Morgunblaðið - 22.05.1959, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.05.1959, Blaðsíða 12
12 MonGuynr/AÐiÐ Fösíudagur 22. maí 1959 Utg.: H.f. Arvakur Reykjavllt. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Árni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Ask.riftargald kr 35,00 á mánuði innamands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. ÞAÐ, SEM UM VERÐUR KOSIÐ IKOSNINGUNUM 28. júní nk. verður fyrst óg fremst kosið um tvennt: V-stjórnina og kjördæmamálið. , Allir þrír V-stjórnarflokkarnir reyna nú hver með sínum hætti að skjóta sér undan syndabagga V-st j órnar innar. Alþýðuflokkurinn gerir sem mest úr verkum núverandi stjórn ar. í þeim málflutningi hættir lionum til að gleyma því, að efna hagráðstafanir nú eftir áramótin jvoru neyðarráðstafanir sem gera varð til bráðabirgða vegna úr- ræðaleysis og uppgjafar V-stjórn orinnar. Á þeim ófarnaði öllum ber Alþýðuflokkurinn ekki siður ábyrgð en hinir V-stjórnarflokk- arnir. Kommúnistar játa umsvifa- laust, að V-stjórnin hafi svikið mikið af loforðum sínum og þá einkum þait, er mestu máli skiptu. En þeir segja svikin alls ekki sér að kenna heldur ein- ungis þeim vondu flokkum, sem þeir hafi unnið með. Kommúnistar gera sem allra mest úr þeim sak- aráburði til að gera hlut fyrri samstarfsmanna sinna sem minnstan og eigin veg sem mest- an. Með setu sinni í ríkisstjórn- inni tóku þeir hins vegar sjálfir ábyrgð á öllu sem hún gerði og lét ógert. Eftir viðurkenndum þingræðisreglum er einá ~raðið fyrir ráð.herra til að firra sig ábyrgð á athöfnum eða athafea- leysi meðráðherra sinna og ríkis- stjórnar í heild að biðjast lausn- ar. Þetta gerðu kommúnistar ekki. Þvert á móti saka þeir bæði Framsókn og Alþýðuflokk um þau svik, að hafa slitið samstarf- inu að ástæðulausu. Allar skamm ir kommúnista um samstaxfs- menn þeirra í V-stjórninni bitna þess vegna á þeim sjálfum, því að þeir bera ábyrgð á vömmun- um ekki síður en hinir. , Framsóknarmenn segja, að ekki megi kjósa um neitt annað en kjördæmamálið. Óhugsanleg- ur var betri vitnisburður um skoðun þeirra á vinsældum V- stjórnarinnar og viðhorfi almenn ings til hegðunar Framsóknar- broddanna að undanförnu. Þetta er skiljanlegt. Ekki er lengra liðið en síðan í gær, að einn af kjósendum úr Suður- Múlasýslu hafði orð á því, hvern- ig Eysteinn Jónsson hefði á fund- um þar eystra fyrir síðustu kosn- ingar brýnt röddina og sagt með sterkustu orðum, að samvinna Framsóknar við kommúnista kæmi ekki til mála. Eftir kosn- ingarnar gaf Tíminn þá kaldrana legu skýringu á, að allar þessar yfirlýsingar Eysteins og annarra frambjóðenda Hræðslubandalags- ins hefðu verið að engu hafðar, að ella hefði sú hætta verið yfir- vofandi, að Framsókn missti af völdunum! Þau ósköp máttu með «ngu móti ske. Þá var betra að gera sig áð minni manni með auðvirðilegum svikum. Framhaldið varð eftir þessu. ■vik ofan á svik. Endaiok þess #vikaferils heyrðu menn í út- varpsiunræðunum á dögunum, þegar þeir Eysteinn Jónsson og Lúðvík Jósefsson, samþingis- i mennirnir úr Suður-Múlasýslu, kepptust frammi fyrir alþjóð að kenna hvor öðrum um svikin. Framsóknarmenn hyggjast nú dylja atferli sitt fyrir almenningi með því að kenna þeim, er tóku að sér að bjarga þjóðinni frá þrotabúi V-stjórnarinnar, um örðugleikana, sem því uppgjöri eru samfara. Auðvitað hefði verið æskilegra að komast hjá þeirri kjaraskerðingu, sem gera varð með stöðvunarlögunum í vetur. Og víst var erfitt að koma saman fjárlögum að þessu sinni. En allir þessir örðugleikar voru óhjá- kvæmilegar afleiðingar viðskiln- aðar V-stjórnarinnar. Framsóknarbroddarnir hafa sjálfir játað að í bjargráðin á sl. vori vantaði hiriár raunhæfu ráð- stafanir, sem urðu að fylgja, ef ekki átti að stefna í beint öng- þveiti. Þeir höfðu sjálfir ekki kjark til að gera tillögur um þessar ráðstafanir, hvorki til Al- þýðusambandsins né Alþingis ís- lendinga. í þess stað valdi Her- mann Jónasson þann kost, að hlaupa frá öllu saman hinn 4. desember með kveðjuorðunum: „Ný verðbólgualda er skollin yfir“. Gegn voðanum af þeirri verð- bólguöld :, kvað Hermann stjórn sína ekki geta komið sér saman um nein úrræði. Enginn sannaði í verki betur sanngildi þeirra uppgjafarorða Hermanns en Ey- steinn Jónsson. Hann hafði ekki einu sinni mannrænu til að leggja fyrir Alþingi, þegar það kom saman á sl. hausti, frv. til fjáriaga með því efni, sem stjóm- arskrá lýðveldisins segir að vera skuli í fjárlögum. Frumvarp Ey- steins var einskis verðar rytjur. Allur var þessi ferill og upp- gjöfin að lokum slík, að hinir seku mega með engu móti sleppa frá því að standa reikningsskap gerða sinna. Reikningsskilin eru óhjákvæmi leg. Einn þáttur þeirra er að búa svo um, að önnur eins ógæfa og viðundur V-stjórnarinnar geti ekki hent þjóðina á ný. Örugg- asta ráðið gegn því er að sam- þykkja kjördæmabreytinguna, sem Alþingi hefur nú gert. Ein meginástæða spillingarinnar að undanförnu er hin skakka mynd, sem Alþingi hefur verið af þjóð- arviljanum. Ofurveldi Framsókn ar á ríkan þátt í því, sem mis- farið hefur í íslenzkum stjórn- málum síðustu áratugina. Nú er færi á að leggja undir- stöðu hollari stjórnarhátta í fram tíðinni. Þegar Alþingi er orðin rétt mynd af vilja íslenzku þjóð- arinnar, á hún við sig eina um hvernig til tekst. Auðvitað verð- ur lengi sitt hvað. sem fer á annan veg en skyldi. £n engum, sem þekkir eðli íslendinga, bland ast hugur um, að þeim vegnar þá bezt, þegar ómengaður vilji sjálfra þeirra fær að ráða þeirra eigin málum. UTAN UR HEIMI Starf í 21 ár og 90 milljónir danskra króna — án árangurs Danska „oliuævintýrinu" lokib. — Ár- angurinn — ein mjólkurflaska af oliu! EINS og skýrt hefir verið frá í fréttum, hefir nú verið hætt leit eftir olíu í Danmörku. — Eftir 21 árs starf, hafandi fórnað til einskis meira en 90 milljónum danskra króna, hefir fílagið Danish Amercan Prospecting Company ákveð- ið að hætta starfsemi sinni. Raunar hafa Bandaríkjamenn irnir leyfi til þess að bora eitt ár enn eftir olíu á danskri grund — sérleyfi þeirra renn- ur ekki út fyrr en í júní 1960 — en þeir hafa í raun og veru hætt tilraunum sínum nú þegar, því að fullreynt þykir, að olía finnist alls ekki í Dan- mörku. Og þó, það er ekki fyllilega rétt — á þremur stöðum í landinu hafa fund- izt lítils háttar merki um olíu í jörðu, en alls staðar svo lítið, að ekki kom til mála að reyna að vinna hana. Vonin um, að olía kynni að finn- ast í Danmörku vaknaði fyrst ár- ið 1936, en þá stofnaði Banda- ríkjamaðurinn F. F. Rawlin Dan- ish American Prospecting Com- pany. — Við djúpborun í grennd við Harte hjá Kolding fann hann þunnt saltlag, og á grundvelli þess tókst honum að tryggja sér einkaleyfi um 50 ára skeið til leitar og vinnslu hráefna í jarð- lögum Danmerkur. — Skömmu síðar seldi Rawlin þó hlutabréf sín í Danish American Company til Gulf Refining Company, og Sumaitízkon Hvítur nælonsiumarkjóll með dökkum doppum, skreyttur svörtum satinborffa. Sérlega klæffilegur fyrir kornungar stúlkur. Olía fyrirfinnst engin í Dan- mörku. — Tími borturnanna er liðinn — og vonirnar brostnar ... enn nokkru síðar keypti Gulf Oil Corporation þau. ★ Fyrir um tíu árum gerðist svo það, að danska stjórnin taldi ástæðu til að ætla, að ekki hefði allt verið með feldu um saltfund þann, er varð grundvöllur þess, að áðurnefnt einkaleyfi var veitt, og voru sett ný lög um nýtingu hinna dýpri jarðlaga í Danmörku. — Með þessum lögum urðu all- miklar breytingar á hinu upp- haflegu einkaleyfi Danish American Prospecting Company, þannig að það náði hvorki til Grænlands né Færeyja, og und- anskildir voru demantar, kol og hvers kyns málmar. í lögum þess um segir einnig, að leyfið gangi úr gildi, ef ransóknir á vegum félagsins falli niður ákveðinn tíma, eða ef einhver atriði samn- ingsins séu brotin. Meðal annars er tekið fram, að Jarðfræðirann- sóknarstofnun Danmerkur skuil hafa frjálsar hendur um eftirlit með borununum. ★ Tvisvar á fyrrgreindu tímabili hafa borarnir verið stöðvaðar. f fyrra skiptið á árunum 1941—’46, vegna stríðsins, og aftur 1954— 1956, en þá hafði Gulf Oil Corp- oration misst áhugann á frekari olíuleit og selt öll hlutabréfin í félaginu til Standard Oil New Jersey — móðurfólags Esso-sam- steypunnar. Frá því 1938 til 1954 voru bor- aðar 18 „olíuholur", 40 sinnum var borað eftir salti og auk þess 87 holur til þess að rannsaka gerð hinna dýpri jarðlaga. — Danir bundu miklar vonir við þessar borunarframkvæmdir, og hefir verið sagt, að þeir hafi lang- tímum saman lifað í „olíuvímu". — Og enn minnast þeir, vons- viknir, fregna þeirra, er bárust frá borturninum í Tönder laug- ardaginn 26. janúar 1952: — Fyrsta olían fundin í Danmörku! Tilkynnigin var á rökum reist, en sá var bara galli á gjöf Njarð- ar, að olían, sem kom upp úr Tönder-holunni var ekki meira en svo, að hún komst fyrir í einni mjólkurflösku- — Og segja má, að þetta sé í fyrsta og síðasta sinn, sem olía hefir náðst úr danskri jörð. Að vísu hafa tvisvar að auki fundizt örlítið merki olíu — en samanlagt langtum minna en var í Tönder. ★ Þegar Gulf Oli Corporation hætti borunum árið 1954, hafði verið eytt um 70 milljónum d. kr. til þessara rannsókna. Svo kom Standard Oil til sögunnar. Nær allt árið 1957 fór til undirbún- ingsvinnu, en í desember það ár voru á ný hafnar djúpborarnir eftir olíu á danskri grund. Hafa síðan verið boraðar 10 holur. — Standard Oil flutti risavaxinn jarðbor frá Bandaríkjunum, sem auðveldlega átti að geta borað 4000 metra djúpar holur. Drif- kraftur borsins var 5 diesel- mótorar, hver 350 hestafla, og — til öryggis — voru hafðar til taks dælur, sem áttu að geta dælt 2800 lítrum af olíu á mín,- útu. — Allur þessi mikli útbúnaður var fluttur til Danmerkur á sér- stöku skipi, og til flutninga inn- anlands hefir ekki nægt minna en heil járnbrautarlest. Standard Oil var þegar í upp- hfi reiðubúið að veita 10 millj. d. kr. á ári til rannsókna Danish American Prospecting Company, og nú, þegar borunum er hætt, hefir félagið varið til þeirra 20 milljónum. Hafa því borarnir þær eftir olíu, sem gerðar hafa verið í Danmörku, kostað frá upphafi rúmlega 90 millj. kr. — Að meðaltali mun það hafa kost- að 25.000 kr. á dag að halda born- um í gangi, en þar við bætist all- ur lausakostnaður og ýmiss kon- ar aukaútgjöld vegna bilana og slits á tækjum. ★ En fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott. — Enda þótt Bandaríkjamennirnir hafi ekki riðið feitum hesti frá olíuborununum í Danmörku, hafa þessar tilraunir haft mikið gildi fyrir Dani. Eftir allar þær bor- anir, sem gerðar hafa verið, í hinni árangurslausu leit að olíu, hefir t.d. verið hægt að gera sér grein fyrir, hvar í landinu salt og kalí er helzt að finna, og er nú nokkuð unnið af því. Auk þess hafa fengizt margvíslegar mikil- verðar upplýsingar um jarðlögin, sem annars lægju ekki fyrir. ★ Þótt Bandaríkjamenn hafi þannig ekki fengið neitt fyrir núð sinn, verður að hafa það í huga, að tilraunin var á rökum þyggð — möguleikarnir voru fyr- ir hendi, eða svo mátti ætla. — í Þýzkalandi hefir t.d. iðulega fundizt olía við svipaðar aðstæð- ur og fyrir hendi eru í Danmörku — meira segja er nú unnin olía að vísu ekki í mjög stórum stíl ___ aðeins fáa kílómetra sunnan landamæra Danmerkur og Þýzka lands. En að hvaða gagni kemur það — olía fyrirfinnst engin í Dan- mörku. Þær vonir, sem kvikn- uðu í Harte, slokknuðu í Harre- sted, þar sem síðast var borað. — Draumarnir um „gull og græna skóga“ í mynd danskrar olíu eru að engu orðnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.