Morgunblaðið - 25.08.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.08.1959, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 25. ’ág'úsí 1959 VORCUISBLAÐIÐ 3 þott tækið bili á 30 metra dýpi Fyrsti froskmaðurinn til Austurlands Neskaupstað 22./8. 1959. í FYRRADAG kom hingað til Nes kaupstaðar hraðbáturinn Elding, sem er farkostur froskmannsins Hafsteins Jóhannssonar, Akra- nesi, og aðstoðarmanns hans Kristjáns Jónssonar, einnig á Akranesi. Hafsteinn hefur starf- að að froskköfun við síldveiðiflot ann í sumar, m. a. hér við Aust- urland. Er það í fyrsta skipti, sem slík starfsemi er framkværnd hér. Fréttaritari Morgunblaðsins hitti þá félaga að máli og bað þá segja eitthvað frá starfi sínu. Ef tækið bilar á 30 metra dýpi. Hafsteinn er 23 ára gamall Hann hefur mótoristaréttindi og var erlendis í þrjú ár, mest í Norge.i Var hann þar m. a. vél- stjóri á 3000 lesta flutningaskipi í eitt ár. Árið 1957 fór hann svo á námskeið í froskköfun hjá Falks Redningskorps í Oslo og útskrifaðist þaðan. Þar var þeim m. a. kennt, hvernig froskmaður bjargar sér upp á yfirborðið, þótt tæki hans bili á 30 metra dýpi, og hann fái ekkert loft frá því. Voru nemendurnir látnir æfa þetta, kafa niður og sleppa síð- an loftslöngunni. Fréttaritaran. skildist, að aðalatriðið sé að anda frá sér alla leiðina upp — og fara með sama hraða upp og loft'- bólurnar frá manninum. Að prófi loknu átti hann kost á því, að fá starf hjá hvalveiðimóðurskipi og dvelja 7—8 mánuði í Suðurhöfum fyrir árskaup. Keypti Heklu Flugfélagsins. Eftir heimkomuna starfaði Hafsteinn að ýmsum störfum við sjó, en nýlega keypti hann hrað- bátinn, sem Flugfélagið hafðr i Skerjafirði til að annast sjóflug- höfnina, meðan slíkt tíðkaðist ennþá. Hét hann Hekla, en heitir nú Elding AK—76 — því hanr. er skráður sem fiskiskip. Eld- ing hefur líka verið notuð sem fiskiskip, því í vor var Hafsteinn við annan mann á skaki á bátn- um. Telur hann bátinn vel fali- inn til handfæraveiða fyrir tvo. Hægt er að koma þrem lestum af fiski á hann. Elding er 42 fet að lengd og mælist rúmlest. í honum eru tvær Perpins-dísilvélar, hvor 110 hestöfl. Gefa þær bátnum 17—20 mílna ferð á % keyrslu, en há- markshraði mun vera 26 sjó- mílur. Hafsteinn þurfti lítið að breyta bátnum. Aðeins setja í hann tvær kojur og eldunartæki. Notar hann tveggja elda Kosangas-vél og hit- ar vistarverur bátsins einnig upp með hei.ni. Einnig fékk hann nýja talstöð og svo hefur hann auðvitað sett í hann útbúnað vegna froskköfunarinnar — aðal lega stór hylki með þrýstilofti. Elding er hið bezta sjóskip, en er mikil mótvindur er og sjó- gangur, getur orðið nauðsynlegt að andæfa, þá er betra að snúa skutnum í vindinn, því viðtökur bátsins eru miklu meiri að afc- an. Báturinn mun yfirleitt geta komizt leiðar sinnar, þegar síldar bátur með nótabát kemst klakk- laust. Hvernig er froskmaður búinn við köfun? Ekki kom til þess, að Hafsteinn Síldar vart nœr landi en að undanförnu UNDANFARIÐ hefur sú síld, sem veiðzt hefur, verið svo langt úti, að flestir munu hafa talið, að síldin væri komin of langt út og væri að hverfa. Eru fjölmarg- ir síldarbátar hættir veiðum. í gær varð vart síldar miklu nær, eða 20—30 sjómílur úti. Albert mun einnig hafa orðið síldar var á þeim slóðum, bæði á astik- tæki og einnig séð vaðandi söld. Voru nokkrir bátar að veiðum á þessum slóðum í gærkveldi. Frá Norðfirði NORÐFIRDI, 24. ágúst — Tvö skip eru búin að tilkynna komu sína hingað með síld í söltun, Helga og Áskell. Búið er að fá aftur tunnur hingað og verður saltað áfram, þegar síld berst. Hér eru fullar þrær þangað til á morgun og 15 skip bíða með 1500 mál í allt. Þau sem mest hafa, eru Frosti með 200 mál, Jón Trausti með 450; Guðmundur Þórðarson með 550; Fagriklett- ur með 150; Vörður með 200. í höfninni liggja 25—30 skip, sum með slatta og önnur tóm, en ófarin út. Á suhnudag var saltað úr þrem ur skipum, Goðaborg, Bergi og Þráni alls 130 tunnur. Á sunnu- dag og mánudag lönduðu þessi skip: Askur 250 mál. Víðir II. 350; Sigrún 300; Faxaborg 180; Bjarni Jóhannesson 250; Haf- björg 40; Ólafur Magnússon 640; Glófaxi 150; Gullfaxi 480; Sig- urður Bjarnason 500; Guðfinnur 330; Björgvin 300 og Páll Páls- son 600. Alls hefur síldarverksmiðjan á Norðfirði tekið við 60 þús. mál- um. — Fréttaritari. Frá Vopnafirði VOPNAFIRÐI, 24. ágúst — Hér hefur verið reitingslöndun und- anfarið. í síldarþrónum eru nú 10 þús. mál og rúm er fyrir 10 þús. mál til viðbótar. Verksmiðj- an bræðir 3000 mál á sólarhring, og hefur hún ekki alltaf haft nóg. Um helgina komu hingað upp undir 20 skip. Saltað var í 700— 800 tunnur. Skipin eru nú að byrja að tilkynna komu sína inn með söltunarhæfa síld. Snæfellið mun hafa orðið vart síldar nær landi en hún hefur verið að undanförnu. Einnig varð Albert var síldar, en þá voru flest skipin búin að kasta. Seinni hluta dags í dag var sæmilegt veður á miðunum. Listkynning Mbl. Hafsteinn Jóhannesson og Kristján Jónsson þyrfti að aðstoða skip hér í höfn inni. Það verður því að lýsa búningi hans eftir frásögn. Hann klæðist í tvær ullarpeys- ur og þykka ullarbrók. Utanyfir þetta er þétt gúm-brók, sem fell- ur v -.tnsþétt að hálsinum, en á fótum er sundfit. Yfir höfðinu er gúm-hetta, en andlitið er hert, nema gríma fyrir augum og- nefi. Á bakinu er hafður loftkútur og barki úr honum, sem öndunin fer fram um. Vegna þess, að Haf steinn er ekki búinn að fá sér lofthleðslutæki, þarf hann að hafa stóra loftkúta í bánum og slöngu úr þeim niður til sín..Hann hefur hug á því að fá sér slík tæki fyrir næsta sumar, því mun betra er að hafa loftkútinn á bakinu og losna við slönguna úr bátnum, auk þægindanna við að geta alltaf hlaðið kútana sjálfur. Ekki segir Hafsteinn, að sér verði yfirleitt kalt í sjónum, en það getur orðið kalt að koma upp úr. Til froskköfunar fóru — frá Akranesi , F , þann 20. júli. Hafsteinn og Kristján, aðstoð- armaður hans, seni er 17 ára, lögðu af stað frá Akranesi 20. júlí og sigldu í einum áfanga til Bolungarvíkur. Gekk ferðin vel og fór Elding með að meðaltali 16 mílna hraða alla leiðina. Það- an héldu þeir til Siglufjarðar. Síðan hafa þeir komið til Rauf- arhafnar, Vopnafjarðar, Seyðis- fjarðar og nú síðast hingað til Neskaupstaðar. Á þessum tíma hafa þeir veitt 28 skipum aðstoð, stundum á höfnum inni, en oftar utan hafna. Algengast er tjónið þannig, að nót eða dráttartaug fer í skrúf- una, en einnig eru ýmsar skemmd ir í sambandi við Asdictæki al- gengaar. Hafsteini hefir líkað mjög vel að vinna fyrir sjómennina, og hefur honum virzt þeir þakklátir fyrir hjálpina. Enda hefur hún oft sparað skipum mikla töf og óþægindi — kostnað. Fara kringum landið. Frá Neskaupstað ætla þeir að sigla til Hornafjarðar, sem er um 5 tíma ferð í sæmilegu veðri. Þaðan leggja þeir í lengsta hafn lausa áfangann til Vestmanna- eyja. Er það 150 sjómílna leið eða um 9 tíma ferð fyrir Eldingu. — Loks er ætlunín að ljúka hringn- um kringum landið og fara frá Vestmannaeyjum heim til Akra- ness. Allir strákar vilja verða froskmenn — og eiga hraðbát. Áður en þeir félagar lögðu aí stað til Hornafjarðar í morgun, fóru þeir tvær stuttar ferðir um höfnlha. Eldihg skauzt með 13 mílna hraða eftir sléttum haf- fletinum á Norðfirði, markaði djúpt kjölfar og ýfði sjóinn við bryggjurnar. Báturinn hallaðist varla, þótt tekin væri sköiþ beygja á fullri ferð. Fullvíst má telja, að margir drengir og unglingar hafi fylgz með ferðinni með athygli. Einn þeirra komst með þeim í ferðina. Áreiðanlega eru það nú margir strákar í Neskaupstað, sem „ætla að verða froskmenn og eiga hrað bát, þegar þeir eru orðnir stórir — ekki sízt hann Baddi í Stein- inum, sem komst með í hraðbáts- ferðina, en pabbi hans er líka skipasmiður. — A. Th. SAS umsvifamildð í flugmálum Thailands STOKKHÓLMI, 24. ágúst. NTB- TT. — í dag var undirritaður í Bangkok samningur um nána tæknilega og efnahagslega sam- vinnu SAS-flugfélagsins og „Thai Airways Company“ í Thai lahdi. í ráði er áð stofna nýtt fé- lag „Thai Airways Inter- national", sem á að halda uppi flugferðum milli Thailands og annarra landa. SAS mun eiga ákveðið magn af hlutabréfum hins nýja félags og mun fyrst um sinn veita því ' • iknilega að- stoð og hafa hönd í bagga með rekstri þess. SAS mun láta hinu nýja félagi í té flugvélar af gerð inni DC-6 og DC-6D, og flug menn frá Norðurlöndum munu verða staðsettir í Bangkok ásamt ýmsu öðru starfsfólki sem ‘nauð- synlegt er við rekstur flug stöðva. SAS mun einnig taka að sér þjálfun innlendra flug- manna. Loks hefur SAS séð um sölu á þremur Lockheed-flugvél- um fyrir flugfélagið í Thailandi, og voru þær seldar til Mexíkó. Bifreið ók út af ó Kjnlarnesi Tveir menn meiddust''------ UM 7 leytið á sunnudagsmorg- un ók bíll út af veginum skammt frá Móum á Kjalarnesi, með þeim afleiðingum að tveir menn af fjórum, sem í bifreiðinni voru meiddust. Bifreiðin, sem er Skodabifreið, var að koma ofan úr Borgar- firði. Er hún kom að beygjunni fyrir sunnan 'Móa, þar sem veg- urinn liggur upp á melinn, áður en beygt er niður í Kollafjörð, lenti hún í lausamöl á hægri veg- arbrún og missti bifreiðastjórinn Þórður Eiríksson, stjórn á henni. Rann bifreiðin út af veginum, fór eina veltu og lagðist saman. Er hún mjög illa farin. Svo vel vildi til, að í bílnum, sem að kom var Gunnlaugur Snædal, læknir. Gerði hann að sárum mannanna og biðu þeir síðan heima á Móum, unz sjúkra- bifreið sótti þá. Var annar meidd ur á höfði, en hinn á höndum. Er það einstök mildi að ekki skyldi verða meira slys af. í SÝNINGARGLUGGA Morg- unblaðsins eru nú 14 vatnslita- myndir eftir ungan, danskan málara, Johannes Obel. Sjö myndanna eru málaðar á Sikil- ey, en þaðan kom listamaðurinn er hann kom hingað fyrir tveim- ur mánuðum. Síðan hefur hann ferðazt um laiidið, og eru hinar myndirnar sjö málaðar á ýmsum stöðum á íslandi, við Mývatn, í Hveragerði og víðar. En tilgang- ur málarans með íslandsferðinni var einmitt að reyna að sameina áhrifin af litum og landslagi svo langt norðurfrá þeim áhrifum, sem- hann hefur orðið fyrir í Suðurlöndum. Johannes Obel er 27 ára gam- all. Hann stundaði nám við Listaháskólann í Kaupmanna- höfn, hjá próf. Svedmann, og síð- an framhaldsnám í Lissabon í tvö ár. Auk þess hefur hann ferð- azt mikið um Evrópu, mest um Frakkland, Spán og Ítalíu. Þó ungur sé að árum, hefur Obel haldið 12 sjálfstæðar mál- verkasýningar, og hlotið ágæta dóma. I október heldur hann sýn- ingu í Aarhus í Danmörku, en þar hefur hann sýnt áður, og verða á þeirri sýningu myndir, sem hann hefur gert hér. Auk þess hefur honum verið boðið að taka þátt í sýningu ungra lista- manna frá nokkrum löndum Ev- rópu í Listaskólanum í Hague í haust, og fara þangað fjórar stórar myndir eftir hann. Myndirnar í Morgunblaðs- glugganum eru til sölu, utan ein, ^sem þegar er seld. Johannes Obel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.