Morgunblaðið - 22.05.1959, Page 8

Morgunblaðið - 22.05.1959, Page 8
8 MORCVNfíl 4Ð1Ð Föstudagur 22. maí 1959 Bjami Ingimarsson skipstjóri Fimmtugur i dag Tíðum breiðum brims á grein byr þá reiða söng um. Fríðum skeiðum heldur heim hlöðnum veiðiföngum. Sig. Breiðfjörð r HANN er fæddur 22. maí 1909 og uppalinn í Fremri Hnífsdal við Isafjarðardjúp. Foreldrar hans voru Ingimar Bjarnason, skip- stjóri, og Halldóra Margrét Hall- dórsdóttir, sem bjuggu í Fremri Hnífsdal áratugi. Hnífsdalur er ekki stórt byggðarlag, en fá álíka byggðarlög á íslandi hafa fóstr- að jafnmarga skipstjórnarmenn á þessari öld. Togaraskipstjórar hafa verið þaðan margir og góð- ir. j Nokkru eftir 1930 var ég á gangi með öðrum togaraskip- stjóra, Ólafi Ófeigssyni. Hann sagði: „Þarna gengur Bjarni Ingi- marsson, frá Hnífsdal. Hann hefir verið háseti hjá mér, en er nú í Stýrimannaskólanum. Hann er víkingsefni. Sjáðu göngulagið". Jú satt var það. Bjarni læddist ekki áfram. Árin 1935—1940 var Bjarni Ingimarsson stýrimaður á B.v. Júpíter. Að segja, að hann hafi vprið ágætur stýrimaður, væri of láht að orði kveðið. Hann var frábær. Þar höfðu þó margir ver- ið góðir og meira en það. Skömmu eftir 1940 mætti ég þekktum rit- stjóra hér í höfuðstaðnum. Hann spurði: „Hver er skipstjóri á Júpíter?" Ég sagði: „Veizt þú hver er forsætisráðherra?" Þá hafði Bjarni Ingimarson sýnt, að óvíða mundi hans jafningi fást. Tugir manna telja sig geta gegnt hinu. Skipstjórn Bjarna Ingimars- sonar var óslitinn frægðarferill öll 7 árin, sem hann var skip- stjóri á Júpíter, og mörg met setti hann þá, þótt ekki verði rakið í þetta sinn. Þegar nýsköpunartogararnir voru smíðaðir var gott að leita álits Bjarna Ingimarssonar. B.v. Neptunus var fyrstur allra skipa til þess að fá hækkað skjólborð á framdekki. Næstur var B.v. Marz. Báðir með upphækkun aftur fyrir vant. Þetta reyndist svo vel, að upphækkun skjól- borðsins var lengd aftur að spili. B.v. Uranus var fyrsta skipið, sem við létum skjólborðið ná fullri hæð aftur að spili strax, enda var hann seinastur í smíð- Pussningasandur Vikursandur Gólíasandur RauðamÖl VIKURFÉLAGIÐ h.f. Sírri 10600. um. Þessi nýbreytni reyndist svo vel, að enginn togari þóttist mega án hennar vera. Næstu ár á eftir og allt fram á þennan dag hafa íslenzku togararnir fengið þessa endurbót. Skipasmíðastöðinni, sem byggði B.v. Neptunus fannst nokkurs um vert og gaf þessa breytingu-. Þ'etta er nú búið að láta á lang- samlega flesta íslenzku togarana. Síðast á einn Reykjavíkurtogar- ann í vetur og kostaði eitt hundr- að þúsund krónur. Fyrstir af út- lendingum, til þess að taka þetta eftir, voru Hellyer Bros í Hull, á B.v. Brutus, smíðaðan í Smiths Dock, og svo hver af öðrum. Togarasjómenn, sem unnið hafa á framdekki skipanna í ýmsum veðrum, kunna vel að meta þessa nýung og það er auðvitað aðal- atriðið. Á aðfangadag 1947, þegar B.v. Neptunus var fullsmíðaður og ferðbúinn frá Aberdeen til ís- lands, var Bjarni Ingimarsson kominn á fleytu, sem bar hann. Enginn togari var þá til stærri í Bretlandi og auðvitað ekki í Þýzkalandi, eins og á stóð. Hver túrinn rak annan og allir góðir. íslendingar hafa löngum verið samanburðar og kappsmenn og þá ekki sízt í sjávaríþróttum. ís- lenskur sjómaður hefir gert hreint fyrir sínum dyrum og sinnar stéttar svo ekki þarf um Afgreiðslumann vantar á bifreiðastöð fyrir langferðabíla. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „9007“. Skrifslofuslúlka getur fengið góða atvinnu nú þegar. Vinsamlegast seitdið tilboð til afgr. Mbl., merkt: „9009“. Höfum til sölu í dag De Sotó model 1947. Sanngjarnt verð. Góðir greiðslu- skilmálar gegn öruggri tryggingu. Bíllinn er í mjög góðu lagi. BlLASALAN Klapparstíg 37. að deila. Um það segir Dagbl. Vísir 10. maí 1948. — „Neptúnus setti heimsmet, segja brezk blöð. Samkvæmt skeyti til Vísis frá United Press telja Bretar Nep- túnus hafa sett heimsmet, er togarinn landaði 356 smálestum af fiski í Grimsby í s.l. viku. Var aflinn seldur fyrir 19.069 pund, eins og Vísir hefir áður skýrt frá. Brezka útvarpið og öll helztu blöð í Englandi og víðar í Evrópu hafa skýrt frá þessari glæsilegu sölu togarans, en hún er eins- dæmi. Aldrei fjvr hefir janfmik- ið fiskmagn komið úr togara og fengist eins hátt verð fyrir“. Ég hygg, að öllum þeim, sem fylgzt hafa með ferðalögum og staðarákvörðunum Bjarna Ingi- marssonar á sjó, beri saman um það, að þar standi honum, hvað glöggleika snertir og nákvæmni, engir framar. Þetta er djúpt tek- ið á árinni, en þó ekki of djúpt. Þetta er skjalfest og þarafleið- andi sannanlegt. Tilkynningar hans um komutíma til hafna eru óbrigðular, enda þótt löng leið sé ófarin. Tilkostnaður er annar þráður útgerðar, enda þótt misjafnlega sé gaumur gefinn. Sérstakur er Bjarni Ingimarsson með það að stilla öllum kostnaði við útgerð- ina í hóf. Ódýra tegund af veiða- færum hefir hann notað alla tíð. Sparsemi hans og nægjusemi á því sviði er viðbrugðið. Flottroll- ið, sem hann er höfundur að, býr hann til um borð í sínu skipi. Bjarni Ingimarsson lætur sér mjög annt um, að sá fiskur, sem veiðist á skipi hans, sé vel með farinn og vandaður. Gamla, góða skipshöfnin, sem var á Júpíter, fylgir honum á Neptunus. Hand- bragð þeirra manna á afla er við- urkennt utanlands og innan. Fáir hafa þar staðið jafnfætis og engir framar. Gott er að leita álits Bjarna Ingimarssonar um útgerðarmál og allt, sem að útgerð- lítur. Þar, sem í öðru er hann hollráður og framsýnn. Það hefir oft á það reynt undanfarin 24 ár. Enginn lifir á einu saman brauði, segir spakmælið. Fáir þurfa fremur hvíldar og upplyftingar en sá, sem er langdvölum á sjó. 31 ár á togurum hefir Bjarni Ingimars- son að baki. Undanfarin 6 sumur hefir hann brugðið sér að Vatns- dalsá við og við. Við laxveiði er Bjarni íþróttamður. Hefir það til að gera sínar flugur sjálfur. Hann er allra manna skemmti- legastur veiðifélagi, og kurteis veiðimaður. Bjarni kann vel við Vatnsdælinga. Skaplyndi þeirra stendur hann nær en múganrlenn. Bjarni Ingimarsson er gæfu- maður og sinnar gæfu smiður. Hann hlaut mikla hæfileika, sem har.n hefir notað til hins ýtrasta, sjálfum sér og öðrum til far- sældar. Þar hefir hann verið allra manna ósérhlífnastur. Hann hefir eignast dugmikla, myndarlega konu, Elísabetu Hjartardóttur, frá Hnífsdal, og sex börn, hvert öðru mennilegra og greindara. í hans hlut hefir faílið það, sem margir sækjast eftir, en fáum hlotnast, að vinna verk, sem metið að verðleikum, er á heimsmælikvarða. Á því af- reki er aðalsmerki sem einkennir æfistarf hans, að hafa ekki bak- að neinum manni tilkostnað, heldur að afla hvortveggja, fjár og frama. Tryggvi Ófeigsson. Afmæliskveója Klæðist þeir skarlati, skrúða, skikkjum, sem heimskinginn þráir. Hyllt skal nú hetjan sú prúða, sem hafguðinn virðir og dáir, drengskapur, dugur og snilli, djörfung, sá víðsýni andi, hugsun, er hnattanna milli hefst, nær þar eilífðar landi. Heill þér, sem hræðast ei kunnir, sem höndu á sveifina lagðir, skíni þér ársalir, unnir, akrar — þú baðst ekki — þagðir, framkvæmdir Föðurins vilja, Frelsarinn blessun þér veitir, afrekið æðst skal ei dylja, hans eigin veg blómum þú skreytir. Heill þeim, sem holskeflur kljúfa hafrót um koldimmar nætur. Fórnar sér lundin hin Ijúfa, líknandi barni, sem grætur. Víst má hér lærdóma lofa, list þá, er hugsvölun veitir. Einn kýs þá sælu að sofa, svefnvana glímuna þreytir. Heill þér í starfi, sem stríðir í stormum á sjó og á landi. Hylli þig lj óðskáld og lýðir, lýsi þér Heilagur Andi. Vizkunnar viti þér skíni um voga, hann ljómi við stafni. Konungur himins þig krýni í kærleikans gimsteinasafni. Sigfús Elíasson. Sigurður Z. Cuðmundsson — Minn'ng MIG setti hljóðan, er fregnin um hið sviplega fráfall Sigurðar, vinar míns, í Sokkabúðinni barst mér til eyrna. Hann hafði farið til vinnu sinnar að morgni, ár- risull að vanda, en fyrir hádegi sama dag var hann liðið lík, hné niður þar sem hann stóð. Hvílík úrskipti um svo hraustan mann og sporléttan sem hann var! Hann hafði að vísu kennt nokk- urs lasleika seinni part vetrar, en engan gat órað fyrir því, að endirinn væri svo nærri sem nú er raun á orðin. Nú verður hann í dag borinn til grafar. Sigurður var fæddur á Báreks- eyri á Álftanesi 27. okt. 1894 og var því á 65. ári, er hann lézt. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson bóndi og formað- ur á Bárekseyri og kona hans, Soffía Einarsdóttir frá Ráðagerði á Seltjarnarnesi Einarssonar, hálfsystir frú Margrétar Zoega veitingakonu og Sigríðar, móður frú Valgerðar í Miðdal í Mos- fellssveit. Þegar Sigurður var á 8. ári, fluttust foreldrar hans til Reykjavíkur og settust að við Vesturgötu 53 A. Hjá þeim átti hann heima og svo hjá móður sinni, eftir að hún varð ekkja, unz hann var orðinn uppkominn maður. Þar vestur við sjóinn, hjá Veiðikletti og Svartakletti, út á Granda og allt til Örfiriseyjar var æskuleikvöllur hans og jafn- aldra hans og félaga. Tryggð hans við æskustöðvarnar var líka meiri en orðin tóm. Sjaldan mun hafa liðið svo langur tími, að hann legði ekki leið sína þang- að vestur -ftir á hinum tíðu gönguferðum sínum í nágrenni bæjarins, settist á einhvern klett- inn við sjóinn, gamlan kunn- ingja, sem ekki hafði orðið at- hafnasemi nútímans að bráð, og nyti þar hins fagra og víða út- sýnis vestur yfir flóann. Síðasta kvöldið, sem hann lifði, ók hann út I Örfirisey og átti þar dvöl, meðan lággeng aftansól varpaði gullnum bjarma á vesturfjöllin, eins og hún hafði oftsinnis gert forðum daga. A slíkum stundum fannst mér Sigurður vera eðli sínu næst. Þá leyfði hann sér að varpa af sér hversdagshjúpnum. Sigurður hóf verzlunarstörf við Edinborgarverzlun 1911, en stundaði á næstu árum ýmsa aðra vinnu og var meðal annars sjómaður á Austfjörðum. Einnig aflaði hann sér nokkurrar mennt- unar í tímakennslu, því að um reglulega skólagöngu var ekki að ræða. Arið 1915 réðst hann í Vöruhúsið til Jensen Bjerg kaup- manns, og eftir það vann hann eingöngu að verzlunarstörfum til æviloka eða nær hálfan fimmta áratug. í Vöruhúsinu vann hann í 15 ár og var þá meðal annais verzlunarstjóri fyrir útibúi Vöru- hússins á Siglufirði í þrjú sumur. Árið 1925 var Sokkabúðin stofn- uð sem útibú frá Vöruhúsinu, en 1929 keypti Sigurður búðina og rak hana upp frá því með dugn- aði og forsjá eða í þrjá áratugi. Hann var mjög vel fær verzlun- armaður, áreiðanlegur í við- skiptum og reglusamur um fjár- reiður, lipur og fyrirgreiðslusam- ur við viðskiptamenn. Hafði hann i ríkum mæli þann eigin- leika góðra kaupmanna, að hann vildi ekki hafa annað á boðstól- um en góða og vandaða vöru, enda hafði hann mikla reynslu og þekkingu á því sviði. Munu þeir Reykvíkingar ekki margir vera, sem ekki hafa átt einhver viðskipti við Sigurð á hinum langa verzlunarferli hans. Aflaði hann sér í starfi sínu margra vina og kunningja og naut óskor- aðs trausts stéttarbræðra sinna Margir höfðu einnig góð kynni af Sigurði á öðrum vettvangi. Hann var lengi áhugasamur hestamaður og átti marga góð- hesta um dagana. Fór hann stundum í löng ferðalög á hest- um að sumarlagi og brá sér einnig tíðum á hestbak út úr bænum „með nesti við baggann og bikar með“, eins og skáldið sagði. Einnig var hann kunnur laxveiðimaður og dvaldist á hverju sumri nokkra daga í senn við einhverja laxá landsins- og undi þar vel hag sínum. Hann var alla tíð náttúruunnandi og elskaði hressandi útilíf. Eftir að hann fargaði hestum sínum, naut hann þess að fara í göngu- ferðir í eða út úr bænum. Var hann þá jafnan einn síns liðs og virtist löngum létt um sporið. í allri framgöngu var Sigurður frjálsmannlegur og hispurslaus og fór aldrei í launkofa með skoðanir sínar og álit á mönnum og málefnum. Á góðra vina fundum var hann glaður og mál- reitinn. Það duldist ekki þeim, sem þekktu hann, að hann var drengur góður, og ekki vissi eg til þess, að hann ætti neinn óvildarmann. Sigurður kvæntist 19. maí 1923 eftirlifandi konu sinni, Söru Þor- steinsdóttur bakara í Reykjavík Jónssonar. Er hún kunn merkis- og dugnaðarkona og var alla stund önnur hönd manns síns við verzlun þeirra, auk þess sem hún bjó manni sínum og börnum vist- legt og gott heimili. Þau eignuð- ust þrjú börn, dóttur, sem dó kornung, og tvo efnilega syni, sem nú eru báðir uppvaxmr menn og búsettir hér í Reykja- vík. Þeir eru Hafsteinn héraðs- dómslögmaður, kvæntur Láru Hansdóttur bakarameistara Eyj- ólfssonar, og Reynir fulltrúi, kvæntur Svölu Stefánsdóttur lyf- sala Thorarensen. Þessum ástvin- um hins látna sendi eg með þess- um fátæklegu línum einlæga samúðarkveðju mína og konu minnar. Sigurður Z. Guðmundsson var einn þeirra manna, sem settu svip sinn á þennan bæ. Þegar hann er horfinn af sjónarsvið- inu, finnst mér bærinn fátækari eftir. Guðni Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.