Morgunblaðið - 22.05.1959, Page 4
MORCUNRLAÐIÐ
Föstudagur 22. maí 1959
/
I dag er 142. dagur ársins.
Föstudagur 22. maí.
Árdegisflæði kl. 4:52. ,
Síðdegisflæði kl. 17:18.
Næturvarzla vikuna 16. til 22.
maí er í Vesturbæjar-apóteki, —
sími 22290.
Holts-apótek og Garðs-apótck
eru opin á sunnudögum kl. 1—4
eftir hádegi.
Hafnarfjarðarapótek er opið
alla virka daga kl. 9—21. Laugar-
daga kl. 9—16 og 19—21. Heigi-
dag kl. 13—16 og kl 21.
Næturlæknir í Hafnarfirði er
Ólafur Ólufsson, sími 50536. —
KefJavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga
kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. — Sími 23100.
I.O.O.F. 1 = 1415228% = 90
Brúókaup
A hvítasunnudag 17. maí, fór
fram þrefalt systkinabrúðkaup
á Möðruvöllum í Hörgárdal. —
Þá voru gefin saman ungfrú
Matthildur Þórhallsdóttir, Hjalt-
eyri og Sveinn Sigurbjörnsson,
bóndi í Árnesi í Höfðahverfi. —
Ungfrú Bryndís K. Sigurðardótt
ir og Ævar Þór Þórhallsson, vél-
virkjanemi, bæði til heimilis að
Strandgötu 49, Akureyri. — Ung
frú Verna Sigurðardóttir. Bjark
arbraut 13, Dalvík og Kristján
örn Þórhallsson, sjómaður,
Hjalteyri. — Systkinin eru börn
frú Þórönnu Rögnvaldsdóttur,
ekkju Þórhalls heit. Kristjáns-
sonar í Sæborg.
Sama dag voru gefin saman í
hjónaband á Möðruvöllum ung-
frú Sólveig Hermannsdóttir frá
Myrkárdal og Óskar Eggertsson,
rafvirki, Sundstræti 29, ísafirði.
[Hjónaefni
Á hvítasunnudag opinberuðu
trúlofun sína Margrét Alda
Úlfarsdóttir, Rauðarárstíg 24,
Reykjavík og Guðbjartur Gunn-
arsson, öldugötu 25, Hafnarfirði.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Dagrún Jóhannsdótt
ir, Ketilsstöðum og Jón Helga-
son, Kaldárholti, Holtum.
S. 1. laugardag opinberuðu trú
lofun sína Kristín Guðmunds-
dóttir, Borg, Seltjarnarnesi og
Eysteinn Jóhann Jósefsson, Greni
teig 16, Keflavík.
- AFMÆLI o
Fimmtugur er í dag Arnold F.
Pétursson, kaupmaður, Selfossi.
Skipin
Eimskipaféiag íslands h.f.: —
Dettifoss fór frá Reykjavík í gær.
Fjallfoss fór frá Akureyri 20. þ.
m. Goðafoss fór frá New York í
gær. Gullfoss er í Reykjavík. —
Lagarfoss fór frá St. Johns 18.þ.m.
Reykjafoss fór frá Húsavík í
gær. Selfoss fer frá Álaborg á
morgun. Tröllafoss fór frá Rott-
erdam í gær. Tungufoss er í Rvík
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla
er á Vestfjörðum. Esja er á Aust
fjörðum. Herðubreið er í Rvík.
Skjaldbreið fór frá Reykjavík í
gær. Þyrill fór frá Fredrikstad
19. þ. m. Helgi Helgason fór frá
Reykjavík í gær. ,
Skipadeild S.I.S.: — Hvassafell
er í Leningrad. Arnarfell er í
Hull. Jökulfell er í Leningrad.
Dísarfell er i Þorlákshöfn. Litla
fell fór frá Reykjavík í gær. —
Helgafell fór frá Reyðarfirði 19.
þ. m. Hamrafell fór frá Reykja-
vík í gær.
Eimskipafél. Reykjavíkur h.f.:
Katla er væntanleg til Reykjavík
ur á morgun. — Askja lestar salt
físk á Austurlandshöfnum.
PSlFlugvélar
Flugfélag íslands h.f.: Hrím-
faxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 8 í dag. Væntan
legur aftur til Reykjavíkur kl.
22:40 í kvöld. Fer til Oslóar,
Kaupmannahafnar og Hamborg-
ar kl. 10 í fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætl
að að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Egilsstaða, Fagurhóls-
mýrar, Flateyrar, Hólmavíkur,
Hornafjarðar. ísafjarðar, Kirkju
bæjarklausturs. Vestmannaeyja
(2) og Þingeyrar. Á morgun er
áætlað að fljúga til Akureyrar
(2), Blönduóss, Egilsstaða, Húsa
víkur, ísafjarðar, Sauðárkróks,
Skogasands, og Vestmannaeyja
Loftleiðir. — Edda kemur kl.
8,45 frá New York; fer áleiðis til
Oslóar, Stavanger kl. 19. Saga
er væntanleg í kvöld kl. 19 frá
Glasgow—London, fer áleiðis til
New York kl. 22,30.
Ymislegt
Byggingaþjónustan, Laugavegi
18A, sími 24344, er opin alla
virka daga kl. 13—18, nema laug
ardaga kl. 10—12. Einnig mið-
vikudagskvöld kl. 20—22.
Frá Guðspekifélaginu: — Vesak
fyrirlestur í Guðspekifélagshús-
inu í kvöld kl. 8,30. — Sigvaldi
Hjálmarsson talar um: „Trú og
dulspeki í Tíbet“. — Utanfélags-
fólk er velkomið.
Mæðradagurinn er á stunnudag-
inn kemur. —
Frá Þingeyingafélaginu: Heið-
merkurferð á morgun. Lagt verð-
ur af stað frá Búnaðarfélagshús-
inu kl. 2 e.h. — Þess er vænzt, að
félagar fjölmenni í þessa fyrstu
gróðursetningarferð á sumrinu,
en þátttakendur eru vinsamlega
beðnir að láta vita í síma 18819.
Mæðradagurinn er á stunnudag-
inn kemur. —
Frá Húsmæðrafélagi Reykja-
víkur: — Síðasta saumanámskeið
félagsins hefst n. k. mánudag,
25 maí, kl. 8 síðdegis, í Borgar-
túni 7. — Nánari upplýsingar um
námskeiðið eru gefnar í símum
11810 og 15236.
Söfr
Listasafn Einars Jónssonar, Hnit
björgum, er opið rniðvikudaga og
sunnudaga kl. 1.30—3,30.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur: —
Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29
A. — Útlánadeild: Alla virka
daga kl. 14—22, nema laugardaga
kl. 13—16. — Lestrarsalur fyrir
fullorðna: Alla virka daga kl.
10—12 og 13—22, nema laugar-
daga kl. 10—12 og 13—16.
Útibúið, Hólmgarði 34. — Út-
lánadeild fyrir fullorðna: Mónu-
daga kl. 17—21, miðvikudaga og
„HÚMAR HÆGT AÐ KVELDI“ verður sýnt í síðasta sinn I
Þjóðleikhúsinu annað kvöld. — Eins og lesendum er kunnugt
þá er þetta síðasta verk O’Neils talið eátt stórbrotnasta leikrit
sem skrifað hefur verið á síðari tímum og hefur það alls staðar
verið sýnt við fádæma hrifningu. — Myndin er af Arndísi
Björnsdóttur í hlutverki móðurinnar.
föstudaga kl. 17—19. — Lesstofa
og útlánadeild fyrir börn: Mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga
kl. 17—19.
Útibúið, Hofsvallagötu 16. —
Útlánadeild fyrir börn og full-
orðna: Alla virka daga, nema
laugardaga, kl. 17,30—19,30.
Útibúið, Efstasundi 26. — Út-
lánadeild fyrir börn og fullorðna:
Mánudaga, miðvikudaga og föstu
daga kl. 17—19.
Þjóðminjasafnið: — Opið sunnu
STAÐFASTI TINDÁTIIMN - Ævintýri eftir H. C. Andersen
daga kl. 1—4, þriðjudaga, fimmtu
daga og laugardaga kl. 1—3.
Byggðasafn Reykjavíkur að
Skúlatúni 2 er opið kl. 2—5 alia
daga nema mánudaga.
Náttúrugripasafnið: — Opið á
sunnudögum kl. 13:30—15, og
þriðjudögum og fimmtudögum
kl. 14—15.
Læknar fjarverandi
Árni Björnsson um óákveðinn
tíma. — Staðgengill: Halldór Arín
bjarnar. Lækningastofa í Lauga-
vegs-Apóteki. Viðtalstími v-irka
daga kl. 1:30—2:30. Sími á lækn-
ingastofu 19690. Heimasími 35738.
Bjami Jónsson fjarverandi frá
14. maí—5. júlí. Staðgengill
Stefán P. Björnsson. ,
Guðmundur Benediktsson um óá
kveðinn tíma. — Staðgengili:
Tómas Á. Jónasson, Hverfisgötu
50. Viðtalstími kl. 1—2, nema
laugardaga, kl. 10—11. Sími 15521
Valtýr Bjarnason 1/5 um óákv.
tíma. Tómas A. Jónasson, Hverf-
isgötu 50.
Víkingur H. Arnórsson fjarver
andi frá 27. apríl til 1. júní. Stað-
gengill Jón Hjaltalín Gunnlaugs-
son, Hverfisgötu 50.
Skyndilega tók einn smástrák-
urinn tindátann og fleygði hon-
um beint inn í ofninn — án nokk
urra skýringa. Það hlaut að vera
púkinn í neftóbaksdósunum, sem
var potturinn og pannan í þvílíku
athæfi.
Tindátinn stóð í miðju eldhaf-
inu, og- hitinn var ógurlegur. En
ekki vissi hann, hvort hann brann
í eldinum eða af ást. Litirnir voru
alveg farnir af honum, en hvort
það hafði gerzt á ferðalaginu, eða
það var af sorg — það vissi eng-
inn. — Hann horfði á litlu stúlk-
una, og hún horfði á hann — og
hann fann, að hann var að
bráðna, en þó stóð hann staðfast-
ur enn, með byssuna um öxl. —
Þá opnuðust skyndilega dyr, súg-
urinn hreif dansmeyjuna með
sér, og hún sveif eins og einhver
himnadís inn í ofninn til tindát-
ans, furðaði upp og hvarf.
Þá bráðnaði tindátinn og varð
að klessu. En þegar vinnukonan
tók öskuna úr ofninum daginn
eftir, fann hún þar dálítið tin-
hjarta — það var allt og sumt,
sem eftir var af tindátanum stað-
fasta. En af dansmeyjunni var
ekkert eftir nema glerdoppan, og
hún var svört af bruna.
_ SöGTTT,OK.
FERDIIMAIMD
Tillitslausir farþegar
Sökkíu ekki net j-
unum nój>u djúpt
AKRANESI, 20. maí. — Sjö síld-
arbátar lönduðu hér í dag sam-
tals 311 tunnum. Reknetjabátarn-
ir voru vestur við Jökul. Vöruðu
þeir sig ekki á að sildin stóð
dýpra en áður og sökktu því net
unum ekki nógu djúpt. Aflahæst-
ur var Skipaskagi með 65 tunnur.
Hringnótabáturinn Höfrungur
landaði 52 tunnum. Var hann að
| kasta suður á Hafnarleið, er hann
| fékk nótina í skrúfuna. Dró hring
uótabáturinn GK 39 Höfrung norð
| ur undir Garðskaga. Urðu þar
fagnaðarfundir er Hafsteinn Jó-
hannsson, froskmaður, kom brun-
andi á hraðbát sínum. Var frosk-
maðurinn 20 mínútur að hreinsa
skrúfuna. — Oddur.
RAGNAR JÓNSSON
hæstaréttarlogmaður
Laugavegi 8. — Sími 17752
Lögfræðistörí. — Eignaumsysl*