var drepið í síðasta Reykjavíkurbréfi, hversu ofbeldi Breta hér við land hefur verið fálmkennt. Svo er að sjá sem það sé komið undir kunnáttu og hátt- vísi hvers einstaks skipherra Breta, hvort óvefengjanlegar mælingar íslenzkra varðskips- manna eru teknar gildar eða ekki. Þá virðist algjört handa- hóf ráða, hvaða fyrirskipanir eru gefnar af stjórnarvöldum í Lond- on um meðferð þeirra skipa, sem staðin eru að veiðum innan fjög- urra mílna markanna gömlu. Ákvörðun þessi sýnist fara eftir því, hvaða skrifstofumaður er við þá og þá eða gefur sér tima til að sinna málunum. LTrslitaráðin eru m. a. s. stundum á skrifstofu einstakra útgerðarfyrirtækja. Tjá ir ekki að segja, að þau kveði einungis á um, hvert þeirra eig- in skip skuli halda, því að það er herskipaverndin, sem sker úr, hvert þau raunverulega sigla. Ábyrgðin hvílir því óumdeilan- lega á brezku stjórninni. En orð- sendingarnar, sem sendar eru ís- lenzku stjórninni í hennar nafni, brjóta svo gersamlega gegn sam- tímis framkvæmd Breta sjálfra, að furðu gegnir. Bretar hæla sér oft af því, að þeir hafi meiri reynslu í meðferð utanríkismála en flestir eða allir aðrir og séu þess vegna þar sér- staklega til forustu fallnir. Fram- koman gegn okkur íslendingum bendir ekki til mikilla forustu- hæfileika, hvort sem það eru elli- glöp eða annað, er ræður. Að vísu hefur löngum verið vitnað til þess, að sænskur stjórnmála- maður sagði fyrir 2—3 öldum, að ótrúlegt væri, af hvílíkri heimsku heiminum væri stjórn- að. Hvorki elliglöp né heimska nægja þó til að skýra framferði Breta hér. Sönnu nær er, að hin- ir vitrari ábyrgu menn, hafi aldrei sett sig nógu vel inn í mál- ið, né gert sér grein fyrir, til hvílíkra vandræða hér er verið að stofna. Ekki öll tækifæri notuð íslendingar geta ekki unnið þessa deilu frekar en aðrar með valdi, því að yfir því ráðum við ekki, heldur eingöngu með mála- fylgju, með því að sannfæra aðra um rétt okkar og nauðsyn. í sjálfu sér þarf engan að undra, þó að það taki nokkurn tíma, og aldrei megum við grípa til ör- þrifaráða, sem einungis gera mál stað okkar veikari. Hitt er lak- ara að látið hefur verið undir höfuð leggjast að nota öll þau tækifæri, sem gefast til að fylgja máli okkar eftir. Á þetta benti Morgunblaðið hvað eftir annað á sl. sumri, enda voru þá verstu mistökin í meðferð málsins gerð, þegar V-stjórnin hafði að engu tillögu Sjálfstæðismanna um að kæra Breta strax í ágúst fyrir Atlantshafsráði vegna fyrirhug- aðrar ógnunar við íslenzkt land- svæði. Ef þeirri kæru hefði ver- ið fylgt eftir með kröfu um ráð- herrafund þegar í stað og þar hefðu máett forsætisráðherra Is- lands og utanríkisráðherra og flutt mál íslenzku þjóðarinnar, svo sem efni standa til, eru allar líkur til, að komið hefði verið í veg fyrir herhlaup Breta hing- að. — Því er svarað til, að málið hafi verið tekið upp í Atlantshafs- ráði, einnig á ráðherrafundum, bæði í desember í París og nú í apríl í Washington. Alþýðublað- ið segir t. d. frá því hinn 5. maí eftir ameríska stórblaðinu New York Times fyrir rúmri viku, að Hans G. Andersen, fastafulltrúi íslands í Atlantshafsráði, hafi á Washingtonfundinum krafizt þess, að Bretar hættu herskipa- ferðum sínum innan 12 mílna fiskveiðilandhelgi íslands. Hal- vard Lange hafi og á sama fundi skorað á Breta að hætta flota- aðgerðum sínum í íslenzkri land- helgi, að minnsta kosti þar til ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um þessi mál komi saman í Genf næsta ár. Selwyn Lloyd hafi hins vegar neitað en boðið fram það, sem hann kallaði „sann- gjarna miðlun.“ Fregjn frá íslandi Auðvitað er það betra en ekki, að fastafulltrúi íslands, Hans G. Andersen, hreyfi þessu máli á fundum Atlantshafsráðs. Hann er prýðismaður, mikils virtur af öllum þeim, sem hann þekkja. En einmitt þessi frétt og hvernig hún er til komin, sýnir veikleika okkar í meðferð málsins. Hinn umræddi fundur var haldinn í Wasþington í byrjun apríl. Al- þýðublaðið segir nú: „Fundir Atlantshafsráðsins eru að jafnaði lokaðir og hefur því ekki verið frá þessu skýrt“. Allir kunnugir vita, að stór- blöðin skýra nokkurn veginn jafnóðum frá öllu því, sem mark- vert þykir gerast á þessum fund- um. Fregnin um að landhelgis- málinu hafi verið hreyft á Was- hingtonfundinum birtist hins vegar ekki frá fregnriturum blaðsins í Washington, heldur nokkrum vikum seinna frá fregn- ritara blaðsins, sem staddur er í Reykjavík. Með einhverjum hætti hefur hann fengið fregnina hér, þó að hún þætti á sínum tíma ekki frásagnarverð fyrir vestan. Ástæðan til þessa er fyrst og fremst sú, að utanríkisráðherra íslands sjálfur, fylgdi málinu ekki eftir. Vegna stjórnarkrepp- unnar í desember og aðkallandi starfa hér í byrjun apríl, treysti utanríkisráðherra sér hvorki til að fara á Parísarfundinn né Was- hingtonfundinn. Fyrir þeirri á- kvörðun eru frambærilegar á- stæður, en afleiðingin er sú, að undirmaður er látinn bera fram kvartanir vegna yfirtroðslu á lífshagsmunum íslands, kvart- anir, sem ekki fá fullan þunga nema þær séu fluttar af utan- ríkisráðherra sjálfum. Ef hann hefði sjálfur flutt mál íslands eru miklu meiri líkur til, að það hefði þótt frásagnarvert í hinum stóra heimi. Mikið er talað um fund hinna æðstu manna og sagt, að ekki gagni samtöl þeirra, sem ekki hafi úrslitaráðin. Alveg á sama veg er það lagað til þess að draga úr nauðsynlegum krafti málafylgju okkar, að sjálfur utanríkisráðherra lætur ekki sjá sig, heldur sendir undirmann sinn, þótt ágætur sé. Það er al- ger misskilningur, að hótanir gagni okkur íslendingum í þessu máli, en sjálf málsmeðferðin verður að vera á þann veg, að allir sjéí, að okkur sé full alvara. Drengskapur Lange Athyglisvert er, að utanríkis- ráðherra Norðmanna, Lange, hefur bæði á Parísarfundinum og Washingtonfundinum stutt mál íslendinga. Á Parísarfundinum benti hann á ósamræmið í fram- komu Breta, að þeir skuli virða 12 mílna fiskveiðilandhelgi Rússa, — þó að með fyrirvörum sé og sérsamningum að vísu — en beita herskipavaldi gegn okk- ur. Þessi mismunandi framkoma gegn hinum volduga og veika er e. t. v. Bretum hættulegust af öllu £ málinu og er mikils vert, að slíkur maður sem Lange skuli einmitt hafa brýnt Breta á því. Á Washingtonfundinum benti Lange svo á, að Bretar ættu að láta af valdbeitingu sinni, a. m. k. þangað til hin nýja landhelgis- ráðstefna kemur saman. Hér er að því vikið, að þessari ráðstefnu var beinlínis frestað fyrir til- verknað Breta sjálfra. í upphafi héldu þeir því fram, að þeim væri nauðsynlegt að senda her- skip sín hingað til þess að stað- festa £ verki, að þeir teldu sig eiga rétt, sem við hefðum rang- lega tekið. En nú eru þeir búnir að staðfesta þetta, svo hönduglega sem þeim hefur farið það út hendi, og kominn sá tími, að það er beinlínis fyrir þeirra sjálfra tilverknað, að ný ráð- stefna er ekki þegar saman kom- in. Islendingar óskuðu eftir að hún yrði strax í febrúar/marz á þessu ári. Bretar réðu því að hún dróst. Ef góðvild og íhug- un allra málsatvika réði gjörðum þeirra hefðu þeir nú haft full rök til að hverfa frá valdbeiting- unni hér, þangað til sýnt er hvað ráðstefnan gerir, eins og Lange benti á. Svo er að sjá sem sum- ir hér haldi, að ef íslendingar ræði málið við andstæðinga okk- ar, sé gefinn hlutur, að við hljót- um að láta í minni pokann. En einmitt rökfærslur Langes í Par- ís og í Washington sýna hversu sterkt við stöndum í málflutn- ingi gegn Bretum, þegar komið er fram af fullu jafnræði og hik- laust sagt það, sem segja þarf. Traust á réttinum kiðir til sigurs Við íslendingar verðum sjálfir að treysta rétti okkar og æðstu menn þjóðarinnar mega ekki láta neitt tækifæri ónotað til þess að hamra á rétti okkar og fordæma ranglætið í viðurvist þeirra, sem því beita. Þjóðviljinn birtir að vísu sl. þriðjudag kafla úr síð- asta Reykjavíkurbréfi, þar sem vikið var að því, að ísland sé réttarríki, þar sem dómstólar en ekki valdhafar ákveða refsingar, og telur Þjóðviljinn þar koma fram „úrtölutón". í þessu lýsir sér einmitt það, sem ber á milli í skoðunum inn- anlands um meðferð landhelgis- málsins. Sjálfstæðismenn efast alls ekki um, að kommúnistar vilji eins og aðrir Islendingar, sem allra stærsta landhelgi. En kommúnistar vilja annað í leið- inni. Þeir vilja nota tækifærið til að skapa sem mestan ófrið um málið, beita því sem fleyg, er sprengi ísland úr samtökum lýðræðisþjóða. Landhelgismálið er nógu erfitt og skiptir okkur svo miklu, að ærið starf er að hugsa um að ná sigri í því einu, þó að öðrum atriðum sé ekki blandað þar inn í til að gera allt málið enn erfiðara. Út yfir tæki, ef kommúnistum heppnaðist sú ráðagerð, að íslendingar hættu í meðferð þessa máls að vera rétt- arríki, yfirvöld færu að skipta sér af meðferð dómsmála með óviðurkvæmilegum hætti, og meinuðu málum að ganga sinn venjulega og löglega gang. Sann- ast að segja er ótrúlegt að nokkr- um manni geti slíkt til hugar komið, og ekkert væri vísari veg- ur til ósigurs í sjálfu landhelgis- málinu en einmitt þetta. En sum skrif og stóryrði Þjóðviljans er erfitt að skilja á annan hátt en þann, að þetta vaki fyrir hon- um. Kommtmistar hegsa öðru vísi cn aðrir Menn verða að minnast þess, að kommúnistar þjálfa sjálfa sig í að hugsa öðru vísi en annað fólk. Það er einn þáttur hinna kommúnísku fræða. Eftir þeirra kenningum eru hugtök eins og réttarríki hreinn hégómi og hlut- leysi dómstóla alls ekki til. Dóm- stólar eiga eftir þeirra kreddu eingöngu að vera tæki í höndum valdhafanna, sem beiti þeim að eigin geðþótta, en ekki eftir lög- um og rétti, sem þeir segja að- eins vera til í ímynd úrelts hugs- unarháttar borgaranna. Kommúnistar telja það t. d. síður en svo nokkuð varhuga- vert að svíkja gerða samninga, eins og um fyrirkomulag 1. maí hátíðahalda. Þeim finnst beinlín- is lofsvert, að æsingamenn þeirra skjóti inn kröfuspjöldum öðrum en þeim, er ráðgerð höfðu verið. Og mennirnir, er mest tala um einingu verkalýðsins, og að hann megi ekki láta stjórnmála- fjötra binda sig, svífast þess ekki að auglýsa frammi fyrir þúsundum manna, að forystu- menn þeirra mæta með talkór, sem þeir ýmist segja að æpa og öskra, eða þagna. Þetta sannaði Snorri Jónsson og öskurlýður hans á Lækjartorgi 1. maí. ís- lendingar kunna ekki slíkum að- ferðum. Áheyrendur greindi eins og gengur á um þærskoðanir,sem Guðni Árnason setti fram í ræðu sinni, sem og það, er aðrir sögðu. En allir sanngjarnir menn við- urkenndu rétt Guðna til að flytja mál sitt og dáðust að stillingu hans meðan öskuræfingin stóð. Raunar er vitað að yfirgænfandi meiri hluti Reykvíkinga í öllum stéttum er Guðna sammála. En einnig flestir hinna fordæma til- raun kommúnista til að varna honum máls. Sami ofbeldishug- urinn lýsti sér hjá Hannibal Valdimarssyni, sem neitaði að tala í útvarp 1. maí, nema hann og hans kumpánar réðu einir allri kvölddagskránni. Slíkur yfirgangur og frekja er ekki að skapi íslendinga. Mútuþegar og heimskingjar ? Þegar menn hugleiða starfs- aðferðir kommúnista, er von að þeir spyrji sjálfa sig, hvernig flokkur jafn gjörólíkur eðli ís- lendinga skuli þó hafa fengið svo mikið fylgi hér sem raun ber vitni. Við þeirri spurningu er ekkert eitt svar. Feluleikur og hamskipti kommúnista er ein af ástæðunum. Önnur kom fram í grein Skúl,a Guðjónssonar, sem drepið var á í síðasta Reykja- víkurbréfi. Tíminn og Framsókn- arflokkurinn hafa eitrað svo hugi ýmissa, að þegar augu þeirra ljúkast upp fyrir spillingu Fram- sóknar, eru þeir haldnir slíkri örvæntingu, að kommúnisminn heltekur þá. Þetta eru nú fleiri og fleiri að skilja. Áróður Tím- ans hefur minnkandi áhrif og Framsókn hefur aldrei verið jafn einangruð og nú. Glöggur maður, sem víða hefur farið um landið síðustu tvo mánuðina, telur, að kjördæmaskrif Tímans hafi haft Frah. á bls. 14

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.