Morgunblaðið - 22.05.1959, Blaðsíða 11
’östudagur 22. maí 1959
MORGIJISBL 4 ÐIÐ
11
r w- ■
RITSTJÖRAR: HÖRÐUR EINARSSON OC STYRMIR GUNNARSSON
Sjöunda ,,heimsmót"
kommúnista \ Vínarborg
Ráðhúsið í Vínarborg.
1 SUMAR hyggjast kommúnist-
ar halda 7. ungmennafestival sitt
undir nafninu „7. heimsmót æsku
og stúdenta fyrir friði og vin-
áttu“. Tvennt gerir þetta festival
frábrugðið hinum fyrri: Það er
f fyrsta sinn haldið vestan járn-
tjalds, og það er haldið gegn vilja
heimaþjóúariiinar og í beinni
andstoðu við þá er sizt skyldi:
æsku eg stúdenta.
Um heim allan herða kommún-
istar nú mjög áróðurinn fyrir
þátttöku ungs fólks og reyna að
venju mest til þess að ginna
ópóiitísk samtök og hlutlausa að-
ila í iið með sér í þeirri von, að
þátttaka þeirra verði til að breiða
að nokkru yfir raunveruiegt eðli
og tiigang mótsins. Að þessu leyti
vilja íslenzkir kommúnistar ekki
vera eftirbátar erlendra sovét-
vina, og hafa því hafið umfangs-
mikia baráttu fyrir sem víðtæk-
astri þátttöku frá íslandi. Ár-
angurinn hefur orðið harla lítill
enn sem komið er, og einkum
hefur kommúnistum gramizt, að
heildarsamtök æsku og stúdenta
á Islandi hafa hafnað þátttöku.
(Sjá t.d. ályktun Stúdentaráðs
Háskóla íslands í Mbl. 3. marz
s.l.). Verður nú rakin lauslega
baráttusaga íslenzkra kommún-
ista fyrir þátttöku í næsta festi-
vali.
Ititla nefndin með stóra nafninu.
16. jan s.i. sendi svoköiluð „Al-
þjóðasamvinnunefnd íslenzkrar
æsku“ út bréf til fiestra ef ekki
ailra íslenzkra æskulýðssamtaka,
þar sem mótið var kynnt frá
sjónarhóli nefndarinnar. Nafn
hennar er svo glæsilegt, að ó-
kunnugir mættu ætla, að hér
væri um töiuvert merkilega og
veigamikla nefnd að ræða, enda
mun sá tiigangur nafngiftarinn-
ar. í bréfhausnum er hið virðu-
lega heiti tvíprentað á íslenzku,
auk enskrar þýðingar þess („In-
ternational Committee of Ice-
landic Youth“), franskrar og
spánskrar, en neðst er prentað
með smáu letri: „World Federa-
tion of Democratic Youth, Benc-
zur Utca 34, Hungary“. þar kem-
ur fyrst i ljós, hvað nefndin er
fyrir nokkuð, en það er: íslenzkt
útibú hinna kommúnistísku al-
þjóðasamtaka æskumanna,
WFDY. Samtök þessi hafa að
sjálfsögðu meginafl sitt og fjár-
uppsprettur í austantjaldslönd-
um, en eru þó ekki vinsælli þar
en það, að þau neyddust til að
flýja með skrifstofulið sitt til
Tékkóslóvakíu haustið 1956, þeg-
ar ungverska þjóðin bylti af sér
oki Rússa og innlendra málaliða
þeirra. Á þjóðarráðstefnu pólskra
aeskumanna í des. 1956 varð
WFDY einnig fyrir harðri gagn-
rýni.
Hiutverk „alþjóðasamvinnu-
nefndarinnar" íslenzku virðist
ekki annað en snatt og erindis-
rekstur fyrir WFDY hér á landi,
einkum í sambandi við heims-
mótin. Ekki er Ijóst, hvernig
nefndin er sett saman, en full-
trúar frá Æskulýðsfylkingunni,
Félagi róttækra stúdenta, „Æsku-
lýðsdeild Dagsbrúnar" (?) og Iðn
nemasambandinu virðast kjósa
sjálfa sig í hana. Væntanlega
upplýsir Þjóðviljinn þetta fljót-
lega, svo að enginn þurfi að fara
í grafgötur með tilurð, verksvið,
skipulag og starfsemi svo nafn-
giæstrar nefndar. ,
í fyrrnefndu bréfi nefndarinn-
ar er boðað til „umræðu- og
upplýsingafundar, sem yrði und-
anfari stofnfundar hinnar ís-
lenzku undirbúningsnefndar" fyr
ir 7. festivalið. 29. jan s.I. var
fundurinn haldinn í „MÍR-saln-
um í Þingholtsstræti 27. Þar
komu um 40 manns og hlýddu á
erindi fyrrverandi starfsmanns
FYRRI GREIN
IUS (hins kommúnistíska „al-
þjóðasambands stúdenta") í
Prag. — Upplýsingar fengu menn
fáar, og umræður urðu engar.
Erindi hins húsbóndaholla starfs-
manns birtist svo í Þjóðviljanum
19. og 20. febrúar.
Stofnun og skipun undirbúnings-
nefndar
,f boðsbréfinu frá 16. jan. var
tekið fram, að það væri „eðli-
legast og æskilegast, að hexldar-
samtök íslenzkrar æsku skipu-
legðu þátt íslendinga í mótinu",
og í Þjóðviljanum stóð: „Þess er
að vænta, að sem fyrst verði
hægt að stofna undirbúnings-
nefnd og sem flest samtök eigi
fulltrúa í henni“. Eitthvað virð-
ist sköpun þeirrar nefndar hafa
gengið erfiðlega, því að nú leið
og beið til 9. apríl, en þá til-
kynnti blað festivalsmanna, Þjóð-
viljinn, loks, að „hin íslenzka
undirbúningsnefnd" hefði verið
stofnuð. í henni eiga sæti full-
trúar fimm fámennra samtaka
og auk þess þrír einstaklingar.
Samtökin, sem lögðu til fulltrú-
ana, eru Æskulýðsfylkingin, Fé-
lag róttækra stúdenta (kommún-
istar), Iðnnemasamband íslands
(í höndum kommúnista), Félag
ísl. myndlistamema og „Glímu-
deild Ungmennafélags Reykja-
víkur“. (Þess má geta innan
sviga, að kommúnistar virðast á
einhvern hátt hafa náð nokkr-
um tökum innan ungmennafé-
lagshreyfingarinnar, a.m.k. með-
al starfsliðs hennar).
Undirbúningsnefnd þessi er því
ekki á nokkurn hátt fulltrúi ís-
lenzkrar æsku, og ber að fagna
því.
Áróffur Þjóðviljans
í Þjóðviljanum hafa birzt
nokkrar heilsíðugreinar auk
smærri ritsmíða um heimsmótið.
Sumar þeirra eru andsvör við
ákvörðunum fulltrúa heildar-
samtaka íslenzkrar æsku og stúd-
enta (Stúdentaráð Háskóla Is-
lands, SHÍ, og Æskulýðssamband
íslands ÆSÍ) um að hafna allri
þátttöku og aðild að mótinu. í
þeim öllum kennir ýmissa mis-
sagna og ranghermis, sem ástæða
er til að leiðrétta opinberlega,
þar eð ósannindi kommúnista og
áróður beinist aðallega að hlut-
lausum samtökum, sem reynt er
að glepja til þátttöku á röngum
og fölskum forsendum.
Festivalið haldið í Vín gegn vilja
austurrískrar æsku
Röfuðástæðan fyrir því, áð ísl.
stúdentar höfnuðu allri aðild að
7. heimsmótinu, sem kommúnist-
ar hyggjast halda í Vín, er sú, að
Stúdentasamband Austurríkis
(ÖH) og nær öll önnur æskulýðs-
sambönd í Austurriki hafa mót-
mælt því, að heimsmótið verði
haldið í Vínarborg. Æskulýðs-
samband íslands hafnaði einnig
þátttöku, þar eð Æskulýðssam-
band Austurríkis er andvígt
festivalinú. Það er sjálfsögð
kurteisisskylda í viðskiptum
æskuiýðssamtaka hinna ýmsu
landa, að virtur sé vilji æsku-
iýðs viðkomandi lands, þegar um
er að í'æða alþjóðleg mót og ann-
að slíkt íslenzkir kommúnistar
hafa neitað þvi í Þjóðviljanum,
að austurrísk æska sé einhuga
um að taka ekki þátt í heimsmót-
inu. Hafa þeir t. d. látið að þvi
liggja, að Æskulýðssamband
Austurríkis sé ekki mótfallið
fastivalinu, heldur hlutlaust í
afstöðu sinni til þess. Þeim ó-
sannindum er bezt svarað með
því að vitna í yfirlýsingu sam-
bandsins, þar sem segir m. a.:
„Hinn kommúnistíski karakter
mótanna hefur ekki horfið, þótt
Vín, höfuðborg hins hlutlausa
Austurríkis hafi nú verið valin
fyrir mótsstað . . . Skipuleggj-
endur 7. heimsmótsins . . . reyna
að forðast hin raunverulegu
vandamál æskunnar með vígorð-
inu: „ópólitískt æskulýðsmót fyr-
ir friði". Þar sem frjáls og óháð
æskulýðssamtök eru bönnuð i
alþýðulýðveldunum, er þátttaka
raunverulegra fulltrúa æskunn-
ar frá þessum ríkjum óhugsanleg
. . . Meðlimir Æskulýðssambands
Austurríkis gera sér fyllilega
Ijóst hið kommúnistíska eðli
heimsmótanna og hafna því þátt-
töku, bæði í heild og einstaklings-
lega“.
í skeyti, sem Æskulýðssam-
band Austurríkis sendi nýverið
til Æskulýðsráðstefnu í Afríku og
Asíu í Kaíró, segir m. a.: „Æsku-
lýðssamband Austurríkis vill
upplýsa ykkur um það, að þsgar
frá er skilið hið fámenna ung-
kommúnistafélag (Freie Öster-
reichische Jugend) mun enginn
félagi nokkurs æskulýðsfélags 1
Austurríki taka þátt í ungmenna-
festivali kommúnista, sem hald-
íð verður í Vín í júlí og ágúst
1959. Almenningur í Austurríki
er eindregið á þeirri skoðun, að
heimsmót þetta sé aðeins eitt
bragð kommúnista í kalda stríð-
inu.
Þess má og geta, að Æskulýðs-
sambandið gefur út blað, sem
eingöngu er helgað baráttunni
gegn festivalinu. Svo vilja ís-
lenzkir kommúnistar læða þeirri
skoðun inn hérlendis, að austur-
rísk æska sé ekki andvíg mótinu!
Hið fáránlegasta við mót þetta
er, að það á að vera „heimsmót
æsku og stúdenta í Vín“, en er
haldið gegn eindregnum vilja
æsku og stúdenta í gervöllu Aust-
urríki. Fyrirsvarsmenn festivals-
ins höfðu heldur ekki fyrir því að
ræða við fulltrúa austurrískrar
æsku eða stúdenta, þegar þeim
hugkvæmdist að halda það í Vín,
heldur sneru þeir sér beint til
ríkisstjórnarinnar, sem átti ó-
hægt um vik að banna mótshald-
ið í Austurríki vegna ákvæða
friðarsamninganna 1955.
Vitað er þó, að ríkisstjórnin
leyfði mótið hálfnauðug, og að
tveir ráðherranna, innanríkisráð
herrann úr flokki sósialista og
menntamálaráðherrann úr Þjóð-
flokknum, eru mótinu mjög and-
vígír.
Þjóðviljinn hélt þeirri firru
fram, að með því að hafna aðild
að festivalinu hefði ÆSÍ rofið
hlutleysisstefnu sína. Hitt er
rétt, að um freklegt hlutleysis-
brot hefði verið að ræða, ef ÆSÍ
hefði tekið þátt i móti, sem
æskulýðssamband viðkomandi
lands er andvígt eins og hér. er
um að ræða. Það er einnig liður
í blekkingum ísi. kommúnista,
þegar gefið er í skyn, að „austur-
rískir kaþólikkar" séu éinir um
mótspyrnu við féstivalið. í
Þjóðv. 2. apríl stendur t. d. um
afstöðu sr. Árelíusar Níelssonar
til mótsins innan ÆSÍ: „Það er
eftirtektarvert, að mótmælenda-
klerlturinn Árelíus Níelsson virð
ist hlynntari kaþólskum en evan
geliskum i þessu máli“. í fyrsta
lagi skal á það bent, að ekki er
óeðlilegt, að kaþólsk æskulýðs-
sambönd séu áberandi í Austur-
ríki, þar eð 89,6% þjóðarinnar
játa rómversk-kaþólska trú opin
berlega. í öðru lagi eru það ó-
sannindi, að „evangeliskir“ í
Austurríki hafi tekið jákvæða
eða hlutlausa afstöðu til mótsins,
því að æskulýðssamtök þeirra
(Evangelisches Jugendwerk Öst-
erreichs) eru innan vébanda
Æskulýðssamtaka Austurrikis,
skrifuðu undir yfirlýsingu þá, er
að framan greinir, pg taka þátt
í útgáfu blaðsins „Voice of
Youth“, sem stefnt er gegn haldi
festivalsins í Austurríki.
Þá reyna áróðurspennar komm
únista hérlendis að koma þeirri
skoðun inn meðal jafnaðar-
manna, að skoðanabræður þeirra
erlendis séu festivalinu ekki
andvígir. Þeir skulu þá minntir
á það, að Alþjóðasamband ungra
sósíalista (IUSY) gerði sam-
þykkt um það á þingi sínu í
Bombay 23. ág. sl., að „IUSY og
meðlimafélög þess munu ekki
taka þátt í 7. heimsmótinu í Vin
1959, vegna þess að heimsmótin
eru stöðugt tæki í höndum utan-
ríkisstefnu Sovétríkjanna". Þá
hafa æskulýðssamtök sósíalista
i Austurriki (sem eru einnig með
limir Æskulýðssambands Austur
ríkis) lýst yfir því, að þau ætli
að nota tækifærið á heimsmót-
inu og reka áróður fyrir „lýð-
ræðislegum sósíalisma“ meðal
væntanlegra þátttakenda. Hin
sömu hafa viðbrögð jafnaðax-
manna verið hvarvetna um heim,
og t. d. má geta þess, aö Sam-
band ungra sósíaldemókrata í
Danmörku rak nýlega einn fé-
laga sinn úr sambandinu, vegna
þess að hann hafði þegið sæti í
dönsku undirbúningsnefndinni.
Það er því eins ljóst og verða
má, að öll æskulýðssamtök í
Austurríki eru andsnúin mótinu,
nema hið kommúnistiska „Sam-
band lýðræðissinnaðra stúdenta",
öreind, sem telur um 130 með-
limi og FÖJ, sem telur um 2600
meðlimi. Samt ákvað miðstjórn-
arfundur austurríska kommún-
istaflokksins í janúar, að FÖJ
skyldi útvega 1000 þátttakendur
frá Austurríki.
Einnig hafa 11 æskulýðssam-
Framh. á bls. 17
Belvedere-höllin í Vín, þar sem gengið var frá friðarsamn-
samningum við Austurríki.