Morgunblaðið - 22.05.1959, Blaðsíða 15
Föstudaerur maí 1959
M o n r_ T1 iy b L A Ð1Ð
15
Sigurður Á. Björnsson frá
Veðramóti 7 5 ára
HANN hefir haft á hendi fram-
færzlufulltrúastarf hjá Keykja-
víkurbæ síðan 1935 — í 24 ár —
og tók við yfirfulltrúastarfinu
þegar Magnús V. Jóhannesson
lézt skyndilega fyrir hálfu ári.
Að sjálfsögðu hefur margt á
dagana drifið við svo vandasamt
starf, öll þessi ár, og er ég ekki
fær um að rekja neitt af því, en
mér er kunnugt um að allt hefir
starfið verið af hendi leyst með
mestu prýði og samstarfið við
náungann verið hið ákjósanleg-
asta. Fyrst nú fimm árum eftir
aldurstakmarkið fær Sigurður
lausn frá starfinu. Er þó þrekið,
áhuginn og starfsgleðin í góðu
lagi.
Mörg fleiri trúnaðarstörf hafa
mætt á Sigurði hér í Reykjavík
en framfærzlan. Hann hefir um
fjölda ára starfað í framfærszlu-
nefnd ríkisins, verið 1. sáttamað-
ur, formaður safnaðarstjórnar
Dómkirkjunnar, og formaður í
stjórn hf. Ofnasmiðjunnar í 20 ár.
Fyrir aldarfjórðungi gerðist
Sigurður Björnsson og fjölskylda
hans hinir ágætustu Reykvíking-
ar, komu frá Veðramóti í Skaga-
firði. Sigurður er bæði Skagfirð-
ingur og Húnvetningur langt
fram í ættir. Fæddur er hann á
Heiði í Gönguskörðum 22. maí
1884. Björn Jónsson faðir hans,
hreppstjóri á Veðramóti var ætt-
aður úr Húnavatnssýslu, en Þor-
björg móðir hans Stefánsdóttir
úr breiðbyggðum Skagafjarðar.
Fjögurra ára fluttist Sigurður
með foreldrum sínum að Veðra-
móti og ólst þar upp ásamt 9 syst
kinum. Frábært þrek og glæsi-
mennska mun fljótt hafa komið í
Ijós, enda greri félagslíf og heil-
brigð gleði hjá þeim Veðramóts-
systkinum í uppvextinum. Ung-
mennafélagsandinn, íþróttir og
félagslíf mótaði Sigurð og gerði
hann að þeim trausta og heil-
steypta fyrirmyndarmanni sem
hann hefir ætíð verið.
Tvítugur kom Sigurður úr Hóla
skóla. Gerðist hann þá önnur
hönd föður síns um búrekstur-
inn á Veðramóti. En stuttu fyrr
hafði Björn misst Þorbjörgu konu
sína frá stórum barnahópi. Fljót-
lega seyddi Sigurður til sín hún-
verzka og ágætlega ættaða heima
sætu, Sigurbjörgu Guðmunds-
dóttur frá Holti í Svínadal. Brúð-
kaupið stóð 1912, og litlu síðar
hófst búskapur á Veðramóti. Var
þá syskinahópurinn uppkominn
og faðirinn orðinp þreyttur.
Ungu hjónin tóku föstum tök-
um á verkefninu. Enda búnaðist
þeim blessunarlega á stórri og
erfiðri fjallajörð sem þeim tókst
að kaupa af íslenzka ríkinu eftir
fárra ára búskap. Börnin fæddust
hvert af öðru. Það yngsta, ljós-
hærð Ijómandi telpa var á fyrsta
ári 1921, þegar ég fyrst kom að
Veðramóti og vingaðist við
fjölskylduna.
Veðramótshjónunum varð fljótt
Ijóst að hugur barnanna lá ekki
að búskap, og að þau þurftu meiri
skólavistar en hægt var að láta
þeim í té frá fjallajörð sunnan
við Tindastói. Því tók Sigurður
bóndi sér ferð á hendur, landveg
um hávetur og hugðist kaupa
litla jörð í nánd við Reykjavík.
En landrýmið var harla lítið, og
ekkert varð úr þeim kaupum.
Ei að síðúr bar ferðin mikinn ár-
angur. Eftir nokkra leit að góðu
húsi, keypti Sigurður nýlega
byggt steinhús, Fjólugötu 23,
í Reykjavík. Greiddi helming-
inn í peningum út í hönd. —
Og til Reykjavíkur flutti Veðra
mótsfjölskyldan 1934, eftir að
hafa selt 300 ær og annan bústofn
á lágu verði en látið Veðramót af
hendi í skiptum fyrir aðra jörð
í Skagafirði.
f Fjólugötu 23 hefir fjölskyldan
búið síðan. Þaðan menntuðust öll
börnin svo sem bezt varð á kosið
fyrir þjóðfélagið. Mun það sjald-
gæft að svo fjölþættir vísinda-
og athafnakraftar streymi frá
bændahjónum á íslandi, sem gert
hefir frá þeim Sigurði og Sigur-
björgu.
Elztur er dr. Björn læknir, for-
stöðumaður og stofnandi tilrauna
stöðvar Háskólans á Keldum. Dr.
Jakob stofnsetti og stjórnar Fisk-
iðjuveri ríkisins í Reykjavík. Dr.
Magnús var um mörg ár fulltrúi
Sölumiðstöðvar Hraðfrystihús-
anna í Evrópu og konsúll íslands í
Tékkóslóvakíu en hefir nú gerzt
Reykvíkingur á ný með tékk-
neskri konu sinni, tveim börnum
og tengdaforeldrum. Björgvin er
héraðsdómslögmaður og fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam
bands íslands. Guðrún valdi sér
verzlunarnám, en gerðist fljót-
lega húsfreyja, og er nú með
manni sínunl, Sigurði Benedikts-
syni, tengd mikilsverðum sölu- og
dreyfingarstörfum fyrir íslenzk-
an landbúnað.
Eftir ársleit í höfuðstaðnum
fann Sigurður fátækrafulltrúa-
starfið. Það hentaði honum vel,
hann var þaulæfður í félagsmál-
um, kunni vel með fé að fara,
þekkti basl og bágindi annarra,
og var fús til að greiða úr vand-
ræðum fólks, eftir því sem við
varð komið. Samtímis því sem bú
skapur hjónanna blómgaðist á
Veðramóti, höfðu hlaðist á Sig-
urð margskonar störf fyrir hrepp
og hérað. Hann var lengi oddviti,
hreppstjóri og sýslunefndarmað-
ur, formaður búnaðarfélagsins og
skólanefndar, í stjórn Kaupfélags
Skagfirðinga og Sláturfélagsins
á Sauðárkróki. Það var því eng-
inn venjulegur bóndi sem kom
með barnahóp sinn til menntun-
ar í Reykjavík 1934, og gerðist
starfsmaður bæjarins í vanda-
sömu fulltrúastarfi. Það hefir lát-
ið honum vel, allt gengið mjög
ánægjuiega. Iðnfyrirtæki eins og
Ofnasmiðjunni hefur komið mjög
vel lífsreynsla Sigurðar, og eigin-
leikar. Hann hefur traust
allra sem kynnast honum. Og
sjálfur segist hann hafa Guði og
mönnum mikið að þakka. Sex-
tugum þakkaði íslenzka ríkið
honum margháttuð trúnaðar-
störf, með því að sæma hann
fálkaorðunni.
Innan skamms mun Sigurður
hætta störfum hjá Reykjavíkur-
bæ, eftir langan og farsælan
starfsdag. Þrekið er þó enn óbil-
að og óvenjulegt. Vafalaust finn-
ur Sigurður sér hugljúf verkefni
hin síðustu æfiár sem framundan
eru.
í tilefni af afmælinu brugðu
hjónin sér í smáfrí austur í sveit-
ir til að rifja upp gamlar minn-
ingar um hið gróandi vor í Skaga-
firði. Vinir og frændalið mun
vafalaust taka hlýtt í hönd þeirra
við næstu vinamót.
Sveinbjörn Jónsson.
Aðalfundur fél.
isl. rithöfunda
AÐALFUNDUR Fél. ísl. rithöf-
unda var haldinn þriðjudaginn
12. maí síðastl. Stefán Júlíusson
var endurkjörinn formaður fé-
lagsins. Aðrir í stjórn félagsins
eru: Ingólfur Kristjánsson, gjald-
keri, Indriði G. Þorsteinsson,
ritari og meðstjórnendur Þór-
oddur Guðmundsson og Sigurjón
Jónsson. í stjórn Rithöfunda-
sambands Islands voru endur-
kjörnir þeir Guðmundur Gíslason
Hagalín, núverandi forseti þess
og Stefán Júlíusson og til vara
Indriði Indriðason, núverandi
gjaldkeri þess.
Á fundinum var skýi-t frá ný-
afstöðnum samningum Rithöf-
undasambandsins við Ríkisút-
varpið, en þeir voru undirritaðir
í apríl síðastl. Nýju samningarn-
ir kveða á um allverulega hækk-
un, eða fimmtíu af hundraði, á
greiðslum fyrir flutning á
bundnu og óbundnu máli í út-
varp. Samkvæmt framkomnum
tilmælum Félags ísl. rithöfunda
var sett nýtt ákvæði inn í samn-
ingana, sem kveður á um sér-
staka greiðslu fyrir útvarps-
flutning á sögum, sem hefur ver-
ið breytt í leikritsform. Þá
fékkst hækkun á árlegu fram-
lagi í Rithöfundasjóð Ríkisút-
varpsins. Framlag útvarpsins
nam áður fimm þúsund krónum,
en hefur nú verið hækkað um
helming.
Á fundinum var samþykkt
áskorun á stjórn Rithöfundasam-
bands Islands, um að hún beiti
sér fyrir því, að Menntamála--
ráðuneytið veiti árlega verðlaun
fyrir tvær beztu barna- og ungl-
ingabækurnar, sem út koma eftir
íslenzka höfunda. Slík verðlauna
veiting hefur tíðkazt um árabil
annars staðar á Norðurlöndum og
þótt gefa mjög góða raun.
Margir vegfarendur skoðuðu með’ eftirvæntingu þennan fal-
lega Opel-bíl, meðan hann stóð úti á Hótel Islands grunninum
og ekki var búið' að draga um hann í happdrætti DAS. Svo var
dregið í fyrsta flokki «g nýlega var vinnandanum, Svavari
Benediktssyni, 1. stýrimanni á togaranum Júní, og konu hans
afhentur bíllinn, sem komið hafði upp á númer þeirra. — Er
myndin tekin við það tækifær'
Revýan „Frjálsir fiskar“ hefir undanfarið verið sýnd í Fram-
sóknarhúsinu. — Myndin er af Einari Guðmundssyni og Har-
aldi Björnssyni.
Gestur á vegum
Guðspekifélagsins
FORSETI Guðspekifélagsins, Ind
verjinn N. Sri Ram, frægur fyrir
lesari og rithöfundur, er væntan-
legur til íslands seinnihlutann í
júní. Hann mun halda opinberan
fyrirlestur í Reykjavík og verða
aðalfyrirlesari á Sumarskóla
Guðspekifélagsins, sem haldinn
verður í Hlíðardalsskóla í ölfusi
dagana 20.—25. júní. Skóíinn er
þegar nálega fullskipaður, en
varðandi umsóknir ber að snúa
sér til frú Guðrúnar Indriðadótt-
ur, sími 13476, eða frú Önnu Guð
mundsdóttur, sími 15569.
Rauðakrossdeild
stofnuð í Kópavogi
ÞANN 12. maí var stofnuð Kópa-
vogsdeild RauðaKross íslands.
Stjórnina skipa: Ari Jóhannes-
son verkstj., formaður; Georg
Lúgers og Ingvi Guðmundsson,
meðstjórnendur. Varastjórn: Ingi
bergur Sæmundsson lögreglu-
þjónn, Sigríður Soffía Sandholt,
kennaraskólanemi og Pétur Guð-
mundsson bifreiðastj. Endurskoð-
endur: Brynjólfur Dagsson hér-
aðslæknir og Árni Sigurjónsson,
fulltrúi. — Stofnendur voru 81.
Auglýsendur!
er
helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt dagblað.
☆
Blaðið er nú sent
öllum þeim, er áður
fengu „ísafold og Vörð‘'
og er því lesið á
flest öllum bæjum
dreifbýlisins.
☆
|JI®r@wiil»Iffl&*&
er blað alira landsmanna.